Morgunblaðið - 12.06.1991, Síða 21

Morgunblaðið - 12.06.1991, Síða 21
Morgunblaðið/Þorkell ; forvitnilegur hvalur skoðaður. lega notuðu þau dagblöð, plast og vírnet í þessa módelgerð. Með þessum verkefnum er stefnt að því að gera börnin með- vitaðari um umhverfi sitt þannig að þau geri sér grein fyrir mikil- vægi þess að virða náttúruna og ganga vel um umhverfi sitt. im aðdáanda eiginhandaráritun. ihverfinu MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 1991 21 Félagsmálaráðherra um rekstrarstöðvun Hraðfrystihúss Ólafsvíkur: Aætlun bæjarstj ómar að taka rekst- urinn á leign virðist eina færa leiðin JÓHANNA Sigurðardóttir félagsmálaráðherra kynnti í ríkisstjórninni í gær skýrslu frá Byggðastofnun um erfiðleika bæjarsjóðs Ólafsvíkur og Hraðfrystihúss Ólafsvíkur. Þar kemur fram að bæjarsjóðurinn er í ábyrgðum fyrir Útver hf. fyrir um 80 milljónir króna og á að auki kröfur á Hraðfrystihúsið vegna opinberra gjalda að upphæð um 30 milljónir króna. Jóhanna sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að þær leiðir sem bæjarstjórn Olafsvíkur hyggst fara, ásamt fleiri aðilum á staðnum, til að tryggja áframhaldandi starfsemi í frystihúsinu með því að taka reksturinn á leigu, virðist vera eina leiðin út úr þeim vanda sem skapast vegna rekstrarstöðvunar Hraðfrystihússins og sennilega væri meiri áhætta fólgin í að gera ekki neitt. Jóhanna kvaðst hafa óskað eftir skýrslu frá Byggðastofnun í febrúar síðastliðnum vegna erfiðleika Hrað- frystihússins ög bæjarsjóðs. „Eg fékk þá skýrslu í gær og lagði hana fyrir ríkisstjórn," sagði hún. „Þeir áætla að tap kröfuhafa gæti orðið í þessu gjaldþroti, ef til þess kemur, um 300 milljónir króna.“ Hún sagði bæjarsjóð Ólafsvíkur hafa átt í miklum fjárhagserfiðleik- um. „Þó að staðan hafi batnað mjög á síðasta ári og það sem af er þessu ári, þá eru þeir með ábyrgðir gagn- vart Útveri upp á 80 milljónir og með útistandandi kröfur á Hrað- frystihúsið vegna opinberra gjalda upp á 30 milljónir. Það er nú sýnt að eitthvað af þessu tapast, sem er auðvitað mjög erfitt fyrir þetta bæj- arfélag." Jóhanna kvaðst einnig hafa verið að skoða þá hlið málsins sem bæjar- stjórn Ólafsvíkur hafi átt frumkvæði að, að taka þennan rekstur á leigu. „Það hlýtur auðvitað að vera megin- reglan að sveitarfélög standi ekki í atvinnurekstri, en þetta virðist vera eina leiðin þarna í þessu máli. Við erum að tala um 130 manns, sem samsvarar því að átta til tíu þúsund manns væru atvinnulausir á einu bretti hér í Reykjavík. Þetta virðist „Ætlan okkar er sú að gera góðan kjarasamning — einn samning við verkalýðsfélögin. Við viljum eiga góð samskipti við verkalýðsfélögin, semja við þau og byggja á gagnkvæmu trausti. Við teljum það afskaplega þýðingarmikið að tryggja vinnufrið í verksmiðjunni fyrstu fimm starfsár- in og viljum því ná samningi sem því vera þeirra eina leið til þess að bjarga því sem bjargað verður og kannski meiri áhætta að gera ekki neitt. Ég tel að sveitarfélagið hafi staðið mjög vel að málinu og sé að skoða það út frá því hvort einhver rekstrargrundvöllur sé undir þessu og standa að því þannig gagnvart bæjarsjóði að þetta yrði, ef til kæmi, alveg aðgreint frá rekstrinum og þeir færu þá ekki út í neinar ábyrgð- ir að því er varðar þennan rekstur." Jóhanna sagði að ekki þyrfti að koma til sérstakur atbeini ríkisvalds- tryggir það,“ sagði Paul Drack, aðal- forstjóri bandaríska álfyrirtækisins Alumax. Per Olaf Aronson forstjóri Gráng- ers sagði að hann teldi að tekist hefði góður skilningur og traust á milli fulltrúa verkalýðsfélaganna á Suðurnesjum og fulltrúa Atlantsáls í þeim