Morgunblaðið - 12.06.1991, Page 18

Morgunblaðið - 12.06.1991, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 1991 Ítalía: Sprengjur springa í spánskum byggingnm Mikið Ijón varð í söluskrifstofum spænska flugfélagsins Iberia í Mílanó í sprengingunni sem þar varð aðfaranótt þriðjudags. ísraelar tilbúnir til við- ræðna um Gólanhæðir Mílanó. Reuter. OFLUGAR sprengjur voru sprengdar aðfaranótt þriðjudags í eða við byggingar spænskra Ráðgjafi Gorbatsjovs: „Efnahagsað- stoð Vestur- landa leysir engan vanda“ Prag. Reuter. EINN helsti ráðgjafi Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleiðtoga, Alex- ander Jakovlev, sagði á frétta- mannafundi í Prag í gær að Sov- étríkin þyrftu ekki á efnahagsað- stoð frá Vesturlöndum að halda. Aftur á móti þyrftu þau að öðlast traust lánardrottna, en til þess þyrfti að viðurkenna þau sem hluta af alþjóðlega efnahagsheim- inum. Valentin Pavlov, forsætis- ráðherra Sovétríkjanna lýsti því yfir í gær að landið ætti í miklum efnahagsvanda og lausn hans væri undir stöðugleika inn- anlands komin. Jakovlev sagði að vestræn ríki ættu ekki að reyna að skapa minnimátt- arkennd meðal Sovétmánna með því að rétta þeim ölmusu eða skil- yrðisbundna að- stoð. „Við munum leysa okkar vand- amál sjálfír, eng- inn getur gert það fyrir okkur“. Hann sagði að Sovétríkin væru að fara fram á lán til endurgreiðslu, ekki aðstoð. Pavlov tók óvænt til máls á so- véska þinginu í gær og dró upp ófagra mynd af efnahagsvanda Sov- étríkjanna. Hann sagði að landið væri nú á hengiflugi og næstu man- uðir myndu skera úr um hvort unnt verði að forðast fail. Hann sagði að það eina sem héldi efnahag landsins á floti væri 45% skerðing á innflutn- ingi en tók þó fram að ýmislegt benti til þessa að verstu þrenging- arnar væru yfirstaðnar. Búist er við að efnahagsaðstoð við Sovétríkin verði það mál sem hæst muni bera á fundi leiðtoga sjö helstu iðnríkja heims í næsta mán- uði, en Gorbatsjov hefur sótt fast að fá að hitta leiðtogana. aðila í annað sinn á tveimur vikum á Italíu. Fjórir lögreglumenn særðust og miklar skemmdir urðu á mannvirkjum. Maður nokkur hringdi til frétta- stofu'í Flórens og lýsti ábyrgðinni á sprengingunum á hendur Aðskilnað- arhreyfingu Baska, ETA, og Vopn- uðum falangistum, lítt þekktri ít- alskri skæruliðahreyfingu. Að sögn lögreglu sprakk fyrri sprengjan fyrir utan söluskrifstofur spænska flugfélagsins jberia í borg- inni Mílanó á Norður-Ítalíu kl. 2.50 aðfaranótt þriðjudags. Lögreglu- menn höfðu skömmu áður komið auga á bakpoka sem hékk utan á húsinu sem hýsir skrifstofumar en í honum var sprengjan. Það var rétt með naumindum að tími gafst til að loka götunni áður en sprengjan sprakk. I sprengingunni rigndi gler- brotum yfir götuna og þrír lögreglu- menn og einn herlögreglumaður særðust. Innan við klukkustundu síðar sprakk önnur sprengja í Spænska háskólanum, einkareknum háskóla í Bologna á Mið-Ítalíu. Við sprenging- una eyðilagðist anddyri skólans og einn bíll en enginn slasaðist. Spænskir stjórnarerindrekar sögðu að ETA bæri sennilega ábyrgð á sprengingunum. í síðustu viku lýsti ETA ábyrgð á hendur sér á þremur sprengjum sem sprungu í Róm 28. maí sl. A DANSKA þjóðþmginu er meirihluti