Morgunblaðið - 10.11.1991, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.11.1991, Blaðsíða 6
6 FRETTIR/INIMLEIUT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1991 Boeing 757-200 vélar Flugleiða: Spansjóður vél- sljóra þrjátíu ára Á morgun, 11. nóvember, verða 30 ár liðin síðan Sparisjóður vélstjóra hóf starfsemi sína. Þeir sem stóðu að stofnun sparisjóðs- ins voru um 350 einstaklingar og félög innan sjómannastéttarinn- ar. Helstu baráttumenn fyrir stofnun sparisjóðsins voru vélstjór- ar, eins og nafnið gefur til kynna, en einstaklingar í fjölmörgum öðrum atvinnugreinum Iögðu einnig hönd á plóginn. í upphafi var starfsemi spari- fimm ár um 122,1%, umfram sjóðsins smá í sniðum og hús- næðið þröngt. Reksturinn grund- vallaðist að stórum hluta á sjálf- boðaliðsstarfí stjórnar sjóðsins, en einnig lagði Vélstjórafélag íslands fram mikla aðstoð. Smá saman óx sparisjóðnum fiskur um hrygg. Eftir að hafa starfað frá upphafi í ieiguhús- næði, fyrst á Bárugötu 11 og síð- an í Nóatúni 17 var starfsemin flutt árið 1977 í eigið húsnæði í Borgartúni 18. Sparisjóðurinn er í dag í röð stærstu sparisjóða landsins og er hluti innlánsfjár um 10% af heild- arinnlánsfé sparisjóðanna í land- inu. Eiginfjárstaða sparisjóðsins er sterk og hefur verið mikill vöxt- ur í allri starfsemi hans síðustu ár. Hafa innlán t.d. vaxið síðustu verðbólgu, en séu bréf veðdeildar talin með nemur aukningin 172,4%. Aðalstöðvar sparisjóðsins eril í Borgartúni 18. Einnig eru rekin tvö útibú í Síðumúla 1 og Rofabæ 39. Sparisjóðurinn er opinn til við- skipta fyrir alla. Stjórn sparisjóðsins skipa þrír menn, þeir Jón Júlíusson, sem er formaður, Jón Hjaltested og Guð- mundur Hallvarðsson, sem kosinn er af borgarstjóm Reykjavíkur. Við sparisjóðinn starfa 35 manns. Sparisjóðsstjóri er Hall- grímur Jónsson og aðstoðarspari- sjóðsstjóri Oddný Óskarsdóttir. í tilefni afmælisins verður boð- ið upp á veitingar í afgreiðslum sparisjóðsins. (FréttatiJkynning) Yfirgripsmikil skoðun á Hafdísi og Fanndísi Keflavík. SVOKÖLLUÐ C-skoðun stend- ur nú yfir á Hafdísi TF-FÍH, annarri af tveim Boeing 757-200 þotum Flugleiða í flug- skýli 885 á Keflavíkurflugvelli. Hér er um yfirgripsmikla skoð- un að ræða og vinna um 30 manns við hana. Henning Finn- bogason verkstjóri sagði að um 4.000 vinnustundir færu í skoð- un sem þessa sem tæki 14 daga. Um leið og skoðuninni á Haf- dísi er lokið verður Fanndís TF-FÍF, hin Boeing 757-200 vélin, tekin í sams konar skoð- un. Til að fylla í skarð dísanna á meðan hafa Flugleiðir tekið 757-200 vél á leigu frá ítölsku flugfélagi. „Vélarnar era teknar í C-skoð- anir eftir 4.000 flugtíma og era þá yfírfarnar rækilega,” sagði Henning Finnbogason í samtali við Morgunblaðið. „Við viljum kalla þetta fyrirbyggjandi aðgerðir sem era fólgnar í því að skoða og koma í veg fyrir bilanir áður en þær verða.” Um 30 manns vinna við skoðunina þar af eru 26 flugvirkj- ar en 4 era sérfróðir um rafmagn og er vinnutími þeirra frá kl. 7 á morgnana til kl. 19 á kvöldin. Auk þess er hér staddur 28 manna hópur frá Boeing verksmiðjunum í Seattle til að skipta um einangr- un í búki vélarinnar. Henning sagði að kómið hefði í ljós að ein- angranin virkaði ekki eins og skyldi. í hana hefði safnast raki og því hefðu verksmiðjurnar fram- leitt nýja einangrun og væri þessi SJÖ undirmenn á togaranum Hafnarey SU 110 frá Breiðdalsvík hafa aflient stjórn og