Morgunblaðið - 01.06.1991, Side 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JUNI 1991
Morgunblaðið/Bj arni
B.M. Vallá er að opna Sýningargarð í Borgarkringlunni, þar sem til dæmis verður hægt að skoða úrval af garðhúsgögnum og gang-
stéttarhellum.
SÝNINGARGARÐURINN:
Sýnishom afgarðhúsgögnum oghellum
WHITTARD
OF LONDON:
Sérverslun
meðteog
kaffi
í VERSLUNINNI Whittard of
London í Borgarkringlunni
verður boðið upp á sérpantað te,
kaffi og konfekt, aðallega frá
fyrirtækinu Whittard of
Chelsea, sem rekur 14 verslanir
í Englandi. Þetta er fyrsta versl-
unin í þessari keðju, sem opnar
utan Englands.
Guðmundur Benediktsson, sem
er í forsvari fyrir verslunina, segir
að Whittard of Chelsea hafi starfað
í Englandi allt frá árinu 1886 og
hafí í gegnum tíðina einkum sér-
hæft sig í sölu á tei. Teið sé sér-
pantað frá frumframleiðendum vítt
og breitt um heiminn og sérstak-
lega valið með tilliti til gæða.
Hann segir að auk mikils úrvals
af tei í versluninni verði talsvert
úrval af kaffi og verði hægt að fá
það malað á staðnum. Jafnframt
verði þar á boðstólum konfekt,
einkum frá Whittard of Chelsea en
einnig frá öðrum framleiðendum,
meðal annars íslenskum.
STEYPUSTÖÐIN B.M. Vallá
opnar nú svokallaðan Sýningar-
garð í Borgarkringlunni og er
gert ráð fyrir að hann verði
opinn í tvo mánuði. Þar verða
sýndar nokkrar hellutegundir
frá fyrirtækinu og jafnframt
garðhúsgögn frá enska fyrir-
tækinu Barlow Tyrie.
í Sýningargarðinum verður B.M.
Vallá með ýmis sýnishorn af vörum
sínum. Þar á meðal eru helluteg-
undir á borð við fornstein og grip-
stein og svo garðhúsgögn úr tekki
frá fyrirtækinu Barlow Tyrie í
Englandi. Hægt verður að fá ýms-
ar gerðir af setbekkjum, stólum,
borðum og sólbekkjum frá þessu
fyrirtæki. Bekkir í göngugötum
Borgarkringlunnar eru frá Barlow
Tyrie.
í Syningargarðinum verður auk
þessa hægt að fá úrval bóka og
blaða um skipulagningu garða og
einnig munu landslagsarkítektar
verða þar til staðar á laugardögum
í sumar og veita upplýsingar og
ráðgjöf.
SÓLBAÐSSTOFAN SÓLIN:
Fólk geturfarið í Ijós um leið
ogþað verslar
Á FJÓRÐU hæð í norðurturni
Borgarkringlunnar opnar nú ný
sólbaðsstofa, sem ber nafnið Sól-
in. Eigandi hennar, Aðalheiður
Guðjónsdóttir, segir að sér lítist
afar vel á að opna stofuna í
tengslum við verslunarmiðstöð-
ina, enda sé þægilegt fyrir fólk
að geta verslað og farið í ljós á
sama stað.
„Mér líst ljómandi vel á þennan
stað. Það er hentugt að reka sól-
baðsstofuna hér undir sama þaki
og verslunarmiðstöðin er, enda get-
ur fólk þá labbað við hérna um leið
og það verslar á leiðinni í og úr
vinnu. Auk þess er engin svona
starfsemi á stóru svæði hérna í
kring,“ sagði Aðalheiður.
Hún segir að í Sólinni verði átta
ijósabekkir af bestu gerð. Þar verði
auk þess hægt að kaupa snyrtivörur
af ýmsu tagi.
opnar
rð
öjO
í Borgarkringlunni
Morgunblaðið/KGA
Júlíus Ólafsson, verslunarstjóri í Tölvulandi, fyrir utan verslun-
ina í Borgarkringlunni.
TÖLVULAND:
Fyrsta tölvuverslunin
á Kringlusvæðinu
FYRSTA sérverslunin með tölvur sem opnar á Kringlusvæðinu
er Tölvuland í Borgarkringlunni. Júlíus Ólafsson, verslunar-
stjóri þar, segir að sér lítist mjög vel á húsið og þá starfsemi
sem þar fari fram.
Júlíus Ólafsson segir að í
Tölvulandi verði gott úrval af
tölvum og hugbúnaði. Samið hafi
veríð við Örtölvutækni hf. um
sölu á Tulip-tölvum í versluninni,
en þær hafi að undanförnu
styrkst mjög á markaðnum og
njóti mikilla vinsælda. Mikið úr-
val verði af hugbúnaði í verslun-
inni, meðal annars af leikjahug-
búnaði. Einnig verði þar ýmsar
tegundir af leikjatölvum.
Hann segir að fyrir utan þetta
megi nefna, að verslunin muni
bjóða upp á allar rekstrarvörur
fyrir tölvur og gott úrval af
hljómtækjum ýmis konar, ferð-
aútvarps- og segulbandstækjum
og fleiru.
Að sögn Júlíusar munu sér-
fræðingar í bæði vélbúnaði og
hugbúnaði verða í Tölvulandi yfir
helgina og veita ráðgjöf. Enn
fremur muni búðin bjóða upp á
ýmis sértilboð á vörum sínum í
tilefni af opnuninni.