Morgunblaðið - 14.07.1991, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 14.07.1991, Blaðsíða 40
Böggldpóstur um ollt lond PÓSTUR OG SÍMI MORGUNBLAÐIÐ, ADALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HA FNARSTRÆTI 85 Grwmur Landsbanki íslands Banki allra landsmanna SUNNUDAGUR 14. JULI 1991 VERÐ I LAUSASOLU 100 KR. Verðlagn- ing á olíu verður gef- in frjáls - segir Jón Sigurðs- son viðskiptaráðherra JON Sigurðsson viðskiptaráð- herra segir að frelsi í verðlagn- ingu á olíuvörum muni fylgja í kjölfar þess að oiíuinnflutningur verður gefinn frjáls í haust. Hann segir að enn sé ekki hægt að tímasetja hvenær fijáls verð- lagning kemur til framkvæmda. Innan viðskiptaráðuneytisins er nú verið að undirbúa tillögur að breytingunum. Bensíninnflutningur var á síðastliðnum vetri gefinn fijáls og frjáls verðlagning er leyfð á 98 okt. og 95 okt. blýlausu bensíni. Viðskiptaráðherra segir að tíma- bært sé að frjáls innflutningur verði á öllum olíuvörum og í framhaldi af því verði verðlagning á þessum vörum gefin fijáls. „Það hefur lengi legið ljóst fyrir hver er mín stefna í þessum málum. Þetta hvort tveggja er í undirbún- ingi og í viðskiptaráðuneytinu er nú verið að vinna áð tillögum um breytingarnar. í haust verður reglu- gerð um innflutning breytt þannig að olíuinnflutningur verði óheftur nema annað sé sérstaklega tekið fram. Jafnframt verður fram- kvæmd endurskoðun á þeim reglum sem gilda um verðlagningu á olíu en það eru núna sérstök lög um flutnings- og innkaupajöfnun. Það þarf að sjálfsögðu að huga að breyt- ingum á þeim þannig að ef um ein- hveija jöfnun verður að ræða þá verði hún á vegum hvers söluaðila. Þessi þáttur málsins er enn ekki frágenginn en verið er að athuga hvernig þetta fari best. Ekki er hægt að tímasetja framkvæmdina en meginstefnan er alveg ljós,“ seg- ir Jón. Þýsku skát- amir komn- ir til byggða Egilsstöðum. LÖGREGLAN á Egilsstöðum tel- ur nú fullvíst að þýsku skáta- drengirnir sem saknað var á Fljótsdalsheiði hafi komið til byggða á miðvikudagskvöld. Ekki er vitað um ferðir þeirra síðan. Olíubílstjóri frá Esso gaf sig fram við lögregluna á Egilsstöðum seint á föstudagskvöld og tjáði henni að hann hefði tekið upp tvo unga Þjóð- veija á heiðinni og af lýsingu á klæðaburði gætu það verið dreng- irnir sem saknað er. Bílstjórinn kveðst hafa skilið drengina eftir við söiuskála Kaupfélags Héraðsbúa á Egilsstöðum. Síðan er ekki vitað með vissu um ferðir þeirra. Lögreglan á Egilsstöðum er enn að kanna hvort mögulegt sé að þeir hafi farið með Norrænu frá Seyðisfirði á fímmtudag, en þeir áttu ekki bókað far út fyrr en fimmtudaginn 18. júlí. Einnig er verið að kanna hvort þeir hafi hald- ið suður á firði, en sögusagnir eru um að þeir hafi sést á Reyðarfirði. Lögreglan telur ekki ástæðu til frekari leitar að sinni en heldur uppi fyrirspurnum um drengina. Bjöm Enginn lax í ólöglegu neti LÖGREGLAN gerði á föstudag upptækt laxanet, sem var strengt á milli skipanna Fengs og Blá- fells í Reykjavíkurhöfn. Undan- farið hefur orðið vart við laxa- torfu í höfninni og hefur einhver væntanlega freistazt til að reyna að fá lax í soðið. Bannað er að draga fyrir fisk í höfnum lands- ins. Að sögn lögreglu varð netsins vart vegna þess að svolítil ókyrrð var í höfninni og netið lyftist úr sjó þegar annar báturinn hjó öiduna. Netið er um þijátíu metra langt. Enginn hefur viljað kannast við netið og lögreglunni hefur ekki tek- izt að fá upplýsingar um eigendur þess. Þess má geta að eigandinn hefur ekki haft erindi sem erfiði; enginn lax var í