Morgunblaðið - 05.01.1992, Page 2

Morgunblaðið - 05.01.1992, Page 2
41 Kf/MM. .5 i' swT/v; Vr, öíOAiíir. >jc? m MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1992 HVERJU ÞARF AD BREYTA? Næturheimili, eins og nú má finna í Svíþjóð, þykja ekki fýsi- legur kostur fyrir íslensk börn, en þau sýna svart á hvítu hvern- ig mál fjölskyldunnar getur gengið út í öfgar ef aðgerðir yfir- valda eru ekki markvissar. Konur er komnar til að vera á vinnu- markaðinum, þvl verður ekki breytt, en í samtölum við þá sér- fræðinga og fagmenn, sem rætt var við, komu fram ýmsar skoðanir þegar rætt var um lausnir á málefnum fjölskyldunnar. ingheimur stendur gjaman á öndinni yfir kvóta- og hvalamálum, stóriðju og evrópsku efnahagssvæði, en sjaldan hafa langar ræður verið haldnar um málefni flölskyld- unnar í íslenskum þingsölum. Gífurleg breyting hefur orðið á íslensku samfélagi og fjölskyldulífi síðustu áratugina, en stjórnvöld hafa í litlum mæli komið til móts við þá breytingu. Ástæðan er ef til vilí sú að kynslóðin sem nú sit- ur á þingi þurfti ekki að þeysast á milli leikskóla, dagmæðra og heimilis frá morgni til kvölds á uppvaxtarárum sínum, og lærði því til að mynda að reima skóna sína þegar tilskildum aldri var náð. Nú á dögum eiga mörg sex og jafnvel átta ára böm í erfiðleik- um með þá einföldu athöfn því enginn hefur tíma til að kenna þeim hana. Ef til vill er ekki svo auðvelt að móta ákveðna stefnu í fjölskyldu- málum þegar þjóðin er yfirkomin af hamingju eins og sífellt kemur fram í skoðanakönnunum, en ekki er allt sem sýnist í þeim efnum og er rétt að benda á það. Hjón um þrítugt, foreldrar þriggja smá- bama, tóku þátt í skoðanakönnun um lífsviðhorf sem gerð var árið 1984, og sögðu við spyijandann að þau væru vitaskuld afskaplega hamingjusöm. Hið sanna var, að kvöldið áður höfðu þau gert sér grein fyrir því að þau gætu ekki lengur haldið húsinu sem þau með vinnu og basli höfðu keypt fok- helt, sáu enga iausn á fjárhagsleg- um vanda sínum og voru langt frá því að vera hamingjusöm. „En við gátum ekki sagt ókunnum mannin- um frá því,“ sögðu þau. FJÖLSKYLDUHAGIR Læknafélag Reykjavíkur og landlæknisembættið sáu fulla ástæðu til að halda fræðslufund um fjölskyldumál í Háskólabíói í mars sl. og mættu um 300 manns á þann fund. Þingflokkar sendu fulltrúa sína, konur að sjálfsögðu því enn álíta forystumenn flokk- anna að velferð fjölskyldunnar sé einkamál kvenna og lýstu allir full- trúar áhyggjum sínum yfir þróun fjölskyldumála hér á landi. Högni Óskarsson geðlæknir sagði frá helstu niðurstöðum fjölda íslenskra rannsókna um fjölskyldu- hagi og þroskahorfur íslenskra bama. Voru þær birtar í bæklingi sem landlæknisembættið gefur út og ber heitið „Mannvemd í velferð- arþjóðfélagi". I þeim bæklingi er dregin upp dökk mynd af högum bama og foreldra í hinu hamingjusama þjóð- félagi og segir Ólafur Ólafsson landlæknir meðal annars í formála: „Stöðugt fara fram umræður um náttúravemd, landvernd, hvala- vemd, húsavemd o.fl. sem er af hinu góða, en fáir ræða um mann- helgi.“ Og á sama stað: „Nú hafa tekið við kynslóðir sem vinna utan heimilis einn lengsta vinnudag í Evrópu og sem sjaldan eru heima. Verulegur hluti bama gengur sjálf- ala á daginn og upplausn heimila og fjölskyldna er vaxandi vanda- mál.