Morgunblaðið - 10.02.1991, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1991
25
Frá innstu hjartarótum
____________Bækur__________________
Kjartan Árnason
Aðalheiður Sigurbjörnsdóttir: Sil-
furstrá. Ljóð, 64 bls. Skákprent
1990.
Þessi fyrsta bók Aðalheiðar hefur
að geyma afar blendnar tilfinningar.
Gleði, sorg, söknuður, beiskja, reiði
eru allt kenndir sem skynja má í ljóð-
unum, stundum duldar, stundum
óbeislaðar. Á einum stað er ljóðið
Nýr dagur:
Morgunverk þitt
að anda
að þér
dögg
hugleiðinp
um ljóð
bera græðandi
ilmolíu náttúrunnar
á sár
gærdagsins
í fáeinum ljóðum fjallar Aðalheið-
ur um Ijóðið og glímu skáldsins við
það; í Ánauð segir um þessi átök:
... í pollum sigla/ heilabrot/
splundraðar setningar// tilfinning-
Aðalheiður Sigurbjörnsdóttir
ar/ standa þar/ á litlum skeijum“.
„Þau koma tiplandi/ á tátiljum
sínum/ mjúklega / ... /“, er sagt um
orðin í Viðris munstrandar mar.
Það er allóvenjulegt að höfundur
leyfi tilfinningum sínum að koma
jafn berlega fram og Aðalheiður
gerir í Silfurstráum. Þetta ber að
mínum dómi vott um heiðarleika af
höfundarins hálfu, ekki síst í eigin
garð. Þó verður að játast að stundum
kemur þessi hreinskilni nokkuð niðrá
ljóðrænum dráttum ljóðanna, sem
verða þá meira einsog ákall eða hróp
en tilfinning í skáldlegum búningi:
„/ ... / og ekkert verður eftir/ nema
þrælslundin/ sem þróast í vinnu-
gleði/ a ... aaa ... AA ... AAAAAAA/
AFLEIÐING/ að ég er/ barnlaus
móðir“. Ekki þar fyrir að kenndin
er nógu raunveruleg — hún verður
að fá útrás — og snertir mann þess
vegna, en búningurinn getur vart
talist ljóðrænn og gefur því tilfinn-
ingunni afar hijúfan blæ.
Og hijúfleika er reyndar víðar að
finna í þessari bók, bæði í orðfæri
og myndmáli. Þetta er ekki sagt til
lasts — eitt er að vera hrjúfur og
annað að vera ruddalegur, og rudda-
skap er ekki að finna í þessum ljóð-
um; hijúfleiki þeirra er oft heillandi,
einkum í myndsköpun: „þú/ situr á
þind minni/ í stífum gallabuxum/
og reimalausir skórnir/ dingla utan
í þörmunum“, segir í ástarljóðinu
Djúpristu. Annars er myndmál oft
óvænt og jafnvel voldugt: „risavax-
inn fótur/ af himnum ofan/ klauf
húsþak mitt// þeytti mér um koll//
og traðkaði", er sagt um fregn sem
skáldinu berst, líklega andlátsfregn
æskuvinar/unnusta.
Einsog áður getur er Siifurstrá
bók mikilia tilfinninga og heitra.
Hinsvegar er ljóðrænni úrvinnslu og
framsetningu þessara oft og tíðum
ólmu kennda stundum nokkuð
ábótavant, beiskjutónninn of hrár
og fráhrindandi (Þið hin, Sorgarvið-
brögð), málfarslegt samhengi full
laust í reipum til að lesandi sjái til
botns (Sýn) eða einsog ljóðið sé ekki
fullunnið (Barnlaus móðir), svo fáein
dæmi séu nefnd.
Ljóðið er fyrst og fremst miðill
tilfinninga og stemmninga. Það er
vitanlega ekki sama hvernig þessum
viðkvæmu viðfangsefnum er miðlað.
Aðalheiður sýnir marga góða takta
og er áræðið skáld einsog myndsköp-
un hennar sýnir. En ég er sannfærð-
ur um að það yrði ljóðum hennar
ávinningur að gefa tilfinningunum
meiri tíma, vinna ljóðin meira. Nógu
eru kenndirnar sannar — og stríðar.
Austurlenskir silkiblævængir
Fyrsta sending nýkomin.
Vikutilboð á heildsöluverói, frá 9.-1 3. febrúar.
Tæís
sími 626002.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF
HAFNARSTRÆTI 7. 101 REYKJAVÍK, S. (91) 28566
KRINGLUNNI 8-12,103 REYKJAVÍK, S. (91) 689700
RÁÐHÚSTORGI 3, 600 AKUREYRI S. (96) 11100
Með Lífsvemd slærð þú tvær flugur í einu höggi. Þú getur
hlíft ástvinum þínum við fjárhagslegum skakkaföllum, en
um leið ávaxtað þitt pund og safhað í varasjóð sem getur
komið að drjúgum noturn síðar á lífsleiðinni. Því Lífsvernd
er hvort tveggja líftrygging og henmg leið til spamaðar.
Þú kýst þér líftryggingu sem nemur þrernur
milljónum króna, svo dæmi sé
tekið. Sú upphæð óskert
getur tryggt fjárhagsafkomu
ástvina þinna við fráfali þitt.
Jafhframt sparar þú ákveðna
fjárhæð í hverjum mánuði. Tíminn vinnur með þér og
kftryggingin lækkar með hverju ári en að sama skapi vex
sjóðurinn þinn og dafnar.
Að endingu áttu auk verðbóta þrjár milljónir í
handraðanum, lífeyri sem þú getur sjálf ráðstafað að vild.
FramU'ðin er í þínum höndum. Ávinningurinn er
öryggi, þitt eigið og þinna nánustu.
Eignaraðilar Sameinaða líftryggingarfélagsins eru:
©
TRYGGINGAMIÐSTOÐIN HE
AÐALSTRÆTI 6 101 REYKJAVlK SiMI 91-26466
SJOVAOOALIVIENNAR
Kringlunni 5, aími 91-692500
__ UFSVERND
- LÍrmYGGING FYRIR ÁSTVIM ÞLNA,
LÍFEYRIR FYRIR ÞIG
X^ÍF
Sameinaða
líftryggingarfélagið hf
Kringlunni 5 • 103 Reykj.w'k
Sími 91-692500