netinu. Spánveijar til landsins í skipulögð- uni ferðum SPÁNVERJAR munu koma hing- að til lands í skipulögðum viku- legum ferðum í sumar fram til ágústloka á vegum ferðaskrif- stofunnar Veraldar. Fyrsti hóp- urinn kemur á fimmtudaginn kemur, en þetta er í fyrsta skipti sem Spánveijar koma hingað í skipulögðum hópferðum, að sögn Sighvats Blöndahl, markaðs- stjóra Veraldar. Sighvatur sagði að þeir hefðu ákveðið að kanna í vetur hvort ein- hver áhugi væri hjá Spánveijum á ferðum til íslands og upp úr því hefði sprottið samstarf við spænsku ferðskrifstofuna Turavia. Spán- veijarnir kæmu hingað vikulega með leiguflugi frá Benidorm og Costa del Sol ogdangflestir dveld- ust hér í viku. Sighvatur sagði áð þó íslending- ar hefðu verið að fara til Spánar í skipulögðum ferðum frá 1955 hefðu Spánvetjar ekki komið hingað til lands með þeim hætti fyrr en nú, enda hefðu Spánveijar ekki al- mennt ferðast til útlanda í fríum fyrr en nýverið. Um tilraun væri að ræða en ef vei tækist til hygð- ust þeir stórefla kynningu á þessum ferðum fyrir næsta sumar. Reykjavíkurhöfn: Morgunblaðið/KGA Þrjú þúsund lítrar á göturnar Nær þijú þúsund lítrar af málningu fara í merking- ar á götum, gangstéttum og gangbrautum Reykjavíkur í ár. Hjá borginni vinna í sumar 17 manns hjá Umferðardeild gatnamálastjóra við eftir- lit með umferðarmerkjum og öðrum merkingum í borginni, auk undirbúnings fyrir merkingar á ak- brautum. Þessi hópur sér auk þess að mestu um að mála gangstéttarbrúnir þar sem þess er þörf. Það eru hins vegar verktakar sem sjá að mestu um að mála línur og strik á götumar sjálfar. Gífurlegur mannfjöldi í miðborginni í fyrrinótt: Eins og á sautj ánda j úní voru hins vegar óökufærir eftir áreksturinn. Tvisvar sinnum þurfti að slökkva eld, sem kveiktur hafði verið í rusli, annars vegar í Hafnarstræti og hins vegar við Skólabrú. Lögreglán tók 22 ökumenn fyrir of hraðan akstur og voru fjórir sviptir ökuleyfi um- svifalaust. Bifreiðir þeirra mældust á 108-111 kílómetra hraða, á götum þar sem 60 km hámarkshraði er leyfður. í nágrannabyggðarlögum Reykja- víkur ríkti dæmalaus ró aðfaranótt laugardagsins að sögn lögreglu. - sögðu lögreglumenn á vakt GÍFURLEGUR mannfjöldi safnaðist saman í miðborg Reykjavíkur að- faranótt laugardagsins og náði hámarki á milli klukkan þrjú og fjög- ur, er fólk streymdi út af skemmtistöðunum. Að sögn lögreglumanna, sem voru á vakt, var manngrúinn „eins og á miðlungs sgutjánda júní“. Lögreglan hafði í nógu að snúast og þurfti að hafa afskipti af fjölda manns, sem stóðu í áflogum, þjófuuðum, skemmdarverkum eða ólátum í góða veðrinu. Mikið bar á ölvun meðal mann- ar. Maðurinn var fluttur á slysadeild fjöldans og talsvert var um smá- en lögi'eglan náði árásarmönnunum meiðsl eftir stympingar. Einn maður og stakk þeim inn. er alvarlega meiddur eftir barsmíðar. A fimmta tímanum voru unglingar Gengið var í skrokk á honum og handteknir á Grettisgötu þar sem meðal annars nokkrar tennur brotn- þeir voru að reyna að stela bíl og skömmu síðar voru nokkrir teknir í Bergstaðastræti við sömu iðju. Um klukkan sex greip lögreglan ungan mann, sem brotið hafði rúðu í bíl á Klapparstíg og notað til þess lurk. Síðan hafði hann gengið upp á Njáls- götu og brotið þar sex rúður í bama- heimili. Upp úr klukkan fimm varð um- ferðarslys á mótum Klapparstígs og Laugavegs, en mikil umferð var á Laugaveginum og nærliggjandi göt- um eins og nærri má geta. Báðir ökumenn voru fluttir á slysadeild, en ekki alvarlega meiddir. Bílarnir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.