Morgunblaðið - 14.07.1991, Page 26
&: mi.jhri'W.aTiniuiM^^
ATVINNUA UGL YSINGA R
Kennarar
Að Grunnskólanum á Hellu vantar áhugasama
kennara til kennslu í eftirtöldum greinum:
Kennsla yngri barna, sérkennsla og íþróttir.
Upplýsingar veita skólastjóri í síma 98-75943
eða 98-75138 og formaður skólanefndar í
síma 98-78452.
Prófarkalestur
Útgáfufyrirtæki óskar að ráða prófarkalesara
til tímabundinna verkefna.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
18. júlí merktar: „P - 8871“.
Öllum umsóknum verður svarað.
Bakarar
Óskum að ráða bakara sem fyrst.
Góð vinnuaðstaða.
Upplýsingar fyrir hádegi í Björnsbakaríi,
Austurströnd 14, Seltjarnarnesi.
Kennarar
Grunnskólann á Hellissandi vantar kennara
í fulla stöðu. Kennslugreinar: Kennsla yngri
barna og/eða íþróttir.
Upplýsingar gefur aðstoðarskólastjóri í síma
93-66771.
Móttökuritari
Læknastöð óskar eftir móttökuritara í fullt
starf (kl. 9-17). Starfið er fólgið í síma- og
skjalavörslu, innskrift sjúklinga o.fl.
Þeir, sem hafa áhuga, sendi umsóknir til
auglýsingadeildar' Mbl. merktar: „M - 3187“.
„Au pair“ -
Ohio, USA
óskast til að gæta 5 ára drengs í vetur. Verð-
ur að vera eldri en 19 ára og má ekki reykja.
Upplýsingar í síma 623812.
Akraneskaupstaður
Starf aðalféhirðis
Akraneskaupstaðar
er hér með auglýst laust til umsóknar.
Launakjör samkvæmt samningum Akranes-
kaupstaðar og STAK.
Nánari upplýsingar um starfið veita bæjar-
stjóri eða bæjarritari í síma 93-11211.
Umsóknarfrestur er til 22. júlí nk.
Bæjarstjórinn á Akranesi.
Forritari
Fyrirtækið er ungt hugbúnaðarhús, sem
vinnur að ferskum verkefnum.
Starfið felst í forritun á 4. kynslóðarmáli og
þjónustu við viðskiptavini. Úm er að ræða
spennandi og krefjandi starf.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi geti unnið
sjálfstætt.
Umsóknarfrestur er til og með 19. júlí nk.
Ráðning verður sem fyrst.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Skólavörðustig 1 a - 101 Reyrjavik - Simi 621355
Gröfumaður
Byggingafélag óskar eftir að ráða vanan
gröfumann á Case traktorsgröfu. Þarf að
geta starfað sjálfstætt.
Nafn og símanúmer leggist inn á auglýsinga-
deild Morgunblaðsins fyrir 19. júlí merkt:
„Reglusemi - 3180.“
Hárgreiðslusveinn
óskast
í hlutastarf á hárgreiðslustofu.
Umsóknum skal fylgja upplýsingar um nafn,
síma, fyrri störf og starfsaldur.
Umsóknir skal senda til auglýsingadeildar
Mbl. fyrir 20. júlí merktar: „Hár - 7266“.
SH VERKTAKAR
Trésmiðir
Óskum eftir að ráða 4-5 trésmiði til starfa
í Blönduvirkjun er geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar gefur Gunnar eða Ásgeir í
símum 95-30230 og 95-30220.
Lögmannsstofa
óskar eftir að ráða hæfan starfskraft sem
hefur gott vald á ritvinnslu, réttritun og
reynslu í skrifstofustörfum.
Upplýsingar um fyrri störf, menntun og
launakjör óskast sendar auglýsingadeild
Mbl. íyrir fimmtudaginn 18. júlí merktar:
„Lögmenn - 8872“.
Stykkishólmsbær
Staða bæjarstjóra í
Stykkishólmi
Staða bæjarstjóra í Stykkishólmi er auglýst
laus til umsóknar.
