Morgunblaðið - 10.11.1991, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 10.11.1991, Qupperneq 11
Leiðtogafundurinn hafði áhrif Leiðtogafundur Ronalds Reag- ans og Míkhaíls Gorbatsjovs í Reykjavík í byijun október sama ár vakti mikla athygli. Fundarstað- | urinn var ákveðinn með skömmum *fyrirvara, en framkvæmd Islend- inga var lofuð. Síðar í sama mánuði var þing IHF í Senegal, en Jón, Kjartan K. Steinbach og Jón Er- lendsson sóttu það fyrir hönd HSÍ. Þeir kynntu umsókn íslands á þing- inu og lögðu jafnframt fram ýmis kynningargögn um ísland og Reykjavík. Leiðtogafundurinn var fulltrúum þingsins í fersku minni og þegar leitað var eftir stuðningi annarra- þjóða við umsóknina var auðvelt að sannfæra menn um að fjarskipti við ísland yrðu ekki vandamál. Svíar lýstu einnig yfir áhuga á að halda keppnina. Barátt- an var hafin. Stuðningur ríkisstjórnarinnar Um veturinn var stefnan varð- andi umsóknina sett í fastari skorð- ur. Undirbúningsnefnd um um- sóknina var sett á laggirnar undir forystu Matthíasar A. Mathiesen, þáverandi utanríkisráðherra. Stjórn HSÍ, sem þegar hafði fengið stuðn- ing ISÍ og íslensku ólympíunefnd- arinnar, var ljóst að stuðningur rík- isvaldsins var nauðsynlegur til að dæmið gengi upp. Jón skrifaði bréí til Sverris Hermannssonar mennta- málaráðherra 22. maí og óskaði eftir stuðningi hans og ríkisstjórn- arinnar við umsóknina. Mennta- málaráðherra lagði málið fyrir rík- isstjórn Steingríms Hermannsson- ar. 29. maí 1987 sendi Sverrir Hermannsson menntamálaráð- herra HSÍ eftirfarandi bréf: „Með vísun til bréfs yðar dags. 22 maí sl. staðfestist hér með, að ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum 26. maí sl. að verða við beiðni yðar um stuðning við umsókn HSÍ til Alþjóða hand- knattleikssambandsins um að A-heimsmeistarakeppni í hand- knattleik karla verði haldin hér á landi árið 1994.” Með þetta veganesti í farteskinu hófst undirbúningsnefnd HSÍ um umsóknina handa og er þáttur hennar sérstaklega rakinn á bls. 12. En markaðssetningin var ekki aðeins í höndum nefndarinnar held- þáverandi forsætisráðheira í ávarpi á forsíðu að undirbúningur vegna keppninnar á íslandi 1995 standi yfir. Þá þakkar Steingrímur J. Sig- fússon þáverandi samgönguráð- herra þá ákvörðun að HM 1995 verði á íslandi. Samningar undirritaðir 5. apríl voru undirritaðir samn- ingar milli Kópavogsbæjar, ríkis- stjómar íslands og Ungmennafé- lagsins Breiðabliks um byggingu og rekstur fjölnota íþróttahúss í j Smárahvammslandi í Kópavogi. Jafnframt var undirritaður samn- ingur milli HSÍ og Kópavogsbæjar um að íþróttamiðstöðin verði tilbúin fyrir HM 1995. Kostnaðaráætlun vegna íþróttahússins hljóðaði upp á 640 milljónir en vegna alls mann- virkisins upp á 954 milljónir. Samið var um að framlag ríkissjóðs yrði 300 miHjónir og það verður ekki hækkað. Hætt við Um síðustu helgi dró til tíðinda. Hætt var við samninginn með fyrir- vara um samþykki bæjarstjórnar Kópavogs á fimmtudaginn kemur. Málið