Morgunblaðið - 16.04.1991, Síða 9

Morgunblaðið - 16.04.1991, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1991 B 9 Besta auka- spyma í sögu keppninnar - sagði Teriy Venables um mark Pauls Gascoignes úr aukaspyrnu gegn Arsenal „ÞETTA var glæsilegasta aukaspyrna í sögu bikarkeppninnar. Að ná slíku bogaskoti með þessari nákvæmni og krafti er ein- stakt, sérstaklega af svo löngu færi. Gascoigne er ákaflega sér- stakur maður með sérstaka hæfileika. Enginn annar en hann hefði getað gert svona mark,“ sagði T erry Venables, stjóri T ott- enham, eftir að lið hans hafði sigrað Arsenal 3:1 í undanúfslitum ensku bikarkeppninnar á sunnudag — en Gascoigne gerði fyrsta mark leiksins beint úr aukaspyrnu af rúmlega 30 m færi eftir aðeins fimm mín. leik. KMATTSPYRMA / ÉMGLAMD Paul Gascoigne átti stórleik gegn Arsenal og sýndi á eftirminnilegan hátt hversu mikilvægur hlekkur hann er í Tottenham-keðjunni. Lékfyrirafa Afi Pauls Gascoignes lést á fimmtudag. Þeir voru mjög nánir, og sagðist „Gassi“ hafa leikið fyrir hann á sunnudag, er Tottenham mætti Arsenal á Wembley. „Pabbi bað mig um að spila fyrir afa í dag, og nú hef ég gert það,“ sagði hann eftir leikinn. Aðeins 34 dagar voru liðnir á sunnudag frá því Gas- coigne var skorinn upp vegna meiðsla í magavöðvum. Fyrsti leikur hans með Tottenham að nýju var um fyrri helgi í deildinni og þótti hann þá heldur slakur, en kappinn fór á kostum á sunnudag. En hann var svo taugaóstyrkur fyrir leikinn að tvívegis þurfti að gefa honum róandi! „Ég bjóst alls ekki við að Gascoigne tækist að skora af svo löngu færi,“ sagði George Graham, stjóri Arsenal, um mark stráksins af 30 m færi. „En úr því svona fór vona ég að Tottenham vinni bikarinn. Við vorum algjörlega yfirspil- aðir fyrstu 20 mínúturnar." Ótrúlegt á Elland LIVERPOOL saxaði á forskot Arsenal í ensku 1. deildinni með sigri á Leeds, 5:4, í ótrú- legum leik á Elland Road í Leeds. Arsenal hefur þó enn örugga forystu. Leikmenn Liverpool, með John Barnes fremstan í flokki, léku andstæðinga sína í Leeds grátt fyr- ir hlé og skoruðu íjórum sinnum. Heimamönnum tókst hins vegar hið ótrúlega, að skora jafn oft í síðari hálfleik. En þá gerði Barnes einnig |mark og það dugði til sigurs. Lee Chapman skoraði þrívegis fyrir Leeds og er því enn marka- hæstur í deildinni. Barnes, besti maður vallarins, skoraði tvö fyrir Liverpool. Sheffield United fer hamförum þessa dagana. Liðið, sem ekki tókst að sigra í fyrstu 16 deildarleikjum vetrarins og allir höfðu dæmt niður í 2. deild, sigraði QPR á útivelli á laugardag og kraftaverk þarf til að Sunderland bjargi sér á kostnað Sheffield-liðsins. United þarf að tapa öllum fjórum leikjum sínum og Sunderland að vinna sína fjóra. „Ég held við séum öruggir," sagði Dave Bassett, stjóri United, eftir sigurinn á Loftus Road. QPR hafði ekki tapað í ellefu leikjum og möguleikar Sheffield virtust minnka er framheijinn Carl Brads- haw var borinn af velli á 13. mín. En liðið tók þó fljótlega forystuna, Rangers jafnaði rétt fyrir hlé en Bob Booker gerði sigurmarkið með skalla fimm mín. fyrir leikslok. Hann er 33 ára, kom frá Brentford fyrir tveimur árum fyrir ekki neitt og hafði alið manninn í neðri deild- unum allan sinn feril. Utlitið er ekki eins gott hjá Derby. Liðið tapaði í 19. skipti á Það verða Tottenham og Nott- ingham Forest mætast í úrslit- um bikai'keppninnar á Wembley t8. maí. Forest burstaði West Ham 4:0 á Villa Park á Frá Bob sunnudag. Hennessy Leikmenn Arsen- /Englandi al, gem eru efstír í