Morgunblaðið - 10.11.1991, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 10.11.1991, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1991 Hvaó sögðu þeir? Davíd Oddsson ■ „Ríkisstjórnin hefur lofað því að sjá um að þessi handboltahöll verði byggð en við höfum ekki gefið nein loforð...Á hinn bóginn höfum við alltaf verið þess fýsandi að stuðla að málinu ef menn færu út í þetta. En við höfum aldrei lofað neinu eins og ríkisstjórnin hefur gert bæði skriflega og munnlega. Ríkis- stjórnir hafa þá tilhneigingu að líta svo á að loforð þeirra séu einskis virði og það séu sam- mæli um það í þjóðfélaginu.” (Viðtal við DV 14.12. 1989) /„Mér finnst rétt að taka upp viðræður á nýjan leik á milli Kópavogs og ríkisins og finna hvort hagfelldari lausn geti fundist. Auðvitað viljum við tryggja að Heimsmeistarakeppnin í handknattleik geti farið hér fram árið 1995, en til þess að svo megi verða, þarf að leita leiða sem ódýrari verða en þessi.” (Sagt á fundi Sjálfstæðismanna í Kópavogi 17. apríi 1990) „Málið ber þannig að ríkisstjórninni nú að sveitarfélagið Kópavogur spyrst fyrir um það hvort ríkið geti aukið hlut sinn frá hinum lofuðu 300 milljónum króna, framreiknað eitt- hvað hærri upphæð, sem að fyrrverandi ríkis- stjórn batt sig með í samningum við Kópa- vog. Okkar svar er það að það stendur ekki til af okkar hálfu að hækka þetta framlag. Kópavogur mun hafa reynt að ná samningum við fyrrverandi íjármálaráðherra eftir bæjar- stjómarkosningamar 1990 án nokkurs árang- urs og fyrrverandi fjármálaráðherra beitti sér ekki fyrir því, þó þess sé nú getið í samningn- um séi’staklega, að fjárframlag væri inni á fjárlögum hans, sem hann gekk frá síðast fyrír árið 1991. Þannig að það virðist ekki hafa verið mikill vilji til þess að standa við þennan samning. Ríkisvaldið mun auðvitað standa við þann samning, sem gerður var við Kópavog, um þessa fjárhæð, en ríkisvaldið hefur lýst því yfir að hækkun komi ekki til álita. Það er þannig, sem málið stendur. Komi málið upp á nýjan leik með öðrum hætti, þá verða menn að taka á því, þegar það ber þannig að.” (sagt á Alþingi 4. 11. 1991) Ólolur 6. Einarsson „Samningurinn, sém gerður var 1990, var Kópavogskaupstað það óhagstæður að bærinn treysti sér ekki til þess að byggja þetta hús... Til að fyrirbyggja allan misskilning þá hefur þesi ríkisstjórn og ég vona fyrri ríkisstjórnir ekki ætlað sér að halda þetta heimsmeistara- mót, það voru aðrir.” (sagt á Alþingi 4. 11. 1991) Birgir ísleifur Gunnarsson „Þetta er engin ofrausn ef við ætlum ekki að lenda aftur úr öðrum þjóðum á þessu sviði. Þá er margt sem bendir til þess að gjaldeyris- tekjur af mótinu verði um 300 milljónir.” (í viðtali við DV 27/4 1988) Júlíus Hafstein „Við hjá ÍBR fögnum auðvitað slíkri yfirlýs- ingu frá ríkisvaldinu [frá 19. apríl um bygg- mgu nýrrar íþrótta-, sýningar- og ráðstefnu- hallar]. Ef slík höll verður byggð er rétt að hún verði byggð í Reykjavík.” (I viðtali við DV 27/4 1988) Svavar Gestsson „Ég vil á þessari stundu lýsa því yfír í til- efni af ykkar góða sigri að við viljum stuðla að því að unnt verði að halda þessa keppni hér árið 1995 með öllum tiltækum ráðum. Við vitum ekki nákvæmlega hvernig það yrði gert. Við munum kalla út íjölda aðila, auðvit- að þjóðina í heild, íþróttasamtökin sjálf, borg- arstjóm Reykjavíkur og bæjarstjórnir í kring, forystumenn atvinnuveganna og fleiri og fleiri. Við þurfum að safna héma miklu liði.” (Sagt í hófi 3.3. 