Morgunblaðið - 14.07.1991, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.07.1991, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK 3UNNUDAGUR 14-JÚLÍ 1991 1T\ A T*er sunnudagur 14. júlí, 195. dagurársins 1991.7. sd. eftir Trínitatis. Árdegisflóð í Reykjavík er kl. 8.13 og síðdegisflóð kl. 20.33. Fjara kl. 2.05 og kl. 14.16. Sólarupprás í Rvík kl. 3.36 og sólarlag kl. 23.29. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.34 ogtunglið er í suðri kl. 16.10. (Almanak Háskóla íslands.) Honum er það að þakka að þér eruð í samfélagi við Krist Jesú. (1. Kor, 1,30.) ÁRNAÐ HEILLA HJÓNABAND. Þessi brúðhjón, Brynhildur Auðbjargar- dóttir og Gísli Jónsson, voru gefin saman í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Heimili þeirra er í Tjarnarlundi 18, Akureyri. Sr. Einar Eyjóifsson gaf þau saman. (Mynd, Hafnar- firði.) HJÓNA- BAND. Þessi brúðhjón Inga Gunnarsdótt- ir og Þröstur Ólafsson voru gefin saman í hjónaband í Háteigskirkju. Heimili þeirra er í Þverási 8, Rvík. Sr. Tóm- as Sveinsson gaf brúðhjónin saman. (Ljós- myndarinn J. Long). ^7 pT ára afmæli. Á morgun, f tJ 15. júlí, er 75 ára Júlíana Valtýsdóttir hús- móðir og fyrrum sauma- kona, Furugrund 18, Kópa- vogi. Hún verður að heiman afmælisdaginn. r7/\ára afmæli. í dag, 14. I U þ.m., er sjötugur Finnbogi Einarsson pípu- lagningameistari, Loga- landi 32, Rvík. Kona hans er Hólmfríður Bergey Gests- dóttir. Þau verða í faðmi fjöl- skyldunnar og vina í dag, afmælisdaginn, á heimili sínu. ^ P^ára afmæli. í dag, 14. I t) júlí, er 75 ára Guð- mundur Ólafsson fyrrv. verkstjóri í Mjólkursamsöl- unni. Hann er að heiman. Stöllurnar Eva Hrönn Petersen og Henný S. Bjarnadótt- ir efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar, fyrir nokkru. Þær söfnuðu 2.800 krónum. Landsbaukinn tryggir rekstur Álafoss til áramóta: Bankinn vill taka þrotabúið á leigu Er nema von þú glápir, lambið mitt. Hér sit ég, íhaldsgaurinn, á framsóknarskammelinu og prjóna nærhöld á berrassaða Rússakomma ... FRÉTTIR/MANNAMÓT VINNUVIKAN sem hefst á morgun er hin 29. á þessu ári. PÓSTUR & sími. Sam- göngumálaráðuneytið aug- lýsir í nýlegu Lögbirtinga- blaði lausa stöðu stöðvar- stjóra Pósts & síma í Kópa- vogi. Ráðuneytið setur um- sóknarfrestinn til 19. þ.m. HÁSKÓLINN á Akureyri augl. í Lögbirtingi lausar stöður dósents í hjúkrunar- fræði, og tveggja lektora í hjúkrunarfræði. HÁSKÓLINN á Akureyri augl. í Lögbirtingi eftir dósent og lektor í hjúkrunarfræðum, við heilbrigðisdeild og stöðu lektors í sálfræði, við sömu deild, 50% starf. Þá er laus staða við rannsóknarstofuna. Tekið er fram að æskilegt sé að umsækjandi hafi meina- tæknipróf. Lektors- og dós- entsstöðurnar eru með um- sóknarfrest til 1. ágúst, en staðan á rannsóknarstofunni til 20. júií. SAMVERKAMENN móður Tereseu halda mánaðarlegan fund sinn mánudagskvöld á Hávallagötu 16, kl. 20.30. DÝRFIRÐINGAFÉL. fer í árlega sumarferð sína í Kerl- ingarfjöll dagana 19.