viðræðum sem átt hefðu sér ins til að áætlun Ólafsvíkinga gangi eftir. „Þeir hafa ekki leitað til ríkis- valdsins út af þessu efni,“ sagði hún. Jóhanna var spurð hvort önnur sveitarfélög á landinu ættu yfir höfði sér ámóta áfall og Ólafsvík. Hún kvaðst ekki vita um slík dæmi, en almennt virtist þeim sveitarfélögum, sem leitað hafa til félagsmálaráðu-. neytisins og verið í umræðu undan- farin tvö ár vegna bágrar fjárhags- stöðu, hafa gengið vel að bæta stöðu sína. stað og slíkt lofaði góðu um fram- haldið. Max Koker forstjóri Hoogovens sagði varðandi það atriði að Atlants- ál kæmi til með að standa fyrir utan VSÍ; „Við verðum að sjálfsögðu virk- ur þátttakandi í efnahags- og við- skiptalífinu á Islandi, en við viljum semja sjálfir við okkar starfsmenn.“ Paul Drack tók undir þessi o'rð Kokers og sagði: „Þannig gerum við einfaldlega viðskipti okkar. Við semj- um sjálfir. En að sjálfsögðu viljum við eiga samráð við Vinnuveitenda- samband íslands, leita þar ráða og slíkt. Við viðurkennum að sjálfsögðu nauðsyn slíks samráðs og sam- starfs." Viljum semja sjálfir við starfsmemi okkar fyrirtækja - segja forstjórar Atlantsálsfyrirtækjanna Lúxemborg, frá Agnesi Bragadóttur blaóamanni Morgunblaðsins. FORSTJÓRAR fyrirtækjanna þriggja sem mynda Atlantsál segja ástæðu þess að þeir hafi ákveðið að standa fyrir utaii Vinnuveitendasam; band íslands vera þá að þeir vilja sjálfir semja við sína starfsmenn. í samtali við blaðamann Morgunblaðsins kom fram hjá forstjórunum að þetta er sá háttur sem fyrirtækin þrjú hafa á í samningum við sína starfsmenn og sögðust þeir í engu vilja þar um breyta. Vandi rækjuverksmiðja: Byggðastofnun vantar sijórn- arformann og 200 milljónir - til að geta tekið á vandanum, segir Matthías Bjarnason STJÓRN Byggðastofnunar hefur ekki komið saman eftir að hún var skipuð í þinglok og segir Matthías Bjarnason alþingismaður, einn stjórn- armanna, að því hafi niálefni rækjuvinnslunnar ekki verið rædd þar. Þá segir hann að þær 200 milljónir sem lánsfjárlög heimila að lána þessum fyrirtækjum hafi ekki enn verið afgreiddar af fjármálaráð- herra og fyrr en það verði, geti Byggðastofnun ekki haft milligöngu um þær lánveitingar. Matthías segir jafnframt ljóst, að miklir fjármun- ir eigi eftir að tapast vegna ónógra trygginga fyrir lánum Atvinnutrygg- ingarsjóðs útflutningsgreina. Matthías sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að enginn fundur hafi verið haldinn í stjórn Byggða- stofnunar um tíma. „Það er í raun- inni engin starfsemi stjórnarinnar á meðan ekki er skipaður formaður," sagði hann. Formaður er skipaður af forsætisráðherra og kvaðst Matt- hías ekki vita hvenær það yrði. Matthías sagði að í vetur hefði verið rætt innan stjórnarinnar um stöðu rækjuvinnslufyrirtækja. „Hins vegar hafa þessar 200 milljónir sem heimild er fyrir á lánsfjárlögum ekki verið afgreiddar frá hendi fjármála- ráðherra, svo að ekkert flármagn hefur verið til ráðstöfunar og er ekki enn. Það sem liggur fyrir er auðvitað dapurleg staða flestra rækjuverk- smiðja, það eitt liggur fyrit.“ Hann sagði að vinna Byggðastofn- unar að þessu máli nú væri undirbún- ingur þess, að geta afgreitt þetta fé. Staða fyrirtækjanna væri skoðuð, hvers fyrir sig, þannig að sem skemmstan tíma tæki að afgreiða umsóknir þeirra um skuldbreytingu og fjárhagslega endurskipulagningu eftir að féð væri fengið. Matthías var spurður um stöðu fyrirtækja sem fengið hafa fyrir- greiðslu Atvinnutryggingasjóðs út- flutningsgreina, nú atvinnutrygging- ardeildar Byggðastofnunar, og Hlutafjársjóðs. „Við afskrifuðum á síðasta fundi rúmar 90 milljónir af