þingmanna hlynntur pólitískri og efnahagslegri ein- iiigu Evrópubandalagsríkjanna en meðal kjósenda eru hlutföllin nokkuð önnur. í Gallupkönnun, sem gerð var fyrir framkvæmdastjóm Evrópu- bandalagsins, kemur í ljós, að tveir af hveijum þremur Dönum eru andvígir efnahagslegri einingu EB-ríkjanna og sameiginlegri mynt og aðeins fjórði hver vill, að EB-ríkin samræmi stefnuna í ut- anríkismálum og að Evrópuþingið fái meiri völd. Að þessu leyti eru Danir mestu efasemdamennirnir innan EB en Bretar eru þó ekki langt undan. í öllum öðrum löndum studdi meiri- Jerúsalem, Damaskus. Reuter ARYE Deri, innanríkisráðherra Israels, sagði í gær að Israelar væru reiðubúnir að ganga til viðræðna við Sýrlendinga um hluti kjósenda pólitíska og efna- hagslega einingu ríkjanna. ------♦ ♦ ♦ Hvalur helgur í írskum sió Dublin. Reuter. ** CHARLES Haughey, forsætis- ráðherra írlands, hefur lýst írsku efnahagslögsöguna sem sérstakt griðland hvala og höfrunga. David Cabot, ráðgjafí Haugheys í umhverfismálum, sagði að það væri sérstök varúðarráðstöfun vegna tilrauna hvalveiðiþjóða á borð við Norðmenn og íslendinga til þess að fá að hefja aftur hvalveiðar í ágóðaskyni. Verður strandgæslan notuð til eftirlits til þess að tryggja að hvalir verði hólpnir innan 200 sjómílna efnahagslögsögu Ira. framtíð Gólanhæða að því til- skildu að ísraelskir íbúar svæðis- ins fengju að vera um kyrrt og Sýrlendingar kæmu ekki fyrir herliði þar. Þetta gengur þvert á stefnu ísraelskra sljórnvalda sem hingað til hafa sagst munu hafna öllum óskum Sýrlendinga um að endurheimta landsvæðið. Sýrlendingar og Egyptar segjast óttast að kjarnavopn ísraela ógni því að áform Bandarikja- sljórnar sem tryggja eiga öryggi ríkja í þessum heimshluta nái fram að ganga. Á Gólanhæðum búa u.þ.b. 12.000 ísraelar og 18.000 arabar. ísraelar hertóku svæðið árið 1967 vegna hernaðarlegs mikilvægis þess og hafa farið þar með völd nær óslitið síðan. Þar hefur allt verið með kyrrum kjörum frá því Sameinuðu þjóðirnar gengust fyrir vopnahléssamningum árið 1974. Deri sagði að viðræðurnar væru bundnar tveimur skilyrðum: Að enginn sýrlenskur hermaður stigi þar fæti og að byggð þeirra ísra- ela sem þar eru búsettir fengi ekki einungis að vera í friði, heldur fengi að dafna eðlilega. Þessi orð Deris stangast nokkuð á við yfirlýsingu Ariels Sharons, húsnæðismálaráð- herra Israels, en hann sagði í síð- asta mánuði að hann hygðist tvö- falda fjölda ísraela á svæðinu í því skyni að gera Sýrlendingum erfið- ara um vik að endurheimta það. Deri sagði að með þessu móti myndi ísrael losna við ógnina sem stafar af Sýrlendingum, sem hann kvað miklu meiri en frá írak. Israel er öflugasta herveldið í Mið-Austurlöndum og talið er að það hafi undir höndum a.m.k. 100 kjarnaodda og stýriflaugar þótt ráðamenn hafi aldrei staðfest að Iandið ráði yfir kjarnavopnum. Talsmenn tveggja stærstu ara- baríkjanna, Egyptalands og Sýr- lands, lýstu í gær yfir áhyggjum yfir því að hernaðarvél Israela væri líkleg til að standa í vegi fyr- ir að tillögur Bandaríkjastjórnar um leiðir til að tryggja friðinn í þessum heimshluta, nái fram að ganga. Þeir sögðu að tillögur Ge- orge Bush Bandaríkjaforseta um fækkun vígtóla í Mið-Austurlönd- um