Morgunblaðið - 14.06.1992, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 14.06.1992, Blaðsíða 27
MORGUNBtAftffl; $AIVlSAFNIf> : M-. J.ýNÍ 19?2 f ■ „Old boys“-lið Vals 1956, sem beið ósigur fyrir gullaldarliði Skagamanna. Aftari röð frá vinstri: Albert Guðmundsson, Jón Þórarinsson, Guðbrandur Jakobsson, Garðar Halldórsson, Sigurður Ólafsson, Haf- steinn Guðmundsson og Sveinn Helgason. Fremri röð frá vinstri: Sigurhans Hjartarson, Gunnar Sigur- jónsson, Hermann Hermannsson, Guðni Sigfússon og Ellert Sölvason (Lolli). Sigursælir KR-ingar frá fyrri tíð. Aftari röð frá vinstri: Hörður Óskarsson, Haraldur Guðmundsson, Sigurður Pétursson, Ólafur Hannesson, Birgir Guðjónsson, Ari Gíslason, Hafliði Guðmundsson. Fremri röð frá vinstri: Óli B. Jónsson, Karl Karlsson, Daníel Sigurðsson, Bergur Bergsson, Anton Sigurðsson, IQartan Einarsson og Guðbjörn Jónsson. C, 27, SÍMTALIÐ . .. ER VIÐ BJARKA ELÍASSON SKÓLASTJÓRA Nýr svartbakur 628228 Lögregluskólinn. — Góðan dag, er Bjarki Elíasson við? Augnablik. Halló. — Komdu sæll Bjarki, þetta er á Morgunblaðinu, Kristín Maija Baldursdóttir. Nú er upprunnin sú stund er ungir og myndarlegir menn flykkjast út á götur borgar- innar í frægum einkennisbúningum, er það ekki? Þeir eru nú þegar farnir frá okk- ur, eða ertu að tala um sumara- fleysingamenn? — Já einmitt. Jú, ég var að koma með þá neð- an úr fangageymslu. — Hvað varstu að gera við þá þar? Ég var að sýna þeim hvemig þeir eiga að standa að verki. — Eru þetta eingöngu karl- menn? . Nei, af 17 manns eru þama fjór- ar konur. — Jæja þetta skánar alltaf. Era sumarmennirnir nokkuð færri núna en áður? Já, við voram með 68 í fyrra, nú era þeir 17. — Hvað ertu að segja! Verður ekki bara skálmöld í borginni? Ekki af þeirra völdum. — Nei, ætli það. En hvað fá sumarmenn langa þjálfun? Þeir fá bara eina viku. — Eiga þeir þá að læra á viku það sem aðrir læra á heilum vetri? Þeim er fyrst og fremst kennt hvað þeir mega ekki gera! Nei, það er reynt að kenna þeim sitt lítið af hveiju, en svo er nú fremur litið á þá sem að- stoðarmenn. - í hveiju felst Bjarki Elíasson nú þjálfun þeirra í stuttu máli? Þau læra grandvallaratriðin í réttarfarslögum, fá grandvallar- kennslu í slysahjálp og því hvernig þau eiga að vemda vettvang, læra aðalatriðin í skýrslugerð, fá leið- sögn í sambandi við handtökur og notkun handjáma, hvemig þau eiga að bera einkennisbúninginn, leið- beiningar um það hvemig þau eiga að tala og koma fram við fólk sem þau þurfa að hafa afskipti af í starf- inu, og undirstöðuatriði umferð- arlaga og löggæslu. Það er reynt að kenna þeim það helsta og síðan era þau aðvöruð um að fara að öllu með gát, vera öðram til hjálpar og taka sér hina eldri til fyrirmyndar. — Hvaðan kemur þetta nýja fólk? Það kemur víða af landinu, það era ekki nema ijórir úr Reylq'avík, og aðallega era þetta námsmenn. — En vora ekki að koma nýir lögreglumenn úr skólanum sjálfum? Jú, við útskrifuðum 37 núna 14. maí og þeir era komnir til starfa. — Hveiju kvíða nýliðamir nú mest fýrir heldurðu? Það er alltaf hálfgerður skrekkur í fólki þegar það fer fyrst í einkenn- isbúninginn. Þau era feimin við að mæta skólafélögunum og kvíða líka fyrstu afskiptum af fólki. Það er eðlilegt, ég þekki það sjálfur. — Manstu hvernig það var þegar þú klæddist búningnum í fyrsta sinn? Já, égman vel eftir því. Ég fór fyrst út í jóla- ösina 1953. Þávar sagt við okkur