Morgunblaðið - 10.11.1991, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 10.11.1991, Blaðsíða 44
Bögglapóstur um ullt Iflud MORGUNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK SÍMI 691100, FAX 691181, PÓSTIIÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTR/ETI 85 SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. A SILDVEIÐUM Morgunblaðið/Þorkell Tveir Sóma- bátar í vanda TVEIR Sómabátar á leið frá Tálknafirði til Reykjavíkur lentu í vandræðum um 10 mílur suður af Látrabjargi um kl. 13.30 í gær. Vélin í öðrum bátnum bilaði og hinn réð illa við að draga hann, sök- um þess hve slæmt var í sjó. Einn maður var um borð í hvorum bát og óskuðu þeir aðstoðar. Þegar síðast fréttist var Skotta úr Hafnarfirði á leið þeim til aðstoðar. ----M-t----- 8% kvenna á Suðumesjum atvinnulaus ATVINNULEYSI hefur aukist víða um land á undanförnum vik- um, mest á Suðurnesjum en þar eru nú 8,4% kvenna atvinnulaus. A landinu öllu er nú 1,2% atvinnu- leysi, mun minna á höfuðborgar- svæðinu en landsbyggðinni. Á höf- uðborgarsvæðinu er atvinnuleysi nú ,0,6% en á landsbyggðinni er það 3,2%. ----♦ ♦ ♦ Forseti ASÍ: Erlend lán til að ná nið- Jón Sigurðsson orkumálaráðherra: * Islendingar verði aðilar að orkusáttmála Evrópuríkja JÓN Sigurðsson orkumálaráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi á föstudag samningagerð sem Evrópubandalagið hefur staðið fyrir milli Evrópuríkja, bæði EB-ríkja og EFTA-ríkja um skipulag orku- samskipta. Ráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið að þessi samningagerð byggðist meðal annars á því að taka inn í þennan félagsskap Austur-Evrópuríkin, lýðveldi Sovétríkjanna og Mið-Evr- ópuríkin sem áður hefðu tilheyrt austurblokkinni. Auk þess hefðu Bandaríkin, Kanada, Astralía, Japan og Nýja Sjáland bæst í þenn- an hóp, eða OECD-löndin handan hafsins. Ráðherra segist munu mæla með aðild Islands að orkusáttmálanum, svo fremi sem fyrir- varinn um fullveldi einstakra landa yfir sínum orkulindum verði ótvíræður og vel tryggður. Hann kveðst munu kynna málið í þing- nefndum Alþingis í næstu viku. „Við höfum fylgst með þessu starfi, sem hafið var að frum- kvæði Lubbers, forsætisráðherra Hollands. Ég ræddi það sérstak- lega við starfsbræður mína á Norðurlöndum nú fyrr í vikunni. Ég tel mikilvægt að við tengjumst þessu samstarfi, sem hefur það fyrst og fremst að leiðarljósi að tryggja eftir föngum að markaðs- viðskipti verði eftir föngum með orku á þessu stóra stóra svæði Evrópu og að umhverfissjón- armiða sé gætt með svipuðum hætti um alla álfuna,” sagði Jón Sigurðsson. Ragnar Kristjánsson sérfræðing- ur Náttúruverndarráðs í skipulags- og mannvirkjagerð segir að stefna Náttúruverndarráðs hafi verið sú að fjallaskálar skuli vera í eigu félaga- , , s*mtaka og standa opnir. „Margir þessara fjallaskála eru komnir mjög tíl ára sinna og illa famir,” segir Ragnar. „Ég er viss um að margir Ráðherra sagðist líta þannig á að þetta væri mikilvægt mál fyrir Islendinga sem hugsuðu sér Evr- ópumarkaðinn í framtíðinni sem sinn markað fyrir orku og afurðir orkufreks iðnaðar. „Við gerum mjög ákveðna fyrirvara um aðild- ina, ásamt öðrum Norðurlöndum, að því leyti til að fullveldi ein- stakra landa yfir orkulindum sín- um sé ótvírætt