Morgunblaðið - 14.06.1992, Blaðsíða 28
28 C
MORGUNBLAÐIÐ SUMNUDAGUR 14: JÚNÍ 1992
Nokkrum dögum eftir fæðingu Haraldar prins. Með á myndinni er Elísabet II Bretadrottning og Drottningamóðirin.
Um fátt annað hef-
ur verið talað í
breskum íjölmiðl-
um að undanförnu
en hjónaband Dí-
önu prinsessu og
Karls Bretaprins.
Diana baðar sig á Bahamaeyj-
um komin fimm mánuði á leið
með Vilhjálm. Hermt er að
drottningin hafi orðið æf þegar
hún sá þessa mynd.
Somantekt: Jóhonna Ingvorsdóttir.
HÚN er óhamingjusöm í hjónabandinu. Hún þjáist af alvarlegum
megrunarsjúkdómi, sem sérfræðingar kalla „bulimia nervosa“.
Hún hefur fimm sinnum reynt að stytta sér aldur síðan hún gift-
ist inn í bresku konungsfjölskylduna fyrir réttum ellefu árum.
Hún hefur gert örvæntingafullar tilraunir til þess að hrópa á
hjálp. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ævisögu um Díönu
prinsessu sem væntanleg er á markaðinn. Bókin ber titilinn „Diana:
Her true Story“. Höfundurinn er Andrew nokkur Morton, fyrrum
blaðamaður Daily Star og News ofthe World, en hans sérsvið
var einmitt breska konungsfjölskyldan.
Milljónir manna fylgd-
ust með því í beinni
útsendingu er Karl
Bretaprins gekk að
eiga Díönu Spencer hinn 9. júlí
1981. í slúðurdálkum hefur almúg-
inn fengið reglulegar fréttir 'af
hjónabandinu. Og nú er svo komið
að virt bresk blöð leggja forsíður
sínar undir samband ríkisarfanna
og hugsanlegan skilnað þeirra.
Breska pressan hefur harðlega ver-
ið gagniýnd fyrir óvandaðan frét-
taflutning enda hefur ímynd bresku
konungsfjölskyldunnar beðið tölu-
verðan hnekki vegna þessa máls.
Getum hefur verið leitt að því að
Díana hafí haft samvinnu við Mor-
ton þegar bókin var skrifuð. Tals-
menn konungsfjölskyldunnar segja
á hinn bóginn slíkt vera fjarri sanni.
í bókinni er nákvæmlega greint
frá veikindum Díönu og líðan við
hin ýmsu tækifæri, samskiptum
þeirra hjóna og þungunum Díönu,
en fram kemur að mikil ógleði og
vanlíðan hafí fylgt henni á meðan
hún gekk með syni sína tvo. Vil-
hjálmur er fæddur 21. júní 1981
og Haraldur þann 15. september
1984. Þá er Díana sögð vera afar
afbrýðisöm út í gamla vinkonu
Karls, Camillu Parker-Bowles.
Jafnframt að Karl hafí misst áhuga
á konu sinni og umgangist aðrar
konur æ meir. Karli er lýst sem
kaldrifuðum og tilfínningalausum
eiginmanni.
Morton segir í bók sinni að Díana
hafi fyrst reynt að binda endi á líf
sitt í byijun janúar 1982 á
Sandringham-býli fíölskyldunnar,
aðeins sex mánuðum eftir brúð-
kaup aldarinnar, eins og sumir
kjósa að kalla það. Þá var hún
komin þijá mánuði á leið með fyrra
bam þeirra hjóna, William prins.
Hann segir ennfremur að engin
sjálfsmorðstilraunanna hafí verið
þess eðlis að hún hafí raunverulega
viljað enda líf sitt: Hún hafí aðeins
verið að hrópa á hjálp. Um hafi
verið að ræða algjöra örvæntingu,
er haft eftir James Gilbey, 36 ára
gömlum kaupsýslumanni, sem
þekkt hefur Díönu frá 17 ára aldri.
