Morgunblaðið - 10.11.1991, Síða 17

Morgunblaðið - 10.11.1991, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1991 17 hverfi, hvort sem það yrði fyrir fjall- askála eða þjónustumiðstöðvar ferðamanna. „Sem annars staðar í sumarbú- staðaiöndum yrði Náttúruverndar- ráð umsagnaraðili, en umsögn ráðs- ins þarf að liggja fyrir áður en heim- ild er veitt til framkvæmda,” sagði Stefán. „Við eigum gott samstarf við Náttúruverndarráð og á það ekki síst við um hálendið og þau svæði sem hafa verið friðlýst, en þar hefur ráðið meira að segja en á öðrum svæðum.” Tillaga hefur komið fram um að hálendið verði gert að einum þjóð- garði að erlendri fyrirmynd og sagði Stefán að það væri vel hugsanlegt, en til þess að svo mætti verða yrði hálendið allt að vera í ríkiseign. Eðlilegra og einfaldara væri að skil- greina ákveðin stór heilleg svæði á hálendinu sem friðaða þjóðgarða. Á öðrum svæðum mætti hugsa sér einhverskonar byggð eða fram- kvæmdir. En það eru aðrar framkvæmdir á hálendinu sem eru í brennideplin- um, vegagerð og háspennulínur sem valdið geta sjómengun. „Munurinn á vegi og línum er sá að vegir verða aldrei eins áberandi í umhverfinu. Ekki nema úr lofti séð,” sagði Stef- án. „Það hefur einnig verið bent á að vegir stuðli að betri umgengni um hálendið og dragi úr slóðum utan vega. Sæmilegir vegir, sem fólk heldur sig þá á, eru til bóta. Það hefur tekist ákveðið samstarf milli Vegagerðar ríkisins og Lands- virkjunar um að þessir vegir verði markvisst byggðir upp með það í huga að þeir verði notaðir síðar meir af ferðamönnum og öðrum, sem erindi eiga um svæðið.” Viðhorfsbreyting til umhverfismála Stefán sagði að mikil viðhorfs- breyting hefði átt sér stað á undan- förnum árum til umhverfismála og þá ekki síst til hálendisins og óbyggðanna. „Það er auðveldara fyrir alian almenning að ferðast yfír hálendið og þeim hefur fjölgað sem þangað fara í rútum, jeppum, gangandi, hjólandi og ríðandi og þeim fjölgar einnig stöðugt sem sjá ákveðna möguleika og kosti í mið- hálendinu sem óspilltri náttúru,” sagði hann. „Þess vegna er ákveðin hætta á hagsmunaárekstrum þeirra sem standa þar fyrir miklum fram- kvæmdum og þeirra sem vilja njóta kyrrðar og óspillts umhverfis. Þá fjölgár þeim sem líta á hálendið sem þjóðareign. Sameign, þar sem fólk telur sig almennt eiga hagsmuna að gæta. Þó ekki sé um beint eign- arhald að ræða, þá hafi það eitt- hvað um málið að segja.” Til þess að leysa þennan hnút þyrfti að taka upp enn frekara sam- starf við Landsvirkjun og Vegagerð ríkisins um umhverfismat þegar framkvæmdir á hálendinu eiga í hlut, að mati Stefáns. „Við viljum að leitað verði til okkar fyrr á hönn- unarstig framkvæmdanna, þannig að í sameiningu og af alvöru verði farið yfir alla kosti sem fyrir hendi eru til lausnar. Það hefur valdið vandræðum að nánast er búið að fullvinna tillögurnar og tímasetja framkvæmdaáætlun áður en kemur að kynningu, þannig að lítill tími vinnst til að skoða framkvæmdina af einhverju viti. Strax á undirbún- ingsstigi þarf að bera saman og skoða þá kosti sem fyrir hendi eju og meta alla umhverfisþætti. Ég heyri að það er mikill vilji fyrir að slík vinnubrögð verði tekin upp. Menn sjá að annars lenda þeir í vandræðum og leiðindum. Það er að myndast þjóðarsamstaða um hálendið og öll umræða að opnast. Allur almenningur fylgist betur með og finnur að verið er að leita eftir bestu lausninni í stað þess að ryðj- ast í gegn, þar sem styðst er að fara.” Stefnan er ekki skýr Ragnar Kristjánsson er sérfræð- ingur Náttúruverndarráðs í skipu- lags- og mannvirkjagerð, meðal