Allar upplýsingar veita Ellert Kristinsson,
forseti bæjarstjórnar, í símum 93-81353 og
93-81300, og Sturla Böðvarsson, bæjar-
stjóri, í símum 93-81136 og 93-81274.
Umsóknir skal senda undirrituðum á bæjar-
skrifstofurnar við Skólastíg fyrir 15. ágúst nk.
Fyrir hönd bæjarstjórnar Stykkishólms,
Sturla Böðvarsson.
RÍKISSPÍTALAR
Reyklaus vinnustaður
Unglinga- og barnageðdeild
Landspítalans
Sálfræðingar
Sálfræðingsstaða við barna- og unglinga-
geðdeild Landspítalans er laus til umsóknar
og veitist frá 1. október 1991.
Umsóknir sendist skrifstofu ríkisspítala,
Rauðarárstíg 31, fyrir 10. ágúst næstkom-
andi og greini frá menntun og fyrri störfum.
Yfirsálfræðingur og yfirlæknir gefa upplýs-
ingar um stöðuna í síma 602500.
Grafískur hönnuður
Auglýsingastofan Auglit, Akureyri, óskar eft-
ir að ráða hugmyndaríkan, grafískan hönnuð
frá og með haustinu. Um er að ræða krefjandi
en skemmtilegt starf í samvinnu við fólk, sem
leggur metnað sinn í að skila fyrsta flokks
vinnu á sviði hönnunar og markaðsmála.
Umsóknir skal senda til Auglits hf. fyrir 20.
júlí, þar sem einnig eru veittar allar nánari
upplýsingar. Farið verður með allar umsókn-
ir sem trúnaðarmál.
. | |^_ | AUGLÝSÍNGASTOFA■ GLERARGATA 34 - PÓSTHÓLF 801
/\UULI I 602 AKUREYRI ■ SlMI 96-26911 ■ FAX 96-11266
Félagsráðgjafar
Félagsmálastofnun Akureyrarbæjar óskar
eftir að ráða félagsráðgjafa til starfa nú þeg-
ar eða eftir samkomulagi. Aðstoð við útveg-
un húsnæðis.
Laun samkvæmt kjarasamningi STAK og
Akureyrarbæjar.
Upplýsingar veita deildarstjóri í síma
96-25880 og starfsmannastjóri í síma
96-21000.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmanriadeild
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til 25. júlí nk.
Bæjarstjórinn á Akureyri.
Framtíðarstarf
Sölufélag garðyrkjumanna vill ráða starfs-
mann í verslunardeild félagsins. Starfið felst
í umsjón með innflutningi á fræi, blómlauk-
um, græðlingum og hliðstæðum vörum,
ásamt með afgreiðslu og ráðgjöf í verslun.
Um er að ræða fullt starf frá 1. sept. nk.
Æskilegt er að umsækjandi sé garðyrkju-
fræðingureða hafi hliðstæða menntun, einn-
ig einhverja reynslu af verslunarstörfum.
Nánari upplýsingar á skrifstofu verslunar-
deildar á skrifstofutíma.
Sölufélag garðyrkjumanna,
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Frá Fræðslustjóra
Vesturlandsumdæmis
Laus er til umsóknar staða yfirkennara við
Grunnskólann á Hellissandi.
Umsóknarfrestur til 30. júlí.
Umsóknarfrestur um eftirtaldar áður auglýst-
ar kennarastöður framlengist til 20. júlí:
Heiðarskóla: Almenn bekkjarkennsla.
Varmalandsskóla: Hannyrðir, smíði og
íþróttir.
Grunnskóla Ólafsvíkur: Almenn kennsla,
íþróttir.
Grunnskólann Grundarfirði: Eðlisfræði,
líffræði, almenn bekkjarkennsla í 5. og 7. bekk.
Laugaskóla, Dalasýslu: almenn kennsla
yngri barna, íþróttir, samfélagsfræði.
Fræðslustjóri Vesturlandsumdæmis.