Prinsessan, sem þá var aðeins tví-
tug, hótaði sjálfsmorði fengi hún
ekki hjálp og stuðning frá eigin-
manni sínum enda hvíldu á hennar
herðum miklar skyldur. Karl er
sagður hafa látið hótanir eiginkonu
sinnar sem vind um eyru þjóta svo
Díana gerði alvöru úr hótuninni og
henti sér niður stiga þar sem
Drottningamóðirin kom að henni.
Læknar komust brátt að því að
ekkert amaði að fóstrinu.
Önnur tilraun er sögð hafa átt
sér stað á heimili þeirra hjóna í
London, Kensington-höll. Þar á
prinsessan að hafa kastað sér á
Andrew Morton, höfundur bók-
arinnar „Diana: Her true
Story“
Kappinauturinn Camilla Par-
ker-Bowles. Fram kemur í bók-
inni að enga konu óttist Díana
meira en æskuást Karls.
Díana að niðurlotum komin
eftir heimsókn til Wales,
en skæður megrunarsjúk-
dómur er sagður hijá
hana.
glerskáp. I þriðja sinn hafði hún
skorið sig á púls með rakvélablaði
og síðar er hún sögð hafa stungið
í bijóst sér og læri með hnífi og
skorið sig með sítrónuhnífí. í bók-
inni er haft eftir einni bestu vin-
konu Díönu og fyrrum sambýlis-
konu, Carolyn Bartholomew: „Hún
er ekki hamingjusöm í dag þrátt
fyrir að hún hafí einu sinni verið
það. Mín eina von er sú að hún
fínni hamingjuna sem hún á svo
sannarlega skilið."
Rétt fyrir brúðkaup þeirra hjóna,
komst
Díana yfir gjöf,
sem ætluð var Camillu frá
Karli, fyrrum vinkonu hans. Gjöfin
hafði að geyma armband þar sem
áletruð höfðu verið „gælunöfn",
sem þau notuðu sín í milli „Fred
og Gladys“. Díana er sögð hafa
rætt það við systur sínar, yfir há-
degisverði í Buckingham-höll,
hvort ekki væri ráð að hætta við
brúðkaupið.
Skömmu eftir brúðkaupið, sigldu
skyldurnar í kjölfarið. Hún uppgöt-
vaði leyndardóm konungdómsins.
Það var sama hversu vel hún reyndi
og hversu vel hún gerði, hún fékk
aldrei neitt hrós fyrir vikið, hvorki
frá manni sínum né öðrum meðlim-
um konungsfjölskyldunnar.
I þeirri stöðu, sem hún var í, hefði
klapp á bakið, virkað sem krafta-
verk, segir í bókinni.
Ekki eru menn á eitt sáttir um
trúverðugleika bókarinnar. Þannig
dregur hið virta tímarit The Spect-
ator sannleiksgildi bókarinnar
mjög í efa í grein fyrir skömmu.
BÍaðið bendir á að Morton sé jafn-
framt höfundur „Diana’s Diary“ -
bókar sem kom út 1990. Þar kæmi
fram að Karl og Díana hafi ræktað
með sér vingjarnlegt samband þó
þau ættu sér ólík áhugamál og
umgengjust ekki sömu vinina.
Undarlegt væri að aðeins 20 mán-
uðum síðar kæmi út önnur bók
eftir sama höfund, sem hefði að
geyma allt aðrar staðhæfingar en
fyrri bókin.
Ymsir hafa af því áhyggjur
hvaða áhrif útkoma bókarinnar
kunni að hafa á samband Karls og
Díönu. „Staðreyndin er nefnilega
sú að ef um alvöru hjónabandserf-
iðleika er að ræða, eins og fjölmiðl-
ar hafa staðhæft, hlýtur innihald
bókarinnar að hafa áhrif á tilfínn-
ingar þeirra til hvors annars,“ seg-
ir Penny Junor, höfundur bókar
um Karl Bretaprins. Hann segir
jafnframt að Morton hafi farið yfir
strikið í þetta sinn og að fjölmiðlar
séu orðnir hluti af sögunni. En á
meðan þessu fer fram, þegja tals-
menn konungsfjölskyldunnar
þunnu hljóði.
Heimildir: The Sunday Times og
The Spectator.