Alþýðublaðið - 08.02.1959, Blaðsíða 1
40. árg. — Sunnwdagur 8. febrúar 1959
í GÆRDAG var kveðinn npp dómur í máli Ro
lands Pretious, skipstjóra á togaranum Valafelli. —
Var hann sekur fundinn um landhelgisbrot og dæmd
ur í 74 þós. króna sekt til Landhelgissjóðs Jslands.
I
| Dæmdur fyrir vís-|
| viiandi veiðar j
innan 12 mílna. I
Það vakti atfaygli þeirra, sem
viðstaildir voru réttarliöldin á
Seyðisíirði, að skipstjórinn á
brezka togaranum var dæmdur
fyrir óiögiegar veiðar innan 12
nnlna flskveiðilögsögunnar.
Málaferlin daginn áður höfðu
snúizt mikið uni það, hvort
skipstjórinn hafi vitað, að hann
væri innan 4 miílna.
Skipstjórinn hélt því fram að
haiíin héfði ekki vitað það, en
isagðist hafa álitið si-g 7,5 sjó-
rriílur t’rá landi.
Við dómsuppsögn sagði bæj-
arfógetinn að það skipti ekki
'máli, hvoi’t skipstjórinn hafi
Vitað að hamn væri innan 4
mílnanna, því hann hafi lýst
því yfir, að hann hefði vísvit-
andi verið að veiðum 7,5 mílur
frá landi.
í gærmorgun kl. 11.40
réttur settur að nýju í bæjar-
fógetaski-ifstofunni á Seyðis^
firði í máli Rolands Pretious
skipstjórans á brezka togaran-
um Valafell, sem ákærðuf var
fyrir landhelgisbrot.
Lesið var upp af bæjarfóget-
anum, Erlendi Björnssyni, á-
kæruskjal ákæfuvaldsins gegn
honum.
Auk þess var lesið upp skeyti
frá brezkum yfirvöldum, sem
skýrði frá því, að R.
hefði ekki verið dæmdur áður.
Ottó Jónsson, dómtúlkur.
þýddi fyrir skipstjóra það sem
fram hafði farið. Var síðan
rétti slitið til þess að verjandi
skipstjóra, Gísli ísleifsson, hdl.,
gæti undirbúið vörn sína.
Rétturinn var síðan settur að
nýju kl. 1.10 e.h. Fór þá verj-
andi skipstjórans fram á, að
skipstjórinn, sem var þar mætt
ur, þyrfti ekki að vera viðstadd
ur réttarhöldin.
Var skipstjórinn mjög illa
haldinn. Hafði hann hvorki
getað sofið x fimm sólarhringa
né haldið niðri mat allan þann
tíma. Að fengnu leyfi var skip-
stjórinn fluttur á sjúkrahús,
og kom þá í ljós, að hann þjáð-
ist af magabólgu.
Gísli ísleifsson flutti síoan
vörn sína, og krafðist m.a. þess,
að skipstjórinn yrði sýknaður
af ákærunni, þar eð alþjóðalög
dðurkenndu ekki 12 mílna
fiskveiðilögsögu.
Fram'hald á 2. síðu.
EFRÍ myndin er af skb-’st'*'**...
um á Valafelli (í miðju), Pétri
Blöndal, umhoðsmanni brezk,.
útgerðarm. á Seyðisfirði (i'
vijfstri) og Geir Zoega, ur.s
boðsm. brezkra togaraeigend-
á íslandi (til hægri). Neðri
myndii! er af Valafelli. I hrúnr i
ru lögi’egluþjónar á verði. —
I.itía myndin er af skipstjóran-
úm er hann fer um borð í Þór
á leið til réttarhaldanna.
FSeiri myndlr
i Siaksíiu.
II auhi sférfé vegna