Morgunblaðið - 23.02.1992, Síða 8

Morgunblaðið - 23.02.1992, Síða 8
n' ‘ MÖRGÖNBLAÐÍÐ DAGBÖK’s^NNUDaMjR Íl5 FEBRUAR 1992 8 1"P| A er sunnudagur 23. febrúar, 54. dagurárs- l\.VJT ins 1992. Ardegisflóð í Reykjavík kl. 9.46 og síðdegisflóð kl. 22.11. Fjara kl. 3.39 og kl. 15.56. Sólar- upprás í Rvík kl. 8.58 og sólarlag kl. 18.25 og myrkur kl. 19.14. SólineríhádegisstaðíRvíkkl. 13.41 ogtungliðí suðri kl. 5.40. (Almanak Háskóla íslands.) Ég vil kunngjöra bræðrum mínum nafn þitt, í söfnuðun- um vil ég lofa þig. (Sálm. 22,23.) ARNAÐ HEILLA /? /\ára afmæli. Á morgun, OU mánudaginn 24. febrúar er sextugur Magnús Albertsson matsveinn, Grýtubakka 26, Rvík. Eigin- kona hans er Fanney Sigur- geirsdóttir, ræstingakona. Þau verða að heiman á af- mælisdaginn. FRÉTTIR/ MANNAMÓT í DAG byrjar Góða. „Fimmti mánuður vetrar að fomís- lensku tímatali, hefst með sunnudegi í 18. viku vetr- ar. ..“ segir í Stjörnu- fræði/Rímfræði. í dag er konudagur. Um það segir í sömu heimildum: Fyrsti dag- ur Góu. Sagt er að húsfreyjur hafí átt að fagna góu þennan dag og að bændur hafí átt að gera húsfreyjum eitthvað vel til. Þess munu einnig dæmi að hlutverk hjónanna í þessum sið hafí verið hið gagnstæða. Á morgun er stofndagur ihaldsflokksins árið 1924 og stofndagur Sjó- mannasambands íslands árið 1957. MÁLSTOFA í guðfræði verður nk. þriðjudag, 25. þ.m. Dr. Páll Skúlason prófessor fiytur fyrirlestur sem hann nefnir: Kirkjan og heimsmynd nútímans. Málstofan verður haldin í Skólabæ, Suðurgötu 26 og hefst kl. 16. SYSLUMANNSEMBÆTTI. í nýju Lögbirtingablaði aug- lýsir dóms- og kirkjumála- ráðuneytið laus tvö sýslu- mannsembætti. Núverandi yfíi-vaid í Hafnarfírði og Vest- mannaeyjum hverfa að öðrum störfum í dómskerfínu í sum- ar, er ný lög um dómsvaldið í landinu taka gildi. Þá verður sýslumaður í Vestmannaeyj- um, sem ekki hefur verið áð- ur. Sýslumannsembættið í Hafnarfirði breytist þannig að bæjarfógetastörfín heyra því ekki lengur til. Umsóknar- frestur um embættin er til 13. mars nk. Frá 1. júlí verða bæði embætin veitt. Forsetinn veitir þau. FRÆÐSLUFUND heldur Hið ísl. náttúrufræðifélag annaðkvöld, mánudag 24. þ.m., í stofu 101 í Odda Há- skólans kl. 20.30. Dr. Ágúst H. Bjamason flytur erindi sem hann nefnir „Landnám gróðurs á Hekluhraunum". Hann mun koma víða við í erindinu. Á Heklusvæðinu, sem athuganimar á gróður- fari ná yfír hafa orðið 20 eld- gos, en athuganirnar ná til 13 þeirra. Dr. Ágúst hefur einnig rannsakað nokkuð myndum jarðvegs og eyðingu. Uppblástur á Heklusvæðinu hefur sennilega hafist fyrir nokkrum hundruðum ára e_ða um 1500. Fyrirlestrar HÍN em öllum opnir. KVENSTÚDENTAFÉL. ÍSLANDS OG Fél. ísl. há- skólakvenna halda aðalfund nk. fímmtudag kl. 20 í Þing- hóli, Hótel Holti. Tuttugu og fímm ára stúdínur frá MA annast skemmtidagskrá. Léttar veitingar verða bomar fram. BARNADEILDIN Heilsu- vemdarstöðinni við Baronstíg hefur opið hús nk. þriðjudag 25. þ.m. kl. 15—16, opið hús fyrir foreldra ungra bama. Þar verður rætt um tónlistar- uppeldi barna. Lilja Hjalta- dóttir fjallar um það efni. LÁRÉTT: — 1 sundfuglar, 5 kalt, 8 viðbit, 9 báran, 11 spilið, 14 gljúfur, 15 geti, 16 mólendið, 17 sefa, 19 nísk, 21 kvenmannsnafns, 22 koma nær, 25 húsdýra, 26 forfeður, 27 skyldmennis. LÓÐRÉTT: - 2 fískur, 3 áa, 4 efast um, 5 sagt um kýr, 6 skynsemi, 7 fugl, 9 dagatal, 10 skútuna, 12 haldgóða, 13 konuna, 18 gerjum, 20 leyf- ist, 21 spil, 23 sjór, 24 ending. