Morgunblaðið - 14.06.1991, Qupperneq 1
VIKUNA 15. — 21. JÚNÍ
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1991
BLAÐ
Hagnýt fjölmiðlun er ný námsskor við Félagsvísindadeild Háskóla Islands og er henni ætlað
að þjálfa nemendurtilýmissa starfa viðfjölmiðla og kenna þeim réttu tökin á þeim vettvangi.
Fyrsti veturinn sem hagnýt fjölmiðlun var kenn hefur nú runnið skeið sitt og meðal þess sem
fyrsti nemendahópurinn lætur eftir sig er útekt á heimavinnu íslendinga, sem sýnd verður í
þættinum Fólkið í landinu á laugardagskvöld.
ÞAR FÆDDIST
JÓN
SIGURÐSSON
í tilefni þess að 180 ár eru frá fæðingu Jóns
Sigurðssonar heimsótti Finnbogi Hermanns-
son Hrafnseyri. Þar vitjaði hann fornra menja
í fylgd Hallgríms Sveinssonar, staðarhaldara,
og verður þátturinn á dagskrá Rásar 1 mánu-
daginn 17. júní.
Á Hrafnseyri er Safn Jóns Sigurðssonar og
Minningarkapella hans. Hrafnseyrarnefnd hef-
ur stjórnað uppbyggingu á staðnum allt frá
17. júní 1944. Safnið var opnað 3. ágúst 1980
og var það fyrsta embættisverk frú Vigdísar
Finnbogadóttur, forseta íslands. Rætt verður
við Benedikt Þ. Benediktsson í Bolungavík,
sem gaf safni Jóns Sigurðssonar jörðina Gljú-
furá. I þættinum les Guðmundur Ingi
Kristjánsson frá Kirkjubóli kvæði sitt,
Hrafnseyrarkvæði, sem hann orti
í tilefni Hrafnseyrarhátíðar 1980.
Guðrún Þorsteinsdóttir, ellefu
ára gömul vinnukona á
Hrafnseyri les kvæði Hann-
esar Hafstein, Minningar-
Ijóð Jóns Sigurðssonar
VILLI-
ÖNDIIM
Kvikmyndin Villiöndin (The Wild Duck),
sem byggð er á samnefndu leikriti
Henriks Ibsens, er á dagskrá Stöðvar
2 nk. sunnudag. Leikritið greinirfrá
hjónunum Harald og Gínu sem eiga
þréttán ára dóttur en sjá auk þess fyrir
föður Haralds. Sá gamli er mikill dýra-
vinur og hefur kanínur, dúfur, hænsni
og villiönd. En svo verður fjölskyldan
fyrir reiðarslagi. Gamall skólafélagi Har-
alds kemur til bæjarins og segir Harold
frá gömlu fjölskylduleyndarmáli. Harald
verður svo mikið um að hann afneitar
konu sinni og dóttur. Dóttirin fær ekki
skilið hvers vegna faðirinn hefur snúið
við henni baki og fórnar því dýrmæt-
asta sem hún á, villiöndinni.
Maltin: ★ 'á
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-8
Utvarpsdagskrá bls. 2-8
Hvað er aci gerast? bls. 3 og 5
Myndbönd bls. 8
í borginni bls. 6 og 7
HEIMAVINNA