Morgunblaðið - 05.01.1992, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.01.1992, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1992 Eggert B. Péturs- son - Minning Fæddur 16. janúar 1901 Dáinn 24. desember 1991 Það var á aðfangadagskvöld að afi minn Eggert B. Pétursson kvaddi. Frá aðfangadagskvöldi eru flestar minningar mínar tengdar afa og ömmu. Þau eru fá jólin sem ég hef lifað án þess að þau væru nálæg. í bernsku minni komu þau alltaf á aðfangadagskvöldi heim til foreldra minna. Þau komu hlað- in pökkum og eftirvæntingin var mikil hjá okkur Halldóri bróður. Gjafirnar frá afa og ömmu voru alltaf mjög sérstakar. Aldrei gleymi ég jólunum þegar við feng- um fyrstu úrin okkar. Afi rétti hvorum okkar stærðar pakka og þegar við höfðum rifið pappírinn utan af komu í ljós pappakassar. Síðan tóku við endalausir vafning- ar af gömlum jólapappír. Að síð- ustu, þegar ég var að gráti kom- inn, valt út lítil askja sem í var gjöfin, sjálft' úrið. Svona gat afi oft verið ótrúlega stríðinn. Afi var fæddur að Hnúki á Fells- strönd 16. janúar 1901. Hann fluttist kornungur með foreldrum sínum út í Rifgirðingar í Breiða- fjarðareyjum. Foreldrar hans voru Margrét Guðmundsdóttir og Pétur Jónsson. Frá Rifgirðingum stund- aði Pétur sjómennsku og búskap. Afi var einn þriggja bræðra. Jón var elstur, afi í miðið og Sigurður yngstur. Nú eru þeir allir látnir. Þegar afi var innan við tvítugt lést faðir hans og afi tók við búinu ásamt Margréti móður sinni. Þann 12. apríl 1925 gekk hann að eiga ömmu mína Sigríði H. Eggerts-- dóttur úr Bíldsey. Hún er fædd í Fremri- Langey 12. apríl 1904. í Rifgirðingum er faðir minn Pétur Eggertsson, eina barn þeirra, fæddur 3. ágúst 1926. Þau bjuggu í Rifgirðingum til 1930 en urðu að bregða búi vegna veikinda afa og fluttu þá til Hellissands. Á Hellissandi var afi póst- og sím- stöðvarstjóri og sinnti því starfi til 1945 þegar hann og amma fluttu til Reykjavíkur. Næstu fimm árin var afi gjaldkeri hjá Ragnari Þórð- arsyni í Gildaskálanum en hóf síð- an störf á Póststofunni í Reykjavík þar sem hann vann til 1968. í Reykjavík bjuggu þau afi og amma á Njálsgötu 80, þar til 1982 að þau fluttu á Hrafnistu. í heimsóknum til afa og ömmu á Njáls eins og við bræðurnir kölluðum þau voru það geymslan, hinar ýmsu skúffur og skápar og ekki síst bókaskáparnir sem höfðu hvað mest aðdráttarafl. í geymsl- unni var alltaf til appelsín og kók og í einum skáp var alltaf Freyju- súkkulaðistykki. í skrifborðsskúff- unum var signetið, gömul mynt og ýmislegt annað smádót sem varð að gersemum í huga lítilla stráka. Það var ekki um nein eigin- leg leikföng að ræða, en gamlar myndir í myndaalbúmum og heill- andi bækur vöktu áhuga og glæddu ímyndunaraflið. Stundum fórum við út að labba með afa og ég fann hve virðulegur afi var, eiginlega tignarlegur með sitt kónganef. Síðar þegar ég sjálfur ásamt minni fjölskyldu bjó í íbúð afa og ömmu, sem þá voru flutt á elliheimili, voru þessar hugmyndir mínar um afa minn staðfestar af nágrönnunum sem höfðu þekkt hann. Afi fylgdist vel með því hvert áhugi okkar strákanna stefndi og ýtti undir allt okkar grúsk. Eitt sumarið þegar ég hafði lítið fyrir stafni fékk áfi mér það verkefni, til að forða mér frá aðgerðarleysi, að taka til í skápum og dusta ryk- ið af bókunum sínum. Þetta starf mitt varð til þess að daglega kom ég heim klyíjaður ýmsu dóti, aðal- lega bókum. Við fórum í fjölda gönguferða og skoðuðum sýningar og söfn. Síðan var komið við í bókabúðum og var afi þá að leita að ákveðnum listaverkabókum fyr- ir mig. Þá var áhugi minn farinn að stefna inná þá braut sem ég síðar lagði fyrir mig. Ég var hissa þegar ég hafði lokið starfi mínu við þrifin að afi rétti mér 700 krón- ur að launum. Ég hélt að ég hefði fyrir löngu þegið launin. Ég get ekki sleppt því að minn- ast á eina þá bók _sem afi kynnti fyrir mér og gaf. Ég hef æ síðan haft miklar mætur á henni. Bókin var Flóra íslands. Ég hafði þá ver- ið að tína blóm og þurrka þau og þekkti þó nokkuð margar tegund- ir. Ég ar rétt orðinn sex ára og nýlæs. Bókin varð til þess að áhugi minn staðfestist og lifir enn. En bækurnar og gjafirnar voru marg- falt fleiri. Það voru Ævintýrabæk- umar, Kviður Hómers, Hundrað ár í Þjóðminjasafni og Aldirnar. Síðan voru það skúturnar sem hann smíðaði fyrir okkur bræðurna, taflið, segulbandstækið og ótal margt fleira. Afi var óþreytandi við að segja frá ýmsu úr eyjunum, sjómennsku, fuglum og ekki síst þuldi hann nöfn eyja, hólma, sunda, strauma og skeija. Ég hafði aldrei komið út í eyjar svo mér gekk ekki vel að festa þann fróðleik í minni. Hins vegar nýtist öllum þessi vitn- eskja hans því hann merkti þessi örnefni inn á kort og loftmyndir af Breiðaijarðareyjum. Afi var fæddur inn í allt annan heim en ég. Þegar ég var um ferm- ingu tók ég að mér það verkefni fyrir hann að mála mynd af gamla bátnum hans. Af daufri ljósmynd- inni sem ég hafði sem fyrirmynd átti ég erfitt með að átta mig á öllum smáatriðunum sem afi kunni svo góð skil á. Eiginlega vissi ég ekki hvað það var sem ég var að mála, en afi leiðbeindi mér og fræddi mig í leiðinni um heiti segl- anna og ýmislegt annað sem varð- aði sjómennsku áður fyrr. Myndina hafði hann alltaf hjá sér. A Þor- láksmessu voru foreldrar mínir hjá honum og var þá mjög af honum dregið. Hann benti á ljósmynd af húsinu í Rifgirðingum og á mynd- ina af bátnum sem ég hafði mál- að. Hann sagðist vera að fara heim. Eyjarnar voru hans heimur. Nú þegar Eggert afi minn verð- ur jarðsunginn er ég langt í burtu en samt er hann mér nálægur í minningunni. Kæra amma, ég votta þér samúð mína og sendi kveðjur frá Huldu og strákunum okkar. Utsalan hefst á morgun kl. 10 í Kringlunni og kl. 12 á Laugaveginum 30-50% afsláttur * ******** 10% afsláttur í snyrtivörudeil á meðan á útsölunni stendur Sími 17440, Laugavegur 689017, Kringlan t Eggert Pétursson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.