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: — 1 spekt, 5 slaga, 8 rusta, 9 strák, 11 ágætt, 14 tel, 15 aftra, 16 meiða, 17 róa, 19 alin, 21 angs, 22 ná/nunda, 25 sog, 26 áma, 27 rýr. LÓÐRÉTT: — 2 pat, 3 krá, 4 tuktar, 5 stálma, 6 lag, 7 get, 9 spaðaás, 10 ritling, 12 æfingar, 13 trassar, 18 ólum, 20 ná, 21 AD, 23 má, 24 Na. ____ Ósœmilegt TJP" oröbragð viðhaft um forsœtisráöherra „Petta sýnir skítlegt eðli for- sætisráðherra," sagði Ólafur ! /, Ragnar Grímsson í hörðum um- ''/ ræðum sem spunnust á Alþingi í gær. Þú ert rekinn. Þú verður framvegis að Iáta þér nægja að gjamma hérna utan dyra ómyndin þín ...! Þessir krakkar héldu hlutaveltu til ágóða fyrir Blindra- fél. og söfnuðu um 1880 krónum til félagsins. Þeir heita Kristín Helgadóttir, Sólveig Björnsdóttir, Jóhanna Berg- steinsdóttir og Valur Ægisson. KVENFÉL. Kópavogs efnir til vinnukvölds annaðkvöld, mánudagskvöld kl. 20 í fé- lagsheimili bæjarins. Unnið verður við ungbarnaföt fyrir Rauða krossinn. FÉL: eldri borgara. í dag verður spiluð félagsvist í Ris- inu kl. 14. í kvöld kl. 20 verð- ur dansað í Goðheimum. Mánudag er opið hús í Risinu kl. 13—17. Næstkomandi þriðjudag 25. þ.m. er skálda- kynning í Risinu kl. 15. Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup mun þá segja frá sr. Hallgrími Péturssyni. HÚSFRIÐUNARNEFND tilk. í Lögbirtingi að umsókn- arfrestur um styrki úr hinum svonefnda húsfriðunarsjóði sé til 15. næsta mánaðar. Sjóð- urinn veitir styrki til viðhalds og endurbóta á friðuðum hús- um og húsum sem hafa menn- ingarsögulegt- og listrænt gildi, segir m.a. í þessari tilk. nefndarinnar og til bygging- arsögulegra rannsókna. Nefndin hefur aðsetur í Pjóð- minjasafninu. VÖFFLUKAFFI, söngur og danssýning verður í dag kl. 15 í Domus Medica. Það er Skagfirska söngsveitin sem stendur fyrir þessari uppá- kkomu til fjáröflunar fyrir sveitina. LÆTUR AF embætti. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið tilk. í Lögbirtingi að hinn 1. apríl næstkomandi muni Sigurði Sveinssyni borgarfógetá verða veitt lausn frá emb- ætti, að eigin ósk. MÍGRENSAMTÖKIN halda fund annaðkvöld, mánudags- kvöld kl. 20.30 í Bjarkarási, Stjömugróf 9, Rvík. Gestur fundarins verður Ingólfur S. Sveinsson geðlæknir. Hann ætlar að tala um streitu- stjórnun og höfuðverki. AKSTURSGJALD í akstur- samningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnanna var tilk. fyrir nokkru í Lögbirtingi breyting sem tók gildi hinn 1. febrúar. Greitt er sam- kvæmt þrem mismunandi stöðlum: almennt gjald, sérs- takt gjald, torfærugjald. Greitt er miðað við ekna kfló- metra í hveijum flokki og er almenna gjaldið