Morgunblaðið - 14.07.1991, Síða 6
6 FRÉTTIR/IIMIMLENT
Húsavík:
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1991
Gaskútar í sorpi
Húsavík.
í SORPI teknu frá ferðamiðstöð-
inni í Ásbyrgi og sem brenna
átti í Sorpeyðingamiðstöðinni á
Húsavík fundust af tilviljun 4
gaskútar, frekar litlir, sem telja
má víst að hefðu sprungið ef
þeir hefðu farið beint í brennslu-
ofninn, en af tilviljun einni varð
þeirra vart, áður en þeim var
kastað á eldinn.
Stefán Sigtryggsson, sorp-
brennslustjóri, segir af tilviljun hafa
Þjóðverji
slasast í
bílveltu
við Þjórsá
EINN maður hlaut opið
beinbrot þegar jeppabifreið
sem hann var farþegi í valt
við Þjórsá síðdegis á föstu-
dag. Fjórir Þjóðverjar voru
í bílnum, tveir karlmenn og
tvær konur. Þyrla landhelg-
isgæslunnar sótti slasaða
manninn.
Slysið varð við Sandafell,
brúna yfir Þjórsá fyrir ofan
Búrfell. Vaktmaður við Búr-
fellsvirkjun tilkynnti um slysið
kl. 18:00 og tveimur tímum
síðar lenti þyrla Landhelgis-
gæslunnar við Borgarspítal-
ann.
Maðurinn hlaut opið upp-
handleggsbrot og fleiri áverka
í slysinu en hinir sem voru í
bílnum sluppu með minnihátt-
ar meiðsli.
orðið kútanna vart, þar sem á voru
ritaðar leiðbeiningar á þremur eða
fjórum tungumálum um notkun og
sterklega varað við því að láta þá
á eld, fulla eða tóma. Eftir að hann
varð fyrsta kútsins var leitaði hann
í öllu sorpinu og fann alls fjóra kúta.
En þó þessir kútar hafi átti að
heita tómir, er alltaf eitthvað í þeim
og nóg gas til að valda sprengingu,
svo Stefán er fullviss þess, að ef
kútarnir hefðu lent í ofninum, hefði
orðið sprenging, sem ekki er gott
að segja hveijar afleiðingar hefði
haft.
„Þetta tel ég að ætti að verða
aðvörum til gæsluvarða ferða-
mannastaða og að settar yrðu upp
viðvaranir við sorpgeymslur, þar
sem varað væri við að setja í sorp-
ið þau efni sem ekki eru hættulaus,
ef í eld fara, því þó víða sé sorpið
urðað er það víða brennt,“ vill Stef-
án sérstaklega benda á.
- Fréttaritari
Steingrímur
formaður blað-
stjórnar Tímans
BLAÐSTJÓRN Tímans kaus
Steingrím Hermannsson form-
ann sinn á föstudaginn.
Steingrímur tekur sæti Guð-
mundar Bjarnasonar í stjóminni,
en Guðmundur víkur úr stjórn að
eigin ósk. Jón Kristjánsson fráfar-
andi formaður situr áfram í stjórn-
inni.
Með formennsku Steingríms í
blaðstjórn Tímans er aftur tekin upp
sú stefna að sami maður gegni for-
mennsku þar og í Framsóknar-
flokknum, en um skeið hefur annar
háttur verið hafður á.
Eru
þeir að
fá 'ann
■
Morgunblaðið/PPJ
Sjötugur hnattflugsmaður, Dave Davidson, við komuna til Reykjavíkur frá Grænlandi á opinni
Marquart Charger tvíþekju sinni.
Sjötugur maður í hnatt-
flugi á opinni tvíþekju
FLUGIÐ hefur óneitanlega heillað margan manninn í gegnum
tíðina allt frá dögum íkarusar. Enn gerast ævintýri í háloftunum
og menn sækja fast að fara ótroðnar slóðir, selja met og komast
á spjöld flugsögunnar. Einn slíkra manna er sjötugur Bandaríkja-
maður, Dave Davidson, en hann hyggst verða fyrstur manna til
að fljúga opinni tvíþekju umhverfis jörðina einn síns liðs.
Davidson kom til Reykjavíkur
frá Kulusuk á Grænlandi sl.
fimmtudagskvöld á lítilli Marqu-
art Charger tvíþekju sinni. Hann
lagði upp 1. júlí sl. frá heimabæ
sínum, Addison í Texas. Héðan
ætlar hann til Edinborgar í Skot-
landi þar sem hann hyggst skoða
fæðingarstað föður síns. Frá
Skotlandi ætlar hann áfram yfir
England, Frakkland, og Portúgal
til Spánar þar sem dóttir hans
býr. Þaðan ætlar Davidson að
fljúga yfir Miðjarðarhafsströnd
Frakklands til Genúa á Ítalíu og
þaðan áfram til Austurríkis,
Tekkóslóvakíu, Þýskalands, Dan-
merkur, Svíþjóðar og aftur til
Þýskalands og síðan til Varsjár í
Póllandi, en þangað gerir hann
ráð fyrir að vera kominn um miðj-
an ágúst. Vonast hann til að hann
verði þá búinn að fá leyfi til þess
að mega fljúga yfir Sovétríkin og
hefur hann hug á að fljúga þá
austur yfir Síberíu til Alaska og
þaðan til suðurs og heim.