var tekið fyrir í umræðum utan dagskrár á Alþingi sl. mánu- dag og gagnrýndu nokkrir þing- menn ríkisvaldið harðlega fyrir stöðu mála. Þá kannaði HSÍ hug borgarstjóra til málsins en svarið var afdráttarlaust, borgin byggði ekki umrætt íþróttahús. Markús Orn Antonsson borgarstjóri sagði að mikið fjármagn væri bundið í fram- kvæmdum vegna íþróttamann- virkja, aðallpga hjá félögum, a.m.k. Fram, KR, Ármann, Fylkir og Þrótt- ur eru í byggingarhugleiðingum, og þar við situr. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1991 (S f 11 ur var landsliðið óspart notað í þessum tilgangL Það var á ferð og flugi fram að Ólympíuleikunum í Seoul og lék tæplega 80 landsleiki á þeim rúmlega 15 mánuðum, sem voru til stefnu. Liðið tók þátt í vin- áttuleikjum og alþjóðlegum mótum m.a. í Júgóslavíu, Bandaríkjunum, Kóreu, Sviss, Noregi, Lúxemborg, Belgíu, Danmörku, Svíþjóð, Japan, Vestur-Þýskalandi, Austur-Þýska- landi, Frakkalandi og á Spáni. Alls staðar var umsókn Islands kynnt í tengslum við leikina og hvert tæki- færi notað til að leita eftir stuðn- ingi við hana. Öllum hugsanlegum aðferðum var beitt og m.a. voru áhrifamenn í viðkomandi hand- knattleikssamböndum heiðraðir af HSÍ í bak og fyrir og margir leyst- ir út með minningargjöfum. Öllum handknattleikssambönd- um IHF var kynnt umsóknin bréf- lega, íþróttasamband íslands sendi íþróttasamböndum á Norðurlönd- um bréf, þar sem óskað var eftir stuðningi og íslenska ólymp- íunefndin sendi ámóta bréf til allra óiympíunefnda. Forsetaleikur í árslok 1987 gerði HSÍ þróun- arsamning við Handknattleikssam- band samveldislandanna og næsta vor undirritaði HSÍ samning við handknattleikssambönd í Suð- austur-Afríku um þróunaraðstoð íslands við eflingu handknattleiks- íþróttarinnar í þessum löndum í samvinnu við Þróunarsamvinnu- stofnun íslands. í júlí var ákveðið að leika vinátt- uleik við Vestur-Þjóðverja I Ham- borg \ tengslum við heimsókn for- seta íslands til Þýskalands og var frú Vigdís Finnbogadóttir heiðurs- gestur á leiknum. HSÍ lokaði síðan undirbúnings- hringnum með því að gera samning við þýska handboltaritið World Handball Magazine um góða kynn- ingu á Islandi, íslenskum handþolta og umsókninni í blaðinu, sem var gefið út rétt fyrir Ólympíuleikana í Seoul. Islensk fyrirtæki voru með auglýsingar á tæplega fimm síðum og ijallað var um ísland og íslen- skan handknattleik á rúmlega níu síðum, en umfjöllun um sænskan handbolta var upp á tvær og hálfa síðu. HSÍ keypti um 5.000 eintök af blaðinu og dreifði því m.a. til fréttamanna í Seoul fyrir þingið. Allt unnið fyrir gýg? Ljóst er að HSÍ hefur lagt gífur- lega mikla undirbúningsvinnu í umsóknina um HM og fyrirhugaða framkvæmd. Margir hafa verið kallaðir til og mikið lagt undir. En þar stendur hnífurinn í kúnni. Fjárhagsstaða HSÍ hefur farið versnandi með hveiju árinu síðan undirbúningur um umsóknina hófst og hafa fjármál sambandsins dreg- ist inn í umræðuna. Fjárhagsáætl- un HSÍ vegna keppninnar hefur ekki hlotið náð fyrir augum ríkis- valdsins, það hefur ekki tekið frum- kvæði í málinu og sveitarfélög halda að sér höndum. HSÍ sótti um að halda HM pilta yngri en 21 árs árið 1993. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra sendi bréf með umsókninni til IHF 27. desember sl. þar sem m.a. kom fram að ríkisstjórnin styddi umsóknina og óskað var eft- ir stuðningi við hana. HSÍ hefur hugsað sér þessa keppni sem und- irbúningsmót fyrir HM 1995, en þó tækninefnd IHF hafi mælt með umsókn HSÍ, hangir hún á sömu spýtunni og keppnin 1995. Óvíst er hvert framhaldið verð- ur, en fresturinn til að taka ákvörð- un rennur út í júlí á næsta ári. Vbrðlækkun veana hagstæðra sammnga ó farsímum frá X MITSUBISHI Upplýsingar: Fullkomin tvíátta handfrjáls notkun. (Símalínan er opin í bábar áttir í einu vib símtöl). Styrkstillir fyrir öll hljób sem fra símanum koma s.s.hringing, tónn frá tökkum o.fl. Einnig er hægt að slökkva á tóninum frá tökkum símtólsins. Fullkomib símtól í réttri stærö. Léttur, meöfærilegur, lipur í notkun. Bókstafa- og talnaminni. Hægt er að setja 98 nöfn og símanúmer í minni farsímans. Tímamæling á símtölum. Cjaldmæling símtala. Hægt er ab hafa verðskrá inni í minni símans og láta hann síöan reikna út andviröi símtalsins. Hægt ab láta símann slökkva sjálfvirkt á sér, t.d. ef hann gleymist í gangi. Getur gefið tónmerki meb 1 mín. millibili á meban á samtali stendur. Stillanlegt sjónhorn skjás þannig ab aubveldara er ab sja á símtólib. Tónval, sem er naubsynlegt t.d. þegar hringt er í Símboba. Stilling á sendiorku til að spara endingu rafnlöðunnar. Hægt er ab tengja aukabjöllu eba flautu vib farsímann, sem sföan er hægt stjórna frá símtólinu. 6 hólfa skammtímaminni. Hægt er ab setja símanúmer eba abrar tölur í minni á meöan verib er aö tala í farsímann. Endurval á síbasta númeri. Langdrægni og öryggi Mitsubishi-farsímanna er þegar landsþekkt, Japönsk gæbi tryggja langa endingu. Bíl- og ferðaeining: Mitsubishi FZ-129 D 15 farsími ásamt símtóli, tólfestingu, tólleiSslu (5 m), sleSa, rafmagnsleiSslum, handfrjálsum hljóSnema, loftneti oa loftnetsleiSslum, nettri burSararind, rafhlöSu 1,8 AH, loftneti og leiSslu í vindíakveikjara. VerS áSur: FSíhoóOr eSa F2waaa)7- stgr. JólatilboSsverS nú: 105.800,- eSa QK OAA _ Bíleining: Mitsubishi FZ-129 D 15 farsími ásamt símtólj, tólfestingu, tóileiSslu (5 mj, sleSa, rafmagnsleiSslum, hand- ^ frjálsum hljóSnema, loftneti • og loftnetsleiSslum. VerS áSur: J-F5r4237‘ eSa-9979007 stg JólatilboSsverS nú: 89.900,- 79.900, 'Wm , Feréaeining: Mitsubishi FZ-129 D 15 farsími ásamt símtóli, nettri burSargrind. rafhlöSu 1,8 AH, loftneti og leiSslu í vindlakveikjara. VerS áSur: 4-2ór980;- eSa 4-09:990;- stgr. JólatilboSsverS nú: 93.100,- eoa 83.600, E EUROCARD VJSA Samkort Greiöslukjör til allt aö 12 mán. MLINALÁN Bjóöum hin vinsælu Munalán, sem er greiösludreifing á verðmætari munum til allt aö 30 mán. SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.