Morgunblaðið - 05.01.1992, Side 17

Morgunblaðið - 05.01.1992, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR SUNNUDAGUR 5. JANUAR 1992 Umsjón Amór Ragnarsson Bridsdeild Rangæinga Miðvikudaginn 8. janúar hefst Bar- ómeter-tvímenningur hjá félaginu. Spilað er i Ármúla 40, 2. hæð, og hefst gamanið kl. 19.30. Skráning hjá Lofti í símum 36120 (vs.) og hs. 45186. Nýir spilarar velkomnir ásamt þeim „gömlu“. Vetrar-Mitcell BSÍ Vetrar-mitcell BSÍ á föstudögum hefur ekki starfað nú yfir jólin vegna viðgerðar í spilasal í Sigtúni 9. En föstudagskvöldið 10. janúar byrjum við aftur þar sem frá var horfið fyrir jólin og verða spilaðir eins kvölds tví- menningar alla föstudaga og hefst spilamennska kl. 19. Öllum er fijálst að mæta, jafnt bytjendum sem lengra komnum, hvert kvöld er sérstök keppni og spilarar geta ráðið hvort þeir mæta á hverju föstudagskvöldi eða bara einu sinni í mánuði. Bridsfélag byrjenda Spilamennska hefst á nýja árinu 7. janúar en ekki 14 janúar eins og áður var auglýst. Byijað að spila kl. 19.30. Pjölmennum. bóndi þar til 1917 að hann andað- ist. Þór bjó með móður sinni í Hafn- arfirði er hún og Viggó kynntust. Þóra var mikil mannkostakona. Þeirra sambúð var byggð á gagn- kvæmu trausti og kærleika. Þessi góðu hjón eignuðust ekki börn. En mannkærleiki þeirra og fórnfýsi lýsir sér best í umhyggju þeirra fyrir mæðrum þeirra beggja á gam- als aldri. Guðbjörg, móðir Þóru, dvaldi fjöldamörg ár á heimili þeirra og andaðist hjá þeim. Sigurborgu, móður Viggós, tóku þau til sín fáum árum eftir andlát Guðbjargar. Sig- urborg varð háöldrað kona, lést 93 ára. Sín síðustu ár var Þóra mjög heilsulítil. Viggó annaðist hana af miklum kærleika og fórnfúsri um- hyggju. Hún lést 26. mars 1976. Fljótlega eftir andlát Þóru flutti Viggó á Hrafnistu. En meðan Þóra var sem veikust fékk Viggó já- kvætt svar við beiðni sinni um hjónaíbúð fyrir þau þar. Hann starf- aði í mörg ár í föndrinu á Hrafn- istu. Allt sem hann vann þar var með hans fallega handbragði. í vinahópi var hann alltaf jákvæður og skemmtilegur og átti mjög auð- velt með að koma auga á spaugileg- ar hliðar mála. Síðustu árin var Viggó ekki heill heilsu en hann var ekki að kvarta og reyndi að íþyngja ekki starfsfólkinu. Þannig var hans líf, að hugsa fyrst um aðra, síðast sjálfan sig. Hann kunni betur að veita en þiggja. Systkinin Elín og Jóhann Jónat- ansson reyndust Viggó sérstaklega vel, en þau Viggó vora systkina- börn. Það var aðdáunarvert að fylgjast með því hversu vel Jóhann hugsaði um Viggó Síðustu árin vitjaði Jóhann hans nær daglega. Viggó var honum mjög þakklátur og sagði oft; guð launar fyrir mig. Ég geymi góðar minningar um minn gamla góða vin, minningar sem seint gleymast. Ég kveð þenn- an ljúfling með trega. Sætið hans er autt. Unnur Benediktsdóttir. og er því flutt ofar á Laugaveginn! Viö höfum átt góöa daga við Laugaveginn. Eftir allmörg ár á Laugavegi 3 var nauðsynlegt að komast í stærri húsakynni vegna aukinna umsvifa. Því erum við nú flutt ofar, á Laugaveg 172 (Hekluhúsið), í húsnæði sem hentar betur viðskiptavinum okkar og starfsfólki, bjart, rúmgott og aðgengilegt. Hingað