Morgunblaðið - 14.06.1992, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992 C 3
Finnur Gærdbo skipstjóri í brúnni á Kristni.
1 LÚKARSAGA
' jm | Hvað kostar
• - 1 ' m\ ' svo þessi
þjónusta?
Á ALÞJÓÐA fiskveiðisýninguna í Bella Center í Kaupmannahöfn í maimánuði komu margir íslend- ingar. F.inn gestanna var Þórar- inn Sigurðsson í Vestmannaeyj- um, Tóti rafvirki, forseti Hrek-
kjalómafélagsins. Eitt kvöldið á
Æm' ‘SM -v W: hótelherbergi sínu var hann að
> glugga í blöð og sér þá auglýs-
ingu frá Escort, eins konar heim-
■ ilishjálp kvenna í yngri kantin-
um. Tóti hringir og hress ung
stúlka svarar. Tóti spyr hvað sé
boðið upp á. Jú, við sendum stúlk-
ur á hótelherbergi ef vill til
■ skrafs og ráðagerða, svarar
stúlkan. Eru þær litaðar, spyr
Tóti en því er svarað neitandi
og lögð áhersla á að allar stúlk-
urnar séu orginal skandinavísk- ar. Hvað kostar svo þetta, spyr Tóti. Það kostar 1.400 kr. fyrsti klukkutíminn, 900 kr. danskar annar klukkutíminn og 600 kr. þriðji klukkutiminn, svarar stúlkan í Escort. Þá verður löng þögn í simanum og Tóti segir síðan: Gæti ég fengið keyptan þriðja klukkutímann. Snarlega
~ styttist í samtalinu, en þegar Guðrún kona Tóta, sem einnig var í hótelherberginu, heyrði hvað málið snerist um, sagði hún ofurhægt: Tóti minn, það hefði nú verið nóg fyrir þig að biðja um 15 mínútur af þriðja klukku- tímanum. Þegar ég hringdi síðan í Tóta úti í Vestmannaeyjum sl. fimmtudag til þess að spyija hvernig Escort væri skrifað, svaraði hann um hæl: Bíddu ég
er hérna með Copenhagen News.
r., *^n*^*í fwg, gwiÉÞsJ, * ^flHMMÉMHHiBBB FLEIRI LÚKARSÖGUR
I Á NÆSTU SÍÐU.
m%máim^'«^£23851 h
Svifið við borðstokkinn.