Morgunblaðið - 14.06.1992, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
—---------r-r-i-'-
GUR 14. JUNI 1992
■£-J-
Andleg vinátta byggist á áralangri
samveru. Andlegur vinur hefur lært
að treysta okkur og hann virðir þá
góðu eiginleika sem finnast í fari
okkar. Hann hefur gengið í gegnum
súrt og sætt með okkur. Hann þekk-
ir okkur og við erum hluti af hans
eigin sjálfsmynd. Hann er tryggur
þegar við lendum í hremmingum,
sem leiða til þess að margir hætta
að umgangast okkur. Andlegur vin-
ur er því gulls ígildi.
Vinátta myndast ekki aðeins milli
óskyldra einstaklinga. Hún getur
verið milli hjóna, bræðra og systra,
foreldra og bama, frændsystkina,
fullorðinna og unglinga. Vinátta
getur kviknað víða, en yfirleitt ræð-
ur hið sameiginlega úrslitum: 1)
Áhugamál á sama sviði. 2) Líkur
skilningur á lífínu. 3) Svipað sið-
ferði. 4) Líkur húmor. 5) Sama trú.
En það er löngunin til að fylgjast að
í lífínu sem treystir böndin. Vinátta
getur þó haldist þrátt fyrir áralang-
an aðskilnað.
Vinur er lífsnauðsyn og enginn
vill lifa vinalaus, en markmiðið getur
þó aldrei verið að eiga sem flesta
vini. Einn vinur getur verið nóg til
að gera lífíð fullnægjandi. Sá sem á
einn vin hefur mikið að þakka. Hann
ætti að gefa vini sínum margt af
hinu góða í sínu lífí, en lítið af hinu
miður góða. Ein á báti getum við
ekki öðlast næga andlega fullnæg-
ingu í lífínu. Góðviljinn getur aðeins
birst í samskiptum okkar við aðra,
en ekki gagnvart okkur sjálfum.
Lífíð hlýtur að vera meira virði ef
við erum svo lánsöm að geta notið
stundanna með öðmm.
Vinir em ekki á hvetju strái. „Fá-
gætur er góður vinur“, er spakmæli
að sönnu. Það er heimska að van-
rækja vin. Þegar ástfangið fólk hef-
ur náin kynni fellur það oft í þá
gryfju að vanrækja sína gömiu vini
og það eru til dæmi um einstaklinga
sem hafa staðið uppi vinalausir þeg-
ar ástarsamband þeirra slitnar.
Vinasamband á ekki að ijúfa nema
í undantekningartilfellum, til að
mynda eftirfarandi: 1) Ef vinurinn
tekur nýja stefnu í lífínu, sem okkur
er engin leið að fylgja. 2) Vinurinn
bregst trausti eða misnotar sam-
bandið. 3) Vitsmuna- eða til-
fínningaleg gjá myndast á milli vina.
„Enginn á meiri kærleika en þann
að leggja lífíð í sölumar fyrir vini
sína,“ sagði Jesús. Hann tók skýrt
fram að lærisveinarnir væru ekki
þjónar heldur vinir hans og að vinátt-
an byggðist á því að bera elsku til
hvers annars. Traust og ást, eru,
hafa verið og verða alltaf máttar-
stólpar vináttunnar.
LOG UM
AÐFÖR
LOG UM
KYRRSETNINGU,
LÖGBANN o.fl.
ASAMT
GREINARGERÐUM
j&> •
bó M S vQ GK í R KIU MÁLARÁÐ U N EYTHX:
GILDISTAKA 1. |ULI 1992
Vegfna þeirra margháttuðu rétt-
arfarsbreytinga sem eiga sér
stað 1. júlí nk. hefur dómsmála-
ráðuneytið staðið fyrir marg-
háttuðu kynningarstarfi. Hafa
m.a. verið gefnar út sérprentanir
af viðkomandi lagabálkum ásamt
greinargerðum. »
því að leggja hald á eignir skuldara
þegar áfrýjun máls til Hæstaréttar
kemur í veg fyrir að íjámám verði
gert. Núgildandi fyrirmæli um lög-
geymslu er að fínna í norsku lögum
Kristjáns V. frá 1687.
Með lögbanni er átt við aðgerð
til bráðabirgða, sem miðar að því
að setja skorður við byijaðri eða
yfirvofandi aðgerð manns, sem
brýtur í bága við rétt annars manns.
Með lögbanninu er aðgerð stöðvuð
þar til fengist hefur úrlausn dóm-
stóls um réttmæti hennar. Að jafn-
ÞfÓÐLÍFSÞANKAR / / vr á bamibf
Óltk réttarstaða
□
eftir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur
Ef kvæntur maður eignast barn
framhjá konu sinni á kona hans
engan rétt til barnsins. Ef gift
kona eignast hins vegar barn
framhjá manni sínum á eignmað-
urinn allan rétt til bamsins,
nema að hann, móðirin eða bam-
ið ákveði að fara í vefenginarmál
til að afsanna að hann geti verið
faðir barnsins. Réttarstaða karla
og kvenna, innan hjónabands
sem utan, er því nvjög ólík í slík-
um málum.
