Morgunblaðið - 10.11.1991, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SNIA SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1991
31
Félagsráðgjafi og
talkennari
Frá og með næstu áramótum eru lausartvær
stöður við Heyrnleysingjaskólann.
Staða félagsráðgjafa vegna afleysinga í 1 ár
og staða talkennara.
Umsóknum skal skilað til Heyrnleysingjaskól-
ans við Vesturhlíð fyrir 1. desember nk.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri
í síma 16755.
Hjúkrunarfræðingar
Heilsuhælið í Hveragerði óskar eftir að ráða
hjúkrunarfræðing til vaktavinnu og fræðslu-
starfa. Góð aðstaða til útivistar, sunds og
líkamsræktar í frístundum. Gott húsnæði og
heilsufæði á staðnum.
Upplýsingar gefur Hrönn Jónsdóttir, hjúkrun-
arforstjóri, alla virka daga nema mánudaga
frá kl. 8-18 í síma 98-30322.
Fiskvinnslufólk
vantar í heils- og hálfsdagsstörf.
Mjög góð vinnuaðstaða í nýju fyrirtæki á
Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Góður stafskraftur - góð laun.
Upplýsingar veittar í síma 650050 frá
kl. 14-17 næstu daga, eða bréflega stílað á
H Fisk sf., pósthólf 1399, 121 Reykjavík.
Afgreiðslustarf
Óskum eftir að ráða starfskraft eftir hádegi.
Reynsla í verslunarstörfum æskileg.
Upplýsingar í versluninni milli kl. 16 og 18,
mánudag og þriðjudag, (ekki í síma).
Egill Jacobsen,
Austurstræti 9.
Sendill
Óskum eftir að ráða nú þegar sendil til starfa
allan daginn.
Þarf ekki að hafa reiðhjól.
Hafnarhvoli v/ Tryggvagötu.
sími 29500.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Hjúkrunarfræðingar
Óskum að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa
á lyflækningadeild 1.
Deildin er almenn bráðadeild með 23 rúm.
Hjúkrunin er fjölþætt og krefjandi og gefur
hjúkrunarfræðingum tækifæri að nýta fag-
lega hæfni sína til fulls. Ýmis verkefni eru í
gangi t.d. í tengslum við hjúkrunarskráningu,
sjúklingafræðslu o.fl. Áhugi er fyrir aukinni
einstaklingshæfðri hjúkrun og vegna þess
m.a. er þörf á fleiri hjúkrunarfræðingum.
Nánari upplýsingar gefa Þóra Sigurðardóttir,
deildarstjóri, og Sonja Sveinsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri, í síma 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Verkfræðingar -
tæknifræðingar
Iðnskólinn óskar að ráða til kennslu
tölvunarfræðing og rafmagnsverkfræðing
eða tæknifræðing með reynslu í rafiðnum
og tölvugreinum.
Starf eftir hádegi
Endurskoðunarskrifstofa vill ráða góðan og
vanan starfskraft til alhliða og fjölbreyttra
skrifstofustarfa. Þekking á bókhaldi nauðsyn-
leg. Vinnutími kl. 13 til kl. 17.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
þriðjudagskvöld merktar: „Ritari - 1236”.
Rafvirkjar
Óskum eftir að ráða rafvirkja til starfa á
tæknideild.
Um er að ræða fjölbreytt framtíðarstarf.
Umsóknareyðublöð skilist á skrifstofu
Securitas, Sfðumúla 23.
rm securitas hf
SECURITAS
Einar J. Skúlason
óskar eftir að ráða starfsmann í hugbúnaðar-
deild. Háskólagráða ítölvunarfræði eða sam-
bærileg menntun er áskilin.
Æskilegt er að umsækjendur hafi þekkingu
í UNIX-stýrikerfi og reynslu í „C"-forritun og
smíði hugbúnaðarfyrir Oracle gagnagrunna.
Skila þarf umsóknum á skrifstofu vora fyrir
23. nóvember nk.
Upplýsingar um starfið gefur Olgeir Krist-
jónsson í síma 686933.
Einar J. Skúlason hf.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Leikskólinn Ösp óskar eftir fóstru og þroska-
þjálfa til starfa frá 1. desember nk. Á Ösp
eru 23 börn og þar af 6 málhömluð börn.
Táknmálskunnátta æskileg.
Upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma
74500.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
„Au pair”
Stelpa óskast á heimili í úthverfi Kölnar til
að gæta þriggja barna. Má ekki reykja, verð-
ur að hafa bílpróf og geta byrjað sem fyrst.
Nánari uppl. veitir Berglind í síma 73736
mánudaginn 11. nóvember milli kl. 20-22.
Bókasafnsfræðingur
Bókasafnsfræðingur óskast að Bókasafni
Hafnarfjarðar. Þarf að geta hafið störf sem
fyrst.
Umsóknir sendist forstöðumanni safnsins,
Mjósundi 12, fyrir 21. nóvember nk.
Stjórn Bókasafns Hafnarfjarðar.
Framkvæmdastjóri
Fiskmarkaður Vestmannaeyja hf. óskar eftir
framkvæmdastjóra. Umsóknir sendist til
Snorra Jónssonar, Boðaslóð 18, 900 Vest-
mannaeyjum, sem veitir allar nánari upplýs-
ingar í síma 98-12891.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 1991.
Fiskmarkaður Vestmannaeyja hf.
Framkvæmdastjóri
Þekkt og traust fyrirtæki óskar að ráða framkvæmdastjóra fyrir eina
sjálfstæða deild innan starfseminnar.
Starfið: Stjórnun, fjármál og rekstur deildarinnar ásamt ábyrgð á
afkomu og arðsemi. Áhersla er lögð á frumkvæði í starfi.
Við leitum að drífandi aðila, viðskiptafræðingi, verk- eða tæknifræð-
ingi. Reynsla af matvælaframleiðslu æskileg.
Fyrir réttan aðila er hér I boði tækifæri til að
endurmóta starfsemina og sýna árangur í starfi.
Allar umsóknir og fyrirspurnir verður farið með sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon í síma 679595
frá kl. 9-12.00 til 15. nóvember.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs fyrir 19. nóvem-
ber nk. merktar: „Framkvæmdastjóri 301”.
RAÐGARÐURHE
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI68 66 88