Morgunblaðið - 14.06.1992, Blaðsíða 12
12 C
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992
Sálargarg
SÁLIN hefur haldið velli síðustu ár sem vinsælasta rokk-
sveit landsins og þetta ár virðist ekki ætla að breyta
neinu hvað það varðar. Á næstu dögum sendir sveitin
frá sér safnplötuna Garg, en í haust er svo væntanleg
breiðskifa með sveitinni.
*
AGargi er að finna þrjú
ný lög Sálarinnar Krók-
urinn, þar sem Pétur W.
Kristjánsson tekur lagið með
þeim félögum, Sódóma, sem
samið er fyrir kvikmynd Ósk-
ars Jónassonar, og Ekkert
breytir því. Þess má geta að
texti Króksins er byggður að
mestu á orðaforða Péturs,
sem er goðsagnakenndur í
íslenskum rokkheimi. Að
auki eru á plötunni lög sem
Sálin hefur átt á safnplötum
í gegnum árin, allt frá 1988
og fram til síðasta árs. Öll
Sálln Samtíningur og nýtt efni.
hafa lögin, Neistinn og Þig
bara þig frá 1988, 100.000
volt og Getur verið frá 1989,
Ekki og Ég er á kafi frá
1990 og Ábyggilega og
Brostið hjarta frá 1991, verið
endurhljóðblönduð og slípuð
til að mynda sem áferðar-
besta heild. Fyrir bragðið
gefa þau ágæta mynd af þró-
un tónmáls sveitarinnar þessi
íjögur ár sem hún hefur bor-
ið höfuð og herðar yfír aðrar.
Af Sálinni er annars að
frétta að framundan er
landsyfirreið sem standa
mun fram á haust, en þá
hefst vinna við breiðskífu,
sem koma á út fyrir jól.
DÆGURTONLIST
Er hœgt að selja kvikmyndatónlist f
Veggfóður
PLÖTUR með kvikmyndatónlist hafa verið
óræð stærð á markaðnum; ýmist selst í bílförm-
um eða fallið einungis í kramið lýá sérvitring-
um og spjátrungum. Ræður þar miklu hve vel
tekst að bræða saman mynd og tóna og hvort
það tekst að iáta tóniistina lifa utan hvíta tjalds-
Ingibjörg Erótík í aðsigi.
eftir Ámo
Motthlosson
ms.
Hérlend útgáfa á kvik-
myndatónlist hefur
verið mjög í skötu líki síð-
ustu ár. Þetta ár verður
þó gjöfuit fyrir tónmyndir
og
tengda
útgáfu,
því
væntan-
legar eru
hljóm-
plötur
með tón-
list úr
tveimur kvikmyndum hið
minnsta. Fyrri myndin,
Veggfóður, erótísk ástar-
saga, verður frumsýnd í
næsta mánuði, en for-
smekkur af þeirri mynd
er diskur með tónlist úr
henni sem kemur út 17.
júní
Það kennir margra
grasa á disknum, þó Pís
of keik eigi þar bróður-
partinn, en einnig eiga lög
primus motor Pís of keik,
Máni Svavarsson, Síðan
skein sól, Sálin hans Jóns
míns, Tennumar hans
afa, Geiri Sæm, Todmo-
bile, Bootlegs, Orange
Empire og Flosi ólafsson
sem syngur gamalkunnan
slagara.
Af ofangreindu má sjá
að tónlistin á Veggfóðri
Flosl Poppfól.
er býsna fjölbreytt, en níu Orange Empire, sem stíg-
lög af átján eru með Pis ur B(n fyrgtu skref á kol-
of keik og eitt eftir Mána efni( en sveitarmenn eru
einan, samanlagt
nánast breiðskífa.
Auk Mána eru í Pís
of keik Júlíus Kemp,
sem leikstýrir kvik-
myndinni, og söng-
konan Ingibjörg
Stefánsdóttir, sem
leikur aðalhlutverk-
ið. Pís of keik lét
fyrst í sér heyra á
safnplötu frá Skíf-
unni fyrir margt
löngu, en hefur ver-
ið bundin yfír mynd-
inní alllengi. Aðrar
sveitir sem lítið hef-
ur heyrst í eru Tenn-
umar hans afa, sem
þekkt er helst fyrir
dónalag sem bannað
var í útvarpi fyrir
nokkrum árum, The
ytra að koma sveitinni á
framfæri, og FIosi Ólafs-
son og Pops, en lítið hefur
heyrst í Flosa á poppsvið-
inu síðan hann hneggjaði
hressilega poppfólum til
háðungar fýrir fjölmörg-
um árum.'Það má einnig
nefna að útgáfa Bootlegs
á Pink Floyd-lummunni
Another Brick in the Wall,
er svanasöngur þessarar
geðþekku þungarokk-
sveitar, sem lagt hefur
upp laupana.
