Morgunblaðið - 12.06.1991, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 12.06.1991, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDÁGUR '12. JÚNÍ 1991 37 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Harkalegar uppsagnir Mikið hefur verið rætt um upp- sagnimar í Þjóðleikhúsinu og ógild- ingu þeirra. Sem leikhúsgestur vil ég lýsa undrun minni og hryggð vegna þessa máls alls. Það er alltaf mikið áfall og alvar- legt mál fyrir einstakling þegar honum er sagt upp starfí. Sálfræð- ingar telja það næstum því jafnmik- ið áfall og það sem menn verða fyrir við missi ástvinar. Þess vegna hvílir mikil ábyrgð á herðum þeirra sem fara með mannaforráð. Þegar stjómendur fyrirtækja segja upp hæfu starfsfólki er það yfírleitt vegna erfíðleika í rekstri, stundum tímabundinna, eins og þegar fiskvinnslufólki er sagt upp. Stjómendur taka þetta allajafna mjög nærri sér og ráða fólkið aftur um leið og það er hægt. Þeir sem hafa unnið vel og skilað bestu starfí eru þá endurráðnir fyrstir allra. Oft reyna stjórnendur að útvega fólki starf annars staðar sé þess nokkur kostur. Þegar íslandsbanki var stofnaður með sameiningu nokkurra banka var það yfírlýst stefna stjórnenda að segja engum upp þótt nauðsyn- legt væri að fækka starfsfólki. En í Þjóðleikhúsinu þar sem sí- fellt er verið að fjalla um mannleg samskipti og tilfinningar á listræn- an hátt eru aðferðir aðrar og öllu kuldalegri og forsendur óskiljanleg- ar. Eins og stjórnendur íslands- banka fundu leið út úr sínum vanda hljóta stjórnendur Þjóðleikhússins að geta fundið farsæla lausn á sínu máli sem öllum er sómi að. Eða viljum við íslendingar til- einka okkur kaldrifjaðan og óper- sónulegan hugsunarhátt stórþjóða Minningarathöfn verði við Leifsstyttuna Nú á næstunni er væntanlegur hingað til lands farkostur í líkingu við skip Leifs heppna, þess Evrópu- manns er fyrstur fann Ameríku. Ósk mín er að minningarathöfn verði við Leifsstyttuna 17. júní. Ég vona að Bandaríkjamenn dragi fána að hún þann dag á opinberum bygg- ingum þar í landi skv. loforði B andaríkj aforseta. þar sem aðferðir sem þessar tíðk- ast? Ég var að lesa viðtal við hin nýju þjóðleikhússtjórahjón í tímarit- inu Heimsmynd. Nokkurrar ósam- kvæmni gætti í þessu mjög svo óvenjulega viðtali. í öðru orðinu furða hjónin sig á sterkum við- brögðum leikaranna sem sagt var upp en í hinu orðinu tala þau um hve óskaplega viðkvæmt fólk leik- arar séu og að þeir gangi oft sem á glóðum. Þess vegna verði að fara svo ákaflega varlega að þeim (!). Margt sló mig einkennilega í þessu viðtali, m.a. það að Þjóðleik- hússtjórafrúin talaði um að hún hefði „fundið fyrir hugsunum þessa fólks á skrokknum á sér“ þegar ósköpin (uppsagnimar) dundu yfír, en hún var þá stödd fyrir norðan og átti engan þátt í uppsögnunum, eða hvað? Benedikt Árnason leikstjóri sagði í viðtali eftir að uppsagnirnar voru gerðar ógildar að þeim yrði öllum sagt upp aftur 1. september þegar Stefán Baldursson tekur alfarið við stjórn Þjóðleikhússins. Ég vil bara ekki trúa því. Ber Stefán svona litla umhyggju fyrir skrokk konu sinnar að hann ætli að leggja þessar kval- ir á hana aftur nú haust? En gaman- laust: Þjóðleikhúsinu er ekki stætt á að reka „aflahæsta skipstjóra útgerðarinnar“. Stefán ætti að end- urskipuleggja starfsemi haustsins, sé þess nokkur kostur, og taka upp aftur sýningar á „Söngvaseiði“, fyrst aðsóknin er svona góð. Sveigj- anleiki hlýtur að vera nauðsynlegur þáttur í stjóm leikhúss eins og í öðmm fyrirtækjum. Með von um farsæla lausn öllum til góðs. Leikhúsgestur ■ .7/7///////// SVMARLINAN t Lausagangur búfjár sumarlangt. Þessa lausagöngu ætti að banna og er það forsenda þess að hægt verði að snúa vörn í sókn hvað varðar landgræðslu. Víða hef- ur sauðfé valdið gífurlegri eyðilegg- inu á gróðri vegna þess að engin stjórn hefur verið höfð á beitinni. Jafnvel á stöðum eins og Þórsmörk’ hefur landið ekki en verið friðað fyrir varginum enda blasa sárin við. Ahugamaður um landgræðslu LONDON AUSTURSTRÆTI [lírrgmuMabib Meira en þú geturímyndað þér! Einar V. Bjarnason Mikið er talað um umhverfís- vemd og landgræðslu en minna er um markvissar framkvæmdir og eyðingaröflin fá að fara sínu fram. Ar eftir ár er sauðfé sleppt lausu til að naga nýgræðinginn í vegkönt- unum sem Vegagerðin hefur sáð í með æmum tilkostnaði. Þar sem bjartsýnisfólkið hefur hafíð skóg- rækt þykir rollunum gott að naga hríslurnar og enginn ber ábyrgð á eyðileggingunni því ennþá þykir sjálfsagt að sleppa rollunum lausum msm XSM TILBOÐ DENVER LEÐURSETT 158.640,- EKKI MISSA AF ÞESSU Sýnum hvert öðru nærgætni í umferð- inni. Komum heil heim. Homsó/í 158.640,- Sett og hornsófar meö úrvals fallegu leóri á betra verói en áður hefurþekkst. Komdu strax - margir litir, takmarkaöar birgöir Viö lánum þér í ár eða lengur. rMOEÍtMFí BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVtK - StMI 91-681199 - FAX 91-673511

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.