Morgunblaðið - 23.02.1992, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.02.1992, Blaðsíða 10
10 aCBJ ÍJAlííiHa^ JI’jr>AClUM/U3 (lUlAUH/dtOJrlOW MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1992 eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur/ Myndir: Sverrir Vilhelmsson Landspitalinn vildi sameinast Borgarspítalanum. Borgarspítal- inn vildi ekki sameinast Landspítalanum. Borgarspítalinn vildi sameinast Landakotsspítala, en Landakotsspítali vildi ekki sam- einast Borgarspítala. Þannig leit staðan út í sameiningarmálum sjúkrahúsanna þriggja á höfuðborgarsvæðinu fyrir fáeinum vikum, eða þangað til heilbrigðisráðherra ákvað að skera fjár- framlög til Landakotsspítala niður um 38% skömmu fyrir jól. fstaða Landakotsmanna breyttist á fáum dögum og nú er svo komið að unnið er af kappi að sameiningu Borgar- spitala og Landa- kotsspítala, þrátt fyrir „viðvörun“ erlendra ráðgjafa, sem hér unnu á vegum Ríkisspítalanna á síðasta ári. Þeir töldu sameiningu Borgar- spítala og Landspítala. langhag- kvæmasta kostinn. Guðmundur Bjamason, fyrrum heilbrigðisráð- herra, leggur áherslu á niðurstöð- ur hollensku ráðgjafanna og er alfarið á móti sameiningu Borgar- spítala og Landakotsspítala. Nú- verandi heilbrigðisráðherra, Sig- hvatur Björgvinsson, leggst aftur á móti gegn þeim hugmyndum og segist ekki geta framkvæmt eitt- hvert „þvingað hjónaband" á milli stofnana, sem ekki vilji sameinast. En er ekki einmitt verið að neyða ILandakotsmenn í „eina sæng“ með Borgarspítalamönnum með því að skera fjárframlög til þeirra svo mikið niður, að þeir eru óhæf- ir um að gegna því hlutverki, sem þéir hafa einsett sér í gegnum árin? Landakotsmenn segja að þeim hafi verið stillt upp við vegg. Sig- hvatur segist aftur á móti ekki vera í neinum hefndaraðgerðum gagnvart Landakotsspítala. Hann hafi einfaldlega ekki úr meiri pen- Ekki eru ailir á eitt sáttir um ágæti þeirra samein- ingarviðræðna, sem nú fara fram á milli Borg- arspítala og Landakots- spítala. Bent hefur verið á aðra valkosti í heilbrigð- iskerfinu svo ná megi fram „varanlegum“ sparn- aði, sem markmið yfir- valda vissulega er. Því er ekki að undra að skatt- greiðendur velti fyrir sér hvaða leið kunni að vera greiðfærust til að gefa af sér sem mesta og besta hagræðingu í heil- brigðisgeiranum, sem ár- lega tekur til sín um fjórð- ung af þjóðarútgjöldum okkar fámenna lands. ingum að spila og fannst jafnframt skýrslugerð hinna erlendu ráð- gjafa ekki svo ýkja merkileg. Hann er þess fullviss að sameining Borg- arspítala og Landakotsspítala sé fyrsta skrefið í átt að uppbyggingu sjúkrahússkerfisins á höfuð- borgarsvæðinu enda hefðu sjúkra- húsin alls ekki verið rekin með eðlilegum hætti á undanfömum árum. Valkostir En hveijir eru valkostimir í heilbrigðiskerfinu? Vissulega væri hægt að hafa ástandið áfram óbreytt. í öðm lagi væri hægt að hafa eina yfirstjórn yfir öllum spí- tölunum þremur í Reykjavík sem sæi til þess að allur tvíverknaður þurrkaðist út. í þriðja lagi væri hægt að sameina Borgarspítala og Landakotsspítala, eins og nú er rætt um. Og í fjórða lagi væri hægt að sameina Borgarspítala og Landspítala, eins og erlendu ráðgjafarnir töldu besta kostinn. Morgunblaðið leitaði álits for- svarsmanna spítalanna þriggja í Reykjavík á þessum valkostum. Því fer hinsvegar fjarri að þeir tali einu máli. Nefnd á vegum heilbrigðisráð- herra skilaði í desember tillögum um sameiningu Borgarspítala og Landakotsspítala. í starfí sínu lagði nefndin eingöngu áherslu á aukna samvinnu eða sameiningu þessara tveggja spítala, en ekki var könnuð hugsanleg samvinna eða hugsanleg verkaskipti milli annarra spítala á höfuðborgar- svæðinu. í stuttu máli taldi nefnd- in sameiningu spítalanna tveggja undir eina stjóm mögulega og lík- /SJÁBLS. 12. Santiag Landakots og Bmg- arspítala skynsamlegust ' - segir Jóhannes Pálmason, framkvæmdastjóri Borgarspítalans „ÉG HEF talið sameiningu Borgarspítala og Landakotsspítala mjög fýsilega þannig að öll bráðaþjónusta yrði færð yfir á Borgarspítalann og önnur þjónusta, sem við nú sinnum, yrði flutt yfir á Landakotsspítala. Ef sameiningin gengur eftir yrðu hér á höfuðborgarsvæðinu tveir bráðaspítalar, Landspítali og Sjúkrahús Reykjavíkur, sem mér finnst nyög skynsamlegt svo að fólk hafi einhvern valkost í þeim efnum,“ segir Jóhannes Pálmason, framkvæmdastjóri Borgarspítalans. Það er engin pólitískur vilji m.a. hefur verið rætt um hlutafé er engin fyrir því af hálfu Reykjavík- urborgar að sameina Borg- arspítalann Landspítalann. Slík- ur samrani væri hrein ijarstæða. Á hinn bóginn er Landa- kotsspítali minni spítali og ég hef talið það mjög skynsam- legt í alla staði að stíga sam- einingarskrefið til fulls. Ljóst er að Landakotsspítali og Borg- árspítali geta stutt hvor annan með ákveðnum tilfærslum. Reykjavíkurborg telur forsendu sameiningarinnar vera þá að hún hafi töglin og hagldimar í stjórn hins nýja spítala. Síðan eiga menn eftir að velta fyrir sér hin- ýmsu rekstrarformum, um en lagsformið," segir Jóhannes. Hann segir þá hugmynd að fela einni yfirstjórn stjórn spítal- anna þriggja í Reykjavík svo komast megi hjá tvíverknaði al- gjöra fásinnu. „Það þarf ekkert að rökstyðja það nánar. Slíkt fyrirtæki yrði einfaldlega of stórt á íslenskan mælikvarða, með um að minnsta kosti sex þúsund starfsmenn og tíu milljarða króna útgjöld á ári. Ég held að það sé ekki hollt íslensku þjóðfé- lagi að vera með slíkt fyrirtæki undir einum hatti. Ég tel að allir hafí gott af ákveðinni sam- keppni. Og það hefur sýnt sig að menn vilja faglegan metnað. Aukin samkeppni þarf ekki að hafa í för með sér hrein aukaút- gjöld ef samkeppninni er stýrt á skynsamlegan hátt,“ segir Jó- hannes.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.