Morgunblaðið - 10.11.1991, Qupperneq 38
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM sunnudagur- '10. NÓVEMBER 1991
38
Sex af sjö aðstandendum kvikmyndafélagsins, f.v. Björn Ragnarsson, Guðmundur Þórarinsson,
Ásthildur Kjartansdóttir, Guðrún Brynjólfsdóttir, Konráð Gylfason og Ólafur Karlsson. Þórunn
Helgadóttir er ekki á myndinni.
KVIKMYNDIR
Félagið á bak við þáttaröðina
Kvikmyndafélag eitt með sér-
kennilegu nafni hefur látið
að sér kveða með vandaðri þátta-
röð sem heitir „Einnota jörð”.
Þetta eru þættir um umhverfis-'
vernd. Þættirnir voru allir sýndir
nýverið í Sjónvarpinu, sá fyrsti
hét „Neytandinn”, annar „Sorpið”
og sá þriðji „Fyrirtækin.” Sér-
kennilega nafnið sem um ræðir
er „Utí hött - inní mynd” og hef-
ur verið starfrækt síðustu tvö ár-
in.
Að sögn aðstandenda fyrir-
tækisins er þáttaröðin sem um
ræðir samstarfsverkefni Kvik-
myndafélagsins, Umhverfisráðú-
neytisins, Hollustuverndar Ríkis-
ins og Iðntæknistofnunnar. Dag-
skrárgerð var í höndum Jóns Gú-
stafssonar, Guðrúnar Brynjólfs-
dóttur og Guðmundar Þórarins-
sonar.
Fyrirtækið var stofnað af Guð-
rúnu Brynjólfsdóttur og Guð-
mundi Þórarinssyni, en í dag
starfa sjö manns við fyrirtækið
og eru verkefnin mörg á ýmsum
stigum úrvinnslu. Þau segja að
meðal verkefna megi nefna gerð
fræðsluefnis, m.a. í samvinnu við
Námsgagnastofnun, Landsnefnd
um alnæmisvarnir, Krabbameins-
félag Reykjavíkur og fleiri. í fyrra
var gerður þáttur um utangarðs-
unglinga sem sýndur var í Sjón-
varpinu og auk þess hefur félagið
unnið að gerð tónlistarmyndbanda
og leikinna mynda.
SJONVARP
Þúsund bréf bárust
Helga Steffensen, umsjónar-
maður þáttarins „Stundin
okkar” í Sjónvarpinu, segir að gíf-
urleg þátttaka hafi verið í getraun
þáttarins í haust en getraunin er
fólgin í því að sýnd er mynd af
húsi sem börnin eiga að bera kennsl
á og einnig að nefna styttu sem
stendur við viðkomandi hús.
„Fyrsta styttan í vetur var Leifur.
heppni og húsið Hallgrímskirkja.
Það komu um þúsund bréf með
úrlausnum, en úr þeim haug eru
dregnir þrír vinningshafar og verð-
launin eru að koma niður í Sjón-
varp og fylgjast með upptöku á
þættinum „Stundin okkar,” segir
Helga.
Næsta getraun með húsi og
styttu verður í þættinum 17. nov-
ember, en það eru auk Helgu, þeir
Pandi og Þvottabjörninn sem draga
úr umslögunum. Helga segir einnig
að auk úrlausna um getraunina
komi mikill fjöldi bréfa inn á borð
til sín. „Það er gaman og fróðlegt
að lesa þau. Það er mikið af frum-
sömdum kvæðum, ótrúlega mörg
börn virðast vera að semja kvæði
og vísur. Einnig eru litlar sögur,
bæði tilbúnar og Iíka úr raunveru-
leika barnanna. Oft eru líka brand-
arar. Auðvitað er ekki hægt að lesa
öll bréfin í Stundinni, en ég les þau
öll og við sendum þeim kort með
mynd af persónum úr þættinum
með kveðju frá Stundinni okkar,”
segir Helga.
Morgunblaðið/Sverrir
Pandi, Þvottabjörninn og Helga draga út nöfn vinningshafa í getraun-
inni.
GOOD/VEAR
VETRARHJÓLBARÐAR
G O OD/YEAR
60 ÁR Á ÍSLANDI
UMBOÐSIVIENN UIVI LAND ALLT
m
HEKLA
FOSSHÁLSI 27
SÍMI 695560 674363
SKÓLASTARF
Skólastjórar
Dalvíkur-
skóla frá
upphafi
Þegar annar áfangi Dalvíkur-
skóla var tekin í notkun á
dögunum færði formaður skóla-
nefndar, Guðlaug Antonsdóttir,
skólanum að gjöf mynd sem Krist-
inn G. Jóhannsson málaði af Helga
Símonarsyni, fyrsta skólastjóra
Dalvíkurskóla. Þórunn Bergsdóttir
skólastjóri tók við gjöfinni. Við
þetta tækifæri var einnig tekin
mynd af skólastjórum Dalvíkur-
skóla frá upphafi, þeir eru frá
vinstri: Trausti Þorsteinsson, Þór-
unn Bergsdóttir, Helgi Símonarson
og Helgi Þorsteinsson.