framkvæmdastjóra Gunnarstinds hf. harðorð mót- mæli gegn kröfum fyrirtækisins um að yfirmenn á togaranum þurfi að vera búsettir á stöðunum. Virðist þeim að þessi krafa beinist aðeins gegn skipstjóranum, sem búsettur er á Fáskrúðsfirði, en síðar komi að undirmönnum. Lárus Sigurðsson, sveitarstjóri á Breiðdalksvík og stjórnarmaður í Gunnarstindi, sagði við Morgunblaðið í gær að al- kunna væri að víðsvegar um landið væru sjómönnum sett skilyrði um búsetu í heimahöfnum skipa. Morgui>blaðið/Björn Blöndal Annar af tveim hreyflum Hafdísar yfirfarinn. Þeir eru frá Rolls Royce-verksmiðjunum í Derby í Englandi og kostar einn hreyfill 360 milljónir króna. Henning Finnbogason, verkstjóri hjá flugvirkjum, Björn Theodórs- son, framkvæmdastjóri þróunarsviðs, Guðmundur Pálsson, fram- kvæmdastjóri tæknisviðs og Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða. Kröfur um að skipstjóri Hafnareyjar SU flytji lögheimili sitt: Sjö undirmenn á togar- anum hóta að fara í land ásamt undirmönnunum lýst yfir stuðningi við sig í þessu máli. „Þess- ir stofnanafakírar virðast ekki kunna að koma fram við fólk, og vita ekki hvað er að gerast,” sagði Benedikt. Jónas Ragnarsson framkvæmda- stjóri Gunnarstinds vildi ekki segja annað um málið í gær en að hann tryði því að það yrði leyst. framkvæmd alfarið á kostnað Bo- eing verksmiðjanna. Frá því að Hafdís TF-FÍH kom til landsins í apríl 1990 hefur henni verið flogið í 7.553 flugtíma sem er sérlega góð nýting því að sögn Hennings reikna framleiðendur vélanna með að meðalflugtíminn á ári sé um 3.000 tímar. Hann sagði að álagið væri mest yfir sumartímann en þá væri vélunum oft flogið 18 tíma á sólarhring. „Það má því segja að vélarnar eigi að geta flogið í 4.000 tíma án þess að bilanir verði, en á milli C-skoðananna tökum við vélarnar í 10 A-skoðanir, sem eru miklu minni umfangs en þessi sem nú fer fram,” sagði Henning Finnbog- ason verkstjóri. Flugleiðir eiga þriðju Boeing 757-200 vélina, en hún hefur ekki verið tekin í notkun hjá flugfélag- inu. Strax eftir að hún var af- greidd frá verksmiðjunum var hún leigð breska flugfélaginu Britann- ia. BB Tónleikarnir klukkan 15 í viðtali við Rut Ingólfsdótt- ur, fíðluleikara, í blaðinu í gær, um tónleika Kammer- sveitar Reykjavíkur láðist að geta þess, klukkan hvað tón- leikarnir eru. Þeir hefjast klukkan 15 í dag, sunnudag, í íslensku óperunni. Vegna sameiningar hraðfrysti- húsa á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík í Gunnarstind var öllu starfsfólki sagt upp en skipstjóranum á Hafnar- ey stendur ekki til boða endurráðning nema hann flytji heimilsisfang sitt frá Fáskrúðsfirði til Stöðvarfjarðar eða Breiðdalsvíkur. Lárus Sigurðsson sagði að skipstjórinn á Hafnarey, hefði margoft gefið ádrátt um flutn- ing til staðarins en nú þegar hægt sé aÓ bjóða honum fínasta einbýlis- hús á staðnum vilji hann hvergi fara. Því vilji menn láta reyna á hvort ekki sé hægt að fá heimamann í þessa hálaunastöðu eða fá í starfið að öðrum kost mann sem vill búa á staðnum. Lárus Sigurðsson sagði að fulltrúar Stöðvarfjarðar og Breiðdal- svíkur í stjórn Gunnarstinds hefðu þrýst á um að sjómenn á væru búsett- ir á stöðunum einkum yfirmenn sem séu hálaunamenn sem miklu skipti að fá í byggðarlögin sem skattgreið- endur. I undirskriftalista undirmannanna á Hafnarey lýsa þeir því yfir að þeg- ar fjórtán daga uppsagnarfrestur þeirra rennur út muni