Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JUNI 1991 B 7 KISS: Unglingar aðal við- skiptavinirnir Vöruúrvalið í verslunininni Kiss höfðar fyrst og fremst til ungl- inga, að sögn Ingibjargar Sigur- jónsdóttur, verslunarstjóra. Að- aláherslan verður á veggspjöld, boli og skartgripi. Kiss er í eigu fyrirtækisins Salm- sons hf., sem rekur aðra verslun á þriðju hæð Kringlunnar. Ingibjörg segir úrvaiið í verslununum verða svipað, þó verði t.d. ekki seld barm- merki í versluninni í Borgarkringlu en ætlunin sé að vera með grín- gjafavöru, þegar fram í sækir. Aðspurð hvernig sér litist á versl- unarmiðstöðina, sagði Ingibjörg að sér litist stórvel á húsið og sér sýnd- ist það skemmtileg tilbreyting að koma inn í það. Um gengi verslun- arinnar vildi hún sem minnst spá, sagði að það yrði tíminn að leiða í ljós. SVEINN BAKARI: Meira úrval en í hinum bakaríunum SVEINN bakari opnar í Borgar- kringlunni sitt 14 bakarí. Hann segir að þar verði boðið upp á mun meira úrval en á hinum stöð- unum og viðskiptavinir muni einnig eiga þess kost að fylgjast með bökurum við störf sín. „Þetta er fjórtánda bakaríið mitt, en þetta verður dálítið sérstakt," segir Sveinn. „Innréttingarnar eru sérstaklega vandaðar og úrvalið verður meira en á hinum stöðunum. Hérna verða alltaf einn til tveir bakarar og viðskiptavinir munu ATLANTIK: Miðasala á síðustu stundu Ferðaskrifstofan Atlantik býð- ur upp á nýjung í ferðamálum á jarðhæð Borgarkringlunnar; svokallað „Box-office“ upp á ensku en það hefur ekki enn hlot- ið nafn. Þar verða seldir miðar á íþróttaleiki, leikhús og flugmið- ar auk utanlandsferða, allt fram á síðustu stundu. Jafnframt mun Atlantik flytja alla starfsemi sína í Borgarkringluna. Verður hún eina ferðaskrifstofan í húsinu Aðalskrifstofa Atlantik verður á ijórðu hæð en starfsmenn hennar eru 10, auk fararstjóra. Engilbert Gíslason einn eigenda og markaðs- stjóri Atlantik segir að undirtektir við miðasöluna vera mjög góða, ekki síst hjá flugfélögum, sem munu selja miða í innan- og utan- landsflug, m.a. „hopp“-miða. Að sögn Engilberts er þjónustan á jarð- hæðinni ekki enn fastmótuð en seg- ir að henni megi líkja við nokkurs konar markaðstorg þar sem í boði verði flest það sem að ferðamálum snúi. Vilji fólk nánari upplýsingar eða spyijast fyrir um áfangastaði, sé starfsfólk ferðaskrifstofunnar á fjórðu hæð til þjónustu reiðubúið. Morgunblaðið/KGA Ferðaskrifstofan Atlantik flytur alla starfsemi sína í Borgarkringl- una. Engilbert Gíslason stendur þar sem miðasölu ferðaskrifstofunn- ar hefur verið fyrirhugaður staður. VEITINGASTAÐUR PUB KRINGLUNNI 4 Opnum kl. 12.00. Framreiðum mat allan daginn. Opið til kl. 01.00 virka daga og til kl. 03.00 um helgar. KRINGLAN 4, sími 680878. Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíóum Moggans! y Morgunblaðið/KGA Sveinn bakari opnar nú í Borgarkringlunni sitt 14 bakarí. geta fylgst með bakstrinum hérna á staðnum.“ Sveinn segir að sér lítist mjög vel á Borgarkringluna og hann hafi mikla trú á að hún eigi eftir að eiga mikla framtíð fyrir sér. IÖGGARÐVR SF. Kringlunni 4, 3. hceð. Sími: 91-681636 FAX: 91-678925 Alhliða lögfræðiþjónusta og ráðgjöf, málflutningur, uppgjörslysabóta og annarra skaðabóta, innheimtur, stofnun fyrirtækja og samningagerð. Guðni A. Haraldsson, hrl. Brynjólfur Eyvindsson, hdl. Benedikt Sigurðsson, lögfr. V___________________________/ I DAG OPNA ® Vel hirtir fætur Vel hirtir skór

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.