Morgunblaðið - 10.11.1991, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1991
3?
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Stjórn Sparisjóðs Mýrasýslu ásamt fulltrúum þeirra menningarstofn-
ana sem hlutu styrkina. Efri röð, frá vinstri: Steinunn Ásta Guð-
mundsdóttir, Gísli Kjartansson, Jóhannes Magnús Þórðarson, Gísli
Halldórsson, Magnús Sigurðsson, Þórarinn Jónsson og Sigfús Sumarl-
iðason sparisjóðsstjóri. Sitjandi, frá vinstri: Guðmundur Þorsteins-
son, Guðrún Jónsdóttir og Guðmundur Guðmarsson.
Borgarfj örður:
Menningarsjóður Spari-
sjóðsins úthlutar 4,4 millj.
Bor^arnesi.
STJORN Sparisjóðs Mýrasýslu úthlutaði nýverið til fjögurra menn-
ingarstofnana í héraðinu úr Menningarsjóði sparisjóðsins, alls 4
milljónum og 400 hundruð þúsund krónum.
Menningarsjóður Sparisjóðs
Mýrasýslu var stofnaður á aðal-
fundi sparisjóðsins sl. vor og er
þetta í fyrsta skipti sem úthlutað
er úr sjóðnum. Að sögn Magnúsar
Sigurðssonar fórmanns stjórnar
Sparisjóðs Mýrasýslu var stofnun
sjóðsins tengd minningu Friðjóns
heitins Sveinbjörnssonar fyrrver-
andi sparisjóðsstjóra sem var jafn-
framt stoð og stytta allrar menning-
arstarfsemi í Borgarfjarðarhéraði.
Á aðalfundi sparisjóðsins voru
lagðar 10 milljónir til menningar-
sjóðsins og ákveðið að úthluta úr
honum um helmingi fjárins til
menningarstarfsemi á aðalvið-
skiptasvæði sparisjóðsins á þessu
ári. Eftirfarandi menningarstofnan-
ir hlutu styrki úr sjóðnum: Tónlist-
arfélag Borgarfjarðar, 1 milljón og
200 þúsund; Tónlistarskóli Borgar-
fjarðar, 1 milljón og 200 þúsund;
Skógræktarfélag Borgarfjarðar. 1
milljón, og Bókasafn Páls Jónssonar
sem er í Héraðsbókasafni Borgar-
ness, 1 milljón.
TKÞ.
„Magnúsarvaka” í
Norræna húsinu
NORRÆNA húsið efnir til
„Magnúsarvöku” kl. 20.30 í
kvöld, sunnudaginn 10. nóvemb-
er þar sem fjallað verður um
Magnús Ásgeirsson skáld
(1901-1955) og ljóðaþýðingar
hans, en daginn áður, 9. nóv-
ember, hefði hanrf^orðið níræð-
ur.
Til þessarar bókmenntakyrin-
ingar efnir Norræna húsið í sam-
vinnu við Norræna félagið, bóka-
forlögin Vöku-Helgafell og Mál og
menningu sem í tilefni af afmæli
Magnúsar gefur út nýja útgáfu af
þýðingum hans á „Rubayiat” eftir
Omar Khayyam sem fyrst kom út
sérprentað 1935.
Á „Magnúsarvöku” flytur Hjört-
ur Pálsson skáld, sem lengi hefur
unnið að riti um Magnús Ásgeirs-
son og þýðingar hans, erindi um
þýðandann og verk hans, hópur
nemenda úr Leiklistarskóla íslands
les úr ljóðaþýðingum Magnúsar
Magnús Ásgeirsson skáld.
undir stjórn kennara síns, Öldu
Arnardóttur leikkonu, og kynnt
verður hin nýja Rubayiat-útgáfa
Máls og menningar.
Listamenn skora á yf-
irvöld að kaupa Iðnó
STJÓRN Bandalags íslenskra
lislamanna hefur skorað á borgar-
yfirvöld og yfirmenn menningar-
mála í landinu að taka liöndum
saman, kaupa Iðnó, gera á húsinu
nauðsynlegar endurbætur og í
samvinnu við listamenn að finna
hagnýtt rekstrarform fyrir húsið.
Ályktun þess efnis var samþykkt
á fundi stjórnarinnar þann 6. nóv-
ember sl.
„Það er öllum kunnugt- að hús
Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík
(Iðnó), sem hýsti um margra áratuga
skeið hina blómlegu starfsemi Leik-
félagsf Reykjavíkur, er nú til sölu.
Þetta sögufræga hús hefur að mestu
leyti staðið autt síðan Leikfélag
Reykjavíkur flutti í nýtt Borgarleik-
ht|s, og er það nú að grotna niður
vegna þess að ekkert er gert til þess
að halda því við,” segir í ályktuninni.
Þar segir ennfremur að það sé
eindregið álit stjórnar Bandalags ís-
lenskra listamanna, að í því eigi
áfram að rækta þá sprota íslenskrar
menningar sem séu undirstaða þess
að nýsköpun fái þrifist í landinu.
Vitna leitað
VITNI sem kunna að hafa séð er
árekstrur varð milli Daihatsu- og
Toyota-bíls á mótum Miklubrautar
og Kringlumyrarbrautar í hádeginu
þriðjudaginn 29. október síðastliðinn
eru beðin að hafa samband við lög-
regluna í Reykjavík þar sem ágrein-
ingur er um aðdraganda óhappsins.
Sýning á
myndverkum eftir
Sigurð Kristjánsson,
listmálara.
Sýningunni lýkur
þann 17. nóvember.
AUSTURSTRÆTI 8 • SÍMI 18080
SK0UTSALA
Opnar á morgun með vandaðá skó
af heildsölulager frá Axel 0.
Einnig mikið úrval af
verksmiðjulager beint frá Portúgal.
Barnaskór - kuldaskór - herraskór - dömuskór
Stendur aðeins í eina viku!
Aðeins 4 verð:
990,- 1-490,- 1990,- 2490,-
Laugavegi 11 - Simi:21675