þessum fjármunum ogþað voru fyrir- tæki sem voru orðin gjaldþrota," sagði hann. „Það var auðvitað ekki nema af- leiðing af því sem áður hafði gerst. Þetta átti allt að vera topptryggt þegar það var lánað frá Atvinnu- tryggingarsjóði útflutningsgreina, en það er langt frá því að svo sé, Þetta „Þegar ég settist í stól landbúnað- arráðherra var ástandið þannig í fisk- eldinu að fyrirgreiðsla hafði verið stöðvuð til margra láxeldisstöðva þannig að stofninn var í svelti. Ég beitti mér þá fyrir skammtímaað- gerðum á meðan tóm gæfist til að gera sér grein fyrir rekstrarafkomu fiskeldis og stöðu atvinnugreinarinn- ar í heild. Niðurstöðurnar hafa birst er ekki nema lítill hluti af því sem maður sér að mun ekki verða endur- greitt, en ég þori ekki að segja um það hversu há þessi upphæð er, reyndar getur enginn sagt það á þessu stigi,“ sagði Matthías. Hann var spurður hvort einhver hluti þessara fyrirtækja þyrftu áframhaldandi fyrirgreiðslu ef þau ættu að halda áfram rekstri. „Það hugsa ég, ábyggilega, og allt er þetta afleiðing þess að ekki var gengið hreint til verks og gengið skráð réttu verði. Þá hefði aldrei þurft til þess- ara ráðstafana að koma. Þetta var látið bíða og fékkst ekki gert að játa þeim staðreyndum þegar þær lágu í skýrslu sem fiskeldismönnum er kunn, og þeir hafa sagt við mig að þeim finnist gott að fá að vita hvar þeir standi fremur en að vera dregn- ir frá einum rnánuði til annars á svari frá opinberum aðilum,“ sagði Halldór. Eins og fram hefur komið er í til- lögum landbúnaðarráðherra gert ráð fyrir að 150 milljónir króna verði fyrir. Síðan, á árinu 1989, var geng- ið fellt nokkrum sinnum, en þá var líka búið að safna upp öllum þessum skuldum fyrirtækjanna." Matthías sagði ríkisvaldið hafa tekið fram fyrir hendurnar á atvinnu- lífinu og í raun og veru skammtað því tekjur, þegar þurfti hærri tekjur. „Þá leiðir það auðvitað hugann að því að það kemur að því að þeir sem verða þannig fyrir barðinu á „Stóra bróður“ vilja fá Ieiðréttingu sinna mála. Þetta var gert og ég er sann- færður um það, að af öllum þessum milljörðum sem þá voru teknir að láni koma þó nokkuð háar upphæðir á ríkið að borga vegna þess að þær eru tapaðar," sagði hann. lánaðar til fárra fiskeldisstöðva á þessu ári og jafn mikið á því riæsta, en lán þessi verða afborgunarlaus í þijúár. „Ég mun. jafnframt skrifa stofn- lánasjóðum bréf þar sem ég fer fram á að lán til fiskeldisstöðva verði af- borgunarlaus og ekki komi til greiðslu vaxta á næstu fjórum árum. Það er svo undir sjóðunum komið hvort þeir verða við beiðnum ein- stakra fyrirtækja um slíka tilhliðrun, en það verður að athuga hvert dæmi fyrir sig. Þessar aðgerðir veita fisk- eldisfyrirtækjunum að sjálfsögðu svigrúm, sem ég geri mér þó grein fyrir að ekki er nægilegt fyrir sum þeirra," sagði Halldór Blöndal. Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra: Tillögumar þrengja í engn kosti fiskeldisstöðvanna „ÉG GET ekki áttað mig á því hvaða tjóni þessar tillögur valda. Þær þrengja í engu kosti fiskeldisstöðva, heldur eru þær þvert á móti til rýmkunar. Staðan var þannig þegar ég settist í stól landbúnaðarráð- herra að bankarnir voru i raun hættir að veita afurðalán, og atvinnu- greinin stóð því frammi fyrir allsherjar stöðvun eins og viðskilnaður- inn var,“ segir Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra, en eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu telja fiskeldismenn tillögur landbúnað- arráðherra um aðgerðir í fiskeldismálum ekki leysa vanda greinarinn- ar heldur valdi þær ómældu tjóni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.