Morgunblaðið - 23.06.1991, Síða 10

Morgunblaðið - 23.06.1991, Síða 10
FÓLK ó öllum aldri hef ur tekió nýja tegund af hjólasótt. Yfir landió hef ur undanfarin 4-5 ár rióió fjallah jólabylg ja svo mikil aó enginn telst lengur maóur meó mönnum nema eiga slikan grip. Aó minnsta kosti i sumum kreósum. Fjallahjólin koma i ýmsum útfærslum, allt frá þrihjólum i „fjallahjólastil" upp i 21 girs h jólhesta á 200 þúsund krónur eóa meira. M.ORáHIíBMÐffiX SUNNffiDAG '1991 m --------- Kristinn Björgúlfsson á leið yfir eina af kvíslum Elliðaánna. eftir Guðmund Löve. Myndir: Þorkell. að er óhætt að segja að æðið hafi gripið um sig fyrir alvöru. Fjallahjólin standa nú fyrir um helm- ingi reiðhjólasölu á íslandi og ekkert lát virðist vera á vinsældum þeirra. Skýringanna er ef til vill að leita í gífuriega fjöl- breyttu framboði þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Ný della Hér hafa hlutirnir gerst hratt. Fyrir fjórum árum var lítið farið að bera á fjallahjólum hér á landi, en íslendingar voru meðal fyrstu þjóða að tileinka sér þessa nýjung. Það er þó síðastiiðin 2 ár eða svo sem þróun- in hefur verið sem hröðust. Fyrst í stað bar mest á útbreiðsl- unni meðal unglingspilta en nú eru fararskjótarnir óðum að ryðja sér til rúms meðal fullorðinna, sem nota þau jöfnum höndum sem handhæg og ódýr samgöngutæki og til líkams- ræktar. Verkstjórahjól Þó að hjólreiðar séu í hugum flestra tengd við frístundir er þessi ferða- máti útbreiddur í vissum atvinnu- greinum sem eðli sínu samkvæmt krefjast handhægra fararskjóta. Sem dæmi má nefna_ að í álverinu í Straumsvík og Áburðarverksmiðju ríkisins á Gufunesi eru íjallahjólin notuð til innanhússsamgangna. Veg- aiengdirnar í kerskálum álversins eru slíkar að hjólin, sem ganga undir nafninu „verkstjórahjól", eru ,bráð- nauðsynlegur þáttur í daglegu starfi þar. Stærsti kaupendahópur fjallahjóla hefur hingað til verið karlmenn. Upp á síðkastið hefur kvenfólkið þó sífellt látið meira að sér kveða og er þar nú ört vaxandi notendahópur auk þess sem aldursdreifingin eykst. Hjól- in njóta fádæma vinsælda hjá ólík- ustu hópum; sex ára pollar vita flest- ir hvað ijallahjól er og frakkaklæddir miðaldra menn sjást þeysast á þeim um strætin fram hjá bílalestunum. „Járnkarl" Þó að það kunni að hljóma mót- sagnakennt er talið að um 95% notk- unar fjallahjóla fari fram á renni- sléttu malbiki þéttbýlisstaðanna. Þeir eru tiltölulega fáir sem nota fjalla- hjólin í þeim tilgangi að fara á fjöll eða vegleysur eins og nafnið annars gefur til kynna. í Reykjavík er starf- andi félagsskapur er nefnist íslenski fjailahjólaklúbburinn, og skipuleggur hann „útreiðar" fyrir félagsmenn auk þess sem nokkuð mun vera um óformlega hópa sem ferðast saman. Erlendis hefur sérstök keppnis- grein rutt sér rúms þar sem fjalla- hjól leika mikilvægt hlutverk. Grein þessi hefur verið nefnd „Iron man“ upp á ensku, og er því tilvalið að kalla hana „Járnkarlinn" á móður- málinu. Þetta er keppni í þríþraut þar sem þátttakendur bytja á að synda 