Morgunblaðið - 14.07.1991, Blaðsíða 23
reei uúi .m HUOAauwMUg nuooaAainYM ÖIGAJHMUOflOM SS
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
AUGLYSINGAR
REYKJALUNDUR
Iðjuþjálfun
Iðjuþjálfa vantar á iðjuþjálfunardeild Reykja-
lundar frá 1. september næstkomandi.
Upplýsingar gefur yfiriðjuþjálfi í síma
666200-102.
Störf
með einhverfum
Við sambýlið í Hólabergi er nú þegar laus
staða deildarþroskaþjálfa eða fóstru og
staða meðferðarfulltrúa. Um er að ræða
vaktavinnu (aðallega kvöldvaktir).
í ágúst verða lausar stöður við sambýlið í
Trönuhólum. Um er að ræða vaktavinnu
(dag- og kvöldvaktir) og er möguleiki á hluta-
starfi.
Umsóknum um stöðurnar á sambýlunum
skal skilað til forstöðumanns, Trönuhólum
1, 111 Reykjavík, sem einnig veitir nánari
upplysingar í síma 79760 frá kl. 9-13 mánu-
dag, þriðjudag og miðvikudag.
Framkvæmdastjóri
Knattspyrnufélagið Víkingur, aðalstjórn,
hyggst ráða framkvæmdastjóra.
Starfssvið: Umsjón með rekstri nýrrar
íþrótta- og félagsmiðstöðvar í Fossvogi auk
annarra starfa í þágu félagsins.
Starfstími: Æskilegt er að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst en eigi síðar en 1. sept-
ember nk.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Framkvæmdastjóri - 9801“ fyrir
30. júlí nk.
Setning og umbrot
á Akureyri
Fyrirtækið er prentsmiðja á Akureyri.
Starfið felst í setningu og umbroti.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi hafi leikni
í vélritun og góða íslenskukunnáttu.
Umsóknarfrestur er til og með 19. júlí nk.
Ráðning verður sem fyrst.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Skólavörðustig 1a — 101 Reyrjavik - Simi 621355
Bifvélavirkjar,
vélvirkjar eða menn,
vanir viðgerðum á
þungavinnuvélum
Vantar nú þegar bifvélavirkja, vélvirkja eða
menn vana þungavinnuvélaviðgerðum.
Upplýsingar gefur Þórður Pálsson eða
Sigurður O. Karlsson í síma 53999.
O HAGVIRKI
II KLETTUR
Laus staða
Staða deildarstjórá með lögfræðimenntun
er laus til umsóknar.
Upplýsingar um starfið eru veittar í síma
27422.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist Verðlags-
stofnun, Laugavegi 118, pósthólf 5120, 125
Reykjavík, fyrir 20. júlí 1991.
Sölumaður (370)
Þekkt þjónustufyrirtæki í Reykjavík leitar að
sölumanni til starfa sem fyrst. Starfsmanna-
fjöldi milli 30-40 manns. Bíll fylgir starfinu.
Starfssvið: Sjálfstæð sala til viðskiptavina, við-
hald og endurnýjun viðskiptasambanda o.fl.
Við leitum að manni sem getur starfað sjálf-
stætt, er skipulagður og áræðinn. Menntun
í sölu- og markaðsmálum æskileg. Starfs-
reynsla.
Sölu- og þjónustufulltrúi (371)
Sama fyrirtæki leitar einnig að sölu- og þjón-
ustufulltrúa til að annast ýmis konar sölu-
og þjónustustörf fyrir viðskiptavini fyrirtækis-
ins. Starfsmaðurinn er á bíl fyrirtækisins og
starfar nokkuð sjálfstætt.
Við leitum að manni, sem er þjónustuglað-
ur, hefur lipra og góða framkomu, er sveigj-
anlegur og treystir sér til að annast marg-
vísleg verkefni. Laust strax.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar
fyrir 10. júlí nk.
Hagvangurb if
Grensásvegi 13 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Garðabær
Blaðbera vantar á Flatir, einnig til afleysinga
á Grundir.
Upplýsingar í síma 656146.
flturguiifcl&Mft
Prentari
- prentsmiður
Óskum eftir að ráða prentsmið eða prent-
ara. Góð vinnuaðstaða. Einnig kæmi til
greina að ráða nema, sem lokið hefur 5. önn
í áðurtöldum iðngreinum. Herbergi, með
aðgangi að eldhúsi, er á staðnum.
Upplýsingar í síma 98-21944 á daginn.
Sölumenn
Stórt þjónustufyrirtæki í sölu og dreifingu
bóka og tímarita leitar nú fleiri sölumanna
með fastráðningu í huga. Framtíðarstarf.
Fastráðnir starfsmenn fyrirtækisins eru á
þriðja tug og fjölgar stöðugt. Við leitum að
hressu, ungu fólki, sem er sjálfstætt, dug-
legt og metnaðarfullt. Reynsla af sölu-
mennsku æskileg, en ekki nauðsynleg. Við
bjóðum skemmtilegan vinnustað í sífelldum
vexti og mikla tekjumöguleika fyrir gott fólk.
Nánari upplýsingar veitir Hrannar í síma
625233 frá kl. 14 til 17 í dag og næstu daga.
ii? BORGARSPÍTALINN
Hjúkrunarfræðingar
Nú getum við boðið hjúkrunarfræðingum
vinnu á ýmsum deildum spítalans.
Stöðu deildarstjóra á endurhæfinga- og
taugadeild.
60% stöðu á speglunareiningu, dagvinna.
Ennfremur stöður hjúkrunarfræðinga á lyf-
lækningaf, öldrunar-, skurðlækningadeildum
og skurðstofu.
Auk fjölbreyttra tækifæra til að vaxa og
þroskast á hinum ýmsu deildum spítalans
getum við boðið:
1. Barnaheimilispláss (nú eru laus pláss).
2. Einstaklingshæft aðlögunarprógram.
3. Líkamsrækt fyrir starfsfólk.
4. Kjörár, sem felur í sér skipulagða starfs-
þjálfun á ýmsum deildum.
5. Fjölbreytta möguleika til símenntunar.
6. Tækifæri til að taka þátt í spennandi þró-
unarverkefnum.
7. Samstarfsfólk, sem tekur ykkur opnum
örmum.
Hringið og boðið komu ykkar og spjöllum
saman um möguleikana sem bjóðast.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
hjúkrunarforstjóra í síma 696351.