annars á hálendinu. Eins og fram hefur komið er Náttúruverndarráð umsagnaraðili um framkvæmdir í stijálbýli og þá um leið á hálend- •_________________ . ~ • ._____ inu. Þar eru friðuð svæði í sér- stakri vernd, meðal annars Skútu- staðahreppur allt frá Mývatni að Vatnajökli. Innan hans eru margir viðkvæmustu ferðamannastaðir á hálendinu og á því svæði eru uppi hugmyndir um að leggja háspennu- línu þvert yfir hálendið í nágrenni við Herðubreið, Öskju, Dyngjufjöll og um Ódáðahraun. Að sögn Ragn- ars, hefur Náttúruverndarráð enn ekki markað skýra stefnu hvað varðar hálendið. „Það er í raun ekki til nein stefna fyrir þessi frið- Iýstu svæði heldur,” sagði hann. „Þau eru friðlýst og síðan er beðið með að vinna úr málunum. Það er vandamálið. Það að um friðað svæði er að ræða er ekki það sama og að ekki megi byggja neitt, en fram- kvæmdin er skoðuð mun betur en annars og ákvörðun tekin sem er í sátt við umhverfið.” Talið er að um 400 skálar séu á víð og dreif á hálendinu, gangna- mannakofar, slysavarnaskýli, Ferð- afélagsskálar og eitt hundrað skálar í einkaeign í afar misjöfnu ástandi. Rétt er að taka fram að unnið er að skráningu skálanna en heildar- skráning mannvirkja á hálendinu er ekki til. „Þessi sókn í einkaskála hefur farið vaxandi á síðari árum og á það sérstaklega við um svæðið meðfram línuveginum norðan við Skjaldbreið, sem lagður var þegar háspennulínan var lögð árið 1981 frá Búrfelli að Járnblendiverksmiðj- unni við Grundartanga. Vegurinn opnaði svæðið fyrir umferð þar sem áður var eingöngu göngusvæði. Ferðafélag íslands á sæluhús sunn- an undir Hlöðufelli og það var til skamms tíma eina húsið á svæð- inUj” sagði Ragnar. Á síðustu tveimur árum hafa verið settir niður sjö skálar með- fram línuveginum. Það má því segja að vegurinn hafi skapað ófyrirséð vandamál. „Svæðið er mjög vinsælt meðal jeppa- og snjósleðaeigenda og hjá oddvita Grímsneshrepps liggja ellefu umsóknir um skála- byggingar við veginn. Fimm um- sóknir hafa þegar verið afgreiddar og tveir skálar eru komnir niður,” sagði Ragnar. „Stefna Náttúru- verndarráðs hefur verið sú að fjalla- skálar skulu vera í eigu félagasam- taka og standa opnir. Þannig má færa rök fyrir að um neyðarskýli sé að ræða. Margir þessara íjalla- skála eru komnir mjög til ára sinna og illa farnir. Þegar búið er að skrá alla skála þá væri hægt að nota skrána sem gagnagrunn og benda þeim á sem óska eftir aðstöðu á fjöllum að hafa samband við við- komandi eiganda og fá heimild til að nýta skálann og halda honum við. Ég er viss um að margir bænd- ur sem eiga gangnamannakofa yrðu því fegnastir að einhver héldi húsum við. Kofarnir eru flestir ónýttir enda bændur hættir að nota þá með breyttum búskaparháttum. Ef ekki verður veruleg breyting á fyllist hálendið af vanhirtum skál- um sem enginn nýtir. Af öllum þeim skálum sem eru á Hellisheiði, svo dæmi sé tekið og eru ýmist í einka- eign eða í eigu félagasamtaka eru um 60% til 70% ónýtir. Flestir skál- anna voru byggðir á árunum 1940 til 1950 og sumir þeirra blasa við þegar ekið er yfir heiðina.” Flestir skálanna, sem byggðir hafa verið á síðari árum, eru sunn- an jökla, en einnig er mikið um skála upp úr Eyjafirði í óleyfi. „Skálar eru jafnvel reistir inn á afréttum landsins á landi sem eng- inn veit hver á,” sagði Ragnar. „Spurningin er hvor sveitarstjórnir geti heimilað slíkar byggingar, þar sem eignaréttur á landi er ekki á hreinu og þar með ráðstafað því til næstu 25 ára. Ég veit til þess að maður, sem fór með skála inn á hálendið, gerði athugsemd vegna annars