Morgunblaðið - 10.11.1991, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 10.11.1991, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1991 Asmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands Islands: Erlend lántaka gæti reynst nauð- synleg til að ná raimvöxtum niður Eðlilegt að bankarnir hefðu haldið sér við viðmiðun þjóð- arsáttarsamninganna við nafnvaxtaákvarðanir ÁSMUNDUR Stefánsson, for- seti Alþýðusambands Islands, segir að ef ekki takist að ná raunvöxtum niður hér mjög fljótlega með því að draga úr fjárlagahallanum og Iánveiting- TILBOÐ ÓSKAST í Chevrolet Camaro Rally SportT-Top, árgerð ’90 (ekinn 21 þús. mílur), Suzuki Sidekick 4 W/D JX, árgerð ’89 (ekinn 16 þus. mílur), Geo Storm Sport Coup (tjónabifreið), árgerð ’90 (ekinn 19 þús. mílur), MMC L-300 Mini Bus 4 W/D, árgerð ’87 og aðrar bifreiðar, er verða sýndar á Grensásvegi 9 þriðjudaginn 12. nóvember kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. SALA VARNARLIÐSEIGNA um í gegnum húsbréfakerfið, þá sé það hans skoðun að okkur sé nauðugur einn kostur að taka erlend lán beinlínis til að draga úr spennunni á lánamarkaði. Aðspurður um háa nafnvexti banka nú segist hann sannfærð- ur um að þeir lækki á næst- unni. Miklar sveiflur í vöxtum séu óheppilegar og það hefði verið affarasælla ef bankarnir hefðu haldið sér áfram við þá viðmiðun sem þeir skuldbundu sig til að fylgja í fjóra mánuði í kjölfar þjóðarsáttarsamning- ana að miða vaxtabreytingar við hækkun lánskjaravísitölu einn mánuð aftur í tímann og spá næstu tvo mánuði. Sam- kvæmt þeirri viðmiðun nú er hækkun lánskjaravísitölunnar 2,7% á ársgrundvelli. „Ég er sannfærður um að óverð- tryggðu vextirnir munu fylgja verðbólgunni niður mjög fljótlega. Það sem bankarnir hafa litið til við ákvörðun á óverðtryggðu kjör- unum er annars vegar samanburð- ur augnabliksins við verðbólgu og verðtryggða vexti og hins vegar samanburður við verðbólgu og verðtryggða vexti yfir lengra tímabil, því það er fyrst og fremst verið að tryggja samræmi milli þessara kjara innbyrðis þegar litið er til lengri tíma. Ég hygg að þeim jöfnuði sé enn ekki náð yfir árið, þrátt fyrir það að óverð- tryggðir vextir séu háir nú,” sagði Asmundur Stefánsaon. Hann sagði að hugsanlega þyrfti einnig að taka tillit til ástands á peningamarkaði. Það væri engin vafi að það hefði verið mikil eftirspurn eftir skammtíma- lánum að undanförnu og það kynni að hafa leitt til þess að bankarnir hefðu talið nauðsynlegt að veita þeirri eftirspurn nokkuð aðhald miðað við erfiða greiðslustöðu bankanna að undanförnu. K! Húsnæðisnefnd Kópavogs, Fannborg 4,200 Kópavogi, sími 45140 ii i _ M i'|l ÍBDl I 1 H ÍBDl I 1 ÍDB 1 Bfl \Wi UL iBB .1= BD □ . 'ffl | nn 1 | □B 1 1 3D DD rz BD □1 DB .tm BB i=n. BB #1 BD íiÉö QE 3B BD BJ UMSOKNIR Húsnæðisnefnd Kópavogs óskar eftír umsóknum um kaup á: Félagslegum eignaíbúðum Félagslegum kaupleiguíbúðum Almennum kaupleiguíbúðum Um er að ræða 80 íbúðir, 3ja, 4ra og 5 herbergja, sem byggðar verða við Lautasmára í Smárahvammslandi í Kópavogi. Umsóknirnar gilda einnig fyrir eldri íbúðir, sem koma til endursölu á árinu 1992. Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu húsnæðisnefndar Kópavogs, Fannborg 4, alla virka daga milli kl. 9-15 og verða þar einnig veittar allar al- mennar upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 15. desember nk. Athugið að allar eldri umsóknir falla úr gildi. _____________________•_________________Húsnæðisnefnd Kópavogs. „Samræmið mun koma milli verðtryggðra og óverðtryggðra vaxta en þá stöndum við eftir sem áður með þá einföldu staðreynd að vextimir eru eftir sem áður allt of háir vegna þess að verð- tryggðir vextir á almennum skuldabréfum eru í kringum 10% og það er auðvitað óstjórnlega hátt vaxtastig. Það er ekkert und- arlegt þegar til þess er litið að lánsíjárþörf ríkisins og húsnæði- skerfísins í ár er meiri en sem nemur öllum peningalegum sparn- aði í landinu. Ef við erum ekki reiðubúnir til að beita handafli til þess að ná niður vöxtunum þá verðum við að breyta forsendunum og sjá til þess að spennan á lána- markaði verði minni. Ef við náum ekki þeim árangri að ná raunvöxt- unum niður í, við skulum segja Ásmundur Stefánsson 7%, á stuttum tíma með því að draga úr fjárlagahallanum og spennunni í húsbréfakerfinu þá er okkur að mínu viti nauðugur einn kostur að leita eftir erlendu láns- fjármagni beinlínis með það fyrir augum að ná vöxtunum niður,” sagði Ásmundur ennfremur. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra: Svo háir raunvextir fá ekki staðist til leng’dar JÓN Sigurðsson viðskiptaráðherra segir að það sé augljóst hverj- um sem skoða vi(ji að svo háir raunvextir sem nú séu á óverð- tryggðum lánum fái ekki staðist til lengdar. Hann sagðist ekki vilja spá neinu um hveijar breytingar yrðu á vöxtunum á næst- unni, en sagði það alveg augljóst að bankarnir hlytu að fylgja breytingu verðbólguhraðans eftir með breytingu á nafnvöxtum. Viðskiptaráðherra sagði að eng- inn vafi væri á því að þegar sveifl- ur í verðbreytingum væra jafn miklar og raun bæri vitni hér á landi undanfarnar vikur og mán- uði þá væri hætt við að svona vaxtabil myndaðist. „Það bil verður væntanlega brú- að því að það er viðleitni bankanna og lántakendaþeirra að jafna kjör- in á milli verðtryggðra og óverð- tryggðrá kjara og reyndar einnig milli þeiira kjara sem bjóðast hér og í öðrum löndum. Ég á von á því að takist okkur að halda verð- bólgunni niðri eins og hún hefur nú náðst þá verður mjög fljótlega lækkun á nafnvöxtunum í kjölfar- ið,” sagði hann. Jón sagði að ekki væri við þvi að búast að jöfnuður næðist á hverri stund þegar breytingar yrðu á verðbólgunni, og það tæki ætíð svolítínn tíma að jafna sig út. „Ég vonast til þess að það tak- ist og þar er líka mjög mikilvægt að ríkið stilli sinni lánsfjáreftir- spurn í hóf. Svo bendi ég á að það verður á næstunni gerð skýrari grein fyrir því með hvaða hætti erlendir bankar geti starfrækt útibú hér á landi, og þar með fæst ennþá beinni samanburður á samkeppni milli erlendra kjara og innlendra. Reyndar er Iíka ástæða til þess að nefna að heimildir til þess að taka erlend lán á eigin ábyrgð hafa verið mjög rýmkaðar. Þetta mun því allt leita jafnvæg- is,” sagði Jón Sigurðsson. Eiríkur Guðnason aðstoðarbankasljóri Seðlabankans; Aðeins um augna- bliksmynd að ræða „Ég vil ekki halda því fram að þetta séu óeðlilega háir raunvext- ir, en þeir eru háir engu að siður. Yfir árið er meðaltalið þó ekki langt frá raunvöxtum vísitölubundinna Iána. Þarna er um að ræða augnabliksmynd af vöxtum sem eru háir og verðbólgu sem er lág, þannig að útkoman verður mjög háir raunvextir,” segir Eirík- ur Guðnason aðstoðarbankastjóri Seðlabankans um háa raunvexti óverðtryggðra lána í dag. Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu í gær eru algengir raun- vextir á óverðtryggðum skulda- bréfum á bilinu 11-13,5%. Eiríkur sagði að þess bæri að geta að yfir árið væri búist við því að þessir raunvextir yrðu á bilinu 9-10%, en í dag hljóðaði spá Seðlabankann upp á 9,6% raunvexti. „Það er svolítið lægra en þessar háu tölur sem eru í dag, og stafar það af því að vextirnir voru lágir sérstak- lega á öðrum ársfjórðingi. Það er hins vegar enginn vafí að vextirn- ir eru háir núna. Þegar skoðaðir eru aðrir lánaflokkar,' éins og til dæmis- hlairpareikningur og- við- skiptavíxlar, þá eru þar ennþá hærri vextir en á óverðtryggðum skuldabréfum. Sé lántökukostnað- ur og annar kostnaður einnig meðtalinn, þá á það við um við- skiptavixlana að vextirnir eru enn hærri frá sjónarhóli lánþegans,” sagði hann. Samkvæmt spá Seðlabankans hækkar Iánskjaravísitalan mjög lítið á næstunni, en Eiríkur segir spánna vera gerða við mjög óljósar aðstæður vegna launamála. Þau hefðu mikil áhrif á spár Seðla- bankans, og breyting gæti átt sér stað alveg á næstunni í hvaða átt sem - væri:--------■»-------*r-—'

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.