Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 11
10 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991 B II MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991 KOKKTEILL: Morgunblaðið/KGA Mæðgfurnar Birna Björnsdóttir í Fataprýði - Hárprýði og Guðbjörg Vilhjálmsdóttir í Kokkteil, ásamt syni Guðbjargar, Birni Egilssyni. FATAPRÝÐI - HÁRPRÝÐI: Mæðgur hvor sínu megin þilsins „Eg sérhæfi mig í tískufatnaði í númerunum 44-54, fatnaði fyrir konur á öllum aldri, auk þess sem ég verð auðvitað með hárkollur og gerfi- hár,“ segir Birna Björnsdóttir, eigandi verslunarinnar Fataprýði - Hár- prýði. Hinum megin við þilið rekur dóttir Birnu, Guðbjörg, verslunina Kokkteil. Fjölbreytt vöruúrval sem höfðar til sem flestra VERSLUNIN Kokkteill býður upp á vörur af ýmsu tagi. Þar má nefna fatnað, hatta, skart- gripi, viftur í loft og fleira. Eig- andinn, Guðbjörg Vilhjálmsdótt- ir, segir að með fjölbreyttu vöru- úrvali í versluninni sé meiningin að höfða til sem flestra. „Vöruúrvalið hérna er hálfgerður kokkteill og þess vegna varð þetta nafn fyrir valinu," segir Guðbjörg. „Við erum hérna með fatnað, bæði fyrir dömur og herra, hatta, sem við bæði seljum og leigjum út, skartgripi af ýmsu tagi og viftur í loft, svo nokkuð sé nefnt. Ætlunin er að ná til sem flestra og tryggja, að fólk hafi gaman af því að líta hér inn,“ segir hún. Guðbjörg segir að verslunin eigi sér enga sérstaka fyrirmynd. Hún hafi fengið hugmyndina að henni og flytji líka sjálf inn þær vörur, sem þar séu á boðstólum. Hún seg- ist hafa trú á að Borgarkringlan eigi eftir að dafna, enda sé þarna um að ræða glæsilegt húsnæði á aðgengilegum stað. Bima hefur til margra ára rekið Hárprýði við Háaleitisbraut, þar sem hún hefur boðið upp á hárkollur fyr- ir dömur og herra. Sú verslun verður rekin áfram enda Birna með fastan hóp viðskiptavina. „Með nýju versl- uninni vonast ég til að ná til nýrra viðskiptavina, sem margir hverjir hafa ekki vitað hvár eldri verslunin er. í Fataprýði - Hárprýði verður meira úrval, m.a. fatnaður og allir fylgihlutir s.s. sokkabuxur. Þá verð ég einnig með hárkollur og gervihár, sem er að koma aftur í tísku, vegna afturhvarfsins til sjötta áratugarins sem hefur verið svo áberandi í tís- kunni að undanförnu." Morgunblaðið/Bjami Lína Rut Karlsdóttir, förðunarmeistari. FÖRÐUNARMEISTARINN: Förðunarþjónusta jyrir öll tækifæri LÍNA Rut Karlsdóttir opnar nú förðunarstofuna „Förð- unarmeistarinn — Make-up For Ever“ í Borgarkringlunni, en hún hefur rekið þessa þjónustu í um það bil ár í bak- húsi við Laugaveginn. Hún segir að hún muni bjóða upp á förðunarþjónustu fyrir öll tækifæri, námskeið í förðun, svo og gjafavörur. Lína Rut hefur unnið íslandsmeistarakeppni í förðun tvö ár í röð og auk þess að reka förðunarstofuna á Laugaveginum hefur hún séð um þáttinn „Stakkaskipti" í Vikunni. A Laugaveg- inum hafi hún haft fastan hóp viðskiptavina, en fáir hafi kom- ið inn af götunni. Hún segist hafa trú á að á því verði breyting nú þegar hún hafi flutt í Borgarkringluna, enda sé húsið afar notalegt. Sjálf hefur Lína Rut hannað útlit förðunarstofu sinnar í Borgarkringlunni. SUbb ^um skóverslun í Borgakringlunni NYJA KOKUHUSIÐ: Þrír nýir staðir í Borgarkringlunni NYJA kökuhúsið verður með fjölþætta starfsemi í Borgarkringl- unni. I fyrsta lagi verður þar rekið kaffihús, sem býður upp á veit- ingar, sem mest líkist heimabökuðu, í öðru lagi veitingastað með léttum réttupi og í þriðja lagi „expressó-bar“, þar sem hægt verður að kaupa