yrðu að fela það í sér að ísrael- ar losuðu sig við gereyðingarvopn sín. Ekkert arabaríki hefur kjarna- vopn undir höndum og Bandaríkja- stjórn hefur hingað til forðast að taka afstöðu til kjarnavopna þeirra sem sagt er að Israelar ráði yfir. Danmörk: Lítið fyrir EB-einingu Kaupmannahöfn. Frá N.J.Bruun, frétta- rjtara Morgunblaðsins. Fyrstu forsetakosningarnar í Rússlandi: Jeltsín sigurstranglegur en önnur umferð ekki útilokuð Moskva. Reuter. ÍBÚAR sovétlýðveldisins Rússlands kjósa í dag í fyrsta sinn forseta beinni kosningu. Ef enginn frambjóðandi nær hreinum meirihluta í fyrstu umferð verður kosið á ný milli þeirra tveggja efstu. Alls eru sex menn í framboði en einungis tveir þeirra eru taldir berjast um hituna í raun: Boris Jeltsín, forseti rússneska þingsins, og Ni- kolaj Ryzhkov, fyrrum forsætisráðherra. Peter Vassiljev hjá óháðu frétta- stofunni Interfax sagði í samtali við Morgunblaðið að fyrir nokkrum vikum síðan hefði fylgi Jeltsíns í skoðanakönnunum verið allt að 70% en í síðustu könnunum hefði það verið á biiinu 50-60%. Fylgi Ryzhkovs hefði hins vegar mælst um 35-38%. Næsti frambjóðenda á eftir væri Vadím Bakatín með um 8%. Aðrir frambjóðendur væru með hverfandi fyigi samkvæmt könnun- um. Hann sagði að ef önnur um- ferð yrði haldin, sem nú væri talið mjög líklegt, gæti skipt máli hvort að t.d. Bakatín myndi hvetja kjós- endur sína til að styðja annan fram- bjóðanda og væri Ryzhkov helst nefndur í því sambandi. Jeltsín er maður fjöldans Boris Jeltsín er almennt talinn sigurstranglegastur allra frambjóð- enda. Hann er sextugur að aldri og var á síðasta ári kjörinn forseti rússneska þingsins af þingmönnum þess. Jeltsín var lengi vel undir verndaivæng Gorbatsjovs, hann var formaður Kommúnistaflokks- ins í Moskvu og sat í miðstjórn flokksins. Þaðan var honum hins vegar bolað út árið 1988 og hefur hann síðan náð miklum vinsældum meðal almennings fyrir harðar ár- ásir á valdakerfið og sovésku for- réttindastéttina. Undanfarin fjögur ár hefur Jelts- ín átt í miklum deilum við Gor- batsjov og sagt umbótastefnu hans vera hálfkæring. Nýlega náðu þeir aftur á móti samkomulagi um hvernig taka bæri á efnahagsvanda landsins. í kosningabaráttunni hefur Jeltsín lagt áherslu á þau mál sem hann hefur unnið að sem forseti þingsins. Hann vill róttækar breyt- ingar á eignahaldi lands og land- búnaði, segist vilja færa efnahags- kerfið sem hraðast í átt að mark- aðskerfi og hefur stutt við bakið á Eystrasaltsríkjunum í sjálfstæðis- baráttu þeirra. Hann hefur sætt harðri gagnrýni af hálfu valdakerfisins og fjölmiðlar í eigu ríkisins eða Kommúnista- flokksins mála gjarnan þá mynd af honum að hann sé ekkert allt of vel gefinn fullur lýðskrumari. Síðast í gær gaf sovéski ríkissak- sóknarinn út skýrslu þar sem Jelts- ín er sakaður um að hafa stundað ólögleg gjaldeyrisviðskipti. Þetta virðist þó ef eitthvað er frekar hafa Ryzhkov. Jcltsín. aukið á vinsældir hans meðal fjöl- dans þó að menn á Vesturlöndum hafi oft átt mjög erfitt með að gera upp hug sinn varðandi áiit sitt á manninum. Afturhaldssinninn Ryzhkov Nikolaj Ryzhkov, sem er 61 árs gamall, er fyrrum forsætisráðherra

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.