Morgunblaðið - 14.07.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.07.1991, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR/INNLENT ofir i.mi. >r ímoAínwvnra flioAiifmuoaoM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1991 EFNI Herðubreiðarlindir: Kreppa er orðin fær FERÐAMENN við Herðubreiðar- lindir gátu komist af staðnum í gærmorgun eftir að hafa verið tepptir frá því á fimmtudags- kvöld vegna vatnavaxta í ánni Kreppu. Að sögn Kára Kristjáns- sonar landvarðar náði áin há- marki um kl. 22 í fyrrakvöld en þá byrjaði að sjatna mjög hratt í henni og í gær var orðið fært. „Áin skolaði leir inn á melana fyrir neðan okkur en það er að síga úr þessu og orðið fært,“ sagði Kári Kristjánsson í samtali við Morgun- blaðið. í Jökulsá á Fjöllum var enn töluvert vatn í gærmorgun. Hópur fólks hafði, að sögn Kára, þegar yfirgefið svæðið í gærmorg- un. Röng mynd- birtíng Þau mistök urðu við birtingu greinar Gunnars Þórissonar bónda á Fellsenda í blaðinu í gær að með henni var birt mynd af Gunnari Þórissyni rekstrarhagfræðingi. Blaðið biður hlutaðeigandi velvirð- ingar á þessum mistökum. Myndin sem skipverjar um borð í Sæbjörgu, skipi Slysavarnaskóla sjómanna, tóku af Stella Lyra fyrir norðan land 80. júní, sama dag og skipveijar á Pétri Jónssyni sáu stórt tankskip á reki aust- norðaustur af Kögri. Mengunarslysið á Ströndum: Siglingamálastofnun leitar að stóru tankskipi ENN er óvíst um uppruna mengunarinnar á Ströndum. Siglingamálastofnun athugar með skipsferðir á þessum slóð- um 30. júní, en þá sáu skipveij- ar á Pétri Jónssyni mörg þús- und tonna tankskip á reki austnorðaustur af Kögri. Það skip hefur ennþá ekki fundist. Sama dag, 30. júní, tóku skip- verjar um borð í Sæbjörgu mynd af stóru skipi á þessum slóðum sem vakti athygli þeirra. Páll Hjartarson, deildarstjóri hjá Sigl- ingamálastofnun, segir að komið hafi í ljós að myndin sé af hol- lensku skipi, sem heiti Stella Lyra, og hafi losað vélarolíu í Hafnar- firði skömmu áður. Orsakir meng- unarinnar geti ekki verið að rekja til þess, þar sem það hafi ekki haft neitt lýsi um borð. * Ari Skúlason hagfræðingur ASI: Horfur í efnahagslífinu ekki verið verri í áratugi HORFUR í efnahagslífinu hafa ekki verið verri í áratugi að sögn Ara Skúlasonar, hagfræðings ASI. I nýjum drögum Þjóðhagsstofnunar að þjóðhagsspá fyrir þetta og næstu ár kemur fram að kaupmáttur er talinn munu aukast um 1% á þessu ári i stað 2% í siðustu spá og að á næsta ári rými kaupmáttur um 1,5%. Þá er búist við að viðskiptahalli vaxi úr 13 milljörðum á þessu ári í 17,5 milljarða á næsta ári. Ari var spurður um afleiðingar þessarar þróunar fyrir almenning, en eins og fram hefur komið ríkir nú lengsta stöðnunartímabil í íslenskum þjóðarbúskap í nærri sex áratugi. „Það verða auðvitað færri krónur til þess að draga fram lífíð. Það verður erfíðara að ná endum saman,“ sagði hann. í drögum Þjóðhagsstofnunar er spáð samdrætti á næsta ári og minni bata á þessu ári en áður. Þjóðarútgjöld eru talin munu auk- ast um 2,6% í ár, en standa í stað á næsta ári. Útflutningur vöru og þjónustu er talinn dragast saman um 4,2% á þessu ári og 2,8% á því næsta, innflutningur aukast um 1,9% í ár en minnka um 1,5% á næsta ári. Verg landsframleiðsla er talin munu aukast um 0,3% á þessu ári, en dragast saman um 0,5-2% á næsta ári, eftir því hvort álver verður byggt eða ekki. Verðbólga er talin verða 7% á þessu ári miðað við síðasta ár og 6% á því næsta. Verðbólga innan ársins nú er talin verða 8% og 4% á næsta ári. Atvinnuleysi er talið munu aukast lítillega á næsta ári og verða 1,9%. Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóð- hagsstofnunar sagði í samtali við Morgunblaðið að til þess að tryggja sambærileg lífskjör hér á landi og annars staðar sé nauðsynlegt að við búum við það í framtíðinni að hagvöxtur verði á bilinu 2-3% að jafnaði og stöðugleiki sé í efna- hagsiífínu. „Ég held að vandinn sé einmitt sá, að þetta markmið hefur alls ekki náðst að undanförnu. Það stafar af því að hér hefur ekki byggst upp nein öflug útflutnings- grein við hliðina á sjávarútveginum sem virðist vera kominn á eða far- inn að nálgast endimörk vaxtar og ný eða nýjar greinar sem bera uppi hagvaxtarskeið á næsta áratug verða að koma til. Sjávarútvegurinn hefur haldið uppi hagvextinum hér í 90 ár og nú verða aðrar greinar að taka við keflinu, svo maður noti íþróttamál, og bera það áfram,“ sagði Þórður. Sjá „Á köldum klaka“ á bls. 10. Tvísýnt um að landsmót UMFI verði á Laugarvatni Viðræður hafnar um að Selfyssingar haldi mótið I nurramr'ilni v ^—* Laugarvatni. NÚ ER orðið tvísýnt um að 21. landsmót ungmennafélaganna geti far- ið fram á Laugarvatni sumarið 1993 eins og stefnt hefur verið að. Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK) sem tekið hefur að sér að halda mótið hefur ekki enn fengið undirritaðan samning við íþróttamiðstöð Islands sem tryggir að aðstaða verði tilbúin á réttum tíma til að halda mótið. Bygging nýs aðalleikvangs tekur allt að tveimur árum. Samningur milli HSK og ÍMÍ um aðstöðuna á Laugarvatni hefur legið fynr síðan í byijun mars. Þar trygg- ir ÍMÍ að aðstaða verði öll tilbúin á tilsettum tíma. Meðal þeirrar aðstöðu sem tiyggja þarf að verði tilbúin er aðalleikvangurinn með grasvelli og fjögurra brauta hlaupabraut með sex beinum brautum lögð gerviefni, ásamt áhöldum. Einnig þarf að byggja nýja sundlaug. Þessi aðstaða, sem byggja þarf, á síðan að nýtast Miðlunarlón að fyll- ast vegna vatnavaxta ÓVENJUMIKIL jökulbráð hefur valdið miklum vatnavöxtum í ám á hálendinu og er vatnsbúskapur Landsvirkjunar með besta móti um þessar mundir, að sögn Jó- hanns Más Maríussonar, aðstoð- arforstjóra Landsvirkjunar. „Þórisvatn er orðið fullt og nýja miðlunarlónið við Blöndu ætti að fyllast eftir tíu daga. Allar forða- geymslur eru fullar og það boðar gott fyrir veturinn,1; sagði hann. „Góður vatnsbúskapur hefur góð áhrif á reksturinn næsta vetur,“ sagði Jóhann en jafnframt að þetta hefði engin áhrif á gangsetningu Blönduvirkjunar. Þar gengi allt samkvæmt áætlun. íþróttakennaraskólanum og íþrótt- amiðstöðinni eftir mótið. Aætlað er að bygging aðalleikvangs á Laugar- vatni kosti á bilinu 50 til 70 milljón- ir og sundlaugum 30 til 40 milljónir. Heimamenn á Laugarvatni og stjórn íþróttamiðstöðvarinnar eru allir mjög jákvæðir fyrir samnings- gerðinni og landsmótshaldinu en þar sem allar eignir skólanna, landsvæði og mannvirki heyra undir mennta- málaráðuneytið verður samþykki og trygging fjármagns til framkvæmd- anna að koma þaðan. Þar með stend- ur og fellur landsmótshald á Laugar- vatni með undirskrift ríkisvaldsins. Drög að samningi HSK og ÍMÍ voru lögð fyrir fyrrverandi mennta- málaráðherra 9. apríl sl. Fjórtánda maí sendi landsmótsnefnd HSK svo ítrekun til núverandi ráðherra um að svar þurfi að liggja fyrir 15. júní en hefur ekkerí svar fengið. Að sögn formanns nefndarinnar sér hún