1989, sem menntamálaráð- herra hélt landsliðinu í ráðherrabústaðnum eftir sigur í b-keppninni í Prakklandi) „Átta þúsund manna handboltahöll fyrir einn milljarð' króna verður ekki byggð. Það er fjarstæða að ætla það. Hins vegar er unn- ið að því að leita að lausnum vegna heims- meistarakeppninnar í handknattleik sem kosta myndu minna. Hins vegar er málið ekki kom- ið á það stig að við séum farnir að leggja tillögur fram í þessu máli, en ég býst við að það verði gert fljótlega upp úr áramótum.” (Viðtal við Tímann 5.12. 1989) Aðalklutverkin voru í höndum áhrifamanna Forseti íslands frú Vigdís Finnbogadóttir fékk fyrsta eintakið af kynningarbækl- ingnum sem gerður var vegna umsóknar HSI um HM. Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSI, og Mathías Á. Mathiesen samgöngumálaráðherra afhentu henni bæklinginn. Á 30 ára afmælishófi HSÍ í apríl 1987 var tilnefnd sérstök undirbúnings- nefnd vegna umsóknarinnar um HM 1994. Hlutverk hennar var fyrst og fremst fólgið í því að fá hugmyndir, sem yrðu umsókninni til framdráttar. Hún starfaði fram að Ólympíuleikun- um í Seoul, en hlutverki hennar var lokið um leið og Alþjóða handknatt- leikssambandið hafði samþykkt á fundi sínum í Seoul haustið 1988 að HM í handknattleik karla yrði á Islandi árið 1995. Matthías Á. Mathiesen, þáver- andi utanríkisráðherra, var formaður nefndarinnar, en auk hans voru í henni eftir- taldir menn: Gylfi Þ. Gíslason, fyrrver- andi ráðherra; Alfreð Þorsteinsson, for- stjóri; Gils Guðmundsson, rithöfundur; Ólafur B. Thors, forstjóri; Kristján Odds- son, bankastjóri; Birgir Þorgilsson, ferða- málastjóri; Þráinn Þorvaldsson, fram- kvæmdastjóri; Sveinn Björnsson, forseti ÍSI; Gísli Halldórsson, fonnaður ólympíu- nefndar; Júlíus Hafstein, formaður ÍBR; og Sigurður Helgason, stjórnarformaður Flugleiða. Fljótlega komu stjórnannenn- irnir Jón Hjaltalín, Ólafur Jónsson og Steinar J. Lúðvíksson inn í nefndina og síðan bættust við í hópinn þeir Björn Dagbjartsson, framkvæmdastjóri Þróun- arsamvinnustofnunar; Reynir Karlsson, íþróttafulltrúi; Guðmundur Björnsson, aðstoðar póst- og símamálastjóri; Gústaf Arnar, verkfræðingur; Jóhann Ingi Gunn- arsson, handknattleiksþjálfari í Þýska- landi og Magnús Pálsson hjá auglýsinga- stofunni Góðu fólki. Fyrsta verk nefndarinnar var að að- stoða HSI við að fá stuðning ríkisstjórnar- innar við umsóknina og að honum fengn- um staðfestu Sverrir Hermapnsson menntamálaráðherra og Matthías Á. Mat- hiesen utanríkisráðherra í yfirlýsingu á ensku hinn 9. júní 1987 stuðning ríkis- stjórnarinnar. Bréfið var sent til allra erlendra sendiherra á Islandi og konsúla Isiands erlendis. Þar segir m.a. að um- sókn HSÍ um HM_ 1994 njóti fulls stuðn- ings ríkisstjórnar Islands og