3-4 kílómetra, hjóla svo 160 km yfir fjöll og firnindi, og enda sprellið á maraþonhlaupi. Keppnir af þessu tagi hafa einkum verið háð- ar á Hawaii-eyjum og í Nice í Frakkl- andi, og segja má að nafn greinarinn- ar sé lýsandi fyrir þá tegund manna sem taka þátt í slíku. Á íslandi er vaxinn fram vísir að slíkri keppni og var ein slík haldin þann 8. júní síðastliðinn. Þess ber að geta að sú var smækkuð útgáfa af Járnkarlakeppninni, en takmarkið er að halda keppni í „hálfum Jám- karli“ innan tíðar. Aóstöóuleysi Viðunandi æfingaaðstaða fyrir hjólreiðafólk á höfuðborgarsvæðinu er vandfundin. Ellefu hundruð metra hring á Örfirisey hefur verið lokað, en þann hring hjóluðu menn gjarnan enda lítil umferð og minni slysa- hætta. Sökum þess hve óheppilegt gatnakerfi Reykjavíkur er fyrir hjól- reiðafólk við æfingar hefur verið stungið upp á að leggja hjólabraut í Laugardalnum þar sem fólk gæti stundað íþróttina sér til heilsubótar. Yngri kynslóðin hefur þó alitaf lag á að bjarga sér og nú hefur Heið- Kristinn Björgúlfsson í krappri beygju. Snaevar Sigurésson hjólar í hrauninu á Ellióaár- hólma. merkurhringurinn fengið nýtt hlut- verk sem æfingabraut og hið svokall- aða „indjánagil" við Elliðaámar í Breiðhoiti hefur verið nýtt til tor- færuaksturs og hjólaralls. Veró og gæói Fararskjóta þessa má fá í mörg- um mismunandi útgáfum. Algengt er að hjólin séu seld „strípuð", sem sagt fylgihlutalaus með öllu. Notand- inn þarf þá sjálfur að velja bretti, bögglabera, ljós, töskur og hverja þá fylgihluti sem hugurinn girnist, til að prýða hjólhestinn. _ Hjólin sjálf em ýmist gíralaus, 3, 10, 15, 18, 21 eða jafnvel 28 gíra og verðið fer að sjálfsögðu að miklu leyti eftir því. Sem dæmi má nefna að 21 gírs hjól í meðalgæðaflokki kostar um 40 þúsund krónur og ofan á það bætast nauðsynlegustu fylgi- hlutir, svo heildarverðið verður gjarnan á bilinu 30-50 þúsund fyrir gripinn kominn á götuna, allt eftir kröfum hvers og eins. Þess ber að geta að einörðustu stuðningsmenn fjallahjóla vilja meina að hjól sé ekki ijallahjól nema það hafí alvörubremsur og gíra, sem var í raun og vem það sem í upphafi gerði hjólin að því sem þau em. Auk þessa telja menn æskilegt að stellið sé úr léttmálmi og felgurnar úr áli, en það er skilyrði fyrir góðri bremsu- verkan í bleytu. Fylgihlutir, svo sem gírskiptingar, bremsur og þess háttar, er framleitt í mismunandi „seríum“. Hver sería hefur ákveðið númer sem segir að einhvetju leyti til um gæði viðkom- andi hlutar. Ef menn kaupa sér dýr- ustu seríu er hægt að leggja í þetta jafn mikið eða meira fé en hjólið sjálft kostaði. Sem dæmi má nefna að bögglaberi úr léttmálmi getur kostað 6 þúsund krónur, hágæða hnakkur 10 þúsund, töskusett allt að 25 þús- und og ýmislegt smálegt, svo sem bretti, ljós og standari nokkur þús- und krónur samtals. Vissulega eru þarfir hvers og eins mismunandi, og það má kannski segja að einmitt í þessu sé styrkur fjallahjólanna falinn. Bæði eru gír- r

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.