“ Niðurstöður rannsóknanna sýna að kjarnaíjölskyldan riðar til falls og að félagsleg aðstaða bamaflöl- skyldna er mjög bágborin og líkleg til að skaða böm andlega, líkam- lega og félagslega. Pjórðungur bama sjö ára og yngri og 64% barna á aldrinum 7-12 ára ganga sjálfala á daginn. 20% íslenskra bama búa ekki með báðum kynforeldram, meiri hluti vegna skilnaðar foreldra. Hjónaskilnaðir hafa þrefaldast síð- ustu 30 árin og er talið að um 500 böm verði að þola skilnað foreldra á hveiju ári hér á landi. Einstæðum foreldram fjölgar þar af leiðandi mikið og era þeir nú um ijórðung- ur af bamafjölskyldum. Feður smábarna vinna einum vikudegi lengur en aðrir karlmenn og 75% smábarnamæðra vinna utan heimilis, um 40% þeirra fullan vinnudag. Staða smábarnaforeldra og einstæðra foreldra er til muna verri en annarra foreldra. Einstæð- ir foreldrar búa sjaldnar en aðrir foreldrar í eigin húsnæði, en ársút- borgun í íbúð á íslandi er 75% meðan hún er 10 til 15% á öðrum Norðurlöndum. Hjón með smábörn eiga hvorki kost á niðurgreiddri dagvistun hins opinbera né á heils- dagsvistun fyrir barn sitt á dag- heimili. Fjórðungur daglegrar neyslu barna og unglinga kemur frá sölu- skálum. Vegna mikils vinnuálags, ekki síst á mæðram, era tengsl foreldra og barna mun minni en áður og verða börn oft útundan vegna strangrar lífsbaráttu eða óska um aukna velmegun. Samverastund- um barna og foreldra hefur fækkað veralega og má heita að þær séu eingöngu á síðkvöldum og á nótt- unni. íslenskt samfélag virðist þegar öliu er á botninn hvolft nokkuð fjandsamlegt bömum. VINNUÞRÆLKUN „Vitað er að óöryggi, vanlíðan og vanræksla á bernskuárum á sinn þátt í ráðvillu og óhamingju ungmenna. Þetta getur birst í sjálfseyðileggjandi hegðun eða árásarhneigð og orðið samfélaginu dýrkeypt," segir Sigrún Júlíusdótt- ir lektor í félagsráðgjöf við Há- skóla íslands og fyrrverandi yfírfé- lagsráðgjafí við geðdeild Landspít- alans í grein sem hún skrifaði um fjölskylduna í 5. árgangi í „Tíma- riti Háskóla íslands" 1990. Sú staðreynd, að 64% íslenskra bama á aldrinum 7-12 ára era al- ein heima meira eða minna á dag- inn er fremur dapurleg. Bæði býð- ur það hættunni heim, fyrir utan nú hversu niðurdrepandi og hund- leiðinlegt það er að vera alltaf einn einmitt á þeim aldri þegar tjáning- arþörfín er hvað mest. Einstæðir foreldrar eiga oft ekki aðra úr- kosti, en margt bendir til þess að hugsunarháttur íslenskra foreldra í þessum efnum hafí sljóvgast, því vitað er að sumir foreldrar sjá ekkert athugavert við það þótt bam þeirra átta ára gamalt sé gæslulaust hálfan daginn, eða frá því snemma morguns og til hádeg- is er það fer í skólann. Baldur Kristjánsson sálfræðing- Hugsunarháttur fólks varð- andi fjölskyldu og heimili þarf fyrst og fremst að breytast,“ segir sr. Þor- valdur Karl Helgason. „íslendingar virðast demba sér út í alls konar ævin- týri. Þeir byija að búa saman og eignast bam, era í námi, eru að kaupa sér bíl, kaupa sér íbúð, vinna á kvöldin og koma síðan eftir sex ára sambúð og skilja ekkert í því hvers vegna allt er komið í vitleysu. Ungt fólk í öðram Evrópulöndum gerir þetta oftast með öðram hætti. Það lýk- ur fyrst námi, safnar fyrir íbúð, byijar að búa, kaupir sér Sbúð og eignast síðan böm.