Morgunblaðið - 23.02.1992, Qupperneq 27
AUGLYSINGAR
Afgreiðslustarf
Tvö hlutastörf í metravöru:
1. Eftir hádegi.
2. Frá kl. 11.00 til 18.00.
Nánari upplýsingar í síma 687477 á
verslunartíma og 75960 þess utan.
VIRKA
Faxafeni 12.
RÍKISSPÍTALAR
Reyklaus vinnustaður
LANDSPITALINN
BÆKLUNARLÆKNINGADEILD
Traustur og duglegur
lögmaður óskast sem meðeigandi að vel
rekinni fasteignasölu í borginni með langa
starfsreynslu. Aðallega til almennra lög-
fræði- og innheimtustarfa. Fjárframlag eftir
samkomulagi. Góð starfsaðstaða.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
kl. 17.00 fimmtudaginn 27. þessa mánaðar
merkt: „Trúnaðarmál - 14880“.
Viðskiptafulltrúi
Stórt innflutningsfyrirtæki óskar að ráða við-
skipta- eða tæknimenntaðan mann til stjórn-
unarstarfa við innkaup og samningagerðir.
Góð enskukunnátta naðuðsynleg og starfs-
reynsla æskileg.
Umsóknir merktar: „Framtíð - 7486“ sendast
auglýsingadeild Mbl. fyrir 29. febrúar.
Fóstrur - fóstrur
Fóstra
Deildarfóstra óskast á leikskólann Fögru-
brekku á Seltjarnarnesi.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri
ísíma 611375.
Umbrot á
Pagemaker - skeyting
Óskum eftir að ráða vanan umbrotsmann
(tölvuumbrot) og skeytingamann.
Upplýsingar gefur Erlingur Einarsson
í síma 689938.
Apótek
Lyfjatæknir eða manneskja, vön apóteks-
störfum, óskast til starfa í apóteki í Reykjavík
hálfan eða allan daginn.
Umsóknir, með upplýsingum um starfs-
reynslu, óskast sendar auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Apótek - 7487“.
YFIRLÆKNISSTAÐA
Staða yfirlæknis við bæklunarlækningadeild
Landspítalans er laus til umsóknar. Veitist
frá og með 01.07.92.
Umsækjendur þurfa að hafa sérfræðiviður-
kenningu í bæklunarskurðlækningum á ís-
landi.
Umsóknum skai fylgja greinargerð um nám
og fyrri störf (curriculum vitae). Einnig upp-
lýsingar um vísindalegar rannsóknir og rit-
skrár. Umsóknir sendist stjórnarnefnd
Ríkisspítala, Rauðarárstíg 31, 105 Reykjavík,
fyrir 15. april 1992.
Nánari upplýsingar veitir dr. Stefán Haralds-
son, yfirlæknir, eða forstjóri Ríkisspítala.
SÉRFRÆÐINGUR í
BÆKLUNARSKURÐLÆKNINGUM
Laus er til umsóknar staða sérfræðings
(100%) í bæklunarskurðlækningum við bækl-
unarlækningadeild Landspítalans. Þess er
sérstaklega óskað að umsækjandi sjái um
bæklunaraðgerðir á börnum. Staða þessi er
laus frá 01.04.92.
Umsækjandi skal hafa sérfræðiviðurkenn-
ingu í bæklunarskurðlækningum á íslandi.
Umsóknum skal fylgja greinargerð um nám
og fyrri störf (curriculum vitae). Einnig upp-
lýsingar um vísindalegar rannsóknir og rit-
skrár. Umsóknir sendist stjórnarnefnd
Ríkisspítala, Rauðarárstíg 31, 105 Reykjavík,
fyrir 15. april 1992.
Nánari upplýsingar veitir Dr. Stefán Haralds-
son, yfirlæknir.
RÍKISSPÍTALAR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi
um land allt, einkum á höfuðborgarsvæöinu. Sem háskólasjúkrahús beitir
stofnunin sér fyrir markvissri meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstótta
og fjölbreyttri rannsóknastarfsemi. Okkur er annt um velferö allra þeirra,
sem við störfum fyrir og með, og leggjum megináherslu á þekkingu,
kærleik og virðingu fyrir einstaklingnum. Starfsemi Ríkisspítala er helguð
þjónustu við almenning og við höfum ávallt gæði þjónustunnar, gagn
hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.
Okkur á Ósi vantar fóstru í fast starf frá
15. maí nk. Barnaheimilið Ós er lítill heimilis-
legur leikskóli við Bergþórugötuna, rekinn
af foreldrum. Þar dvelst 21 barn, 4 starfs-
menn og matráðskona.
Nánari upplýsingar gefur leikskólastjóri í
síma 23277 á daginn. Á kvöldin Hulda í síma
35528 og Gísli í síma 611061.
Laus störf
★ Verslunarfyrirtæki (28). Sérhæft ritara-
starf. Krafist er góðrar tölvuþekkingar og
getu til að vera leiðandi í notkun á ýmsum
tölvukerfum sem fyrirtækið notar. Áhuga-
vert framtíðarstarf, sem tekur sífelldum
breytingum eftir getu viðkomandi.
★ Þjónustufyrirtæki (62). Ritarastarf. Vinn-
utími eftir hádegi. Ritvinnsla, símsvörun
o.fl. Tungumálakunnátta.
★ Útflutningsfyrirtæki (61). Ritarastarf.
Vinnutími eftir hádegi. Vinna við útflutn-
ingsskjöl o.fl. Enskukunnátta.
★ Sérverslun (47). Vönduð verslun, sem
selur varning fyrir börn. Vinnutími kl. 9-18
fimm daga vikunnar. •
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., Skeifunni
19, á eyðublöðum sem liggja frammi á skrif-
stofu okkar merktar númeri viðkomandi
starfs.
Hasva ngurhf
Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 8136Ó6 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Menningardeild
Franska sendiráðsins
óskar eftir að ráða ritara frá og með 15/4 nk.
Umsækjandi þarf að hafa fuilkomið vald á
íslensku, ensku og gott vald á frönsku. Reynsla
af háskólanámi í Frakklandi er æskileg.
Upplýsingar veitir menningardeildin í símum
625513 og 625561 frá kl. 9-15.
Tölvusamskipti hf. er hugbúnaðarfyritæki
sem framleiðir og markaðssetur tölvufaxkerf-
ið Skjáfax fyrir íslenskan markað og Traffic
Manager fyrir erlendan markað. Við bjóðum
áhugaverð störf í vaxandi fyrirtæki og auglýs-
um eftir starfskröfutum í eftirtalin störf.:
Sala og kynning hugbúnaðar
Viðkomandi þarf að hafa þekkingu á
Windows og staðarnetum. Hafa gott valda
á enskri tungu og vera tilbúin/n til söluferða
erlendis og hérlendis. Háskólanám/lang-
skólanám áskilið.
Þjónusta og forritun
Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu á
staðarnetum, Windows, forritunarmálinu C
og C++ og hafa reynslu ú forritun fyrir
Windows eða OS/2.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem
fyrst. Skriflegar umsóknir skulu sendar til:
Tölvusamskipta hf., Skipholti 50c, pósthólf
5114, 125 Reykjavík.
Farið verður með allar umsóknir sem trún-
aðarmál. Öllum umsóknum verður svarað.