fram á tímaþröng við undir- búninginn vegna þessa dráttar á svari ráðuneytisins. Bygging aðal- leikvangs í viðunandi ástandi til keppni tekur allt að tveimur árum. Nefndin hefur því óskað eftir viðræð- um við Selfossbæ um þann mögu- leika að halda mótið þar. Ef mótið verður haldið á Selfossi tekur Selfossbær á sig kostnað við byggingu allra mannvirkja, sem eru fullbúinn fijálsíþróttavöllur og úti- sundlaug. Landsmótin sem haldin eru á þriggja ára fresti eru alltaf stórviðburður og draga að sér mikla athygli. Vegna sumarleyfa í menntamála- ráðuneytinu tókst fréttaritara ekki að fá svör þaðan um þetta mál. - Kárl Hörður Vil- hjálmsson sett- ur útvarpssljóri HÖRÐUR Vilhjálmsson fjármála- stjóri Ríkisútvarpsins hefur verið settur útvarpssljóri tímabundið. Markús Öm Antonsson lætur á mánudaginn af störfum útvarps- stjóra og tekur við starfi borgar- stjóra í Reykjavík daginn eftir. Hörður Vilhjálmsson mun gegna starfí útvarpsstjóra uns nýr út- varpsstjóri hefur verið ráðinn. ►1-40 ffitrgmþfabfoi Á köldum klaka ►Lengsta kyrrstöðutímabil íslensks efnahagslífs í nærri 60 ár stendur nú yfir og sést ekki fyrir endann á því, en ef ekkert verður að gert situr hér hnípin þjóð á köldum klaka á meðan lífskjörin batna í nágrannalöndun- um. verður /10 Mikilvægi íslands eykst ►Viðtal við Manfred Wömer, framkvæmdastjóra Atlantshafs- bandalagsins. /14 Fjölmiðlabllða ►Sumarið 1991 verður eflaust skráð á spjöld sögunnar sem mollu- sumarið mikla, en veðurfræðingar segja að það beri alls ekki að taka því sem forboða um breytta veðr- áttu á íslandi því að í raun og veru sé þetta ekkert óvenjulegt. /16 Anna á mig ►Við uppgröftinn á Stóruborg undir Eyjafjöllum komu í ljós bæj- arrústir, þær elstu frá 12. og 13. öld og fundust þar 5.000 hvers- dagshlutir fólks sem hafði byggt og búið á sama bæjarstæðinu öld- um saman. Nú stendur yfir sýning á þessum hlutum./18 Ég sef helst ekki þessa björtu og blíðu mánuði ►i heimsókn hjá Ama Birni Har- aldssyni í Svanvik á landamærum Noregs og Sovétríkjanna /32 B HEIMILI/ FASTEIGNIR ► 1-24 Þrjár systur ►Það er varla nökkuð karlmann- legra en bílaverkstæði og bílavöm- verslun, púströr og hljóðkútar. Hvernig í ósköpunum stendur þá á því að það era þrír kvenmenn sem stjórna Fjöðrinni, þessu gam- algróna varahlutafyrirtæki sem systumar Sigríður, Pálína og Bára keyptu af föður sínum fyir þremur árum? /1 Síðasti guðfaðirinn ►John Gotti er skuggahlið ameríska draumsins: götustrákur- inn sem varð foringi öflugustu glæpasamtaka Bandaríkjanna. /4 Spunnið í Skíðadal ►Ung norsk bóndakona viðheldur gömlum íslenskum hefðum við að vinna band, spinnur á rokk og litar úr hráefni sem hún fær úr fjósinu og ofan af fjalli. /6 Þýsku vofunni líkaði vögguvísan ►Rósa Einarsdóttir á Akranesi rifjar upp gamla tíma er hún var skipsþema á Lyrunni./lO Sælureiturinn ►Flest eigum við okkur draum um paradís á jörðu. sumir láta sér drauminn nægja en aðrir láta hann rætast og eiga sér sælureit þar sem þeir dvelja löngum stundum. /14 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Útvarp/sjónvarp 36 Dagbók 8 Gárur 39 Hugvekja 9 Mannlífsstr. 9c Leiðari 20 Fjölmiðlar 18 Helgispjall 20 Kvikmyndir 20 Reykjavíkurbréf 20 Dægurtonlist 21 Myndasögur 22 Menningstr. 22 Brids 22 Minningar 24c Stjörnuspá 22 Bíó/dans 26c Skák 22 Afömumvegi 28c Fólk í fréttum 34 Velvakandi 28c Karlar 34 Samsafnið 30c INNLENDAR FRÉTTIR: 2—6—BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.