Morgunblaðið - 14.07.1991, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.07.1991, Blaðsíða 11
MORGtjNBLAÐtÐ' SUNNUDÁGtfö 14/JÚLÍ 1991 ina í vor og samanburður við aðrar þjóðir verður íslendingum heldur óhagstæður. Þó er ekki sama hvaða þjóðir er borið saman við. Það fékk Friðrik Sophusson fjármálaráðherra að heyra um dagmn: „Það var at- hyglisvert að ræða við bankamann sem hér var á ferð, sem sagði við mig að sér þætti nú ástandið hér alls ekki svo bölvað, við ættum alveg sömu möguleika að ná árangri eins og til dæmis Tékkar eða Ungveijar. Það sem kom mér á óvart var, að honum fannst sjálfsagt að flokka okkur með, að vísu ekki Pólveijum og Rússum, en Tékkum og Ungveij- um, líkt og við værum að verulegu leyti langt á eftir Vestur-Evrópu- þjóðunum á ýmsum sviðum. Honum fannst þetta sjálfsagður hlutur,“ sagði Friðrik í samtali við Morgnn- blaðið. Stöðnun í áratug Er þetta svona alvarlegt? Ari Skúlason hagfræðingur Alþýðusam- bandsins segir: „Ef maður horfir blákalt á dæmið, þá hlýtur maður að gera sér grein fyrir því að þetta er alveg grafalvarlegt. Þetta er lang- versta staða sem ég hef horft fram á síðan ég byijaði að vasast i þessu. Við höfum verið í lægð í 4-5 ár, þjóðartekjumar núna eru á álíka stað og þær voru 1987. Við sjáum fram á að í íslensku atvinnulífi hefur ekkert gerst, ekki neitt á heilum áratug. Þar hefur verið hrein stöðn- un. Allt það sem hefur verið farið út í og hefur átt að bjarga okkur eins og til dæmis refurinn, fiskeldið, lífefnaiðnaðurinn og svo framvegis, hefur runnið út í sandinn. Þetta hefur allt mistekist. Afli hefur ekk- ert aukist, þannig að það hefur ekk- ert bæst við til að við gætum haft það betra.“ Ekki er lýsingin fögur hjá Ara og ekki vill hann gefa neinar gyllivonir: „Það verða auðvitað færri krónur til þess að draga fram lífið. Það verður erfiðara að ná endum saman.“ Ofan á þetta bætast hækkandi kostnaðar- liðir og nefnir Ari þar dæmi af lyfja- verði og hugsanlegum gjöldum fyrir þjónustu hins opinbera. „Allar þess- ar breytingar bitna mun harðar á þeim sem síst skyldi eins og barna- fólki með lægri tekjur. Staða þessa fólks verður illbærileg." Ekki sambærilegt við ’67-’68 Þetta vekur ekki miklar né bjartar vonir um betri tíð í nánustu framtíð og ekki heldur svar Þórðar Friðjóns- sonar forstjóra Þjóðhagsstofnunar þegar hann var spurður hvort við ynnum okkur ekki út úr þessu eins og til dæmis eftir samdráttinn á árunum 1967-’68. „Samdráttartímabilið ’67-’68 stafaði einfaldlega af því að það varð aflabrestur, sérstaklega á síldinni, og reyndar fóru verðfall á öðrum afurðum og aflabresturinn saman. Þetta er í raun og veru ekki sambærilegt að því leyti að þá kom samdráttur eftir mjög góð ár, en núna er kyrrstaða í efnahagslífínu og hagvöxtur hefur verið mun hæg- ari hér en annars staðar síðastliðin ✓ Hótel Island býður ykkur velkomin til að njóta gistingar og veitinga í nýjum og hrífandi húsakynnum. EINSTAKLEGA VEL GLÆSILEGIR ÚTBÚIN HERBERGI VEITINGASALIR björt og rúmgóð með sjónvarpi, síma, bar og baðherbergi. til að njóta góðra veitinga og félags- skapar hvort sem það er á Café íslandi yfir hressandi kaffi- bolla eða girnilegum margrétta matseðli. SKEMMTISTAÐUR- INN VINSÆLI í vesturálmu hótels- ins mun áfram slá taktinn af miklu fjöri í skemmtanalífi landsmanna. H O T E L ISLAND Ármúla 9,108 Reykjavík Sími 68899.9 Við höfum opnað STÓRGLÆSILEGT OG HEILLANDIHÓTEL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.