Morgunblaðið - 10.11.1991, Side 27

Morgunblaðið - 10.11.1991, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1991 27 Samgönguráðherra: Ekki skylda að hafa tvo flugmenn í öllum vélum HALLDÓR Blöndal samgönguráð- herra sagði í svari við fyrirspurn á Alþingi s.l. fimmtudag, að eftir næstu áramót verði ekki skylda að liafa tvo flugmenn í öllum flug- vélum eins og reglugerð um flug- mál geri ráð fyrir. Loftferðaeftir- litið hafi samþykkt fyrir sitt leyti að rýmka ákvæði þess efnis að tveggja flugmanna sé afdráttar- laust krafist í öllum flugvélum og muni hann fara eftir þeirri sam- þykkt. Fyrirspumin kom frá Jónu Val- gerði Kristjánsdóttur sem spurði hvort póstflug og sjúkraflug á lands- byggðinni myndi leggjast af ef ákvæðum reglugerðarinnar yrði fylgt út í æsar. í svari sínu vitnaði Hall- dór Blöndal til samþykktar flugráðs frá 1. október þar sem fjallað var um tillögu Loftferðaeftirlitsins en flugráð samþykkti hana samhljóða. Tillagan hljóðar svo: „Þótt flughand- bók geri einungis ráð fyrir einum flugmanni skulu samt vera tveir flug- menn með tilskilin réttindi á viðkom- andi flugvélartegund í flutningaflugi með farþega. I þjónustuflugi með einshreyfils flugvélum sem flogið er að degi til við sjónflugsskilyrði er þó heimilt að í flugáhöfn sé einn flug- maður. Þessi grein tekur gildi 1. jan- úar 1992.” Halldór segir að ljóst sé að póst- flug án farþega krefst ekki tveggja flugmanna og að samkvæmt hinu breytta reglugerðarákvæði nægi einnig einn flugmaður þótt farþegar séu fluttir með póstflugi að uppfyllt- um framangreindum skilyrðum. Því sé svarið við fyrirspurninni nei, sam- kvæmt reglugerð eru flugrekendur ekki skyldaðir til að hafa tvo flug- menn í öllum vélum. ■ LANDSSAMTÖKITC á íslandi standa fyrir námskeiðum undir nafn- inu Breyttu áhyggjum í uppbyggj- andi orku. Á námskeiðinu er farið í grundvallaratriði mælskulistarinn- ar: Framkoma í ræðustól, markviss málflutningur, áhrifarík ræðutækni, handrit og annar undirbúningur. Takmarkaður íjöldi er á hvert nám- skeið. Næstu námskeið eru í Reykja- vík á Hótel Lind við Rauðarárstíg, þriðjudaginn 12. nóvember og fimmtudaginn 14. nóvember kl. 19.30 bæði kvöldin, og á Akranesi laugardaginn 16. nóvember. Samviiwiiferúip-Laiiilsýii Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 Símbréf 91 - 2 77 96 • Telex 2241 Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Simbréf 91 - 62 39 80 Akureyri: Skipagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Símbréf 96 - 2 75 88 • Telex 2195 Loksins geturðu látið drauminn rœtast! Skíðaferðir til Ameríku á ótrúlegu verði! Nú gefst skíðafólki loksins kostur á að komast á skíði í sjálfum Klettafjöllum Bandaríkjanna, þar sem er að finna sjö stærstu skíðalönd heims,- og á verði, sem aldrei hefur verið boðið áður! Við bjóðum skíðaferðir til Colorado í vetur þar sem „púðursnjór" tryggir besta skíðafærið dag eftir dag. Afkastamiklar skíðalyftur flytja þúsundir manna á klukkustund upp í skíðabrekkur, sem gefa þeim bestu í Evrópu ekki neitt eftir. Verð: 78.500,- Fyrsta brottför: 15. janúar 1992. Innifalið í verði: Flug: Keflavík - Baltimore - Denver fram og til baka, gisting á fjögurra stjörnu hóteli í Baltimore í eina nótt, sex nætur í fyrsta flokks íbúð í Cross Creek skíðahótelinu og bílaleigubíll í sex daga. * Miðað við fjóra í íbúð og bíl (A- flokkur) og staðgreiðslu. Flugvallarskattar ekki innifaldir. (92.040.- miðað við tvo í íbúð og bíl (A-flokkur). FLUGLEIDIR \ Bragðgott og heilnæmt brauð handa bömum náttúrunnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.