Flugvélina smíðaði Davidson
sjálfur eftir teikningum. Smíðin
tók um fimm ár og átta mánuði,
en síðan eru liðin nokkur ár og
hefur vélin ætíð reynst vel að
sögn Davidsons. Vélin er öll dúk-
klædd, búkurinn röragrind og tré-
vængir. Hún er knúin 160 ha.
hreyfli og er flugshraðinn um 96
sjómílur á klukkustund, en flugþol
vélarinnar um 12 klst. með auka-
tönkum. Flugvél Davidsons er lítil
en hún er vel búin tækjum til
þessa flugs. Sjálfur kvaðst hann
hrifnastur af nýjasta siglingatæki
sínu, gervihnattarmóttakara, sem
hann keypti stuttu áður en hann
lagði af stað.
Undirbúningur ferðarinnar
hófst fyrir hálfu öðru ári. David-
son segjist hafa unnið að jafnaði
um sjö klukkustundir dag hvern
ýmist við að leita upplýsinga,
sækja um yfirflugsheimildir og
lendingarleyfi, kortleggja leiðina
svo og að útbúa vélina nauðsyn-
legum tækjum og búnaði. Hann
hefur tekið þetta sem hver önnur
vinna og haldið ótrauður áfram
þrátt fyrir ýmis ljón sem hafa
orðið á vegi hans.
Dave Davidson er fyrrum at-
vinnuflugmaður, flugkennari og
flugvirki. Hann lærði flug í flug-
her Bandaríkjana á árum síðari
heimsstyijaldar og 22 ára varð
hann flugstjóri á B-24 Liberator-
sprengjuflugvélum í Suður-Kyrra-
hafi. Hann gegndi herþjónustu í
24 ár en að því loknu sneri hann
sér að atvinnuflugi og sá m.a. um
flughermiþjálfun hjá ýmsum flug-
félögum vestra. Flug hefur átt
hug Daves Davidsons frá því hann
var ungur drengur og flugið á hug
hans enn í dag, sjötugur ungling-
ur í hnattflugi.
Afkoma fyrirtækja árið 1989:
Enginn hagnaður af
atvinnurekstri í heild
SVO virðist sem laxveiðin sé
víða að taka nokkuð við sér og
það eru ekki bara sögur af fisk-
og vatnsleysi sem berast inn á
borð.
Gljúfurá iðaði af lífi
Holl sem nýlega lauk tveggja
daga veiði í Gljúfurá gerði það
heldur betur gott, veiddi 20 laxa
og voru þá komnir 28 laxar á
land. Þessi veiði skilaði sér er það
dró fyrir sólu um tíma og vatnið
í ánni snarkólnaði. Veiðimenn sem
voru við ána sáu mikla fiskför upp
hana og var fiskur mjög víða á
svæðinu.
ganga. Lax hefur sést langt inn
á Holtavörðuheiði. Vonast menn
nú brátt eftir góðri rigningargusu,
því þá eru allar horfur á því að
mikið veiðist á skömmum tíma.
Skot í Sogið
Það kom gott skot í Sogið' í lok
vikunnar, á fimmtudaginn veidd-
ust til dæmis 4 laxar í Alviðru og
6 laxar í Bíldsfelli. Hátt í 30 Iax-
ar eru komnir á land úr Soginu
og er þetta mun betri byijun en
í fyrra. Góð bleikjuveiði sem
stundum fæst í bland dregur ekki
úr ánægju veiðimanna, því hún
er væn, yfirleitt 2 til 3 pund.
Norðurá komin á fulla ferð Einnig smáskot í Flekkuna
Það sama hefur verið upp á
teningnum í Norðurá og í hliðar-
ánni Gljúfurá, veiðin tók mikinn
kipp í vikunni. Hópur sem var í
sex daga við veiðar náði rétt tæp-
lega 100 löxum og var bæði tölu-
verðan lax að sjá upp með allri á
og svo var talsvert af fiski að
Flekkudalsá í Dölum gaf einn
daginn í lok vikunnar 8 laxa sem
var mjög gott miðað við það sem
á undan var gengið, en þá voru
alls komnir um 30 laxar á land,
þar af veiddust 17 laxar strax í
opnuninni.
gg
Erfiðustu mánuðirnir framund-
an hjá Vatnsveita Reykjavíkur
GUÐMUNDUR Jónsson dælu-
stjóri hjá Vatnsveitu Reykjavíkur
segir að enn sé ekki ástæða til
að óttast vatnsskort. Grunn-
vatnsstaðan er þó í lægri kantin-
um og Guðmundur kveðst ekki
þora að segja til um hvernig
ástandið verði ef þurrkatíðin
heldur áfram.
