Morgunblaðið - 14.07.1991, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.07.1991, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNMUÐAGUR 14. JULI 1991 PASVIK-DALUR er gróðursæll og iðandi af lífi í annars heldur hrjóstrugri Finnmörk- inni. Um dalinn rennur áin sem skilur að Noreg og Sovétríkin og þarna eru landamæri í öðrum skilningi því í Pasvik-dalnum mætast einnig gróðursvæði Skandinavíu og túndra Norður-Rússlands. í hjarta dalsins, sem liggur eins og tota inn í Finnland, hafa Arni Björn Haraldsson, kona hans og þrjú börn byggt sér fallegt einbýlishús og reka bæði eigin fyrirtæki á jarðhæðinni. Árni er virkur í félagsmálum á svæðinu, hefur meðal annars setið í sveitarstjórn í Suður-Varanger fyrir Hægri flokkinn. NYRST Í NOREGI 4.GREIN Eftir Ágúst Inga Jónsson EB rni Björn er 44 ára, sonur ■■ Herdísar Jónsdóttur og Har- RS aldar Árnasonar, ráðunautar m ■ hjá Búnaðarfélaginu. Árni lauk bútækninámi frá landbúnaðar- háskólanum í Ási, skammt frá Osló, vorið 19 73 og þar ky nntist hann konu sinni Sólveigu Ingebrigtsen frá Svanvik í Pasvik-dalnum. ísland, Noregur, Tanzanía Að loknu námi kom Árni heim og starfaði hjá Þór hf. í Reykjavík við sölu á búvélum í tvö ár og var síð- an við kennslu í bútækni á Hólum í Hjaltadal í eitt ár. Þá lá leiðin til Tanzaníu þar sem Árni starfaði að norrænu þróunarverkefni í land- búnaði í 2 ár. Verkefnið þar var fyrst og fremst að kenna fólkinu að hjálpa sér sjálft. Álíka margt fólk og nautgripir voru í landinu, um l 3 milljónir af hvorri tegund. Árið 1978 varÁrni Björn ráðinn forstöðumaður Tilraunastöðvar landbúnaðarins að Svanhovd í Pas- vik-dalnum í Finnmörku. Þrettán manns eru fastráðnir hjá þessari stofnun norska ríkisins ogþarna starfaði Árni í átta ár. Smátt og smátt fór hann að huga að eigin atvinnurekstri, einkum vélasölu til bænda á þessum slóðum og mati á vegum tryggingafélaga. Vélasalan var ekki arðvænleg þar sem mikill samdráttur var á þessum árum í landbúnaði í Norður-Noregi oger Árni hætti sem forstöðumaður á Svanhovd réði hann sig sem iðnráð- gjafa í Pasvik-dalnum. Hann segist hafa komið ýmsum áhugamálum sínum áleiðis, til dæmis auknum veiðum og vinnslu á físki, sem veið- ist grimmt í ám og vötnum þarna. Einnig fékk hann fólk til að hugsa öðru vísi varðandi setu á bújörðum. Hann fékk því til leiðar komið að er fólk eltist og hætti að geta sinnt búskapnum eins og áður gat það selt jarðir sínar'og hús og flutt á sambýli fyrir aldraða í sveitinni, en þó áfram verið í tengslum við lífs- starf sitt. Yngra fólkið fékk hins vegar styrk til að taka við. Fyrir rúmlega einu ári hóf Árni Björn síðan störf sem sjálfstæður tjónamatsmaður á vegum stærstu tryggingafélaganna í Noregi. Hann sérhæfir sig í mati á húsum í sveit- arfélaginu Suður-Varanger, sem er um 4 þúsund ferkílómetrar að stærð, en það samsvarar stærð þriggja fylkja við Oslófjörðinn þó aðeins búi tæplegaYO þusund manns á norðursvæðinu. Hann er einnig iðulega kallaður til ef tjón verður á bújörðum hvar sem er í Finnmerkur-fylki. Rússland út um eldhúsgluggann Ástæðan fyrirþví að við fluttum hingað í Pasvik-dalinn er sú að ég vildi kynnast af eigin raun æsku- stöðvum Sólveigar konu minnar og hér líkar okkur mjög vel að búa. Ég er eiginlega ekkert á leiðinni heim, hér á ég heima,“ segir Árni Björn þegar við spjöllum saman í nýju húsi hans í Svanvik sem er í landamæradalnum miðjum. Örfáir kílómetrar eru yfir til Rússlands og út um eldhúsgluggann má greina húsin í rússnesku borginni Nikkel. Mengunin frá borginni dylst ekki þegar horft er á strókana frá verk- smiðjum þar. Reyndar er hár skor- steinn upp úr aðalverksmiðjubygg- ingunni, en það er eins og mökkur- inn komi jafnt út um hliðarhússins eins og upp úr strompnum. Sem betur fer fyrir íbúa í Pasvik-dalnum eru vestlægar vindáttir ríkjandi þarna svo mest af menguninni dreifist yfir Rússland. Eigi að sfður er ófuilkominn mengunarbúnaður í borginni Norðmönnum mikill þyrnir í augum. Árni segir að sér líki vel að fara á milli staða og vinna að tjónamat- inu. Hann fari víða, hitti margt fólk ogþurfi ekki alltaf að sitja innilokaður á skrifstofunni. „Mér fannst ekkert vandamál að setja mig inn í hugsunarhátt fólks hér og daglegt líf. Aðeins að staldra við og átta sig á siðum og venjum og rétta sig eftir því, en reyna ekki að breyta hinurn," segirÁrni. „Finnskur arfur er mjög áberandi meðal Norðmannanna í Pasvik- dalnum og þessi finnska harka í norðurhéruðunum er þekkt. Svo eru Samarnir fjölmennir á þessum slóð- um með sinn sérstaka lífsmáta, en í mínum huga eru þetta allt bara nágrannar mínir og vinir.