óskað er eft- ir stuðningi viðkomandi. Þetta kemur fram í eftirfarandi bréfi Matthíasar til HSÍ 7. júlí 1987: „í framhaldi af samþykkt ríkis- sljórnarinnar um stuðning við það áform Handknattleikssambands ís- lands að heimsmeistaramótið í hand- knattleik verði haldið á íslandi árið 1994 hefi ég ritað öllum sendiherrum erlendra ríkja á Islandi, og óskað eftir því að þessir aðilar beiti áhrifum sínum til þess að samþykki sem flestra þjóða fáist við tillögu íslands. Eg hefi ennfremur sent bréf til for- seta Alþjóðahandknattleikssambands- ins, sem áður gegndi embætti utanrík- isráðherra Austurríkis og lýst þar áhuga ríkisstjórnar íslands á að áform Handknattleikssambandsins nái fram að ganga.” Daginn eftir, 8. júlí, tók ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar við völdum. Matthías varð þá samgönguráðherra, Birgir ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra og Steingrímur Hermannsson utanríkisráð- herra. Sendiherrar íslands áttu stóran þátt í að kynna umsóknina og afla henni fylgis. Til að mynda fór Einar Benediktsson, sendiherra í Brússel, með Jóni Hjaltalín á fund handknattleikssambanda Vestur- Evrópu í Antwerpen í september 1987. Hann bauð formanni belgíska handknatt- leikssambandsins í mat fyrir fundinn, gerði honum grein fyrir stöðunni og ósk- aði eftir að fá að halda boð fyrir fundar- menn að fundi loknum. Þar kynnti hann umsóknina og sölufuiltrúi Flugleiða í Belgíu mætti með kynningargögn frá Flugleiðum, bæði um fyrirtækið og um ísland. Á þessum fundi kom fram að eftir HM í Tékkóslóvakíu 1990 yrði keppnin senni- lega haldin annað hvert ár og næsta mót yrði því 1993 í stað 1994. Því sendi Jón Hjaltalín bréf dagsett 7. október til Birg- is ísleifs Gunnarssonar, þar sem greint var frá hugsanlegri breytingu og óskað eftir staðfestingu á stuðningi ríkisstjórn- arinnar við umsóknina, þó ártalið yrði annað. Menntamálaráðherra lagði erindið fyrir fund ríkisstjórnarinnar, sem samþykkti að lýsa yfir stuðningi við umsóknina, þó að um breytingu á ártali yrði að ræða. „Sprengjan” í Stokkhólmi Aðeins ísland og Svíþjóð höfðu lýst yfir áhuga á að halda umrædda keppni og þar sem Svíar höfðu sterk ítök innan IHF lagði undirbúningsnefndin allt kapp á að fá sænska fjölmiðla á sitt band. Is- land tók þátt í Heimsbikarkeppninni í handknattleik í Svíþjóð í janúar 1988. Þórður Einarsson, sendiherra í Stokk- hólmi, hélt þá boð fyrir sendiherra allra þátttökuþjóðanna, formenn viðkomandi handknattleikssambanda og_ stjórn IHF. Þar kynnti hann umsókn Islands og í framhaldi var haldinn blaðamannafundur til að fylgja málinu eftir, en auk þess var send fréttatilkynning til allra helstu fjölm- iðla í Svíþjóð. Jón Hjaltalín sendi síðan bréf með aðstoð Flugleið? til allra hand- knattleiksfélaga í Svíþjóð (þau eru um 800) og hvatti þau til að beita sér fyrir því að Island fengi keppnina, því Svíþjóð hefði þegar haidið HM tvisvar. Herbragð- ið bar tilætlaðan árangur. 