eru allir alltaf velkomnir. SAS á Islandi - valfrelsi í flugi! Laugavegi 172, sími 622211 Minning: Viggó B. Bachmann stefnir hærra Fæddur 4. september 1904 Dáinn 23. september 1991 Þegar ég nú kveð gamlan vin er margs að minnast og fyrir svo ótal margt að þakka. Hann er skýr í mínum fyrstu minningum. Þá starf- aði hann hjá föður mínum við versl- unarstörf og bílaakstur á Hellis- sandi. Viggó var fæddur 4. september 1904 á Patreksfirði. Foreldrar hans voru Sigurborg Jónatansdóttir og Bendikt Bachmann Árnason. Þau voru bæði mikið sómafólk. Sigur- borg var mikil húsmóðir og ákaf- lega vel vinnandi, sama hvort hún vann heimilisstörfin eða gegndi símastörfum eða vann handavinnu margskonar, allt var framúrskar- andi vel gert. Benedikt var mikill sagnaþulur og mikill húmoristi og mjög hlýr maður og barngóður. Viggó fluttist ungur með foreldr- um sínum, fyrst til Ólafsvíkur og síðan á Hellissand, þar sem faðir hans var við barnakennslu og síðar símstjóri í mörg ár. En fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur árið 1934. Viggó var með þeim allra fyrstu sem komu með bílpróf á Hellissand. Sá sem var bílstjóri var sá maður sem mikill ljómi var af, fannst okk- ur krökkunum fyrir rúmum 60 árum. Viggó var í okkar augum mikil og góð fyrirmynd. Hann var alger bindindismaður á vín og tóbak og hélt það allt sitt líf. Slíkir menn eru alltaf sérstaklega skylduræknir. Æðruleysi og samviskusemi ein- kenndu öll, hans störf. Viggó var nokkur sumur í símavinnu eftir 1920. Sú vinna var eftirsótt af ung- um mönnum. Þessi sumur voru honum mjög hugleikin, taldi hann þau hafa verið þroskandi fyrir sig og einnig hitt að þá fékk hann að ferðast þó nokkuð um landið, sem ekki allir ungir menn áttu kost á á þessum árum. Hann eignaðist þá ýmislegt umfram aðra, hann átti t.d. tjald sem hann setti oft upp út á Bölum eða í hraunjaðrinum. Gam- an var þá að fá að skríða inn í tjald- ið hjá honum á sunnudagsmorgnum og fá smá sælgætismola eða að fá að skoða myndavélina hans. Við krakkarnir hlökkuðum alltaf til sunnudagsmorgnanna með Viggó. En það var vani hjá honum ef vel viðraði að setja trébekkina upp á vörubílspallinn og bjóða krökkunum í bíltúr, kannski bara í kringum þorpið okkar eða upp að Ingjalds- hóli. Þetta var mikið krydd í okkar tilveru. Við reyndum að borga hon- um þessa skemmtun með því að vera ekki að hanga aftan í bílnum hjá honum er hann var að störfum. Bílstjórastarf var hans atvinna Brids alla tíð í Reykjavík. Fyrst hjá Bif- reiðastöð Steindórs en lengst starf- aði hann hjá Shell, eða þangað til hann náði 70 ára aldri. Ef Hallgrím- ur forstjóri þurfti einkabílstjóra til að keyra sig með útlenda gesti um landið og í veiðiferðir var Viggó alltaf valinn. Sumir þessara útlendu veiðimanna sendu Viggó árlega jól- akort og stundum gáfu þeir honum góða minjagripi. Viggó var mjög vel liðinn af öllum sem kynntust honum, en hann var ekki allra. Viggó kvæntist Þóru Þórðardótt- ur 29. nóvember 1941. Hún var fædd að Ölfusvatni 21. júlí 1912. Foreldrar hennar vora Guðbjörg Þorgeirsdóttir og Þórður Gíslason SAS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.