Morgunblaðið - 10.11.1991, Side 24

Morgunblaðið - 10.11.1991, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MYNDASOGUR SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1991 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Þú bregður þér bæjarleið og heimsækir gamlan vin í leið- inni. Símtal sem þú færð í kvöld vekur undrun þína. Naut (20. apríl — 20. maí) Þú ert í hátíðarskapi í dag og hefur samband við vini þína nær og fjær. Fjármálaráðgjöf sem þér er gefin gæti reynst villandi. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Þetta er góður tími fyrir þig og ástvini þína. Þér verður komið þægilega á óvart og þú færð innblástur í vinflunni. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Hji0 Hlutimir taka vænlega stefnu í vinnunni hjá þér í dag. Þú er vinnufús með afbrigðum og vinnur langt fram jfír venju- legan vinnutíma. Ahugi þinn hefur verið vakinn á nýrri hug- mynd eða spennandi verkefni. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Nýtt hugðarefni tekur hug þinn fanginn. Ef þú ert skapandi einstaklingur blómstrar þú núna og stefnir ef til vill inn á nýjar og óþekktar brautir. Meyja Xf (23. ágúst22. september) aii Þú innleiðir einhveijar nýjung- ar heima hjá þér núna og finn- ur loks lausn á vandamáli sem hefur þvælst fyrir þér að und- anfömu. Vog (23. sept. - 22. október) Einstaklingseðli þitt kemur vel í ljós í tjáningarhætti þínum núna. Þú færð óvænt ferðatil- boð og finnur hvöt hjá þér til að fara á nýja staði. Sporðdreki (23. okt. — 21. nóvember) Þú þarft ekki að verða undr- andi þótt þú kaupir ýmislegt í dag sem ekki var á dagskrá hjá þér að kaupa núna. En fjár- hagshorfumar hjá þér fara engu að síður batnandi, að minnsta kosti í bili. Bogmaður (22. nóv. - 21.- desember) ^) Þú verður undrandi á hug- myndum sem skjóta upp kollin- um í huga þínum núna. Reyndu að gcra þér mat úr því sem cr einstætt hjá þér. Sinntu mikil- vægu símtali. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú færð að sumu leyti nýja sýn inn í persónuleika þinn núna. Þú kannt að vera á kafi í ein- hveiju könnunarverkefni, en þarft að fá næði til að leysa ýmis innri vandamál. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Einstaklingar i þínu merki hafa til að bera eiginleika sem afla þeim nýrra vina. Það er ein- mitt það sem hendir þig núna. Það er hátið í bæ hjá þér og þú blómstrar sem einstakling- Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Jafnvel þú ert undrandi á hvað þér vegnar vel núna. I bili átt þú að einbeita þér að því einu sem getur orðið þér til fram- dráttar í lífinu. Stj'órnuspána á a<) lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staðrcynda. DÝRAGLENS LJOSKA wr: i FERDINAND — i . v c sm Vv '0 l X V. v 1 * 1 IU SMÁFÓLK Kcnnarinn sagði að hún hefði í rauninni haft gaman af því að hafa Snata í bekknum okkar í dag. Hún sagði að hún vildi óska, að allir hennar nemendur höguðu sér eins vel. Hún sagði að hún gleymdi því stundum að hann væri hundur. Hvílíkir gullhamrar! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Sem sagnhafi í 6 spöðum varð Egyptinn Azarn að velja milli tveggja leiða strax í fyrsta slag: Vestur gefur; ailir á hættu. Norður ♦ 98 ♦ ÁK542 ♦ Á5 ♦ ÁK43 Suður ♦ ÁKG743 VDG ♦ D109 ♦ 72 Spilið er frá fyrri viðureign íslands og Egyptalands í undan- keppni HM. Azam og félagi hans Dagher sögðu þannig á spil NS gegn Þorláki Jónssyni og Guðm. Páli Arnarsyni: Vestur Norður Austur Suður Guðm. Dagher Þorl. Azam Pass 1 hjarta Pass 1 spaði Pass 3 lauf Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar Pass 4 grönd Pass 5 lauf Pass 5 grönd Pass 6 spaðar Allirpassa Fjjögur grönd spurðu um ása og norður lofaði þremur af „fimm” með 5 laufum. Síðan spurði Azam um trompið og norður neitaði háspili með svari sínu á 6 spöðum. Útspilið var tígulþristur. Hvernig myndi lesandinn spila? Tvær áætlanir koma til greina: (1) Hleypa fyrsta slagn- um yfir á drottningu og svína síðar fyrir spaðadrottninguna. (2) Stinga upp tígulás, toppa spaðann og reyna síðan að henda tveimur tíglum niður í hjarta. Azam valdi síðari kostinn með slæmum afleiðingum: Norður Vestur ♦ 65 ♦ 9873 ♦ KG43 ♦ 1098 ♦ 98 ♦ ÁK542 ♦ Á5 ♦ ÁK43 Austur ♦ D102 ♦ 106 ♦ 8762 ♦ DG65 Suður ♦ ÁKG743 ♦ DG ♦ D109 ♦ 72 Þorlákur trompaði hjartaás- inn og spilaði tígli: Einn niður. Á hinu borðinu vann Örn Arn- þórsson slemmuna og ísland græddi 17 IMPa. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á alþjóðlega mótinu í Vínar- borg í október kom þessi staða upp í viðureign bandaríska stór- meistarans Larry Christiansens (2.600), sem hafði hvítt og átti leik, og ungversku stúlkunnar Judit Polgar (2.550). 42. Hc7! og svartur gafst upp, því eftir 42. - Dxc7, 43. Dh7+ tapar hún drottingunni. Þetta var mun sterkara en 42. Dh7+ - Ke6, 43. Dg8+ - Kd7. Christian- sen sigi-aði með yfirburðum á mótinu og hefur vegnað afar vel á þessu ári. í vor sigraði hann örugglega á miklu stórmóti í Múnchen. Hann verður nú að telj- ast einn af þremursterkustu skák- mönnum Bandaríkjanna, ásamt Selrawan og Kamsky.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.