Morgunblaðið - 23.02.1992, Page 1
104 SIÐUR B/C
45. tbl. 80. árg.
SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1992 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Norðmenn
signrsælir í
Albertville
NORÐMENN luku keppni á Ólympíu-
leikunum í Albertville í gær með glæsi-
brag og unnu tvenn gullverðlaun. Björn
Dæhlie vann þriðju gullverðlaun sín er
hann sigraði í 50 km skíðagöngu karla
og Finn Christian Jagge sigraði í svigi.
Dæhlie, sem er 24 ára, náði besta tíman-
um sem náðst hefur í 50 km göngu í
sögu ólympíuleikanna. Hann gekk á
þremur klukkstundum 41,5 mínútu og
var tæpri mínútu á undan Maurilio de
Zolt frá Italiu sem varð annar. Jagge,
sem er 25 ára, var 0,28 skúndum á
undan Italanum Alberto Tomba, sem
varð annar.
Með sitt hvað
á samviskunni
EINS og kunnugt er gera Evrópu-
bandalagsríkin miklar kröfur í náttúru-
verndar- og umhverfismálum og ekki
aðeins til sjálfra sín, heldur einnig til
annarra. Umhverfisráðherrar Evrópu-
bandalagsins, EB, voru því dálítið
skömmustulegir þegar þeir komu sam-
an til fundar í Lissabon í Portúgal í
gær en þá hafði verið upplýst, að EB
hefur styrkt með stórfé mikla náma-
vinnslu í Amazon-frumskóginum í
Braziliu, Carajas-verkefnið svokallaða.
Er um að ræða stærstu járnnámur í
heimi en vegna framkvæmdanna hefur
fjöldi indíána verið rekinn af landi sínu
og margir látið lífið. Járnbræðsluofn-
arnir eru svo kyntir með viðarkolum
og til að afla þeirra hefur skógurinn
verið ruddur á stórum svæðum.
Kynlífsbylting
hafin í Rússlandi
Rannsóknir hafa sýnt að New York-
búar njóta einkum ásta í rafmagns-
leysi; Rússar gera það hins vegar á
byltingartímum. Ný könnun hefur leitt
í IJós að það eru umbrotatimar á sviði
kynlífsins ekki síður en stjórnmálanna
í Rússlandi, samkvæmt frétt í breska
dagblaðinu The Independent. I könnun-
inni kemur til að mynda fram að 28%
rússneskra stúlkna missa meydóminn á
aldrinum 15 og 16 ára en aðeins 1,5%
árið 1975. Sérfræðingar skýra þessar
breytingar þannig að fólk hafi sérlega
mikla þörf fyrir hlýju og ástúð á um-
brotatímum þegar ótti og óvissa ríkir
um framtíðina.
Morgunblaðið/KGA
UNDIR EYJAFJÖLLUM
Forseti Kazakhstan:
Langdræg kjamorkuvopn
nauðsvnleg í vamarskvni
Nýju Delhí. Reuter. ^ ^
FORSETI Kazakhstans, eins samveldis- | aldrei beitt nema með samþykki allra. i eru flestir múslimar, en Nazarbajev taldi
ríkjanna, sagði í Nýju Delhí á Indlandi í í Kazakhstan búa Rússar, Úkraínumenn enga hættu stafa af öfgatrúarmönnum í land-
gær, að Kazakar vildu ekki láta af hendi I og fólk af þýskum ættum auk Kazaka, sem I inu.
öll langdræg kjarnorkuvopn. Kvað hann
hugsanlegt, að landi sínu gæti stafað
hætta að Bandaríkjunum, Rússlandi, Kína
eða öðrum ríkjum í framtíðinni og vildi
því ekki afvopnast nema þessi ríki gerðu
það einnig.
Núrsúltan Nazarbajev, forseti Kaz-
akhstans, lýsti þessu yfir á blaðamannafundi
undir lok tveggja daga opinberrar heimsókn-
ar á Indlandi. Sagði hann, að Kazakar myndu
halda í heiðri samninga Sovétríkjanna fyrr-
verandi við Bandarílqastjóm um upprætingu
skammdrægra kjarnavopna en um lang-
drægu kjarnorkuvopnin gegndi öðru máli.
Tiltölulega stór hluti sovésku kjamorkuvopn-
anna er í Kazakhstan en Nazarbajev sagði,
að samkvæmt samningum Kazaka, Rússa,
Úkraínumanna og Hvítrússa yrði vopnunum
SÞ samþykkja friðargæslu
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
ÖRYGGISRAÐ Sameinuðu þjóðanna
(SÞ) samþykkti samhljóða í gær að
senda 14.000 manna friðargæslusveitir
til Júgóslavíu og Króatíu.
í samþykktinni er gert ráð fyrir að sveit-
irnar verði í að minnsta kosti tólf mánuði
í löndunum. Þær verða fiuttar þangað í
áföngum á meðan vandamál í tengslum
við fjármögnun verkefnisins verða leyst.
Mörg ríkjanna sem eiga fulltrúa í örygg-
isráðinu vom óánægð með kostnaðinn af
friðargæslusveitunum fyrsta árið, setn er
áætlaður um 635 milljónir dala (36 millj-
arðar ÍSK). Þau vilja að stjórnvöld í Króat-
íu og Júgóslavíu sjái sveitunum fyrir hús-
næði og ýmissi þjónustu til að draga úr
kostnaðinum fyrir Sameinuðu þjóðirnar.
Boutros Boutros-Ghali, framkvæmda-
stjóra samtakanna, var falið að hefja frið-
argæslustarfið og semja við júgóslavnesk
og króatísk stjórnvöld um hlutdeild þeirra
í kostnaðinum. Talið er að fyrstu friðar-
gæsluliðarnir geti farið til Júgóslavíu og
Króatíu á næstu dögum.
50ÁRA
SÖLUMIDSTÖÐ
HRABFRYSTIHÚSAHNA
18
ÉG HAFÐIEHGIN VÖLD TIL
AO STJÚRNA HANDTÖKUM
KARLMENN
ÁKROSSGÖTUM