Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991
Morgunblaðið/Þorkell
Hringur opnar sýningu
í Gallerí Koti
Hringur Jóhannesson, listmálari, opnar í dag, laugardag, sýningu í
Gallerí Koti í Borgarkringlunni. A sýningunni eru 17 olíumálverk, flest
máluð á þessu ári og þvi síðasta. Sýningin í Borgarkringlunni er 35.
einkasýning Hrings, en auk þess hefur hann tekið þátt í fjölda samsýn-
inga. Þessi mynd var tekin í Gallerí Koti þegar Hringur var að hefja
uppsetningu sýningarinnar.
KRINGLAN 4-103 REYKJAVlK ■ SlMI 680920
Höfum opnað að nýju
Full búð af nýjum vörum
Verið velkomin
VERSLUNIN KOT OG GALLERÍ KOT:
Gjafavörur oggallerí á sama stað
EINAR Óskarsson og Dagmar
S. Gunnarsdóttir opna nú í Borg-
arkringlunni verslun með heimil-
is- og gjafavörur, verslunina
Kot. I hluta húsnæðisins verða
þau með gallerí og opnar Hring-
ur Jóhannesson, listmálari, sýn-
ingu á olíumálverkum þar í dag.
Einar Óskarsson segir, að í versl-
uninni verði boðið upp á heimilis-
og gjafavörur af ýmsu tagi. Um-
gjörð hennar sé í nokkurs konar
Nýja-Englandsstíl, línurnar séu
mjúkar og dálítið gamaldag. Vör-
urnar í búðinni falli vel að þessari
umgjörð, þar megi til dæmis fá ít-
alska potta, handmáluð frönsk mat-
arstell, bækur um vín og vínmenn-
ingu og fleira í þeim anda.
Einar segir að rfieð versluninni
sé ætlunin að höfða til nýs hóps
viðskiptavina og tengja saman
heimilið og listina. Því fari vel á
því að reka verslunina og galleríið
hlið við hlið. Vel hafi gengið að fá
listamenn til að sýna í galleríinu,
Hringur Jóhannesson ríði á vaðið
og í kjölfarið komi Leifur Breiðljörð.
Morgunblaðið/Bjarni
Eigendur verslunarinnar Kots og gallerís með sama nafni í Borgar-
kringlunni, Einar Óskarsson og Dagmar S. Kristjánsdóttir, ásamt
dætrum sínum þeim Lovísu Kristínu og Ruth.
FIÐRILDIÐ:
AfLaugavegi í Borgarkringlu
„Mér finnst nóg að vera með
eina verslun og því flytur versl-
unin upp í Borgarkringlu, þang-
að sem straumurinn er,“ segir
Nína B. Svavarsdóttir, sem
ásamt móður sinni, Birnu Bald-
ursdóttur á barnafataverslun-
ina Fiðrildið.
Verslunin hefur nú síðast verið
til húsa á Laugavegi 45 og flytur
í húsnæði í Kringiunni sem er svip-
að að stærð, um 90 m2. Fiðrildið
selur eingöngu Oilily barnavörur
og eina verslunin sem það gerir
hérlendis. „Það er ekki eins erfitt
að bera a nafnið fram og það sýn-
ist,“ segir Nína, og bætir því við
að hinum föstu viðskiptavinum
veijist ekki lengur tunga um tönn
þegar þeir ræði um Oilily-vörurn-
ar. Nína hefur rekið verslunina frá
1987 en þá var hún í um 30 m2
húsnæði. „Við erum alltaf að
stækka við okkur og erum nú
komnar í þrisvar sinnum stærra
húsnæði en í upphafi. Það leggst
mjög vel í okkur að flytja i Borgar-
kringluna, hér er meira um sér-
verslanir en gengur og gerist og
þá verða vörurnar ekki eins keim-
líkar."
Innréttingarnar eru hannaðar
Morgtinblaðið/KGA
Þrír ættliðir í Fiðrildinu; Nína B. Svavarsdóttir ásamt dóttur sinni
Birnu Björk og móður, Birnu Baldursdóttur.
af Hollendingi í samræmi við Olil-
ily-fyrirtækikið en auk þess hefur
Baldur Svavarsson arkitekt
stoðað við hönnunina.
að-
Verð frá kr. 37.500,- í 2 vikur, 2 fullorðnir og 2 börn
Verð frá kr. 55.600,- í 2 vikur, 2 í stúdíói
Mattö
17.júní
Verð frá kr. 47.420, - Í3 vikur, 2 fuilorðnir og 2 börn 2-11 ára
Verð frá kr. 65.960,- í 3 vikur, 2 í stúdíói
BROTTFARARDAGAR:
26. maí 9. júli 20. ágúst
4. júní 16. júli 27. ágúst
11. júní 23. júlí 3. september
18. júni 30. júlí 10. september
25. júni 6. ágúst 17. september
2. júlí 13. ágúst
(ntONTIt
FERÐASKRIFSTOFA - KRINGLUNNI 4 - SÍMI 679888
BROTTFARARDAGAR:
29. maí
17. júni
8. júlí
29. júli
19. ágúst