Eg veit dæmi þess að íslensk
kona giftist lituðum manni,
meðfram til þess að hjálpa honum
til þess að öðlast hér landvistar-
leyfí. Þau bjuggu
skamma hríð sam-
an en slitu svo
samvistum án þess
að gengið væri frá
skilnaði að borði
og sæng. Konan
tók skömmu síðar
upp sambúð með
íslenskum manni
en eiginmaðurinn tregðaðist við að
láta ganga frá skilnaði þrátt fyrir
að konan gerði ítrekaðar tilraunir
til þess að fá því framgengt. Var
maðurinn ýmist í útlöndum eða bar
ýmsu við til að draga málið á lang-
inn. Að Iíkindum hefur maðurinn
verið ófús til skilnaðar vegna þess
að hann óttaðist að verða sviptur
landvistarleyfi ef til hans kæmi.
Um sama leyti og stóð í þessu
þófi varð konan ófrísk eftir hinn
nýja sambúðarmann sinn og mál
skipuðust þannig að barnið fæddist
áður en ráðrúm gæfist til þess að
ganga frá skilnaði konunnar að
borði og sæng frá litaða manninum.
Við fæðingu var bamið því skráð
barn eiginmannsins litaða, jafnvel
þótt hveijum manni væri augljóst
að hann gæti alls ekki verið faðir
þess. í tilviki sem þessu gæti móðir-
in höfðað vefengingarmál, en lík-
lega þætti þá betra að næðist í eig-
inmanninn til þess að taka úr hon-
um blóðprufu, þótt nú sé hægt að
ákvarða faðerni mun nákvæmar en
áður með nýlegri greiningaraðferð.
Um frægt mál af slíku tagi er
getið í bókinni Bréf til Sólu, sem
hefur m.a. að geyma ástarbréf sem
Þórbergur Þórðarson rithöfundur
skrifaði ástkonu sinni, sem í upp-
hafi sambands þeirra var gift kona.
Hún eignaðist dóttur skömmu fyrir
andlát eiginmanns síns, sem þá
hafði lengi legið mjög þungt haldinn
á sóttarsæng. Allar líkur bentu til
þess að Þórbergur væri faðir litlu
stúlkunnar. Vildi hann gangast við
faðerni hennar og höfðað var mál
í því skyni löngu seinna. Þrátt fyrir
vitnaleiðslur og blóðprufur lyktaði
málinu þannig að ekki tókst að
færa þær sönnur á að Þórbergur
væri faðir stúlkunnar, kannski vat
ekki vitað í hvaða blóðflokki hinn
löngu látni eiginmaður hefði verið.
M.a. vegna fyrrnefndra laga má
ætla að all mörg börn hafi í áranna
rás verið rangfeðruð. Slíkt gleður
a.m.k. ekki áhugafólk í ættfræði,
sem mikið er af á íslandi. En rangt
feðruð börn eru svo sem ekki nein
nýlunda hér á landi. í gömlu ættar-
tölum er stundum getið um faðerni
bama með þeim viðauka að viðkom-
andi barn hafí jafnan verið talið
bam einhvers annars tiltekins
manns. Tæknifijógvun, þegar kon-
ur em fijógvaðar með sæði ónefnds
manns en barnið er talið eigin-
mannsins, setur líka strik í reikn-
inginn, hvað ættfræðina varðar.
Lögin um rétt eiginmanns til
bama eiginkonu hans em vafalaust
sett með hagsmuni barnsins fyrir
augum, svo og móðurinnar og eigin-
mannsins. Hinn raunveralegi bams-
faðir virðist hins vegar nánast rétt-
laus ef eiginmanninum, móðurinni
og barninu sýnist svo.
Það þætti vafalaust skrítið ef
réttur eiginkonu til barna manns
síns væri gerður sá sami og réttur
eiginmanns til barna eiginkonu. Um
slíkt hafa menn hins vegar varla
hugsað, hvað þá meira, móðurrétt-
urinn hefur alltaf verið mjög sterk-
ur. Sé þetta mál skoðað í samhengi
sést greinilega hve miklu skynsam-
legra væri að kenna börn við mæð-
ur sínar, slíkri ættrakningu má
treysta. það mun vera vemlega fá-
gætt að börn séu rangmæðmð, þó
dæmi finnist raunar um að slíkt
hafí a.m.k. verið reynt.
aði ber þeim er óskar lögbanns að
setja tryggingu fyrir því tjóni sem
þolandi lögbannsins kann að verða
fyrir vegna þess. Mál til staðfesting-
ar lögbanni skal höfða innan viku
frá því það var lagt á.