“ Svala Thorlacius lögmaður segir að oft séu það fjárhagsörð- ugleikar sem eyðileggi hjóna- bandið og þvl sé það brýnt að aðstoða fólk við að koma skipu- lagi á fjármál sín. „Sérfræðingar á fjármálasviði, sem til dæmis störfuðu á vegum félagsmála- stofnunar eða kirkjunnar, þyrftu að vera til taks til að aðstoða fólk við að gera greiðsluáætlun. Það er mikilvægt að fólk sjái hversu mikið fé það hefur til ráðstöfunar hveiju sinni því oft er óreiða í fjármálum orsök ann- arra vandamála sem upp koma í fjölskyldunni." Högni Óskarsson geðlæknir segir að einsetinn skóli mundi leysa mörg vandamál foreldra. „Jafnframt era máltíðir í skólum nauðsynlegar því rannsóknir hafa sýnt að fjórðungur daglegr- ar neyslu bama kemur frá sölu- skálum. Ég vil einnig benda á, að við skilnað verður barnið fyr- ir miklum missi en það vill oft gleymast þegar foreldrar era að fínna lausnir á málum sínum. Barnið þarf á athygli og hjálp að halda á þessum tíma og gætu foreldrar, afar og ömmur eða aðrir unnið þar ákveðið forvarn- arstarf." Örlítið skref var-stigið fram á við þegar grunnskólar í höfuð- borginni reyndu að koma til móts við þarfír bama og foreldra með því að bjóða upp á gæslu fyrir yngstu börnin. I samtali við Jón Frey Þórarinsson skólastjóra Laugamesskóla kemur fram, að í fjögur ár hefur það tíðkast í þeim skóla að yngri nemendur fái gæslu klukkustund fyrir og eftir kennslu, þannig að nemandi sem byijar í skólanum rétt fyrir klukkan níu getur komið klukk- an átta og síðan verið í skólanum í hádeginu þótt kennslu ljúki um 'tólfleytið. Bömin eru í sérstakri stofu þar sem höfð eru leikföng, spil og áhöld til að mála, teikna og föndra. Reykjavíkurborg greiðir hluta kostnaðarins en foreldrar greiða kr. 1.200 á mánuði. Benedikt Jóhannsson sálfræð- ingur segir það sýna stefnuleysi stjórnvalda að það skuli vera háð hveijum skóla fyrir sig hvort hann notfæri sér þá heimild að vera með umrædda gæslu eða ekki. „Um leið og vinnutími hef- ur lengst og atvinnuþátttaka aukist hefur skólatími styst. Árið 1960 var hann 10.210 mínútur á viku í 1.-8. bekk, en var 1984 9.400 mínútur á viku. Þótt draumurinn um einsetinn skóla virðist fjarlægur væri það til mikilla bóta ef hægt væri að hafa systkini á sama tíma í skóla, og að boðið væri upp á að hafa bömin annaðhvort fyrir eða eftir hádegi, en ekki að hafa árganga á ákveðnum tímum eins og nú tíðkaðist oft.“ Sigrún Júlíusdóttir félagsráð- gjafi segir að nýjar aðgerðir stjómvalda þurfí að koma til svo styrkja megi fjölskylduna eins og hún er nú í hinum ýmsu form- um. „Hún verður að geta sinnt grandvallaratriði sínu, sem era hinu nánu tengsl eínstaklinga eða foreldra og barna. Það er ekki á færi stofnana að rækja það hlutverk. Hins vegar verður einnig að gæta þess að stuðning- ur hins opinbera gangi ekki út í öfgar, eins og til dæmis í Sví- þjóð, en þar er nú boðið upp á næturheimili fyrir böm þeirra foreldra sem vinna á nætumar. Með því að bjóða upp á slíka vistun, jafnvel þótt enn skorti dagheimilin, þá er verið að hvetja íjölskyldur til að vinna jafnt að nóttu sem að degi.