Morgunblaðið - 17.05.1992, Qupperneq 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1992
2. STIGS REIKINÁMSKEIÐ
verður haldið í Þverholti 24, R., 5. hæð,
kvöldin 19., 20. og 21. maí.
Upplýsingar og skráning í síma 628242.
Einkatímar - námskeið.
Margrét Valgerðardóttir, reikimeistari.
V______________________________________/
ELANGYL l
MP24 . VA-'M
\W
Conccnfró
double
porfonnanca
poor b iíKow?no
Body profiling
concentralo
Y)5fl/N«<Wf 44007. \
CELLULITE BURT
Mjúk og heilbrigð húð með MP24.
Fæst í apótekum og snyrtivöruverslunum um allt land.
Til frambúdar
SiBA þakrennur
Litir:
Hvítt, svart,
rautt, brúnt
Sænsk
gæða
framleiðsla
Galvanhúðað stál gefur styrkinn og litað
plasthúðað yfirborð ver gegn ryði og tæringu.
Fagmenn okkar veita ráðleggingar. Hagstætt verð.
Sölu- og þjónustuaöilar:
Blikksmiöjan Funi sf., Smiðjuvegi 28, Kóp. S. 91-78733
Blikksmiðjan Vík hf., Smiðjuvegi 18c, Kóp. S. 91-71580
Blikksmiðja Einars sf., Smiöjuvegi 4b, Kóp. S. 91-71100
Blikksmiöjan Höfði, Eldshöföa 9, Rvk. S.686212
Borgarblikksmiðjan hf., Álafossvegi 23, Mosfellsb. S. 91-668070
Stjörnublikk hf., Smiöjuvegi 1, Kóp. S. 91-641144
Blikkás hf., Skeljabrekku 4, Kóp. S. 91-44040
Blikksmiðja Erlendar, Hnifsdalsvegi 27. ísaf. S. 94-4488
Blikkrós hf., Hjalteyrargötu 6, Akureyri. S. 96-27770
Blikk og bílar, Túngötu 7, Fáskrúösfiröi. S. 97-51108
Blikk hf., Gagnheiöi 23, Selfossi. S. 98-22040
Blíkksmiöja Agústs Guðjónssonar, Vesturbraut 14, Keflav. S. 92-1243
Blikksmiðjan Eintækni, Bygggöröum 4, Seltjarnesi. S. 91-611665.
Bllkksmlð)an sf.f lönbúö 3, 210 Garöabæ, sími 46711.
BJIkkvark, Ægisbraut 23, Akranesi, sími 93-11075.
Gytfl Konróðsson hf., Vagnhöfða 7, Reykjavík, sími 91-674222.
Vélaverkstaaól Björns og Krlstjóns, Reyöarfiröi, sími 97-41271.
ÍSVÖR
BVGGINGAREFNI
Dalvegur 20. Box 435 202 Kóp. Simi 641255, Fax 641266
KAUPMANNAHAFNARBRÉF
Hófdrykkja
eða heldrykkja
UM DAGINN var skýrt frá því að æ fleiri Danir
féllu fyrir Bakkusi, nefnilega drykkju sig í hel.
Þess utan er bent á að fjöldinn allur af öðrum sjúk-
dómum eigi rætur að rekja til of mikillar áfengis-
neyslu. Sem íbúi í Danmörku er erfitt að koma
auga á ofdrykkju, pað er sjaldgæft að sjá drukkið
fólk á ferli, nema helst í kringum skuggalegar
knæpur eða róna niður við Nýhöfn, en það er hins
vegar auðvelt að koma auga á drykkju. Danir fara
býsna mikið öðru vísi að við drykkju en íslendingar
og það kemur íslendingi oft á óvart að sjá áfengi
drukkið við tækifæri, þar sem aldrei myndi hvarfla
að vel flestum landa að draga tappa úr flösku.
Ég hélt að ég hefði sæmilega afslappaða afstöðu
til áfengisneyslu, en eftir kynni mín af drykkjusið-
um hér, verð ég að viðurkenna að ég hef oft orðið
undrandi að sjá hvað Danir eru ófeimnir við að
drekka. Það hefur uni leið runnið upp fyrir mér
að áfengisneysla er næstum eins og feimnismál á
íslandi. Þar eru nefnilega aðeins örfá tækifæri tal-
in gjaldgeng sem ástæða að fá sér í glas.
I fyrsta skiptið, sem ég rak upp stór augu yfir
drykkjusiðum hér og hugleiddi muninn á þeim og
á Islandi, var þegar ég sá viðræðuþátt í sjónvarp-
inu fyrir nokkrum árum. Þarna sátu fjórir eða fimm
virðulegir, rosknir menn í kringum borð og rifjuðu
upp liðna tíma. Hver þeirra hafði kaffibolla fyrir
framan sig ... og koníaksglas. Skyldi símaborðið
ekki brenna yfir af upphringingum hneykslaðra
áhorfenda, ef svona nokkuð sæist á íslandi? Kannski
ekki lengur.
í kvikmyndakynningarþætti ríkissjónvarpsins
danska stendur kynnirinn við borð og segir frá
væntanlegum bíómyndum. Á borðinu stendur iðu-
lega rauðvínsglas. Um tíma bjó ég í raðhúsahverfi
nálægt miðborg Kaupmannahafnar. Frá því á vorin
og fram á haust, snæddu íbúarnir oft við borð úti
á götu. Hjá nokkrum fjölskyldum var borðhaldið
suðrænt, þannig að það var alltaf vín með matnum.