og vel tryggt í samningunum,” sagði ráðherra. ur vöxtum ÁSMUNDUR Stefánsson, forseti Alþýðusambands Islands, segir að ef ekki takist að ná raunvöxtum niður á næstunni með því að draga úr fjárlagahallanum og lánveit- ingum í gegnum húsbréfakerfið kunni að verða nauðsynlegt að taka erlend lán til að draga úr spennunni á lánamarkaði. Ásmundur segist sannfærður um að nafnvextir bankanna hljóti að lækka á næstunni í kjölfar lækkunar verðbólgu og það hefði verið betra ef bankar hefðu haldið sig við þá viðmiðun sem gilti í fjóra mánuði eftir þjóðarsáttarsamningana, að miða vexti við hækkun lánskjaravísi- tölu síðasta mánaðar og spár um hækkun næstu tvo mánuði. Sjá viðtöl á bls. 26. Um 400 skálar á hálendinu TALIÐ er að um 400 skálar séu á víð og dreif á hálendinu, gangna- *'£’Tnannakofar, slysavarnaskýli, Ferðafélagsskálar og eitt hundrað skál- ar í einkaeign, í afar misjöfnu ástandi. Unnið er að skráningu skál- anna en heildarskráning mannvirkja á hálendinu er ekki til. bændur sem eiga gangnamannakofa yrðu því fegnastir að einhver héldi húsunum við. Kofarnir eru flestir ónýttir enda bændur hættir að nota þá með breyttum búskaparháttum. Ef ekki verður veruleg breyting á fyllist hálendið af vanhirtum skálum sem enginn nýtir.” Sjá nánar á bls. 16. Skyr flokkað sem ostur vestan hafs: Framleiðsla könnuð á skyri í Bandankjunum ALLAR líkur eru á að skyr, sem Mjólkursamlag Kaupfélags Eyfirð- inga hugðist flytja út á Bandaríkjamarkað, verði flokkað sem ostur þar í landi. Ost má ekki flytja inn til Bandaríkjanna nema aðilar hafa ákveðinn kvóta, en íslendingar liafa 600 tonna kvóta, sem þegar er nýttur. Nú er unnið að því í samvinnu við bandarískt fyrir- tæki að setja upp búnað til skyrframleiðslu þar í landi. Þórarinn E. Sveinsson mjólkur- magn, en litlar líkur væni á að fá samlagsstjóri sagði að bandarísku aðilarnir hefðu sýnt skyrinu mikinn áhuga og hefði innflutningur á þessari mjólkurafurð verið í athug- un um all langan tíma. Einungis þeir, sem hafa ákveð- inn kvóta, mega flytja jnn ost til Bandaríkjanna og hafa Islendingar 600 tonna kvóta, sem þegar er fullnýttur. Þá sagði Þórarinn að varðandi útflutning á skyri vestur um haf væru 600 tonn allt of lítið kvótann aukinn. Endanlega svör tolla- og landbúnaðaryfirvalda liafa ekki borist um flokkunina, þó flest bendi til þess að umrædd flokkun verði ofan á, þar sem ostahleypir er'notaður við framleiðslu skyrs. „Yið erum nú að skoða mögu- leika á að setja upp búnað til skyr- framleiðslunnar vestur í Bandaríkj- unum og framleiða skyrið þar með einkaleyfi héðan,” sagði Þórarinn, en ekki hefur verið ákveðið hvort þetta verður gert á vegum heildar- samtaka mjólkurstöðva, eða á veg- um Mjólkursamlags KEA. Um yrði þó að ræða samskonar skyr og framleitt er þar, svokallað dósa- skyr. Hópur bandarískra kaupsýslu- manna hefur um all langt skeið verið í samvinnu við samlagið um skyrútflutninginn og sagði Þórar- inn að áhugi þeirra væri enn mik- ill. Þeir hefðu stofnað fyrirtæki vegna þessa undir heitinu Alfa- saga, eða Álfasaga og væri á þess vegum unnið af krafti að mark- aðssetningu skyrs. „Þeir hafa mikla trú á þessu og ætla sér ekki að gefast upp strax,” sagði Þórarinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.