“ Morgunblaðið/RAX ur gerði könnun á högum fjögurra og fimm ára íslenskra barna fædd- um árið 1984, og segir í niðurstöð- um hans, að óvenju sterkar vænt- ingar séu gerðar til bama hér á landi um að standa á eigin fótum og bjarga sér sjálf. Telur Baldur að með þessum hætti sé meðal annars haldið við þeim viðhorfum í þjóðfélaginu að vinnuþrælkun sé dyggð og langur vinnudagur eftir- sóknarverður. Sigrún Júlíusdóttir ræðir einnig í grein sinni um fjölskylduna, um hið „skelfilega viðhorf" íslendinga, það að barnavinna sé dyggð og merki um sjálfstæði, útsjónarsemi og mannkosti. Slíkt sé neyðarúr- ræði í nágrannalöndum okkar þar sem megináhersla sé lögð á að vernda börn og þroska í stað þess að vanrækja þau og herða fyrir aldur fram. Þetta viðhorf íslendinga um barnavinnu kemur heim og saman við niðurstöður lífsgildakönnunar Félagsvísindastofnunar sem birtar voru í september sl. Kom þar fram að íslendingar leggja mun meiri áherslu á vinnusemi í uppeldi barna sinna en aðrar þjóðir. Vinnutími foreldra á íslandi er sá lengsti í Evrópu og samkvæmt rannsóknum Hjartaverndar vinna karlar á aldrinum 34 til 44 að meðallagi 55 stundir á viku, en meðalvinnutími kvenna á sama aldri er 65 stundir. HAMINGJAN TIL SÖLU Fullorðnir bera því stundum við, að þeir hafi einnig verið einir heima á daginn sem börn og ekki hlotið skaða af, en íslenskt þjóðfélag er ekki það sama og það var fyrir tuttugu til fjörutíu áram. Það er álit margra að verðmætamat hafi breyst og virðingin fyrir lífinu og manneskjunni fari þverrandi. Þegar rætt er í fjölmiðlum um vandræðaunglinga eða sjúkdóma af völdum rangra lífshátta fær þjóðin nær undantekningarlaust að heyra hversu mikið þeir kosti samfélagið. Manneskjan sjálf virð- ist skipta litlu máli og það er eins og ekkert sé merkilegt né mark- tækt nema hægt sé að nefna pen- ingaupphæðir í því sambandi. Það viðhorf að meta allt til fjár virðist hafa grafíð um sig í þjóðfélaginu. Ofbeldismyndir í sjónvarpi og kvikmyndahúsum, þar sem manns- lífið er iítils virði, eru daglegt brauð og á sama tíma eru sýndar sápu- óperar um sykursætt fjölskyldulíf þar sem allir eru ríkir og oftast mjög hamingjusamir. Mörg íslensk börn horfa á þessar myndir og ala með sér ranghugmyndir um lífið, dauðann og hamingjuna. Faðir einn komst svo að orði: „Hamingjuna halda þau að hægt sé að kaupa, og gera því kröfur um að vera hamingjusöm daginn út og inn. Enda hafa þau ekkert annað fyrir sér. Þegar svo hin keypta hamingja bregst hrynur veröldin." FJÖLSKYLDUTENGSL íslendingar tala flestir um sterk fjölskyldutengsl hér á landi og þeir sem búsettir era erlendis segja að oftast sé hægt að leysa fjár- hagsleg og félagsleg vandamál þegar heim sé komið, með því að leita á náðir stórfjölskyldunnar, þ.e. foreldra, afa og ömmu, systk- ina og frændsystkina. Gísli Ágúst Gunnlaugsson sagn- fræðingur sem rannsakað hefur flölskyldugerð á íslandi frá 1801 ■ til 1930 segir, að vissulega séu fjölskyldutengsl meiri hér en víðast erlendis, og megi það rekja til fá- mennisins. „Fjölskyldur búa í meiri nálægð hver við aðra og yfirieitt tíðkast það ekki hér eins og erlend- is að fyrirtæki geri kröfur um flutninga starfsmanna sinna milli borga eða héraða, sem gerir það oft að verkum að fjölskyldutengsl rofna. Könnun var gerð laust fyrir árið 1960 í Bretlandi á fjölskyldu- tengslum og kom í ljós að fjöl- skyldubönd voru sterkust hjá þeim sem þjuggu í félagslegum íbúðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.