Morgunblaðið - 23.02.1992, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.02.1992, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1992 t Systir okkar, BJARGEY PÁLSDÓTTIR CHRISTENSEN, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 25. febrúar kl. 15.00. Árni Pálsson, Inga Pálsdóttir Sólnes, Páll Kr. Pálsson, Sigriður Pálsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, SUMARLÍNA ÓLAFSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmudaginn 27. febrúar kl. 15.30. Guðfinna Birna Coltí, Ólafur Jónsson, Árni Jónsson, Una Kristin Jónsdóttir, Sigurjón Jónsson Drew Colti', Birna I. Jónsdóttir, Gurðrún Jónsdóttir, Valmundur Guðmundsson, og barnabörn. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir, JÓN ÓLAFSSON, Háteigsvegi 50, Reykjavfk, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju þriðjudaginn 25. febrúar kl. 13.30. Bjarney Guðmundsdóttir, Páll Birgir Jónsson, Guðrún Baldursdóttir, Guðmundur Rúnar Jónsson, Ingibjörg Jónsdóttir, Sigurður Valur Jónsson, Margrét Gunnarsdóttir, Ómar Jón Jónsson, Ásta Sigurðardóttir. t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, ÁSDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR, Kóngsbakka 14, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 25. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á Hjartavernd. Haraldur Kristinsson, Erna Haraldsdóttir, John Moore, Sigrún Magnúsdóttir, Jón helgason og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, bróðir, tengdafaðir og afi, HJÖRTUR EYJÓLFSSON, Neðstaleiti 8, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 24. febrúar kl. 13.30. Þórey Jónsdóttir, Eyjólfur Hjartarson, Bragi Hjartarsson, Viðar Hjartarsson, Helga Hjartardóttir, Rúnar Hjartarsson, Sólrún Astþórsdóttir, Jón Sigurðsson, Jón Ben Ástþórsson, Anna K. Hjálmarsdóttir, Valgerður Bogadóttir, systur, tengdabörn og barnabörn. t Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför elsku- legrar eiginkonu minnar, MAGNEU KRISTJÁNSDÓTTUR, Hrefnugötu 3, Reykjavík. Hlýhug og vinarþel sem mér hefur verið sýnt met ég mikils. Sigmundur Guðbjartsson. t Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, JÓNU HJÁLMTÝSDÓTTUR, Mávabraut 1 b, Keflavik. Guðmundur Valur Ólafsson, börn, tengdabörn og barnabörn. * Þorgils Arnason, Isafirði - Minning Þorgils Árnason á ísafirði andað- ist á Fjórðungssjúkrahúsinu þar 27. desember sl. og var útför hans gerð frá ísafjarðarkapellu 4. janúar. Hann var tæplega 77 ára að aldri er hann lést. Þorgils Ámason fædd- ist í Ólafsvík á Snæfellsnesi 25. febrúar 1915. Foreldrar hans voru Árni Bergmann Gunnlaugsson, frá Búðum á Snæfellsnesi, og Kristín Þórdís Jónsdóttir, sem ættuð var frá Fáskúðsfirði en alin upp á Snæ- fellsnesi. Þau hjón áttu átta böm og af þeim eru nú þijú á lífi, það eru þau Þórdís, Heiðveig og Jón. Þegar Þorgiþs var tólf ára flutti fjölskyldan til ísafjarðar. Heimilis- faðirinn Ámi var trésmiður. At- vinnuástandið var bágborið í Ólafsvík eins og víðar á landinu á þessum áram og flutti fjölskyldan til ísafjarðar í leit að atvinnu því að þá mátti telja að atvinna hafi verið betri vestra en víða var. Þeir sem nú eru ungir að áram skilja lítið þá hörðu lífsbaráttu, sem fólk varð að heyja í þessu landi á þessum árum. Fátæktin réði víðast hvar ríkjum, bammargar fjölskyldur rétt gátu lifað lífinu með sómasamleg- um hætti. UppvaxtarárÞorgils, sem og fleiri alþýðubarna, voru engin dans á rósum. Þannig skipaðist að Þorgils hændist mjög að Þóri heitnum bróð- ur mínum, sem var