-21. júlí næstkomandi. Nánari uppl. um ferðina eru veittar í s. 641599. í LÆKNADEILD Háskól- ans hefur Kristín Björns- dóttir verið skipuð lektor í hjúkrunarfræði með almenna hjúkrunarfræði sem aðal- kennslugrein við námsbraut í hjúkrunarfræði. Þetta er tilk. í Lögbirtingablaðinu. Þess er þar jafnframt getið að Guð- mundur Sigurðsson læknir hafi fengið lausn frá hluta- stöðu lektors við læknadeild- ina, að, eigin ósk. VIÐEY. í dag verða tónleikar í Viðeyjarkirkju. Leikið verð- ur á orgel, flautu og langspil. Marteinn _ Friðriksson, Magnea Árnadóttir og Ólafur Kjartan Sigurðsson leika á þessi hljóðfæri. Slík hljóðfæri voru á heimilinu í Viðeyjarstofu er Magnús Stephensen bjó þar. Tónlistin sem flutt verður er frá 18. öld. Að tónleikunum loknum verður staðarskoðun: saga Viðeyjar rakin m.m., gengið um hlaðið við Viðeyjarstofu. Tónleikarnir hefjast kl. 14.15. Bátsferð út í eyna er kl. 13. HREPPSTJÓRASTAÐA. Sýslumaðurinn í Eyjafjarðar- sýslu augl. í Lögbirtingi lausa stöðu hreppstjóra Árskógs- hrepps þar í sýslunni. Sýslu- maður setur umsóknarfrest- inn til 23. þ.m. BARNADEILD Heilsu- verndarstöðvarinnar við Bar- ónsstíg hefur opið hús fyrir foreldra ungra barna næst- komandi þriðjudag kl. 15-16. Umræðuefnið verður þá: bijóstagjöf. FRIÐLÝSING æðarvarps. Sýslumaðurinn í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu augl. í Lögbirtingi um friðlýsingu æðarvarps í landi Þyrils, Brekku, Bjarteyjarsands, Hrafnabjarga, Ferstiklu I. og Ferstiklu II. og Kata- ness. Ábúendur þessara jarða hafa óskað eftir friðlýsing- unni með vísan til laga um friðlýsingu æðarvarps. Er gerð grein fyrir mörkum hinna friðlýstu svæða. í frið- lýsingunni felst að frá 15. apríl til 14. júlí ár hvert eru öll skot bönnuð nær æðar- varpinu en 2 km. Á sama tíma eru netalagnir bannaðar nær varpinu en 'A km frá stór- straumsfjöru. FÉL. eldri borgara hefur opið hús í dag í Goðheimum við Sigtún og verður spilað. í kvöld verður dansað kl. 20. Fyrirhuguð er ferð upp í Skorradal um næstu helgi, 20. júlí. Skrifstofa fél. gefur nánari uppl. DÓMTÚLKAR. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið tilk. í nýlegum Lögbirtingi að það hafi veitt Ingólfi Klausen löggildingpi til að vera dóm- túlkur og skjalaþýðandi á og úr ítölsku. Og samskonar lög- gildingu ráðuneytisins hafa hlotið Jakob R. Möller og Anna Hólmfríður Yates, bæði dómtúlkar og þýðendur á og úr ensku. LÁRÉTT: - 1 kústum, 5 fiskur, 8 híma, 9 til sölu, 11 árafjöldi, 14 fúsk, 15 um- hyggja, 16 jurt, 17 þegar, 19 visnað gras, 21 beltið, 23 gamla, 25 happ, 26 æpir, 27 tangi. KIRKJUSTARF FELLA- og Hólakirkja. Fyrirbænir í kirkjunni mánu- dagskvöld kl. 18. SKIPIIM REYKJAVÍKURHÖFN. í dag er Kyndill væntanlegur af ströndinni. Á morgun er Brúarfoss væntanlegur að utan. Þá verður daglangt í Sundahöfn skemmtiferða- skipið Feodor Dostojevskíj og þá er væntanlegt erl. leigu- skip, Laura Helena. HAFNARFJARÐAR- HÖFN. í dag er Lagarfoss væntanlegur að utan og væntanlegt er súrálsskip til Straumsvíkur. LÓÐRÉTT: - 2 tryllta, 3 dveljast, 4 úldin, 5 vitrar, 6 frostskemmd, 7 spils, 9 aflar vel, 10 tungumálið, 12 tusk- an, 13 laghnífs, 18 borðandi, 20 bor, 21 ljóð, 23 lést, 24 ending. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: - l fálki, 5 askar, 8 Óðinn, 9 villu, 11 gæsin, 14 nói, 15 natin, 16 nárar, 17 inn, 19 lóan, 21 ansa, 22 ungling, 25 tes, 26 áli, 27 ati. LOÐRÉTT: - 2 ári, 3 kól, 4 Iðunni, 5 anginn, 6 snæ, 7 aki, 9 vandlát, 10 látlaus, 12 stranga, 13 nartaði, 18 núll, 20 NN, 21 an, 23 gá, 24 II.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.