Morgunblaðið - 05.01.1992, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 05.01.1992, Qupperneq 27
seei HAUMAt .5 auoAauviVíug aiaAjawuoaoM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JANÚAR '1992 3 6S € 27 uiywj’A] OANIKL STERN imi'No KIHBY •>-V7r» ■ ’ C'tySíickérs - 4 000 hestafla myn?! - « Aldcilis frábær gamanmynd í hæsta gæðaflokki, sem fær þig til að engjast um öll gólf. Þegar við segjum grín, þá meinum við gríííín. Billy Crystal og félagar komu öllum á óvart í Banda- ríkjunum í sumar og fékk myndin gríðarlega aðsókn; hvorki meira né minna en 7.800.000.000 kr. komu í kassann. Komdu þér í jólaskapið með því að sjá þessa mynd. ★ ★ ★ A.I. MBL. Aðalhlutverk: Billy Crystal, Daniel Stern, Bruno Kirby, Helen Slater, Jack Palange. Sýnd kl. 4.30,6.45,9 og 11.15. Ómótstæðileg teiknimynd með íslensku tali, full af spennu, alúð og skemmtilegheitum. Óliver og Ólafía eru munaðarlaus vegna þess að Hroði, fuglinn ógur- legi, át foreldra þeirra. Þau ákveða að reyna að safna liði í skóginum til að lumbra á Hroða. Leikst jóri: Þórhallur Sigurðsson. Aðalhlutverk: Bessi Bjarnason, Ragnheiður Steindórsdóttir, Sigurður Sig- urjónson, Laddi, Örn Árnason o.fl. Sýnd kl. 1,2.40,3,5 og 7. Miðaverð kr. 500. ★ ★★ I.Ö.V. DV. Sýnd kl. 9og 11. Bönnuð innan 16 ára. ★ ★ ★ S.V. MBL. Sýnd kl. 7,9 og 11 (HIDDEN AGENDA) - Sýnd kl. 5 og 7. ASTRIKUROG BARDAGINN MIKLI ! Sýnd kl. 1 og 3. Miðav. kr. 300. Sýnd kl. 1 og 3, Miðav. kr. 300. Sýnd kl. 1,3 og 5. Miðaverð kr. 300. eru sýningar kl. 1 í dag mai paosoí iliONIiOOIIINIIN! ATH. vegna mikillar aðsóknar ögö CS3 19000 Rætt um málefni Skriðuklausturs Skriðuklaustur Geilagerði. HINN 27. des. sl. hélt sveit- arstjórn Fljótsdalshrepps fund með ráðuneytisstjóra, Sveinbirni Dagfinnssyni, varðandi málefni Skriðu- klausturs, þ.e. um nýtingu Gunnarshúss annars vegar og búreksturinn iiins veg- ar, en um áramótin 1989- 1990 var tilraunastöðin, sem liafði verið starfrækt þar frá vorinu 1949 á veg- um Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, lögð nið- ur. Sveitarstjórn lagði eftir- farandi atriði fyrir ráðuneyt- isstjóra um framtíðarstarf- semi á Skriðuklaustri sem umræðugrundvöll: Þótt eindregið sé mælt með að rekstri Gunnarshúss annars vegar og bújarðarinn- ar hins vegar verði haldið vel aðskildum og lóðamörk verði afmörkuð og skilgreind, er jafnmikilvægt að búskapar- hættir á jörðinni verði þess eðlis að þeir auðveldi, svo sem verða má, framtíðará- form fyrir Gunnarshús, og þar með fyrir staðinn í heild. Hlutverk Gunnarshúss: 1. Gestaíbúð fyrir fræði- og listamenn. 2. Bókasafn Páls á Að- albóli, sanikvæmt skil- málum gefanda þegið og komið fyrir. 3. Endurmenntun- arnám í landbúnaði og skyldum greinum. 4. Þróunardeild í rann- sóknum og faglegri leið- beiningarstarfsemi í land- búnaði, enda hefur sveit- arstjórn Fljótsdalshrepps boðist til að sjá slíkri starfsemi fyrir viðbótar- húsnæði, og hefur aðal- fundur BSA tekið undir þetta. 5. Sérstök minningar- deild, eða stofa í húsinu verði helguð gefendum, Gunnari og Franziscu. Bújörðin Skriðuklaustur: Sveitarstjórn telur að ekki komi til greina að skerða framleiðslurétt á svo góðri jönð, enda nóg búið að rýra sauðfjárframleiðslu í hreppn- um nú þegar, ennfremur: Fyrir tilstilli núverandi skógræktarstjóra m.a. og Til- raunastöðvarinnar var plantað skógi í Klausturfjall í þeim til- gangi að gera tilraunir með sambýli sauðijár og skógiækt- ar. Fjárstofninn dýrmæti á Fi-eyshólum, sem bjargað var með æmum tilkostnaði, en vei-ðugum, frá riðusmiti frá Skriðuklaustri, verði fram- ræktaður eins og til hefur staðið áfram á Skriðuklaustri og stundaðar áfram kynbætur með hvíta og góða ull undir handieiðslu kunnáttumanna á staðnum. Þróunardeild. Mikilvægt er að hafa aðgang að sauðfé til tilrauna og athugana af ýmsu tagi og gagnlegt fyrir nám- skeiðin. Sveitarstjóm telur mikil- vægt að ekki verði hróflað við núverandi búsetu á Skriðuk- laustri fyrr en fyrir liggja full- mótuð framtíðaráform um framangreind atriði, ásamt tryggu fjámiagni þar að lút- andi. í undirbúningi er að skipa í nefnd um málefni Skriðu- klausturs. - G.V.