kaffi og konfektkökur. Birgir Páll Jónsson, eigandi Nýja kökuhússins, segir að í Borgar- kringlunni verði fyrirtækið í fyrsta lagi með kaffihús í hefðbundnum stíl, nema hvað þar verði boðið upp á veitingar, sem líkist mest heima- bökuðu. Til dæmis sé ætlunin að safna uppáhaldskökuuppskriftum þekktra kvenna í þjóðfélaginu og gefa viðskiptavinunum kost á að bragða á þeim. Nýja kökuhúsið mun einnig reka veitingastaðinn „Létt og gott“ á neðri hæð verslunarmiðstöðvarinn- ar. Þar segir Birgir Páll að hægt verði að kaupa ís, súpu með brauði og eggjaböku að frönskum hætti, sem kallist „Quiche“. Enn fremur aðrar veitingar af léttara taginu. Hann segir að á annari hæð verði hins vegar „expressó-bar“, þar sem boðið verði upp á kaffi og konfekt- kökur. Á þeim stað verði gott út- sýni yfir allt húsið og muni því fólki henta vel að mæla sér mót þar. Birgir Páll segir að á kaffihúsinu verði um 90 sæti og álíka mörg séu á hinum tveimur stöðunum til sam- ans. Morgunblaðið/Bjami Hjördís Gissurardóttir opnai' nú tvær verslanir á neðri hæð Borgarkringl- unnar, skóbúðina Cinderella og heilsubúðina Herbier de Provance. CINDERELLA OG HERBIER DE PROVANCE: Færi ekki út íþetta nema ég væri bjart- sýn á árangurinn HJÖRDÍS Gissurardóttir opnar nú tvær verslanir í Borgarkringlunni, skó- búðina Cinderella og heilsubúðina Herbier de Provance. Hún segist afar bjartsýn á framtíð Borgarkringlunnar, enda hefði hún ekki að öðrum kosti ákveðið að fara út í að opna þessar verslanir. Hjördís Gissurardóttir rekur verslun með bæði Benetton og Sisley vörur í Kringlunni og segir hún að þar hafi hún verið með nokkuð úrval af skóm frá Cinderella. Nú hafi hún hins vegar ákveðið að opna sérverslun með fram- leiðslu þessa fyrirtækis. Þarna sé um að ræða breiða línu í skófatnaði, bæði fyrir dömur og herra, og mikil áhersla sé lögð á gæðin. í máli Hjördísar kom fram, að í lönd- unum allt í kringum okkur, bæði í Vest- ur-Evrópu og Norður-Ameríku, séu starfandi búðir undir vörumerkinu Herbier de Provance. Allar vörur í þeim séu framleiddar úr jurtum frá Provance- héraði í Suður-Frakklandi og í verslun- inni í Borgarkringlunni verði hægt að fá margs konar hreinlætis- og hreinsi- vörur. „Vörurnar sem við bjóðum upp á hér eru til að hreinsa líkamann. Það eru engir litir í þessum vörum, en þær stuðla að því að fólk fær hressilegt útlit, fal- legri húð og hár,“ segir Hjördís. Hún segist telja, að verslanirnar tvær falli vel að þeirri ensk-frönsku línu, sem sé ríkjandi í Borgarkringlunni. Þessi verslunarmiðstöð sé skemmtileg og aðl- aðandi á sinn hátt, en að sumu leýti andstæða við gömlu Kringluna, sem sé meira í amerískum anda og mjög glæsi- leg. Hjördís segist bjartsýn á framtíð verslana sinna þarna. Vissulega heyrist alltaf ákveðnar svartsýnisraddir í sam- bandi við svona framkvæmdir, hún hafi heyrt þær þegar hún hafi opnað í Kringl- unni og raunar allt frá því hún opnaði fyrst gullsmíðaverkstæði fyrir 11 árum. „Maður hlýtur hins vegar að vera bjart- sýnn, þegar maður veit að vörumerkin eru góð og varan er vönduð," segir hún. Bókaverslun með al- þjóðlegu yfirbragði KRINGLUSPORT: Hlaupabrautígegn- um 800 m2 verslun SIGFÚS EYMUNDSSON: BÓKAVERSLUN Sigfúsar Eymundssonar í Borgarkringlunni verður sú sjötta í röð verslana fyrirtækisins. Hún verður alhliða bóka- og ritfangaverslun með alþjóðlegu yfirbragði. Þar verður gott úrval erlendra bóka; blaða og tímarita og sérstök barna- bókadeild að ógleymdum hlut íslenskra bóka, sem verður veglegur. Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar er elsta bókaverslun jandsins, stofnuð árið 1872. Að sögn Einars Óskarssonar, framkvæmda- stjóra er sala erlendra bóka snar þáttur í rekstrinum og verður sú deild uppfull góðra bóka, mestmegnis á ensku en einnig verður reynt að gera öðrum málum skil. I bamabóka- deildinni verður bókabíll þar sem börnin geta sest niður og skoðað bækur í ró og næði. Ástæðu þess að fyrirtækið opnar bókaversl- un í Borgarkringlunni, til viðbótar þeirri sem er í Kringlunni, segir hann vera vinsældir þessa verslunarsvæðis. „Við viljum vera þar sem fókið er, verslun í miðborginni hefur dreg- ist saman og straumurinn liggur hingað." Verslunarstjóri í Borgarkringlu er Rann- veig Pálsdóttir. Innréttingar verslunarinnar em hannaðar af bresku fyrirtæki sem sérhæf- ir sig í innréttingum bókaverslana. Teppi em á gólfum og dökkar viðarinnréttingar, smíðað- ar með þarfir bókaáhugafólks í huga. í tilefni opnunarinnar verða margvísleg tilboð á bók- um og ritföng auk þess sem viðskiptavinum verður boðið að taka þátt í verðlaunaleik, þar sem hinir heppnu munu vinna alfræðibækur. Morgunblaðið/KGA Einar Ólafsson framkvæmdastjóri ásamt einuin starfsmanna verslunarinnar, Kristó- fer Péturssyni. STÆRSTA íþróttavöruverslun landsins verður til húsa í Borg- arkringlunni og kallast Kringlu- sport. Þar fæst allt sem nöfnum tjáir að nefna til íþróttaiðkunar og útiveru, nema ef vera skyldi fyrir hestamenn. 65 metra hlaupabraut leiðir viðskiptavin- inn í gegnum hina 800 m2 versl- un sem liggur í U og er gert ráð fyrir gegnumstreymi, þ.e. að inngangur og útgangur séu við sitthvorar dyrnar. Kringlusport er í eigu Borgar- kringlunnar hf. Alsport hf., Aust- urbakka hf., G.A. Péturssonar hf., Macom hf. og Marinó hf. Fram- kvæmdastjóri er Þorsteinn Sæ- mundsson og segir hann það hafa verið álit manna að á Kringlusvæð- ið hafi vantað stóra og öfluga íþróttavöruverslun. „Minni versl- anir hafa gefið misjafna raun og vöruúrval ekki verið sem skyldi. Allir þeir sem að versluninni standa, flytja inn íþróttavörur utan Borgarkringlan og úrvalið verður því ótrúlegt. Ferð í verslunina á því að vera meira en innkaupaferð, hún á að vera upplifun. Við erum einna stoltastir af stórri og góðri veiðideild, en við verðum með skot- og stangveiðiút- búnað í sérstöku veiðihúsi. Þá verð- um við með skothermi og golfhermi Morgunblaðið/KGA Birgir Páll Jónsson í Nýja kökuhúsinu mun reka þijá veitingastaði I í Borgarkringlunni. Morgunblaðið/KGA Þorsteinn Sæmundsson, framkvæmdastjóri verslunarinnar Kringlu- sports með hluta af 65 metra hlaupabraut í baksýn. og munum bæta við svighermi þegar skíðavertíðin nálgast," segir Þorsteinn. Tíu stöðugildi verða við verslun- ina og starfsfólk allt áhugafólk um íþróttir og útiveru auk þess sem það hefur reynslu af sölu og notk- un búnaðains sem það selur. Þá eru tveir starfsmenn menntaðir íþróttakennarar. Mikið verður um uppákomur í versluninni. M.a. munu nokkrir af helstu afreksmönnum þjóðarinnar aðstoða fólk við val á búnaði. Mánudaginn 3.júní 1991 verður Almenna málflutningsstofan opnuð í nýjum húsakynnum í Kringlunni 6, 6. hœð, Reykjavík. Nýtt símanúmer skrifstofunnar verÖur 681020 frá og meö 3. júni nœstkomandi. Opnunartimi skrifstofunnar veröur semfyrr frá kl. 9 árdegis til kl. 17.00 siödegis. ALMENNA MÁLFL UTNINGSSTOFAN Jónatan Sveinsson hæstaréttarlögmaður Attorncy at law Hróbjartur Jónatansson hæstaréttarlögmaður Attorncy at law

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.