19. ágúst mæltist Steffo Tömquist, ritstjóri íþrótta hjá sænska dagblaðinu Expressen, til þess í forystugrein að Svíar drægju um- sókn sína um HM til baka. Hann sagði að íslendingar myndu skipuleggja keppn- ina miklu betur og benti á að íslenska ríkisstjórnin væri tilbúin til að standa á bak við þessa miklu keppni. Mótleikur Svía Markaðssetning íslendinga á umsókn- inni í Svíþjóð kom Svíum í opna skjöldu, en þeir brugðust fljótt við og gáfu út myndarlegan kynningarbækling, þar sem hamrað var á fjölda íþróttahúsa í Svíþjóð, sem tækju fleiri en 7.000 áhorfendur. Jafnframt var bent á að á íslandi væri ekkert slíkt hús og því gæti keppnin ekki farið fram hér á landi. Krókur á móti bragði Undirbúningsnefndin brá skjótt við og eftir að HSÍ hafði fengið skriflega yfírlýs- ingu frá menntamálaráðherra þess efnis að áætlað væri að byggja iþróítahöll í Reykjavík, sem gæti rúmað um 8.000 áhorfendur og yrði tilbúin fyrir keppnina 1993 eða-1994 var hafist handa við gerð kynningarbæklings. Jón, Matthías og Gísli Halldórsson gengu á fund borgarstjóra og fengu heimild til að “láta teikna og birta drög í bæklingnum af byggingu í Laugardal án nokkurra skuldbindinga. Það var gert, en í bæklinginn rita m.a. forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, Davíð Oddsson borgarstjóri, Matthías Á. Mathiesen samgönguráðherra, sem for- maður undirbúningsnefndar, og Birgir ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra, sem ítrekaði stuðning ríkisstjómarinnar við umsóknina. Ferðamálaráð Islands og ferðamálaráð Reykjavíkur voru á meðal styrktaraðila bæíriingsins, sem var m.a. sendur til allra handknattleikssambanda IHF og dreift á meðal fréttamanna í Seo- ul fyrir fund IHF þar sem atkvæðagreiðsl- an fór fram. 30. júní 1988 fundaði fulltrúaráð IHF í Frakíriandi um dagskrá þingsins í Seo- ul. Jón Hjaltalín og Haraldur Kröyer, sendiherra íslands í París, mættu á fund- inn og færðu Erwin Lanc forseta IHF persónulegt bréf frá menntamálaráð- herra, þar sem hann áréttaði stuðning ríkisstjórnar ísland við umsókn HSÍ. í lok ágúst fór Jón ásamt Sverri H. Gunnarssyni, sendiherra íslands í Genf, og ræðismanni íslands í Madríd á fund Samaranch, forseta Alþjóðaólympíu- nefndarinnar, til að kynna umsóknina og leita eftir stuðningi, en forsetinn og ræðis- maðurinn voru gamlir bekkjarfélagar. Samkomulag Mikil spenna ríkti á þingi IHF í Seoul. Eftir mikið baktjaldamakk náðist sam- komulag um að borin yrði upp málamiðl- unartillaga þess efnis að kosið yrði sam- tímis um HM 1993 og 1995 og var henni fagnað með dynjandi lófaklappi. Hlut- kesti réði því að HM 1993 yrði í Svíþjóð en keppnin 1995 á íslandi. íslenska undir- búningsnefndin hafði þar með árangur sem erfiði og Matthías Á. Mathiesen, sam- gönguráðherra, samstarfsráðherra Norð- urlanda og formaður íslensku undirbún- ingsnefndarinnar átti síðasta orðið á þing- inu: „Ég vil nota tækifærið og bjóða hand- boltaheimin velkominn til Islands 1995 og sem ráðherra um norræn málefni býð ég alla velkomna til Svíþjóðar 1993. Eg fullvissa alla að undirbúningurinn á ís- landi verður í alla staði mjög góður, marg- ar hallir verða til staðar og eins margir áhorfendur og hægt er.”

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.