bílstjóri og hafði á þessum árum mörg járn í eldinum og þangað leituðu margir sem höfðu litla vinnu og fundu þar hlýju og skilning. Hann kom ekki ósjaldan á heimili foreldra minna með nýja vini og aðstoðarmenn og þannig varð það að Þorgils varð á skömm- um tíma einn af heimilismönnum á heimili foreldra minna, í Brunngötu 20 á ísafirði. Það var jafn þröngt setinn bekkurinn í eldhúsinu á þessu mannmarga heimili og skemmtun haldið uppi kvöld eftir kvöld. Það vora engir stórbrotnir eða lang- menntaðir listamenn sem þar skemmtu. En þar var saman komið fólk sem naut þess að gera sér kvöldin skemmtileg eftir vinnudag hversdagsleikans með sögum, söng, munnhörpuleik og heimatilbúnum leikþáttum af ýmsum toga. Enginn var jafn fús til þátttöku og frakkur til allra uppátækja og Gísli okkar. Síðar. varð hann þar vinnumaður þvi á því heimili var í mörgu að snúast: Fyrir utan bílana var vera- legur búskapur og alit er honum tengdist og Þorgils sinnti þeim störfum almennt. Þar kynntist hann konu sinni sem síðar varð, Láru Magnúsdóttur, sem var vinnustúlka á heimilinu, og síðan lágu leiðir þeirra saman. Þorgils varð því náinn vinur minn, bræðra minna og foreldra, jafnan síðar. Leiðir okkar lágu sam- an með ýmsum hætti í mörg ár. Við unnum saman við heyskap, skepnuhirðingu í vegavinnu, við bílaakstur og fleira. Óhætt er að fullyrða að upp á mörgu var tekið á þessum áram og ekki var þess alltaf gætt að ígrunda vel öll þau uppátæki sem komu upp á yfirborð- ið og enginn var fijótari að sinna og framkvæma hinar ólíklegustu jjppátektir okkar en Gísli, sem hann var alltaf kallaður. Leiðir þeirra Gísla og Lára lágu saman eftir þetta í blíðu og stríðu. Þau eignuð- ust tíu börn og eru níu þeirra á lífi. í marsmánuði 1988 fórst sonur þeirra, Gunnlaugur, og sonur hans, sem bar nafn föðurafa síns, með mótorbátnum Knarranesi og var það mikið áfall fyrir hjónin. Kona Gunnlaugs var Ingibjörg Þórhalls- dóttir og vora þau búsett í Njarð- vík. Hin börnin sem upp komust og eru á lífi eru: Ágústa, búsett á Núpum í Ölfushreppi, gift Gunn- laugi Jóhannssyni; Ragnheiður, gift Ársæli Hermannssyni, búsett í Hveragerði; Ámi Kristinn, kvæntur Sigríði Matthíasdóttur, býr í Ólafs- vík; Magnús, kvæntur Sesselju Þórðardóttur, búa á ísafirði; Ás- björn, kvæntur Evu Sigurbjörns- dóttur, búa á Djúpuvík; Valdís, býr í Keflavík; Hjördís, gift Jóni S. Ásgeirssyni, búa í Bolungarvík; Helga Lára, gift John MTChavaro; og yngstur er Þorgils sem býr í Bolungarvík. Barnabörnin urðu 34 og barnabarnabörnin eru orðin 18, það er því kominn mikill ættbogi frá þeim Þorgils og Láru. Þorgils vann auk þess sem áður er sagt margvísleg önnur störf hann var í nokkur ár á togurum, einkum á Sólborgu frá ísafirði, en lengst af ævinnar vann hann sem bíl- stjóri. Hann hafði mikinn áhuga á bílum, tækjum og verkfæram og við það vann hann lengst af en í nokkur ár vann hann við sorpeyð- ingarstöðina á Skarfaskeri í Hnífs- dal, en eftir það vann hann nokkuð við vélar og m.a. á jarðýtu og allt þetta fórst honum vel úr hendi. Kveðjuorð: Kristín Ámadóttír Fædd 21. maí 1907 Dáin 30. janúar 1992 Ekki get ég látið hjá líða að minn- ast okkar kæru fóstursystur ‘með örfáum orðum, þó ég viti að hól að henni látinni væri henni ekki að skapi. Hún var dóttir hjónanna Elín- ar Jónasdóttur og Árna Jónssonar og fædd að Höfða í Jökulfjörðum. Elín hafði misst fyrri mann sinn frá fjóram börnum ungum. Saman áttu hún og Árni þijú börn. Öll eru þau nú látin. Þriggja ára að aldri flutt- ist hún til Furufjarðar