Morgunblaðið - 14.06.1992, Page 15

Morgunblaðið - 14.06.1992, Page 15
14 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992 c 15 ■C4i t. W; BM LUNDUff' D&tjskjpi f^he^taq wjeíhb ' ISíwV QWsmj^ Mtnnlaskotii aaBL&i *%'// ■' /\ w rmff§rrw>\ Morgunblaðið/Sverrir Forsögn að deiliskipulogi í Fossvogsdal gerir ráð fyrir að þar verði meðal annars útivistarsvæði, skrúðgarðar og aðstaða fyrirtvö íþróttafélög. Austast og vestast í dolnum erusvæði, sem tillagan nær ekki til og er aðalskipulagi frestað þar til ákvörðun um jarðgöng liggur fyrir. SAMSTARFSNEFND REYKJAVÍKUROG KÓPAVOGS FOSSVOGSDALUR VERÐI UTIVISTARSVÆÐI Svo virðist sem samkomulag hafi tekist um framtíðarskipulag í Fossvogsdal eftir deilur, sem risu milli Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar ó síðasta kjörtímabili. Skipuð var samstarfsnefnd bæjarfélaganna, sem meðal annars hefur unnið forsögn að deili- skipulagi í dalnum. hefur það verið lagt fyrir bæjarráð Kópavogs og borgarráð Reykja- víkur. Þar er gert ráð fyrir að í dalnum verði útivistarsvæði og aðstaða fyrir íþróttir, breyting verði gerð á lögsögunni og að ákvörðun um legu Fossvogsbrautar verði tek- in síðar en að hún muni ekki verða lögð eftir botni dalsins. Er þar vísað til aðalskipu- lags Kópavogs 1988-2008 og aðalskipulags Reykjavíkur 1990-2010. Nefndin er sammála um að leggja til að þegar í stað verði opnaður til bráðabirgða möguleiki fyrir gangandi umferð undir Kringlumýrarbraut við Fossvogslæk og tryggja þannig örugg tengsl milli útivistarsvæðisins í Öskjuhlíð og Fossvogsdals. Ánægjulegt samstarf „Það er ánægjulegt að nú skuli hafa tek- isf goft samstarf milli sveitarfélaganna," sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi og formaður skipulagsnefndar Reykjavíkur, en hann er í forsvari fyrir samstarfsnefnd- inni ásamf Gunnari Birgissyni forseta bæjar- stjórnar Kópavogs. „Eins og allir vita hefur töluverð umræða farið fram á undanförnum árum um skipulag, umhverfi og umferð um dalinn og er óhætt að fullyrða að sú for- sögn að deiliskipulagi, sem lögð hefur verið fram marki tímamót. Forsögnin er jafnframt góður grunnur að því skipulagi, sem nánar þarf að útfæra í dalnum til þess að hann verði aðgengilegur fyrir gangandi og hjól- andi vegfarendur. Með þessari forsögn er gert ráð fyrir að heildstætt útivistarsvæði í Reykjavík og Kópavogi stækki verulega en dalurinn nær yfir tæpa 34 hektara." Sagði Vilhjálmur að fyrir lægi samsvarandi niður-. staða varðandi vegtengingu milli austur- og vestursvæðis eins og staðfest aðalskipulag sveitarfélaganna gerði ráð fyrir eða með jarðgöngum milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar. „Ég tel meiri líkur ó að jarðgöngin verði gerð til hliðar við dalbotn- inn þegar að þeim kemur og vil ég minna á að jarðgöng eru mun aðgengilegri kostur en fyrir 10 til 20 árum. Tæknikunnáttu hefur fleygt fram og kostnaður er viðráðan- legri,“ sagði hann. Tímabært að leysa deiluna Gunnar Birgisson sagði að bæjarráð Kópa- vogs hafi tekið jákvætt í drög að deiliskipu- lagi í Fossvogsdal. „Okkur lísf vel á þessa niðurstöðu," sagði hann. „Það var orðið tíma- bært að menn settust niður og leystu þessa deilu og fækju upp samstarf. Fossvogsdalur- inn er útivistarperla á höfuðborgarsvæðinu en dalurinn hefur verið í órækt og mál til komið að gera hann aðgengilegri fyrir al- menning. Fyrsta sameiginlega verkefni sveit- arfélaganna var skolpveitan um Skerjafjörð og hreinsun strandlengjunnar á höfuðborgar- svæðinu en í framtíðinni sé ég fyrir mér fleiri verkefni eins og endurskoðun á lögsög- unni og samræmdar almenningsvagnasam- göngur." Áhersla á útivist Forsögnin gerir ráð fyrir að daiurinn verði opið svæði með áherslu á útivist og trjá- rækt. Vestast við gróðrarstöð Skógræktarfé- lags Reykjavíkur verði dalurinn færður sem næst „náttúrulegu" umhverfi og um miðbik dalsins við Snælandsskóla er gert ráð fyrir íþróttasvæði Handknattleiksfélags Kópavogs og skólagörðum. Fram hefur komið fyrir- spurn frá Golfklúbbi Kópavogs um aðstöðu fyrir golf sunnan við íþróttasvæði Víkings í Stjörnugróf. Sagði Vilhjálmur að ræft hafi verið um að koma þar upp púttvelli eða minni golfvelli með fjölskyldufólk í huga. Þá er gert ráð fyrir að athafnasvæði Víkings verði stækkað og verða fimm íþróttavellir samtals í dalnum. Þrír á Víkingssvæðinu og tveir á félagssvæði Handknattleiksfélags Kópavogs en þar er einnig gert ráð fyrir félagsheimili HK ásamt sund- og baðað- stöðu. Jafnframt að við Álfatún verði skíða- brekka og að þar verði sett upp lítii skíða- lyfta og jafnvel kerfi fyrir gervisnjó en skíðabrekkur eru víða í dalnum. Þá mætti fara á skauta á tjörnum sem gerðar yrðu í dalnum. Svæði verði vernduð Trjálundir í Skógræktar- stöð Skógræktarfélags Reykjavíkur og umhverfi Fossvogslækjar vestast í dalnum verði vernduð svæði auk afmarkaðra Gunnar Birgisson forseti bæjarstjórnar Kópavogs og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi og formaður skipulagsnefndar Reykjavíkur. mýrarsvæða. Tvær gróðr- arstöðvar verði í dalnum, Mörk við Stjörnu- gróf og Skógræktarstöð Skógræktarfélags Reykjavíkur. Þá er gert ráð fyrir tveimur skrúðgörðum, það er við Hólmagarð í austan- verðum dalnum og hinn við Snælandsskóla. Fossvogslækur rennur í djúpum skurði eft- ir endilöngum dalnum en gert er ráð fyrir að farvegi Fossvogslækjar verði breytt á svæðinu milli Skógræktarfélags Reykjavíkur að Snælandsskóla og lækjarbakkarnir lækkað- ir. Milli Snælandsskóla og Fossvogsskóla hefur verið sett fram hugmynd um að lækur- inn verði í stokk eða röri til að greiða fyrir umferð um svæðið. Jafnframt er gert ráð fyrir að fjölgað verði gönguleiðum um dalinn en stígarnir eru mikilvægar samgönguæðar^ milli íbúðarhverfa. Tveir aðalstígar liggja sinn hvorum megin við Fossvogslæk en einnig er gert ráð fyrir reiðleið eftir dalnum allt að Lundi við Kringlumýrarbraut. Bæjarráð Kópavogs og borgarráð Reykja- víkur hafa vísað skipulagsdrögunum til um- fjöllunar í undirnefndum. K.G.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.