deildinni, urðu að játa sig sigraða — nágrannar þeirra hjá Tottenham voru mun frískari þó svo meistaraefnin gæfust aldrei upp. Paul Gascoigne sýndi á sunnudag hversu mikilvægur hann er liði Tott- enham; var með í annað sinn síðan hann var skorinn upp vegna meiðsla fyrir rúmum mánuði og lagði grunninn að sigrinum. Skoraði glæsimarkið sem áður er greint frá og átti síðan stóran þátt í öðru markinu, sem Gaiy Lineker gerði skömmu síðar. Alan Smith minnkaði muninn á 44. mín. og eftir hlé sótti Arsenal mun meira en leikmenn Tottenham vörðust vel. Norðmaðurinn Erik Thorsvedt átti frábæran leik í marki Tottenham, varði þá allt sem á markið kom, og Gary Lineker inn- siglaði svo sigurinn með öðru marki sínu á 76. mín. Hann fékk knöttinn utan teigs, lék á Tony Adams og mmm^mmmsmmmmmm Road tímabilinu og stefnir hraðbyri niður í 2. deild. „Það er ekki sérlega gam- an að tapa alltaf,“ sagði Peter Shilt- on, markvörður liðsins, og landsliðs- maður til fjölda ára. Gordon Armstrong hjá Sunder- land var rekinn af velli í síðari hálf- leik fyrir að mótmæla er South- ampton fékk viti. Matthew Le Tissi- er skoraði úr vítinu og síðan gull- tryggði Alan Shearer Southampton 3:l-sigur. ■ Úrslit / B10 ■ Staðan / B10 skoraði. Allt annað var að sjá til Arsenal í síðari hálfleik en þeim fyrri, en eins o g George Graham viðurkenndi eftir leik var skaðinn þegar skeður: „Við töpuðum leiknum á fyrstu 20 mínútunum." West Ham byijaði vel gegn For- est, en einn varnarmanna liðsins, Tony Gayle, var rekinn út af eftir aðeins 15 mínútur fyrir ásetnings- - brot á Gary Crosby og þótti það vægast sagt vafasamur dómur. Dómarinn sagði Crosby hafi verið að komast í marktækifæri, en hann var ekki einu sinni á leið í átt að marki. „Við féllum bara í baráttu um boltann. Ég hef aðeins verið bókaður sex sinnum í 600 leikjum og aldrei verið rekinn út af áður. Þetta var í fyrsta sinn á 14 ára ferli sem ég kemst í undanúrslit bikarsins," sagði Gayle á eftir, og var mjög sár. Brottreksturinn olli straumhvörf- um í leiknum en það var þó ekki fyrr en í síðari hálfleik sem leik- menn Forest færðu sér þetta í nyt — en gerðu það þá svo um mun- aði. Mörkin urðu fjögur: Crosby, Roy Keane, Stuart Pearce og Cary Charles skoruðu. Nigel Clough lagði upp þijú markanna. íttémR FOLK ■ UM TVÖ þúsund breskir her- menn, sem tóku þátt í Persaflóð- astríðinu, voru á undanúrslitaleik Arsenal og Tottenham, í boði enska knattspyrnusambandsins. ■ ANDY Goram, markvörður Hibernian og skoska landsliðsins, er líklega á leiðinni til Glasgow Rangers. Rangers metur hann á 400 þús. pund en Hibs vill fá 750 þús. fyrir hann. ■ CHRIS Woods, sem verið hefur í markinu hjá Rangers í fimm ár, fer væntanlega til Englands á ný. ■ ERIK Thorsvedt, norski mark- vörðurinn hjá Tottenham, var him- inlifandi eftir sigurinn á Arsenal: „Þetta er besti dagur líf míns. Fyrst þeir náðu ekki að skora snemma í síðari hálfleiknum var ég viss um að við myndum vinna,“ sagði hann. ■ LEÉ Chapman gerði þrennu gegn Liverpool og stefnir hraðbyri að því að mai'kakóngur 1. deildar í fyrsta skipti. Peter Lorimer á markametið hjá Leeds, gerði mest 30 mörk á einu tímabili á árum áður, og því á Chapman góða möguleika á að slá það met. ■ „ÞAÐ má segja að í dag hafi sést báðar hliðar Liverpool-liðsins eins og það hefur leikið í vetur,“ sagði framheijinn Ian Rush eftir 5:4 sigurinn á Leeds. „En við verð- um að verða jákvæðir. Við gerðum fimm mörk á útivelli og tókum stig- in.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.