Eins og fyrr segir eru það fyrst
og fremst aðskilnaðarlögin sem
kalla á breytingar á lögum um kyrr-
setningu og lögbann. Um leið hafa
verið gerðar breytingar á einstökum
reglum sem taka mið af reynslu
manna af núgildandi lögum. Helstu
breytingamar sem gerðar eru með
hinum nýju lögum eru þessar:
1) Aðalbreytingin varðar fram-
kvæmd þeirra gerða sem þar er
mælt fyrir um. Samkvæmt núgild-
andi lögum framkvæmir dómari
þessar gerðir og em þær þar með
taldar til dómsathafna. í nýju lög-
unum er hins vegar byggt á því að
handhafar framkvæmdavalds, sýsl-
umenn, annist framkvæmd þessara
gerða. Þetta er í samræmi við
megininntak aðskilnaðarlaganna.
2) Með lögunum era skilyrði fyr-
ir kyrrsetningu fjármuna og lagn-
ingu lögbanns þrengd. Að því er
kyrrsetningu varðar kemur þetta
aðallega fram í breyttu orðalagi,
en með því er reynt að undirstrika
að kyrrsetning eigi ekki að fara
fram nema hagsmunir kröfueig-
anda geri slíkt nauðsynlegt. í grein-
argerð kemur fram að þetta sé
m.a. gert þar sem nokkuð hafí bor-
ið á því í framkvæmd að kyrrsetn-
ing væri misnotuð. Eðlilegt er að
spoma við slíku þar sem kyrrsetn-
ing hefur í för með sér aukna fyrir-
höfn og kostnað. Jafnframt em
afnumin ýmis sérákvæði laga um
heimildir til kyrrsetningar fyrir ein-
stökum tegundum krafna.
3) Með lögunum em settar um
margt nákvæmari reglur um trygg-
ingar af hálfu gerðarbeiðandi í
tengslum við kyrrsetningu og lög-
bann. í því sambandi er einnig rétt
að nefna sérstaklega að reglur lag-
anna um heimild gerðarþola til að
afstýra gerðinni með tryggingu em
um margt ítarlegri en reglur núgild-
andi laga.
4) Reglur laganna um höfðun
dómsmáls til staðfestingar kyrr-
setningu eða lögbanni samsvara í
öllum meginatriðum núgiidandi lög-
um. Þó má benda á að nýju ’lögin
gera ráð fyrir að komast megi hjá
höfðun máls til staðfestingar kyrr-
setningu eða lögbanni ef gerðarþoli
vill una við gerðina án málshöfðun-
ar, en heimild til slíks er ekki í
núgildandi lögum. Þá er einnig
heimild til að ljúka staðfestingar-
máli með sátt.
Auk þeirra breytinga sem hér
hafa verið nefndar gera lögin ráð
fyrir margvíslegum breytingum
sem varða framkvæmd þessara
gerða, aðgerðir sem grípa má til
samhliða lögbanni til að tryggja að
gegn því verði ekki brotið o.fl. Að
síðustu má geta þess að samkvæmt
núgildandi lögum er heimilt að kyrr-
setja mann vegna skulda. Með nýju
lögunum er heimildin afnumin með
þeim rökum, að slík aðgerð sam-
rýmist tæplega almennum viðhorf-
um um hveijar ráðstafnir ver 3i tald-
ar eðlilegar til innheimtu eða trygg-
ingar peningakröfu.
Trjáplönturunnar
Á meðan birgðir endast bjóðum við eftirtaldar tegundir
á ótrúlega hagstæðu verði:
Hansarós frá kr. 340, gljámispill á kr. 140-190, birki-
kvistur kr. 240, gljávíðir í pokum kr. 95. Að auki mjög
fjölbreytt úrval sumarblóma, rósa og annarra trjá-
plantna og runna.
Útsölustaðir:
Garðyrkjustöðin Grímsstaðir, Heiðmörk 52,
Hveragerði, sími 98-34230,
Hellisgerði, Hafnarfirði,
Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur,
Heiðmörk 38, Hveragerði,sími 98-34800,
Trjáplöntusalan Núpum, Ólfusi, sími 98-34388.
Sendum um allt land. Sendum plöntulista.
Veriðvelkomin.
BEIlEDOKin
ALICANTE
18. M\
25. ]úní
f r
ODYR VIKUFERD
Fjórir fullorðnir 2ja svefnh. íbúð
kr. 32.200,-
Aðeins 10 sæti í boði.
a mann.
Gisting á LEVANTE CLUB
Skemmtileg og góð aðstaða.
Flugvallarskattar og gjöld kr. 3.450,-
ekki innifalið í verði.
.
V i '•ATÍv" '•
FERÐASKRIF &TOFA
REYKJAVÍKUR
AÐALSTRÆTI 1 6
SÍMI 91-621490