lægst en tor- færugjaldið hæst að sjálf- sögðu. VÍNSKÓLINN HF. er fyrir- tæki sem starfar í Rvík og stofnun þess tilk. hlutafélaga- skrá. Heimili Vínskólans er á Þönglabakka 6 og segir í tilk. að tilgangur hlutafélagsins kringum skólann sé að standa fyrir kennslu, námskeiðahaldi og ráðgjöf um vín, vínsmökk- un, meðferð vína m.a. Hlutafé er 500.000 kr. og em stofn- endur Einar Thoroddsen og Börkur Aðalsteinsson. SILFURLÍNAN s. 616262, þjónusta við eldri borgara virka daga kl. 16—18, t.d. versla með smá viðhaldsvinnu o.fl.__________________ LÆKNAR. í tilk. frá heil- brigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu í Lögbirtinga- blaðinu segir að þessir læknar hafí hlotið starfsleyfi til að stunda hérlendis almennar lækningar: Baldur B. Thorst- ensen, Gísli Jónsson, Sigur- björg Stefánsdóttir og Krist- ján Oskarsson. HARMONIKKUDAGUR. Harmonikkufélag Reykja- víkur er í dag. Félagið efnir til tónleika í Tónabæ kl. 15. Þar mun stórsveit félagsins leika, nær 40 harmonikkur. Síðan leika einleikarar. Kaffiveitingar. HAFRANNSÓKNA- STOFNUNIN hefur skv. tilk. frá siglingamálastjóra, í Lög- birtingi fengið_ einkarétt á skipsnafninu Árni Friðriks- son. JÓLAKORTAHAPP- DRÆTTI. Dregið hefur verið í jólakortahappdrætti Styrkt- arfél. vangefínna. Eftirtalin númer hlutu vinning: 4243 - 3973 - 129 og 1723. Vinn- inga skal vitja í skrifstofu félagsins Háteigsvegi 6, Rvík. KIRKJUSTARF GRENSÁSKIRKJA: Æsku- lýðsfundur í kvöld kl. 20. HALLGRÍMSKIRKJA: Fundur í Æskulýðsfélaginu Örk mánudagskvöld kl. 20. HÁTEIGSKIRKJA: Fundur í æskulýðsfélaginu í kvöld kl. 20. Starf fyrir 10—11 ára mánudag kl. 17.30. Starf fyr- ir 12 ára mánudag kl. 19.30. Biblíulestur mánudagskvöld kl. 21. LAUGRNESKIRKJA: Æskulýðsfundur í kvöld kl. 20. NESKIRKJA: Æskulýðs- fundur kl. 20 mánudagskvöld. SELTJARNARNES- KIRKJA: Fundur í æskulýðs- félaginu í kvöld kl. 20.30. 10—12 ára starf mánudag kl. 17.30. ÁRBÆJARKIRKJA: For- eldrarmorgnar þriðjudaga kl. 10—12. Starf aldraðra: Leik- fími þriðjudag kl. 13.30. FÉLLA- og Hólakirkja: Mánudag: Fyrirbænir í kirkj- unni kl. 18. Starf fyrir 11—12 ára börn kl. 18. Fundur í æskulýðsfélaginu mánudags- kvöld kl. 20.30. Söngur, leik- ir, helgistund. SELJAKIRKJA: Mánudag: Fundur hjá KFUK, yngri deild kl. 18, eldri deild kl. 18.30. Opið hús hjá æskulýðsfélag- inu SELA kl. 20. Helgistund. ÁHEITT OG GJAFIR ÁHEIT á Strandarkirkju. Afhent Morgunblaðinu: Guðný Jónasdóttir 5000, S.H.G. 1000, Ester Guð- inundsdóttir 1000, B.J. 4000, J. G. 1000, Muggur 1000, M. K. 1000, P.G. 2000, Gísli Jóhannesson (sjómaður)lOOO, K. G. 2000, S.V.K. 500, Björg 2000, H.D. 1500, Jón 1000, Þ.G. 500, Amma 1000, S.J.M. 1000, R.R.J. 3000, R.B. 2000, J.S. 1000, Sigrún og E.L. 2000, J.V. 2000, Gulla 2000, A.G. 1500, L.S. 500, G.R.A. 5000, Svava 200, Guðfinna 1000, A.A. 1000, S.F. 1600, Erla 5000, nafnlaus 6000, Áslaut 1000, K.Þ. 2000, H.V. 3000, N.N. 1000, M.H. 1000, N. N. 200, Þ.J. 10.000, EK 17 10.000, N.N. 5.500, N.N. 2000. 1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.