Guðmundur segir að grunnvatns-
staðan sé ævinlega lægst í ágúst
og september og haldi þurrkarnir
áfram þurfi að grípa til aðgerða til
að tryggja nóg vatn. Vatnsöflun sé
að vísu orðin mun auðveldari en
áður var, því að Vatnsveitan ráði
nú yfir dælukosti til að dæla
samtímis úr borholum á vatnsöflun-
arsvæðunum þremur, Gvendar-
brunnasvæðinu, Jaðarsvæðinu og
Myllulækjarsvæðinu.
ENGINN hagnaður varð af
reglulegri staffsemi í atvinnu-
rekstri í heild árið 1989, sam-
kvæmt útreikningum Þjóðhags-
stofnunar en reiknað er með að
bókfærð afkoma atvinnurekstrar
í heild hafi orðið mun betri á
siðasta ári. Þá varð tap fiskeldis
54,3% í hlutfalli af tekjum.
í minnisblaði, um afkomu at-
vinnugreina og fyrirtækja, sem
Þjóðhagsstofnun sendi frá sér 9.
júlí, segir að um þessar mundir sé
stofnunin að Ijúka við heildaraf-
komutölur fyrir árið 1989, sem
unnar eru úr skattframtölum. Þar
kemur fram, að sem hlutfall af tekj-
um hafi hagnaður af atvinnurekstri
í heild orðið 0,0%, en þetta hlutfall
hafi verið -2,2% árið áður.
Reiknað er með því að á árinu
1990 hafi bókfærð afkoma atvinnu-
rekstrar í heild verið mun betri en
á árinu 1989, m.a. vegna lágs bók-
færðs fjármagnskostnaðar.
Þjóðhagsstofnun segir, að arð-
semi eigin fjár hér á Iandi hafi al-
mennt verið léleg, og í besta falli
verið nálægt núlli í hagstæðu ár-
ferði. Til samanburðar megi nefna,
að áhættulaus fjárfesting í ríkis-
bréfum hafi skilað góðum arði.
í minnisblaðinu er einnig farið
yfir stöðu nokkurra atvinnugreina
sem hafa átt við rekstrarvanda að
stríða undanfarið. Þetta eru ullar-
iðnaður, rækju og mjölvinnsla, út-
gerð loðnuskipa og fiskeldi, sem
hefur verið rekið með stórfelldu
tapi undanfarin ár, eða 46,4% í hlut-
falli af tekjum árið 1988 og 54,3%
árið 1989. Ástæðurnar eru taldar
verðfall á afurðum, of hár fjárfest-
ingarkostnaður, sjúkdómar, tjón
vegna veðurs. „Virðist flest hafa
farið úrskeiðis sem gat farið úr-
skeiðis,“ segir orðrétt í minnisblað-
inu.
Sókn í síldarstofninn
hér við land hæfileg
JAKOB Jakobsson, forstjóri Ha-
frannsóknastofnunar, segist
telja, að sókn í síldarstofninn hér
við land sé hæfileg. Nú séu veidd
um 80 til 100 þúsund tonn á ári,
en það séu um 20 til 25% af stofn-
stærðinni. Til samanbúrðar hafi
sókn í þorskstofninn verið 35 til
40% af stofnstærðinni og þar sé
um mjög harða sókn að ræða.
Jakob segir að fyrir 20 árum
hafi síldarstofninn aðeins mælst um
10 þúsund tonn, en mælist nú um
400 þúsund tonn, eftir að farið
hafi verið að tillögum fiskifræðinga
um vernd hans. Hann segir Haf-
rannsóknastofnun mæli með að
veidd séu um 20 til 25% af stofn-
stærðinni á ári og veiðin sé nú 80
til 100 þúsund tonn, sem sé hæfileg
nýting.
Varðandi norsk-íslenska síldar-
stofninn segir Jakob, að á undan-
förnum fimm árum hafi hann leitað
til hafs frá Noregi, staldrað við
miðja vegu milli Noregs og íslands
um þetta leyti árs og snúið svo við.
Stofnstærðin þar sé nú um 1,5
milljónir tonna en hafi áður verið
10 milljónir tonna. Nokkrir slæmir
árgangar hafi komið á síðustu árum
en talið sé að það þurfi eina eða
tvær kynslóðir sterkra árganga til
að hægt sé að hefja nýtingu stofns-
ins.