Morgunblaðið - 16.04.1991, Side 3

Morgunblaðið - 16.04.1991, Side 3
B 3 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1991 „Erum búnir að vinna fyrir þessu“ - sagði HaukurValtýssonfyrirliði KAeft- ir að lið hans varð bikarmeistari KA, sem varð íslandsmeistari í blaki á dögunum, varð einnig bikarmeistari — er liðið sigraði HK í úrslitaleik bikarkeppninn- ar á laugardaginn. Þetta var þriðja atlaga KA að bikarnum en liðið sigraði með þremur hrinum gegn engri, 15-5,17-15, 15-3. Þetta er í fyrsta skipti sem KA-menn vinna tvöfalt. Það var greinilegt strax í upp- hafi leiks að nokkurrar tauga- spennu gætti og þá einna helst HK-megin. KA-menn tóku leikinn ^■■■H strax í sínar hendur GuðmundurH. 0g í fyrstu hrinu Þorsteinsson komust þeir í 7-0 án skrifar þesg ag HK-mönn- um tækist að svara fyrir sig. HK-liðið virkaði frekari taugaslappt til að byrja með og gerði nokkuð af ódýrum mistökum sem KA-menn nýttu til fullnustu. Eftir þessa hroðalegu bytjun náðu HK-piltarnir að klóra í bak- kann undir lokin en þá of seint, 15-5 sigur KA varð staðreynd. HK-liðið hresstist til muna í annarri hrinu og sýndi þá nokkuð góðan leik,. HK hafði forystu allt frá upphafi og’liðið var með pál- mann í höndunum þegar staðan 'var 14-11. En það var eins og HK væri fyrirmunað að vinna hrinuna, leikmenn liðsins áttu tvívegis mögu- leika á að ná í fimmtánda stigið í stöðunni 14-11, en í stað þess að klára dæmið þá gengu KA-menn á Iagið og höluðu inn næstu sex stig og sigruðu 17-15. HK-menn sátu eftir með sárt ennið, því sigur í þessari hrinu hefði án efa getað breytt miklu fyrir framhaldið, og í stað þess að standa jafnfætis KA- mönnum féll leikur liðsins algjör- lega saman. Liðið náði sér ekki á strik eftir það og KA-menn sigruðu örugglega í þriðju hrinunni, 15-3, á aðeins 18 mínútum. KA-liðið var mun betra í leiknum og leikur liðs- ins var mun heilsteyptari en HK- liðsins. Móttaka HK-liðsins var hvorki fugl né fiskur i leiknum og uppspilarinn Guðbergur E. Eyjólfs- son þurfti að vinna úr mjög erfiðum boltum hvað eftir annað. Sóknar aðgerðir HK urðu því aldrei nægi- legar beittar og helsta vopn liðsins „snöggu sóknirnar" gengu ekki nægilega vel. KA-liðið átti þokka- legan dag og stóðu flestir fyrir sínu en hjá HK átti liðið á brattan að sækja enda flestir leikmenn liðsins ungir að árum og vantar meiri reynslu. „Móttakan var ömurleg" Guðbergur E. Eyjólfsson, fyiirliði HK, sagði að móttakan hjá liðinu hefði verið ömurleg í leiknum. „Ég fékk ekki nægilega gott framspil því móttakan var svo léleg hjá okk- ur. Það var líka sárt að klikka í tveimur uppgjöfum í annarri hrinu þegar staðan var 14-11 okkur í hag. Ég er alveg sáttur við að hafa tapað leiknum en hefði þó viljað sigra í tveimur hrinum, ekki tapa svona illa.“ Liðið lék vel í dag Fei hinn kínverski þjálfari KA- manna sló á létta strengi og sagði að leikmenn liðsins hefðu leikið svo vel að hann hefði ekki komist inn á. „Ég hélt ég myndi þurfa að leika en þeir léku svo vel að ég gat bara setið á bekknum og slappað af.“ Annars sagði Fei að liðið hefði leik- ið mjög taktískt til þess að reyna að brjóta niður snögga spilið hjá HK og það hefði tekist „því móttak- an hjá HK gekk illa og gerði okkur mun betur kleift að eiga við þá.