ásamt fjöl- skyldu sinni og ólst þar upp. Jörðin þótti gjöful og fjölskyldan komst í góð efni. Fólkinu hélt áfram að íjölga, því auk barna sinna tóku þau Elín og Árni fjögur börn í fóst- ur. Þau eru: Sigríður Jónsdóttir, er var gift Guðbjarti Jónssyni skip- stjóra á ísafírði, Jósef Stefánsson. Hann drukknaði ungur. Jóhanna Hrafnfjörð, ljósmóðir og undirritað- ur-. Á þessu menningarheimili feng- um við gott uppeldi með trúna og kærleikann að leiðarljósi. Um tví- tugt fór Kristín tii Isafjarðar að læra klæðskerasaum og lærði að spila á orgel hjá Jónasi Tómassyni, tónskáldi. Ég hygg, að það hafi verið frekar fátítt í þá daga en hún var með afbrigðum söngelsk. Fyrir tæpum 60 árum giftist hún Benja- mín Eiríkssyni frá Dynjanda í sömu sveit. Þau hófu búskap á Dynjanda en fluttu síðan til Bolungarvíkur á Hafnargötu 122. Hún tók virkan þátt í kvenfélagsstörfum. Einnig starfaði hún mikið að málum slysa- varnafélagsins. Eina dóttur eignuð- ust þau Kristín og Benjamín, Guðf- innu, ljósmóður, sem gift er Guð- mundi Sigmundssyni endurskoð- anda. Þau eiga þrjá drengi. Þeir era: Kristján viðskiptafræðingur, giftur Helgu Þórðardóttur þroska- þjálfara. Sigmundur lögfræðingur, giftur Örnu Sigurðardóttur lækni og Eiríkur, sem stundar háskóla- nám og er í foreldrahúsum. Hún dáði sín barnabörn enda voru þeir með afbrigðum góðir við hana. Fyrir fáum áram fluttu þau Kristín og Benjamín til Reykjavíkur og bjuggu í fimm ár hjá dóttur sinni og tengdasyni. Þá mátti heita, að allir hennar andlegu og líkamlegu kraftar væru þrotnir enda hafði hún lengi átt við vanheilsu að stríða. Þorgils Árnason var tryggur vin- ur vina sinna, hann var oft fljótur til svars, svaraði mjög vel fyrir sig og kom mönnum oft á óvart. Hann var kátur og léttur í lund og lét aldrei bugast þó að oft hafi verið þröngt í búi hjá honum eins og geta má með svo stórt heimili sem hann þurfti að sjá um ásamt konu sinni. Þó ólust sum af börnum hans að meira eða minna leyti upp hjá öðrum og komust í hendur góðs fólks sem reyndist þeim vel og ég veit það að þau bömum hans sem ég þekki kunnu vel að meta það fólk sem þau voru lengi hjá í upp- vexti sínum. Nú er þessi gamli heimilisvinur og vinur minn horfinn sjónum okk- ar. Ég mun ávallt minnast hans sem góðs vinar sem sýndi mér ávallt tryggð og vináttu í hvert skipti sem við hittumst. Mér finnst vera fátæk- legra yfir Isafirði næst þegar ég kem, að sjá hann ekki eins og jafn- an áður, því alltaf var hann fljótur að koma á móti manni brosandi og kátur og lét þá allt fjúka sem hon- um datt í hug. Hann var hreinlynd- ur, ákveðinn og hispurslaus í allri framkomu. Hann fór á mis við alla menntun vegna þess að það vora ekki tækifæri til að komast neitt áfram, það beið ekkert annað flestra á þessum árum en að vinna hörðum höndum til þess að hafa í sig.og á. Ég sendi Láru, börnum þeirra, tengdabörnum og öðru skyldfólki innilegar samúðarkveðjur um leið og ég þakka honum trygga sam- fýlgd á liðnum áratugum og órofa vináttu sem ég mun aldrei gleyma. Guðs blessun fylgi minningu Þorgils Árnasonar. Matthías Bjarnason. Það er sagt, það leggist líkn með þraut. Því fyrir tveim árum fengu þau hjón pláss á Elli- og þjúkrunar- heimilinu Grund. Þar fékk hún þá beztu umönnun, sem hægt var að veita. Færi ég hér með forráða- mönnum og öllu þvf ágæta starfs- fólki okkar hjartans þakklæti fyrir. Benjamín og Guðfinnu og öðram aðstandendum sendum við hjónin innilega hluttekningu. Albert Krisljánsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.