nýliðana, nei þarna er nýr svartbakur! Húf- umar vora ekki hvítar þá, við vor- um allir svartir. - Jæja, ég vona að þetta gangi vel hjá þeim og þakka þér kær- lega fyrir spjallið Bjarki. Jú, sömuleiðis. HVAR ERU ÞAU NÚ? Mörgjám í eldinum Rafn Jónsson var fréttamaður Sjónvarpsins á árunum 1983-84. Þótt sjónvarpsferillinn væri ekki langur og átta ár síðan honum lauk, gerist það enn að fólk heilsar Rafni kumpánlega á almanna- færi - og áttar sig svo á því að það þekkir andlitið en ekki mann- inn. Rafn sýslar margt um þessar mundir. Hann er flugmaður, framkvæmdastjóri, háskólanemi, fjölskyldufaðir og hestamaður., Rafn var blaðamaður á Morg- unblaðinu og Vísi á áttunda áratugnum og fékkst við kennslu. Þá var hann einnig í flugnámi og las sagnfræði við Háskólann. Árið 1981 gerðist Rafn fréttamaður á fréttastofu Ríkisútvarpsins. Tveimur árum síðar fór hann á fréttastofu Sjónvarpsins og vann þar í tæp tvö ár. „Ég ráðlegg ekki nokkrum manni að vinna í sjónvarpi, nema hann sé reiðubúinn að kasta eink- alífinu út um gluggann. Ég gat til dæmis ekki farið á skemmti- staði meðan ég vann í sjónvarpinu og í nokkur ár á eftir. Fólk átti svo margt vantalað við mig, þótt ekki væru umræðuefnin alltaf merkileg. Sem dæmi get ég nefnt atvik sem gerðist áður en skemmtistaðabindindið hófst. Ég var úti að skemmta mér með frúnni þegar maður kom til mín. Honum var mikið niðri fyrir og sagði: „Það er eitt sem mig hefur alltaf langað til að fá á hreint. Hvers vegna skiptirðu í miðju?“ Þegar Rafn hætti hjá Sjónvarp- inu var hann kominn með sjö manna fjölskyldu og átti bágt með að framfleyta henni á launum fréttamanns. Þá stofnaði hann Frétta- og fræðsluþjónustuna. Fyrirtækið fæst við almanna- tengsl og hefur m.a. séð um kynn- ingu á starfsemi Sinfóníuhljóm- sveitarinnar og gefið út fréttabréf fyrir ýmsa aðila. En Rafn var ekki fyrr búinn að stofna fyrir- tækið en hann gerðist flugmaður hjá Flugleiðum. til jafns við verklega þætti náms- ins. Mér finnst mjög áhugavert að vera í skóla og námið opnar augu manns fyrir nýjum mögu- leikum. Mig langar að halda áfram næsta vetur í fjölmiðla- fræði og íslensku.“ Miklar annir koma ekki í veg fyrir að Rafn sinni áhugamálum. „Ég kynntist hestamennsku þegar ég var í sveit sem strákur. Fyrir nokkrum árum fengum við hesta og þetta hefur reynst kjörin tóm- stundaiðja og ánægjuauki fyrir fjölskylduna." Það er enginn uppgjafartónn í Rafni og verkefni ærin. „Ég kvarta ekki yfir því að hafa mikið að gera - en konan hefur haft orð á því að ég sé stundum lítið. við.“ ég vann hjá Ríkisútvarpinu fékk ég frí á sumrin til að fljúga hjá Arnarflugi og um tíma var ég stöðvarstjóri félagsins í Trípólí í Líbíu. Haustið 1984 auglýstu Flugleiðir eftir flugmönnum. Ég sótti um og var ráðinn. Fyrst flaug ég hér innanlands en vár fluttur yfir á þotur tveimur árum síðar. Nú er ég flugmaður á Boeing 737 og flýg til Evrópulanda." í fyrravetur fór Rafn aftur í Háskólann og kenndi einnig tölvu- umbrot og tölvuteiknun í Tölvu- skóla IBM og Stjórnunarfélagsins. „Mér kom þægilega á óvart hvað Háskólinn tekur vel við öld- ungum á borð við mig. Ég lauk námi í hagnýtri fjölmiðlun í vor og lagði áherslu á fræðilega hlut- ann, því starfsreynslan var metin Á vettvangi fyrir Sjónvarpið „Eg hef alltaf haft mikinn áhuga á ferðamálum og unnið við flesta þætti ferðaþjónustu. Meðan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.