“ Víkingsstúlkur sigr- uðu annað árið í röd Haukur Ualtýsson, fyrirliði KA-liðsins, hampar bikamum á sunnudaginn. o KVENNALIÐ Víkings sigraði tvöfalt íár. Víkingsstúlkurnar sigr- uðu UBK í þremur hrin- um gegn einni, 15-13, 6-15,15-6,15-12, íúr- slitaleik bikarkeppninn- ará sunnudag. Þetta var annað árið í röð sem UBK verður að láta i minni pokann gegn Víkingi. Það var nokkurt jafn- ræði með liðunum í fyrstu hrinu og úrslitin réð- ust ekki fyrr en undir lokin eftir að UBK jafnaði 13-13, en Víkingsstúlkurnar skor- uðu síðustu tvö stigin og sigurinn varð þeirra í hrin- unni. UBK stúlkurnar mættu síðan harðákveðnar til leiks og höfðu forystu i annari hrinu frá upphafi og sjá mátti tölur eins og 6-1 og 11-3. Það var eins og ákveðið kæruleysi hefði gripið um sig hjá Víkings- stúlkunum en þær náðu aldrei að ógna öruggum sigri UBK í hrinunni. Þjálf- ari Víkingsstúlknanna messaði rækilega yfír liði sínu fyrir þriðju hrinu og það virtist bera tilætlaðan árangur því allt annað var að sjá til liðsins. Liðið spil- aði vel bæði i vörn og sókn og uppskar 15-6 sigur í þriðju hrinu á meðan fátt gekk upp hjá UBK. Fjórða hrinan var í miklu jafnvægi framán af en Víkingstúlkurnar komust þó í 11-8 en þá tók UBK leikhlé og það virtist stappa stálinu í UBK stúlkurnar en þær jöfnuðu 11-11 og spennan var í hámarki. Þá fór Víkingsliðið af stað aft- ur og náði að sigra 15-12 eftir að hafa hikstað örlítið á tímabili. Hjá Víkingi bar mest á Særúnu Jóhanns- dóttur en hjá UBK Oddnýju Erlendsdóttur. Mjög spenntur Geir Hlöðversson þjálf- ari Víkingsstúlknanna sagði að liðið hefði ekki leikið. „Þær voru eitthvað stressaðar, léku þó vel í fyrstu hrinu en svo datt leikur þeirra niður en þær náðu sér svo aftur á strik seinnipait þriðju hrinu og út flórðu hrinu. Ég var orð- inn mjög spenntur þegar UBK jafnaði í fjórðu hrinu en hafði allan tímann trú á mínum leikmönnum enda eru þeir sterkir." Jóhanna Kristjánsdótt- ir, fyrirliði Víkings, sagði að Víkingsliðið væri betra, en UBK og hefði átt skilið að vinna. Jóhanna sagði að hún hefði orðið stressuð þegar UBK jafnaði í fjórðu hrinu og þá hefði hún farið að hugsa sinn gang. „Sæ- rún Jóhannsdóttir sýndi það og sannaði í dag að hún er besti leikmaðurinn í 1. deild kvenna,“ sagði l^hanna.^ð.lpÉt Jóhann Kristjánsdóttir, fyrirliði Víkings, með bikar- inn, eftiij fiigur^ liðsip.á.UBK. ,, . ;iaT Jiuvau.gÍK BADMINTON Alþjóðlegt mót í Hollandi: íslending- arnir ekki í 2. umferð Broddi Kristjánsson, Guð- mundur Adolfsson og Ámi Þór Hallgrímsson tóku þátt í al- þjóðlegumóti í badminton í Gron- ingen í Hollandi um helgina. Þeir voru allir slegnir út í 1. umferð. Broddi komst beint í aðalkeppn- ina og tapaði naumlega fyrir Overbæk frá Danmörku, 5:15, 15:10 og 9:15. Árni Þór og Broddi mættu Bengtsson og Stenström frá Svíþjóð í undanrásum í tvíliða- leik og unnu, 15:12 og 15:9. Síðan mættu þeir Pelupussy og Stalen- hof frá Hollandi og töpuðu 13:15, 11:15. Ámi Þór keppti fyrst í undanr- ásum og vann þá Hellings frá Hollandi, 18:17 og 15:4 og síðan Danann, Moestrup, 15:10 og 15:4. Hann tapaði síðan í 1. umferð fyrir Daham frá Hollandi, 9:15 .jogiáblg. oiv Hignuas »uuu« ux -..rrff-wiáw) rri'i'.m1!! ón'i it!í'i'.u.íi.i Broddi Kristjánsson. Guðmundur tapaði fyrir Micha- el Redekker frá Hollandi í undanr- ásum, 5:15 og 12:15. Guðmundur lék síðan með Tékkanum Tomasz Mendrek í tvíliðaleik. Þeir sigraðu Lundström og Redekker frá Holl- andi, 11:15, 15:3 og 15.12 og síðan Olsen og Svensson frá Svíþjóð, 10:15, 15:5 og 15:11. í 3. umferð undarása töpuðu þeir fýrir Koch og Koch frá Hollandi, 6glöiiogo6:15jingiyrtiujfi i 'iu‘t-,- u

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.