Morgunblaðið - 28.05.1991, Síða 1

Morgunblaðið - 28.05.1991, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA SUND / NORÐURLANDAMOT FATLAÐRA ❖ 1991 ÞRIÐJUDAGUR 28. MAI BLAÐ Morgunblaðið/Björn Blöndal Sigrún Huld og Ólafur sigursæl íslenska sundlandsliðið í sundi fatlaðra stóð sig mjög vel á Norðurlandamótinu í sundi sem fram fór í Stavanger í Noregi um helgina. 26 íslandsmet voru sett á mótinu og vann íslenska liðið 13 gullverðlaun, 17 silfurverðlaun og 12 bronsverðlaun. Sigrún Huld Hrafnsdóttir og Ólafur Eiríksson unnu sín fimm gullverðlaunin hvort. Sigrún Huld setti jafnframt 3 Norðurlandamet, í 100 m bringusundi, 100 m baksundi og 200 m ijórsundi. Búið er að sækja um staðfestingu á heimsmetum í öllum þeim sundum sem Sigrún Hrund sigraði í á mótinu. ■ Úrslit / B9 KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA Omurlega svekkjandi - sagði SævarJónsson sem variyrirliði landsliðsins ÍTirana „ÞETTA var mjög slakt,“ sagði Sæv- ar Jónsson, fyrirliði, við Morgunblað- ið eftir 1:0 tap gegn Albaníu í Evrópu- keppni landsliða í knattspyrnu í Tir- ana a 'sunnudag. Mér fannst mjög snemma að menn væru að hvfla sig þegar við vorum í sókn. Það var eins og menn vildu ekki fá boltann, maður var stundum í vandræð- um vegna þess að það var enginn til að gefa á. Knattspyrnan er einföld, best er þegar hægt er að spila með einni eða tveimur snertingum en það var ekki hægt. Þá vorum við að tapa tæklingum, en það hefur nú oft verið aðalsmerki okkar hve sterkir við erum — og ýmislegt hefur orð- ið til í framhaldi af því. Færi skapast eft- ir að við höfum unnið boltann í tækling- um.“ Sævar sagði að það væri „ömurlega svekkjandi að tapa þessum leik. Ef bæði lið spila af eðlilegum styrkleika eigum við að vinna. En það er ekki það sem telur heldur dagsformið. Menn voru alveg með það á hreinu að þeir yrðu að hafa fyrir þessu en samt fór þetta svona. Menn náðu sér bara alls ekíri á strik. Þetta var einfaldlega lélegt. En ég tel gott fyrir okkur að það skuli vera stutt í næsta leik. Við hljótum að gera okkur grein fyrir þvi hvað þarf til að ná árangri. Við vorum á hælunum í dag en verðum að bæta okkur gegn Tékkum.“ Vorum of lengi í Albaníu Fyrirliðinn taldi enga eina skýringu á frammistöðunni. „Undirbúningurinn var ágætur þó ég teiji að við höfum verið of lengi hér í Albaníu. Menn fá visst „sjokk“ þegar þeir koma hingað, maturinn er ekki góður og hér er ekkert við að vera. Þetta gæti verið hluti af skýringunni.“ „Byijunin var allt í lagi hjá okkur, við fengum nokkúr ágæt hálf-færi sem ekki nýttust en menn róuðust og héldu kannski að þetta kæmi bara. En það gerist auðvit- að ekki af sjálfu sér. Við fengum fleiri tækifæri en andstæðingurinn, nýtum ekk- ert en hinir nýta að minnsta kosti eitt. Þetta hefur oft gerst. Okkur virðist svo oft vanta herslumuninn. Að ná stigi á útivélli gegn sterkum liðum og vinna leiki eins og í dag.“ ■ Sjánánar / B4,B5, B12 HANDBOLTI Atli þjálfar Fram: Ætla ekki að spila með Atli Hilmarsson var ráðinn þjálfari 1. deildar liðs Fram í handknattleik um helg- ina. Samið var til i.rs og byrja æfingar á næstunni. „Ég ætlaði mér alltaf að leika eitt ár á íslandi áður en ég tæki að mér þjálfun, en meiðsl hafa sett strik í reikninginn,“ sagði Atli við Morgun- blaðið. „Ég ætla því ekki að spila með Fram, en einbeita mér að þjálfuninni. Mér fannst rétt að grípa tækifærið þegar það gafst, en ég tel Fram áhugaverðasta og efnilegasta liðið í fyrstu deild enda uppistaðan nýkrýndir Norðurlanda- meistarar og verðandi lykilenn landsliðsins. Ég er ánægður með að mér skuli vera treyst fýrir þessu verkefni og hlakka til að takast á við það.“ Jón Árni Rúnarsson verður aðstoðarþjálfari Atla. KNATTSPYRNA Þorgrímur tekur fram skóna orgrímur Þráinsson, fýrrum landsliðsmaður i knattspyrnu og fyrirliði Vals, er hættur við að hætta. Hann ætlar samt ekki að vera með í slagnum á toppnum, heldur leika með gömlu félög- unum í Ólafsvík. Þorgrímur verður með Víkingi í 1. umferð bikarkeppninnar í kvöld, þegar liðið mætir ÍK í Kópavogi og eins er stefnt að því að hann leiki gegn Aftureldingu í keppni'T: deildar á laugardag, en síðan er óvíst með framhaldið. KORFUBOLTI Pálmar til liðs við Grindvíkinga Pálmar Sigurðsson, ein aðal driffjöður Hauka- liðsins í körfuknattleik, und- anfarin ár hefur gengið frá félagaskiptum yfir í UMFG og leikur með liðinu í úrvals- deildinni í körfuknattleik næsta keppnistímabil. „Það er ýmislegt á bakvið það að ganga til liðs við UMFG. Mig hefur langað til að prófa eitthvað nýtt að undanförnu og lét verða af því núna. Mér finnst ég hafa verið í lágdeyðu undanfarin ár og tel að það geti verið sjálfum mér til góðs að skipta um félag og vonandi Grindavíkurliðinu einnig. Þetta er spennandi lið og síðan er það með mjög góðan þjálfara. Ég hlakka því mjög til að takast á við ný verkefni.“ „Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Pálmar til okkar,“ sagði Margeir Guðmundsson formaður körfu- knattleiksdeildar, „hann er ekki aðeins einn besti bak- vörðurinn í íslenskum körfuknattleik heldur er hann einnig góður félagi og við vonumst til að hann hjálpi okkur að ná sem bestum árangri á næsta vetri.“ Grindvíkingar vonast til að Ðan Krebs spili áfram með þeim næsta vetur en hann mun svara þeim í næsta mánuði hvað verður. NBA-deildin: Chicago í urslit Chicago tryggði sér í gærkvöldi rétt til að leika í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í fyrsta sinn er liðið sigraði Detroit fjórða leikinn í röð. Lokatöl- urnar urðu 115:94 fyrir Chigaco, sem mætir LA Lakers eða Portland í úrslitum. ■ Nánar um NBA / B8 SMÁÞJÓÐALEIKARNIR í ANDORRA / B6 OG B7

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.