Morgunblaðið - 01.06.1991, Page 19
MORGUNBLAÐÍÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991
B 19
Morgunblaðið/KGA
Ásgeir Ásgeirsson í skóversluninni Stepp tók sjálfur virkan þátt í
því að koma húsnæði verslunarinnar í rétt horf fyrir opnun Borgar-
kringlunnar.
SKÓVERSLUNIN STEPP:
Fjölskyldufyrirtæki
sem flytur
sjálfit inn skóna
SKÓVERSLUNIN Stepp í Borgarkringlunni er í eigu Ásgeirs Ás-
geirssonar og fjölskyldu hans. Ásgeir segir að þau flytji sjálf inn
vörurnar fyrir verslunina, þær séu í samræmi við nýjustu tísku, en
þó þannig að þær höfði til stórs hóps.
„Þetta er blönduð skóbúð,“ segir
Ásgeir. „Við erum hér með skó
fyrir karlmenn, konur og börn. Við
bjóðum upp á vörur samkvæmt
tískulínum, en þó þannig að þær
höfða til stórs hóps.“
Asgeif segir að hann telji að
Borgarkringlan eigi eftir að koma
mörgum á óvart. Endurhönnun inn-
anhúss hafi tekist vel, þannig 'að
þarna sé um afar vinalega verslun-
armiðstöð að ræða.
Morgunblaðið/KGA
Gísli Halldórsson hefur rekið söluturninn Mekka frá því í desember
1988 og segir hann að tilkoma Borgarkringlunnar muni hafa mikil
áhrif til góðs fyrir reksturinn.
SÖLUTURNINN MEKKA:
Heftrú áþessu húsi
„ÉG hef alla tíð haft trú á þessu húsi,“ segir Gísli Halldórsson, eig-
andi söluturnsins Mekka í Borgarkringlunni. „Við opnuðum hér í
desember árið 1988, en með opnun verslunarmiðstöðvarinnar verður
auðvitað mikil breyting á rekstrinum."
Gísli Halldórsson segist allt frá
upphafi hafa beðið eftir því að versl-
unarmiðstöð yrði opnuð í húsinu.
Hann hafi til dæmis alltaf haft hug
á að fá lottóvél í söluturninn, en
það hafi ekki gengið í gegn fyrr
en ljóst varð að Borgarkringlan
yrði opnuð.
Hann segir að Mekka sé fjöl-
skyldufyrirtæki og fjölskyldan reyni
að vera þar eins mikið sjálf og kost-
ur sé. Sjálfur hafi vhann langa
reynslu af verslunarstörfum og hafi
unnið við verslun með matvörur í
25 ár.
BLÓM OG LISTMUNIR:
Blómaskreytingar
og sérkennileg gjafavara
LÍTIÐ hefur farið fyrir blóma-
versluninni Blóm og listmunir
í Borgarkringlunni til þessa en
með breytingununum á versl-
unarmiðstöðinni, sér Sigrún
Eyjólfsdóttir annar eigandanna
fram á að líf færist í tuskurnar.
Verslunin er í eigu Sigrúnar
og Ólafs Kr. Sigurðssonar og var
opnuð i nóvember 1989. Sigrún
hefur starfað við blómaskreyting-
ar í um 15 ár og býður úpp á
mikið úi’val skreytinga, auk af-
skorinna blóma, silki- og potta-
blóma og sérkennilegi'ar gjafa-
vöru.
Verslunin tekur nokkrum
breytingum vegna opnunar Borg-
arkringlunnar, í þeim hluta er
snýr að sameigninni. Innréttingar
í versluninni eru í ítölskum stíl
og hannaðar af Guðjóni Magnús-
syni innanhúsarkiteki. Þrír 'staifa
í versluninni, sem er opin utan
venjulegs verslunartíma Borgar-
kringlunnar og er þá aðkoma vest-
an megin liússins.
Sigrún Eyjólfsdóttir
Morgunblaðið/KGA
versluninni Blóm og listmunir.
Við fögnum opnun
Borgarkringlunnar og
veitum 25% aíslátt af
Cona könnum dagana
1.-8. júní nk.
ÁLFABAKKA 14 • MJÓDD • SÍMI 76622
KRINGLUNNI 4-6 • BORGARKRINGLUNNI • SÍMI 36622
FALLEG &
FRUMLEG
Sérðu fyrir þér augnabiikið?
Róleg og yndisleg stemmning. Kallar það ekki á eitthvað heitt
að drekka? Gott kaffi eða Ijúft jurtate - nú eða japanskt saké.
Þetta er rétta kannan. Hún er ekki bara glæsileg. Hún er frumleg
og skemmtileg. Gengurfyrirlogandi sprittlampa. Ekkert rafmagn,
bara rólegheit og veigarnar, hverjar sem þær kunna að vera,
verða Ijúffengari og betri en nokkru sinni fyrr.
Hér er komin tækifærisgjöf ársins. Engin spurning.
m BRÚÐKAUPS
r ÞJÓNUSTAN
Það er okkur sérstök
ánægja að veita gjafaþjón-
ustu við brúðkaup.
Við tökum niður nöfn brúð-
hjóna og óskir þeirra varð-
andi gjafir. Þannig getum
við veitt ráðgjöf til aðstand-
enda og komið í veg fyrir
að þau fái sömu hlutina.
Við bjóðum upp á fjölbreytt
úrval vandaðra og glæsi-
legra gjafavara, ókeypis
heimsendingarþjónustu á
höfuðborgarsvæðinu - og
við minnum á vinsælu gjafa-
kortin okkar.
/0%