þeir ekki mæta til starfa hjá fyrirtækinu „nema menn sjái sóma sinn í því að hætta þessu rugli og meta frekar þá vinnu sem menn hafa lagt af mörkum, sumir í áraraðir,” segir í yfirlýsingu þeirra. Benedikt Sverrisson skipstjóri á Hafnarey sagðist í samtali við Morg- unblaðið hafa fengið staðfestingu yfirmanna fyrirtækisins á því að hann yrði ekki endurráðinn vegna þess að hann væri búsettur á Fá- skrúðsfirði og væri ekki tilbúinn til að flytja þaðan. Benedikt hefur verið á Hafnarey í tæp átta ár, þar af síðustu fjögur árin sem skipstjóri. Hann býr á Fá- skrúðsfírði, 20 km frá Stöðvarfirði, og segist ekki ætla að rífa sig upp með sex manna fjölskyldu. Benedikt sagði að kröfur stjórnenda nýja fé- lagsins um að yfirmenn yrðu að vera búsettir á stöðunum beindist ein- göngu gegn sér því hann væri eini yfírmaðurinn sem væri búsettur utan viðkomandi staða. Hann sagði að nokkrir undirmannanna væru að- komumenn sem hefðu verið með sér á skipinu í allmörg ár. I samtali við sig hafi Jóhannes Pálsson stjórnar- formaður sagt að til stæði að undir- menn yrðu lausráðnir og því gætu heimamenn gert kröfu um pláss þeirra hvenær sem væri. Þetta sagði Benedikt ólöglegt. Hann sagði að stýrimaður skipsins og yfirvélstjóri, sem búsettir eru á Breiðdalsvík hafi Lofsamleg umfjöllun um ís- lenskan djass í Danmörku GAGNRÝNANDI danska blaðsins Politiken fer afar lofsamlegum orðum um plötur Tómasar R. Einarssonar, íslandsför og Nýjan Tón í umsögn þann 30. október. Plöturnar eru nú fáanlegar á geisladiskum í erlendum útgáfum undir heitunum Blue Mist og Journey to Iceland. Danski gagnrýnandinn, Boris Rabinowitsch, segir báðar plöturnar framúrskarandi góðar og fer viðurkenning- arorðum um tónsmíðar Tómasar og hljóðfæraleik hljómsveitar- innar. Hann nefnir sérstaklega barítónsaxófónleik Sigurðar FIos- asonar og píanóleik Eyórs Gunnarssonar og notar um hann lýsingarorð í hástigi. Boris Rabinowitsch er einn kunnasti djassgagnrýnandi í Dan- mörku. í upphafi umQ'öIlunarinn- ar segir hann að plötur Tómasar gefí allt aðra og lofsamlegri mynd af íslenskum djassi, þar með talið saxófónleik Sigurðar Flosasonar, en fengist hafí á norrænum út- varpsdjassdögum í sumaren Rab- inowitsch var ekki hrifinn af framlagi íslands til þeirrar hátíð- ar. Hann segir aðal platna Tómas- ar R. Einarssonar vera framúr- skarandi góða hrynsveit — sem skipuð sé, auk bassaleikarans Tómasar, Eyþóri Gunnarssyni á píanó og Pétri Östlund á trommur - og ágætar tónsmíðar Tómasar, þótt ekki séu þær allar jafnfrum- legar. Rabinowitsch segir að alt- saxófónleikur Sigurðar Flosason- ar minni á köflum á spilamennsku bandaríska saxófónleikarins Jackie McLean á yngri en ennþá betri sé þó Sigurður Flosason sem barítónsaxófónleikari. Danski gagnrýnandinn segir að nýrri platan, Islandsför, sé á léttari nótum og það sé einkum hin eldri, Nýt Tónn, sem hann mæli skilyrðislaust með. Þar vegi hvað þyngst hinar fallegu ballöð- ur Tómasar, So Young og Blue Mist (Vangadans og Túnaður í Stofunni á íslensku útgáfunni) með stórkostlegri spilamennsku danska trompetleikarans Jens Winthers og Eyþórs Gunnarsson- ar á píanó. Eyþór, hljómborðsleik- ari bræðingssveitarinnar Mezzo- forte, virðist á síðustu árum hafa tekið út mikilsverðan listrænan þroska sem geri að verkum að framlag hans á plötunni sé píanó- leikur eins og hann gerist bestur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.