Þ. Svisslendingar heimsækja Akranes Akranesi. UM 190 Svisslendingar sóttu Akranes heim daginn fyrir gamlársdag og eyddu þeir dagstund við það að skoða áhugaverða staði í bænum. Vakti koma þeirra athygli bæjarbúa því ekki er algengt að slíkir hópar komi á þessum árstíma til Akraness. Svisslendingarnir eyddu áramótunum á íslandi og voru þeir á vegum Ferða- skrifstofu Guðmundar Jón- assonar. Þeir voru mjög ánægðir að komast í siglingu með Akraborginni þar sem margir þeirra hafa ekki kom- ið á sjó fyrr. Ferðamennirnir fengu að skoða hið fuilkomna og glæsilega frystihús H.B. & Co. hf. og síðan var Byggð- asafnið í Görðum skoðað. Safnið er mjög skemmtilegt og þar er ma. að finna elsta steinsteypta _ hús sinnar tegundar á íslandi sem nú hefur verið endurbyggt í upp- runalegt horf. í þessu vina- lega gamla húsi buðu Sinaw- ik-konur á Akranesi hinum erlendu gestum upp á súkku- laði og nýbakaðar kleinur. Síðan var ekið um bæinn og fallegar jólaskreytingar skoðaðar áður en haldið var að nýju til Reykjavíkur land- leiðina fyrir Hvalíjörð. Að sögn Þórdísar Artúrs- dóttur, ferðamálafulltrúa á Akranesi, létu Svisslending- arnir mjög vel að dvöl sinni á Akranesi og kvaðst hún bjartsýn á að ferðaskrifstof- ur gerðu meira af því í ná- inni framtíð að senda ferða- mannahópa í dagsferðir til Akraness. J.G. ■ Iþróttabúðin stækkar íþróttabúðin, Borgartúni 20, sem sérhæfir sig í golfvör- um, NIKE-skóm og fatnaði, hefur nýlega stækkað golf- deild sína í 80 fermetra og úrvalið aukist í samræmi við það. íþróttabúðin flytur inn alla sína golfvöru beint frá framleiðanda og nær þannig hagstæðu verði fyrir við- skiptavini sína en helstu merkin eru Wilson, Dunlop, Spalding og Northwestern. Verslunarstjóri er Hilmar Þorkelsson. (Fréttatilkynning) Mývatnssveit: Þorlákur Jónasson, bóndi í Vogum, sjötugur Hjörk, Mývatnssveit. ÞORLAKUR Jónasson, bóndi í Vogum, átti 70 ára af- mæli 1. janúar síðastliðinn. Hann fæddist í Vogum 1. janúar 1922. Foreldrar hans voru Guðfinna Stefánsdótt- ir frá Öndólfsstöðuin í Reykjadal og Jónas Pétur Hall- grímsson í Vogum. Þorlákur fór snemma að vinna við bú foreldra sinna ásamt systkinum sínum. Þá fór hann einnig að stunda byggingavinnu, m.a. múr- verk. Ennfremur hefur hann hlaðið mörg hús úr holsteini og verið víða eftirsóttur við þá vinnu. Á afmælisdaginn bauð Þorlákur sveitungum sínum, frændum og vinum á heimili sitt. Þar þáðu á annað hundr- að manns rausnarlegar veit- ingar á fyrsta degi ársins. Þorláki barst mikill fjöldi gjafa og heillaóska, m.a. fag- urlega gerður gripur, áletr- aður með mynd af Reykja- hlíðarkirkju frá söfnuði kirkj- unnar. Það var Álfasteinn á Borgarfirði eystra sem smíð- aði gripinn. Þorlákur hefur undanfarin ár verið formaður sóknarnefndarinnar. Eiginkona Þorláks er Lilja Árelíusdóttir frá Geldings- haga á Svalbarðsströnd, þau eiga fjögur uppkominn börn. Mývetningar senda Þorláki bestu árnaðaróskir í tilefni þessara tímamóta. Kristján fHmnpnt* Þlafrtfr í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG ÁRÁÐHÚSTORGI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.