Hjá sumum nágrönnum mínum var vínglasið eins
og eðlilegt framlenging handleggsins. Bjór sjást
sjaldnar. Þarna bjuggu læknar, háskólakennarar
og arkitektar og annað hvert hús hafði verið mynd-
að fyrir híbýlatímarit og kvennablöð.
Þegar fór að hlýna í veðri fyrsta vorið mitt hér,
fór leikskóli yngsta sonar míns í garðferð. Foreldr-
ar og börn hittust í skemmtigarði nokkrum um
hádegisleyti á laugardegi. Allir áttu að koma með
eitthvað matarkyns og svo drykkjarföng. I ein-
feldni minni tók ég með gosdrykki og ávaxtasafa
handa börnunum, sódavatn handa mér. Ég rak upp
stór augu að sjá hina draga upp hvítvíns- og rauð-
vínsflöskur úr sínum nestiskörfum. Þarna var svo
setið fram eftir degi, vínið sötrað, maturinn snædd-
ur og leikið við börnin. Það sá ekki áfengi á nokkr-
um manni. Áfengi var gert útlægt úr íslenskum
fermingarveislum fyrir nokkrum áratugum. í dönsk-
um fermingarveislum er oftast boðið upp á borðvín.
Á foreldrafundum í skólunum, fundum þegar
allir foreldrar hittast að kvöldi til, ásamt kennaran-
um og ræða skóla- og bekkjarmál, er alltaf hægt
að kaupa gos, sódavatn og bjór. Á sameiginlegum
skemmtunum foreldra og barna koma fjölskyldunar
annað hvort með vín og gos með sér, eða geta
keypt gosflöskur og glös af víni á staðnum. Á
skólabingóinu rétt fyrir jólin voru verðlaunin endur
og rauðvínsflöskur.
Svo kom að skógarferð með átta ára bekknum.
Þá átti líka að taka með sér nesti og drykkjarföng.
Nú var ég ekki lengur undrandi að sjá vínflöskurn-
ar teknar upp úr nestiskörfunum, um leið og gos-
flöskur barnanna. Framtakssöm móðir hafði auk
þess með sér snapsflösku, útbýtti litlum plaststaup-
um og svo fengu allir snapsslurk.
Snapsdrykkjan er kapítuli út af fyrir sig. Snaps-
inn er hefðbundinn drykkur með síldarréttum, auk
bjórsins, en tækifærin eru fleiri. Blaðamannafundir
á morgnana bytja oft með snaps og rúnstykkjum.
Sama er að segja um fundi í fyrirtækjum og ráðu-
neytum. Þetta á þó varla við um fasta fundi starfs-
fólks, heldur þegar gesti ber að garði. Auðvitað er
boðið upp á bæði léttvín og bjór á hádegisfundum,
en það eru líka margir, sem láta sér nægja sóda-
vatnið við slík tækifæri.
Það er oft sagt að áfengisdrykkja sé stéttaskipt
hér. Verkamenn og iðnaðarmenn drekki bjór,
mennta- og fjármálamenn vín. Vísast er eitthvað til
í þessu, en bjórinn er samt nærri þjóðardrykkur.
Upplýstir gestir Konunglega leikhússins drekka
bjór í hléum, auk léttvínsins og sama er með gesti
á klassískum tónleikum, því auðvitað er alltaf hægt
að kaupa úrval áfengis við slík tækifæri, að
ógleymdum kvikmyndahúsunum. Á útihátíðum flýt-
ur allt í bjór. Það er óþarfi að minna á að áfengi,
bæði vín og brenndir drykkir, er selt í matvörubúð-
um, oft á lágu verði í íslenskum augum.
Undanfarna mánuði hefur athygli beinst að
drykkju lækna, því það hefur nokkrum sinnum
komið fyrir að læknar hafa verið klagaðir fyrir að
vera drukknir við störf sín. Engan langar til að
leggjast undir hnífinn hjá lækni, sem kemur slag-
andi og drafandi inn, svo það er skilningur á að
slíkt geti ekki gengið lengur. En fáir mega heyra
nefnt að það verði bannað að selja vín og bjór á
sjúkrahúsunum, þar sem bæði sjúklingar og starfs-
fólk geti keypt þessa drykki.
Danir hafa lengi vel ekki viljað gera mikið úr
því að þeir ættu við áfengisvandamál að stríða.
Hér hefur verið lítil umræða um bakhliðina á nota-
legheitunum, sem felast í því að sitja með vín- og
bjórglas. Undanfarið hafa æ fleiri stórfyrirtæki og
vinnustaðir tekið þessi mál upp og hafið virka bar-
áttu og fræðslu innan sinna vébanda, meðal annars
fyrir áhrif frá umræðu um áfengisvanda lækna.
En það er örugglega langt og strangt starf fyrir
höndum. Það þykir svo sjálfsagt að hafa vín um
hönd við hin ýmsu tækifæri. Danir eiga erfítt með
að átta sig á að dijúgur hópur landa þeirra stundi
heldrykkju í stað hófdrykkju.
Sigrún Davíðsdóttir
fomhiólp
Samhjálparsamkoma verður í Fíladelfíukirkjunni í dag kl. 16.30.
Fjölbreytt dagskrá að vanda. Mikill söngur og margir vitnisburð-
ir. Samhjálparkórinn tekur lagið. Söngtríóið Beyskar jurtir syng-
ur. Ræðumaður Óli Ágústsson. Allir hjartanlega velkomnir.
Samhjálp.
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
REYKIALUNDUR
- MEÐ VATNIÐ A HREINU!