Morgunblaðið/Sverrir
Raularl Sigtryggur/Bogomil og Milljónamæringamir.
Bogomilog
milljónararnir
ÞAÐ þekkja allir Sigtrygg Baldursson sem trymbil Sykur-
molanna, en hitt vita færri að hann á sér annað sjálf sem
er raularinn Bogomil Font. Sá hefur nú sett saman hljóm-
sveit og hyggst syngja víða latin-söngva og sambajass.
S'gfrygKur segir Bogomil
hafa orðið til á bar í
Júgóslavíu. „Við vorum á
ferð þar í Sykurmolunum og
við Bragi bassaleikari sátum
oft á plussklæddum barnum
á Hotel Intercontinental i
Zagreb og þar varð nafnlaus
raulari til .Síðar fann ég
dagatal á veitingahúsi í Lubj-
ana þar sem skráðir voru
verndardýrlingar hvers dags
ársins. Dýrlingur míns af-
mælisdags hét Bogomil og
bætti ég síðar Font við í lýr-
ískum innblæstri."
Sigtryggur segir að þegar
heim til Islands var komið
eftir nýliðna Bandaríkjaför
Sykurmolanna hafí hann
ákveðið að hóa saman í
hljómsveit til að veita Bog-
omil útrás. Hann hringdi því
í æskufélaga sinn, Sigurð
Jónsson saxófónleikara sem
er hagvanur vel í Suður-
Ameríku og hefur víða leikið
þar og ferðast. Þeir fengu
síðan til liðs við sig Ástvald
Traustason píanóleikara, Úlf-
ar Haraldsson bassaleikara
og Steingrím Guðmundsson
trommuleikara. Þannig varð
til hljómsveitin Bogomil og
Milljónamæringarnir.
Sigtryggur segir að Bog-
omil eigi vísast eftir að vera
áberandi á næstu mánuðum
og allt benda til þess að hann
fari í hljóðver í haust til að
taka upp breiðskífu.
Þungarokkveisla
VARLA hefur það farið framhjá mörgum að breska þunga-
rokksveitin Iron Maiden hélt tónleika í Laugardalshöll fyrir
rúmri viku. Ekki komu nógu margir á þá tónleika, en aðstand-
endur eru ekki af baki dottnir og segjast ætla að halda fleiri
slíka
Ljóst er að allnokkuð tap
varð á tónleikunum, en
þeir sem að þeim stóðu segjast
hafa átt sjóði til að standast
slíkt. Þeir segjast Iíta á þau
útgjöld sem fjárfestingu til að
vinna aftur traust almennings
á tónleikahaldi sem þessu.
Þeir sem létu sig hafa það
að mæta á Iron Maiden voru
ekki sviknir, því þetta voru
hæglega bestu þungarokktón-
leikar síðustu ára. Eftir tónleik-
ana voru sveitarmenn sjálfír
afskaplega ánægðir með
frammistöðuna og hermdi
Bruce Dickinson að þetta væri
með bestu tónleikum sem hann
hefði tekið þátt í.
Frábært Iron Maiden fer á kostum í Höllinni.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
MNÚ styttist í Hróars-
kelduhátíðina sem
haldin verður síðustu
helgina í júní. Fyrir
stuttu voru tilkynnt síð-
ustu nöfn sveita sem
leika munu þar að þessu
sinni, en helstu sveitir
eru Nirvana, Little Vill-
age, David Byrne,
Megadeth, Extreme,
The Pogues, Faith no
More, Primal Scream,
Boogie Down Prod.,
St. Etienne, DAD, Tex-
as, Carter USM, James,
Crowded House, Teen-
age Fan Club, Pearl
Jam, The Blue Aero-
planes, The Levellers,
Television, Violent
Femmes, Blur, En-
tombed, Alison Moyet,
Nuclear Assault,
Curve, Nikola Jankov,
Phish, og Thin White
Rope. Eins og áður sagði
verður hátíðin haldin í
lok júní, nánar tiltekið
25. til 28. júní, að báð-
um dögum meðtöldum.