skála, sem reistur var í ná- grenninu og honum þótti vera of nærri. Óskaði hann eftir að fram- kvæmdir yrðu stöðvaðar. Hvorugur skálanna hafði fengið tilskilin leyfi, en hann vildi vera einn og taldi sig vera í fullum rétti þar sem hann kom fyrstur á staðinn. Þetta minnir á hugsunarhátt bandarísku frum- byggjanna.” ————— Umdeildar framkvæmdir opnuðu halendiö ferðamðnnum ALLT fram til þess að Landsvirkjun hóf virkjunarframkvæmdir í Þjórsá, fyrst við Búrfell og síðar við Sigöldu, var miðhálendi íslands sveipað dularhjúp í hugum flestra. Nöfn eins og Tómasarhagi, Nýidal- ur, Sprengisandur og Kiðagil voru á hvers manns vörum, en fæstir höfðu séð þessa staði með eigin augum. Það má því segja að umsvif Landsvirkjunar á hálendinu hafi opnað ferðamönnunum leiðina og nú stendur til að leggja háspennulínu þvert yfir hálendið. Við höfum aldrei fengið jafn sterk viðbrögð við framkvæmdum Landsvirkjunar á hálendinu,” sagði Agnar Olsen, forstöðumaður verkfræðideildar. „Énda er þetta í fyrsta sinn sem hagsmunaðilar í ferðaþjónustu hafa gagnrýnt áætlan- ir Landsvirkjunar. Agnar sagði að frumdrög að framkvæmdum Lands- virkjunar yrðu til á teikniborðinu, ef svo mætti að orði komast, en síðan tæki við vettvangskönnun. Hlutverk Landsvirkjunar væri að flytja orku frá einum stað til annars á sem hag- kvæmastan og ódýrastan hátt og er reynt að velja stystu leiðina með til- liti til aðstæðna svo sem ísingar og vinda. Þegar hún liggur fyrir er haft samband við Náttúruverndarráð, en náið samstarf er milli stofnananna, og auk þess við forsvarsmenn við- komandi sveitarfélaga og viðhorf þeirra til línunnar könnuð. Loftlína kostar að meðaltali 15 milljónir hver kílómetri, en ef lína er grafin í jörðu kostar hver kíló- metri að minnsta kosti 75 milljónir. „Það eru engar aðrar íeiðir,” sagði Agnar. „Og að grafa línuna niður er nánast útilokað að mínu mati. Það er hvergi gert í heiminum að grafa línu langar leiðir. Því fylgja ýmis rafmagnsfræðileg vandamál, auk mikils jarðrasks og djúpra skurða. Línan yrði að vera aðgengileg og í stokk með steyptu loki rétt eins og hitaveitulagnir. Hún yrði ekki ósýni- legt fyrirbæri eins og margir virðast halda. Talað hefur verið um að leggja hluta línunnar í stokk á viðkvæmum stöðum eins og til dæmis í Ódáða- hrauni, Gefíð hefur verið afdráttar- laust afsvar við þeirri hugmynd, svo m.enn eru hættir að ræða það.” Ýmsar Ieiðir til að draga úr umhverfisáhrifum Þorgeir J. Andrésson, yfii-verk- fræðingur línudeildar, segir að ýmsar aðrar leiðir séu færar til að draga úr umhverfisáhrifum línunnar. Til dæmis mætti hanna ný og fallegri möstur og minnka áhrif þeirra og hafa þau mött. Það sama ætti við um vírana og jafnvel einangrarana en þeir eru yfirleitt glansandi og skera sig úr umhverfinu. „Enn frem- ur skiptir miklu máli hvar möstrin er lögð,” sagði Þorgeir. „Með bví að hnika möstrunum til er hægt að velja þeim stað þar sem þau verða ekki til lýta.” Fyrirhuguð Fljótsdalslína, sem gagnrýnin hefur einkum beinst að, mun geta fiutt um 250 MW og ann- ar því meiri orku en virkjunin kemur til með að framleiða. Áætianir gera ráð fyrir að lína verði lögð frá virkj- uninni á Fljótsdal um hálendið við Þríhyrningsfjallgarð, yfir Jökulsá á Fjöllum og Kreppu í stefnu sunnan við Herðubreiðartögl, þaðan norðan Vikrafells og sunnan í Svörtudyngju yfir Ódáðahraun að Svartárkoti, nið- ur Bárðardal, yfir í Fnjóskadal og að Rangárvöllum við Akureyri, eða um 190 kílómetra leið. Lína suður yfir hálendið liggur frá Svartárkoti suður Sprengisand, eða um 192 kíló- metra leið, en fylgir