“ Án olíunnar hefði margt verið öðru vísi Árni lítur ekki lengur á sig sem gest í Noregi, en eftir rúman áratug í landinu veltir hann fyrir sér ýms- um þáttum í norsku samfélagi. Honum finnst til dæmis skrifræðið vera orðið yfirþyrmandi, langan tíma taki að velta verkefnum fram og aftur áður en ákvörðun er loks tekin ofarlega í píramídanum. Kerf- ið sé þungt í vöfum og þetta leiði meðal annars af sér að norsk fram- leiðsla verði óþarflega dýr. Hann spyr sig líka hvað hefði gerst í Noregi ef olíuauðurinn hefði ekki komið til. „Það er ljóst að olían hefur útvegað fólki mikið á einfald- an og fyrirhafnarlítinn hátt. Norð- menn eru farnir að sjá þetta sjálfir, en það er erfitt að snúa hjólinu við. Fólk hefur getað gengið í sjóðina í stað þess að peningarnir hafi farið til þess að auka framleiðslu og skil- að sér til fólksins í gegnum fyrir- tækin. Eigið fé fyrirtækja í Noregi er hvergi minna en hér í Finnmörku. Þessu tengt má nefna að námafyrir- tækið í Kirkenes, sem er alfarið í eigu norska ríkisins, hefur haldið uppi háum launum hér, sem litlu iðnfyrirtækin hafa engan veginn árum skoðað kjarnorkuver á Kola- skaga og þó búnaður þeirra sé ekki eins fullkominn og á Vesturlöndum telja menn þau ekki beina ógn við umhverfið. í öðru lagi eru kjarn- orkukafbátar í hafinu stöðugt áhyggjuefni eins og dæmið um kaf- bátinn sem sökk við Bjarnarey fyr- ir rúmum tveimur árum sýnir glöggt. Síðast en ekki síst hafa Norðmenn mótmælt mjög ákveðið tilraunasprengingum á Novaja Zemlja, sem er aðeins um 700 kíló- metra undan ströndum N-Noregs. Reyndar voru íbúar í Pasvik- dalnum áþreifanlega minntir á ná- lægðina við hernaðarmannvirkin á Kolaskaga skömmu fyrir jól 1989. Þá misstu Rússar flugskeyti frá einni herstöðva sinna og flaug það upp allan Pasvik-dalinn, réttyfir höfðum fólksins, og endaði ferð sína án þess að valda tjóni á ísi lögðu vatni í Norður-Finnlandi. Fjallaferðir og veiðimennska allan ársins hring Árni Björn og Sólveig kona hans eiga þrjú börn. Andreas 18 ára, Harald.14 ára og Vigdísi, sem er 8 ára. ÖIl stunda þau tómstundir, og þá einkum útivist, af kappi. Á Þessir herramenn voru við skógarhögg er Arna Björn og blaðamann bar að. Viðinn átti að nota í hús fyrir ferða- menn og á fleiri stöóum í dalnum var unnið að því að bæta aðstöðu ferðamanna. Tilraunastöð norska landbúnaðarins á Svanhovd, en þar vann Arni Björn sem'forstöðumaður í átta ár. getað keppt við. Því hafa mörg þeirra lognast út af eða verið and- vana fædd. Nú eru erfiðleikar hjá þessum risa í atvinnulífinu hér og þá er ekki í mörg hús að venda. Ef oh'an hefði ekki komið til í Noregi hefði þróunin orðið hægari í þessu samfélagi, sem bændur og sjómenn báru uppi að verulegu leyti, en það er spurning hvort við erum eitthvað betur sett.“ Otti við kjarnorkuslys Nábýlið við fólkið handan árinnar er íbúum í Pasvik-dalnum ofarlega í huga og þetta sambýh gengur ekki alltaf sem skyldi. Áður hefur verið vikið að menguninni frá borg- inni Nikkel, sem var finnsk fram til ársins 1944. Um þessa borg og nágrenni hennar segir Árni, að ástandið sé í einu orði sagt hrylli- legt og hann segist ekki skilja hvernig fólk fái þrifist í allri þess- ari mengun. Árni segist þó bjart- sýnn á að bætt verði úr þessu á næstu árum, Rússar hafi gefið vil- yrði fyrir því og virðist sjálfir orðn- ir hræddir vegna þeirra miklu um- hverfisspjalla, sem ekki dyljist nokkrum manni. Talsverð samskipti eru við bæina á Kolaskaganum og segir Árni að Sovétmenn leggi kapp á að mennt- að fólk starfi á þessum slóðum. Greidd séu hærri laun í norðurhér- uðum Rússlands, fólk komist fyrr á eftirlaun og í bónus sé t.d. mennt- uðum íbúum í Murmansk boðið í orlofsferðirtil Svartahafsins á þriggja ára fresti. Hins vegar vanti mikið á skipulag og gæðakröfur á þessum slóðum og miðstýring hafi verið alls ráðandi í alltof langan tíma. Gífurleg hernaðarmannvirki og kjarnorkuver á Kolaskaganum valda Norðmönnum áhyggjum og þá ekki síst eftir slysið í Tjernobyl. Þar sem Árni Björn þarf ekki að gegna herskyldu í Noregi er það hans borgaralega skylda að taka þátt í starfi almannavarna. Á þeim vettvangi hefur hann einkum starf- að að vömum gegn geislavirkni af völdum kjarnorku. Einkum eru það þrír þættir, sem athyglin beinist að. Norðmenn hafa á undanförnum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.