síðan Búrfells- línu 1 um Grímsnes að Hamranesi. Fyrirhuguð lína er því samtals 502 kílómetri, frá Fljótsdalsvirkjun og að Hamranesi. „Landsvirkjun reynir eftir því sem framast er kostur að koma til móts við athugasemdir, sem fram koma um framkvæmdir fyrirtækisins að höfðu samráði við hlutaðeigandi yfir- völd,” sagði Þorgeir. „Það þýðir ekki að slá höfði við stein. Til dæmis var Búrfellslínu 3 breytt verulega og henni valin önnur leið en henni var ætlað upphaflega. Það er skipulags- stjórn ríkisins, sem hefur næst síð- asta orðið, en umhverfismálaráð- herra hefur síðasta orðið um línuleg- una.” Hagkvæmast nú og í framtíðinni Margir hafa velt því fyrir sér hvort ekki hefði verið hægt að fylgja byggðalínunni svokölluðu, annað hvort suður með ströndinni, eða norður fyrir, í stað þess að fara yfir miðhálendið. „Stysta leið er að fara yfir hálendið. Eftir því sem lína er fjær ströndinni, þeim mun minni hætta er á ísingu og seltu, auk þess sem ég á erfitt með að sjá að menn samþykki aðrar mun stærri línur með suðurströndinni. Leiðin sem nú verður valin verður meginflutnings- leið orkunnar og suður og mjög lík- legt að allar línur í framtíðinni fari sömu leið,” sagði Agnar. „Ef línan, sem nú verður lðgð. er lengd, þá lengjast allar línur í framtíðinni og er því ekki eingöngu dýrara fyrir Landsvirkjun og alla landsmenn núna heldur um alla framtíð.” Heyrst hefur að hálendisleiðin hafi verið valin vegna erfiðleika við að semja við landeigendur i byggð. Þorgeir kannaðist ekki við að það væri rétt og sagði að bótagreiðslur til landeigenda væru léttvægar í þessu samhengi. „Þetta er ekki af- gerandi atriði í þessu máli,” sagði Þorgeir. „Það er auðvitað seinlegt og erfitt að ná samkomulagi og það verður alltaf þyngra og þyngra af skiljanlegum ástæðum. Menn verð- leggja sitt land hærra heldur en áður tíðkaðist og eru meðvitaðri um verð- mæti lands síns.” Framkvæmdir Landsvirkjunar á hálendinu hafa áður verið gagnrýnd- ar og nægir að nefna ótta náttúru- verndarmanna við vatnsmiðlun vegna Sigöldu við Þórisvatn og einn- ig við Blönduvirkjun. Vegna Fljóts- dalsvirkjunar eru uppi hugmyndir um vatnsmiðlun við Snæfell, sem sætt hefur nokkurri gagnrýni. „Hug- myndin er að ná vatni sem rennur úr og við Snæfell og til þess þarf að gera stíflur og grafa skurði,” sagði Agnar. „Um er að ræða 10% af heildarvatnsmagni virkjunarinnar og hugsanlega verður hægt að koma til móts við þessar athugasemdir. Rétt er að taka fram að mótmælin beinast að afmörkuðum þætti, en ekki sjálfri virkjuninni.” Hægt að sameina hagsmuni ferðamanna og Landsvirkjunar Agnar sagðist trúa því að hægt yrði að sameina hagsmuni ferða- manna og Landsvirkjunar og að línan verði beggja hagur. Henni fylgir veg- arslóði, sem verður lagður í sam- starfi við Vegagerð ríkisins. Hann er fyrst og fremst hugsaður fyrir sjálfa framkvæmdina en ferðamenn gætu nýtt sér hann þegar henni er lokið. Landsvirkjun hefur lagt vegi um hálendið og brúað fljót sem áður voru ófær og þannig opnað mönnum leiðina. Stór hluti þess svæðis, sem Fljótsdalslína fer um, er fáfarinn og óaðgengilegur, nema þá fyrir göngu- menn. Spurningin er hvort hálendið eigi eingöngu að vera fyrir þessa fáu hraustu eða hvort opna eigi hálendið að ákveðnu marki fyrir almenning. Þeir Agnar og Þorgeir eru sam- mála um nauðsyn þess að samkomu- lag náist um skipulag og nýtingu hálendisins og að yfir það verði sett ein stjórnsýsla eins og unnið er að í umhverfisráðuneytinu. Þá væri mál- efnum hálendisjns. mun betur 1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.